1.9.2012 | 14:57
Eitraðar sparperur - væri ekki betra að sleppa þessu?
Það kom fram í vikunni sem er liðin að á næstunni verða gamaldags glóðarperur "bannaðar" og einungis heimilað að nota svokallaðar "sparperur" sem innihalda "kvikasilfur." Það er einmitt vandi, því kvikasilfur er mjög eitrað - ekki einungis að það sé hættulegt heilsu fólks, heldur getur það eitrað grunnvatn. Því má ekki farga slíkum perum með venjulegum aðferðum. Og - - þ.s. er mjög mikilvægt ÞAÐ MÁ ALLS EKKI BEITA RYKSUGUNNI Á BROTIN, EF ÞAÐ ER SPARPERA SEM DATT OG BROTNAÐI, ÞVÍ ÞÁ DREIFIRÐU EITRINU Í LOFTIÐ Í ALLRI ÍBÚÐINNI.
Hér má sjá ágæta lýsingu á sparperum: Compact fluorescent lamp
Leiðbeiningar um hreinsun frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum: Cleaning Up a Broken CFL
- Það á að opna strax alla glugga í herberginu.
- Bannað að ryksuga brotin upp, því þá dreifirðu eitrinu enn meir í loftið.
- Þú slekkur á lofthreinsibúnaði ef slíkur er til staðar, sví sá dreifir eitrinu víðar.
- Þú átt að hreinsa brotin upp með rökum klút, eða kústi og sóp.
- Brotin á síðan að setja í lokaðann poka eða krukku með loki - því eitrið heldur áfram að seytla frá brotunum.
Maine Compact Fluorescent Lamp Breakage Study Report
- Mercury concentration in the study room air often exceeds the Maine Ambient Air Guideline (MAAG) of 300 nanograms per cubic meter (ng/m3) for some period of time, with short excursions over 25,000 ng/m3, sometimes over 50,000 ng/m3, and possibly over 100,000 ng/m3 from the breakage of a single compact fluorescent lamp.
- A short period of venting can, in most cases, significantly reduce the mercury air concentrations after breakage.
- Concentrations can sometimes rebound when rooms are no longer vented, particularly with certain types of lamps and during/after vacuuming.
- Mercury readings at the one foot height tend to be greater than at the five foot height in non vacuumed situations.
- Flooring surfaces, once visibly clean, can emit mercury immediately at the source that can be greater than 50,000 ng/m3.
- Flooring surfaces that still contain mercury sources emit more mercury when agitated than when not agitated.
- This mercury source in the carpeting has particular significance for children rolling around on a floor, babies crawling, or non mobile infants placed on the floor.
Mercury leaks found as new bulbs break
"...created localized concentrations as high as 0.025 mg/m3 in air close to the carpet, even weeks after the initial breakage."
Takið eftir, að þó herbergið sé hreinsað vel og vandlega, er enn til staðar kvikasilfur eitrun í minnkuðum mæli, en eitrun er meiri skammt fyrir ofan gólf - en ofar.
Skv. því er hættan mest fyrir smábörn sem skríða á gólfi, og sleikja gjarnan leikföng sem þau þess á milli láta liggja á gólfinu.
Stóra málið - láta ekki fjandans perurnar brotna!
Þetta er þó klárt - að með því að skipta út gömlu perunum fyrir hinar nýju orkusparandi, er verið að auka á heilsufarsógnanir á heimilum, sérstaklega fyrir smábörn!
Emissions from compact fluorescent lights
"The Agency's view is that open (single envelope) CFLs shown in Fig. 1 should not be used where people are in close proximity - closer than 30 cm or 1 ft - to the bare light bulb for over 1 hour a day."
Þetta er áhugaverður viðbótarpunktur - en þetta beinist að vinnuljósum sem fólk hefur t.d. á borðinu sínu, og hefur því afskaplega nærri sér, eða rétt yfir sér sem lýsir beint á vinnusvæði - er mjög nærri starfsmanni.
Ef ljósperurnar eru þannig, að þetta eru óvarðar pípur t.d. í vafning, en ekki með glerhjúp utan um allt dæmið, þá gefi þær frá sér útfjólublátt ljós.
Þetta sé þó ekki varasamt, nema ef ljósið er cirka innan við 30cm. frá viðkomandi, að ljósið er notað klukkustundum skiptir daglega.
Það á einmitt oft við um vinnuljós að þau eru gjarnan afskaplega nærri, og margir vinna við þau klukkustundum saman á degi hverjum.
