Ákvarðanir Írans merkilega hugrakkar, Bretar klárlega settir í sinn stað með tit for tat töku Írans á bresku skipi!

Flestir ættu að vita sl. föstudag tók Íran olíuflutningaskip í mynni Persaflóa sem sigldi undir bresku flaggi - Íranar fara ekkert leynt með að taka skipsins er svar við töku Breta nokkru á undan á írönsku olíuflutningaskipi við Gibraltar af breskum sjóliðum.
--Mér finnst þessi íranska aðgerð sýna að stjórnin þar virkilega gefur ekki eftir þumlung.
--Síðan auðvitað er Bretland í veikri stöðu, einungis fölur skuggi af því veldi sem Bretland einu sinni var!

Image result for british ship taken iran

Taka breska skipsins er augljóslega auðmýkjandi, það er í reynd ekkert sem Bretland getur gert í stöðunni nema semja við Írana!

Bretar virðast hafa vanmetið líkleg viðbrögð Írana er íranska skipið var tekið á leið inn á Miðjarðarhaf þarna á undan!

There was an underestimation about what the consequences of this would be and the inevitability of an Iranian reaction, - said Sir John Sawers, the former chief of MI6, the UK’s secret intelligence service - This was bound to be seen in Iran as an action in support of US sanctions against Iran rather than in support of EU sanctions against Syria.

Maður veltir fyrir sér hæfni þeirra sem tóku þá ákvörðun í Bretlandi, að hafa ekki séð fyrir þau afar sennilegu viðbrögð Írans, að taka skip á móti.

Mótbárur Breta að tilgangur hafi verið að stoppa skipið frá því að fara til Sýrlands - sem liður í refsiaðgerðum Evrópusambandsins; voru töluvert veiklaðar eftir yfirlýsingu utanríkisráðuneytis Spánar á þann veg - Bretar hefðu tekið þá ákvörðun eftir beiðni frá Bandaríkjunum.

The priority now has to be to find a negotiated way out with both tankers being released, -- Sir John said.

  1. Ég sé ekki hvaða aðra leið Bretar geta farið - ef eins og þeir halda fram maður tekur það alvarlega sem þeir segja, þeir vilji ekki stríð við Íran, þvert á móti hafi áhuga á að draga úr spennu!
  2. Þannig séð, gæti atburðarásin orðið að tækifæri til þess fyrir bresk yfirvöld, ef þeim raunverulega er alvara þar um - þ.e. hefja tilraunir til spennu-slökunar, með því að ræða við Írana um skipti á skipum.
  3. Síðar mætti hugsa sér, ef skipti fara með velheppnuðum hætti fram, að Bretar ef þeir vildu gætu leitt tilraun til viðræðna milli hugsanlega Bandar. og Írans.

Hinn bóginn má velta fyrir sér tilgangi Bretlands í tillögu til Evrópusambandsins, þ.s. ESB er hvatt til þess - að taka þátt í aðgerð til að bæta þ.s. kallað er öryggi sjófarenda við Persaflóa -- sem vart yrði gert með öðrum hætti en ESB aðildarlönd önnur en Bretland mættu með herskip á svæðið: UK calls for European alliance to guard Gulf shipping.

  • Ef ég væri ráðamaður í helstu löndum sambandsins, þá mundi ég óttast þann möguleika að slík aðgerð leiddi til þess, að ESB yrði dregið inn í spennu-ástandið á svæðinu með hætti sem Íranar mundu líklega líta, stuðning ESB við aðgerðir Bandaríkjanna!
    --Bandaríkin vilja ólm fá ESB lönd í það lið!
  • Það tónar frekar sem bresk tilraun til slíks, en hugmynd að spennu-slökun.

Saeed Laylaz, a reformist analyst