Það þarf sem sagt að kaupa þessa týpu:
Í stað þessarar hérna:
Í öllum tilvikum er þó sama hættan af kvikasilfurseitrun.
Nema að magnið af kvikasilfri er breytilegt eftir stærð og umfangi peranna, meir auðvitað í löngum ljóspípum en litlum sem eiga að komast í venjuleg skrúfuð ljósastæði.
Ljóspípur eru þó oft bakvið hlífðarhjúp en þó ekki alltaf.
Niðurstaða
Málið með þetta er að jafnvel þó eitrunarhættan sé ef til vill ekki alvarlegri en mörg önnur eitrun sem við höfum í nær umhverfinu, þá er þetta viðbót - og þ.s. meira er, óþörf viðbót.
En hérlendis þarf ekki að spara rafmagn, eins og þarf að gera í Evrópu og Bandaríkjunum.
Á kolasvæðum þ.s. rafmagn er framleitt í kolaorkuverum minnka sparperur líklega kvikasilfurs mengun í lofti almennt, því það fylgir kvikasilfursmengun kolaorkuverum.
En á svæði þ.s. orka er framleidd með vatnsafli megni til, þá er þetta augljós "hrein viðbót" við mengunarhættu.
Að auki - algerlega óþörf heilsufarshætta.
Nýting sparpera hér - sparar ekki gramm af CO2.
Fyrir okkur er tvímælalaust skynsamara - að nota áfram gömlu perurnar, spara þannig mikinn kostnað við sérstaka förgun hinna nýju pera og að auki að spara þá viðbótar mengunar- og heilsufarshættu sem sparperunum fylgir.
Að eigi að síður þvinga upp á okkur þessar erlendu reglur - það er einfaldlega "tegund af fanatík."
En við þurfum ekki að taka upp þessa reglugerð, þó svo hún sé hluti af EES dæminu, en þ.e. afskaplega ólíklegt að þó við heykjumst við að framfylgja henni að við værum beitt gagnaðgerðum eða mótaðgerðum.
Sparperur eru líklega skynsamur kostur á kolasvæðum, t.d. Bretlandi og Þýskalandi, og í Bandaríkjunum þ.s. einnig er víða knúið með kolum eða olíu.
-------------------------------
Svo hefur komið fram að þeir sem framleiða- eða vinna beint við förgun eru í sérstakri hættu. Þarf að viðhafa allar varúðarráðstafanir í tengslum við förgun eiturefna. Ef þess er ekki gætt hefur komið í ljós t.d. í Kína, að starfsmenn hafa orðið fyrir heilsufarsbresti í fyrirtækjum sem starfa við framleiðslu eða förgun slíkra pera.
Kv.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al-Assads, fo...
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerlega ræður h...
- Sigur Donalds Trumps, stærsti sigur Repúblikana síðan George ...
- Ef marka má nýjustu skoðanakönnun FoxNews - hefur Harris þokk...
- Kamala Harris virðist komin með forskot á Trump í Elector-Col...
- Það að Úkraínuher er farinn að sprengja brýr í Kursk héraði í...
- Úkraínuher hóf innrás í Kursk hérað sl. mánudag! 5 dögum sein...
- Möguleikar Kamölu Harris til hugsanlegs sigurs á Donald Trump...
- Leiðir ris J.D. Vance - til fullkominna yfirráða milljarðamær...
- Er fall bandaríska lýðveldisins yfirvofandi - vegna ákvörðuna...
- Sérfræðingar vaxandi mæli þeirrar skoðunar, 2025 verði lykilá...
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
Nýjustu athugasemdir
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Margar þjóðir eru tibúnar að hjálpa til við uppbygginguna en sú... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Grímur Kjartansson , Sýrland er efnahagslega rjúkandi rúst - ei... 9.12.2024
- Mögnuð atburðarás hefur leitt til falls, Bashar al...: Mér skilst að al-Jilani hafi keypt sér liðveislu USA með því a... 9.12.2024
- Þorgerður Katrín í oddaaðstöðu! Hún líklega algerl...: Ásgrímur Hartmannsson , grímur -- Viðreisn er hægri flokkur. Ha... 8.12.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- gudspekifelagid
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einar, ef EES/ESB krefðist þess að Gvendarbrunnavatnið okkar yrði klórblandað, þá er næsta víst að sú reglugerð yrði samþykkt á Alþingi án skoðunar og umræðu.
Kolbrún Hilmars, 1.9.2012 kl. 16:45
Sæll Einar,
Ég skoðaði þetta í fyrra eða svo og komst að því að ef skipt væri um allar perur hér í Bandaríkjunum einu sinni á ári, þá væri kvikasilfursmengunin aðeins um 1/5 eða 1/6 af því sem kolaverin hérna setja í andrúmsloftið á einu ári. Þessar perur hafa verið einstaklega endingargóðar hjá mér og ég hef verið að skipta um perur núna sem eru sennilega hátt í 10 ára gamlar.
Ég vil líka benda á að flúrpípur eru líka með kvikasilfri og þær hafa verið í notkun áratugum saman og innihalda sennilega samanlagt meira heildarmagn af kvikasilfri heldur en CFL, því flúrpípur eru notaðar í nánast öllu iðnaðarhúsnæði út um allan heim.
Ég er sammála að það er ekki stór nauðsyn fyrir þær á Íslandi, en ég hef sparað bæði í perukostnaði og rafmagni með þeim. Reyndar sendir rafveitan hérna í Port Angeles okkur 6 fríar perur árlega:)
Arnór Baldvinsson, 1.9.2012 kl. 17:32
Þessi reglugerð ESB er enn eitt dæmið um þá forsjárhyggju sem ríkir innan sambandsins.
Það er ljóst að lýsing kostar peninga og auðvitað vilja allir lækka þann kostnað, hvort heldur rafmagnið er framleitt í kola- eða olíuorkuveri eða framleitt í vatnsorkuveru. Ef hægt er að lýsa upp á ódýrari hátt á auðvitað að stuðla að því.
En að gera slíkt með valdboði er eki vænlegt til árangurs, nær er að gera þetta eftir öðrum leiðum, t.d. með því að hafa sparperur ódýrari en glóðarperur. Vinna þetta útfrá sjónarmiði neytandans.
En það fáráðnlega við þetta allt er þó sú leið sem ESB fór. Að skipta út glóðarperum fyrir kvikasilfursperur, með valdboði.
Það eru til aðrar og umhverfisvænni sparperur en kvikasilfursperurnar. Það eru LED ljós. Sú tækni var til þegar reglugerðin var samin, en einhverra hluta vegna var ekki valin sú leið hjá kommisörum ESB. Hví skyldi það vera? Er hugsanlegt að einhverjir þeirra eigi hagsmuna að gæta? Getur verið að einhverjir þeirra sem komu að samningu reglugerðarinnar eigi hlut í fyrirtæki sem framleiðir kvikasilfursperur?
LED ljós nota enn minna rafmagn en kvikasilfursperur, gefa mun betri birtu og ending þeirra mun lengri.
Þann tíma sem ég mun verða að nýta upp minn lager af glóðarperum, mun ég nota til að skipta út fyrir LED ljós. Kvikasilfursperur munu ekki inn á mitt heimili koma!!
Gunnar Heiðarsson, 1.9.2012 kl. 21:30
Gott mál hér og tek undir mál Kolbrúnar því að þannig er að á meðan Jóhanna er við völd þá verður allt frá Evrópusambandinu samþykkt, þökk sé Steingrími.
Gamla glóperan hefur verið lífseig og á nokkur ár eftir vegna þess að hún er ódýr og ekki mjög skaðleg og dugar lengi, tildæmis í geymslum þar sem venjulega er kveikt stutta stund og svo slökkt dögum saman.
Mjög heppilegt væri að stökkva yfir þetta kvikasilfurs sparperu dæmi og hinkra þar til aðrar gerðir sanna gildi sitt á vitrænu verði.
Hrólfur Þ Hraundal, 1.9.2012 kl. 22:52
LED ljós eru mun betri valkostur - eyða minnstu, innihalda ekki kvikasilfur og hafa "betri" birtu en flúrperurnar.
Þær eru hinns vegar dýrar: Ég reiknaði út að það myndi kosta migum 400.000 að skipta alfarið í LED perur heima hjá mér.
Þróunin á þeim er hins vegar mjög hröð og verðið lækkar jafnt og þétt.
Púkinn, 2.9.2012 kl. 13:46
Arnór - þ.e. a.m.k. ekki ástæða til að banna glóðarperur.
Ef fólk kýs að nota dýrari en endingerbetri kostinn, er það hið besta mál.
Það er þá þeirra val.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 2.9.2012 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning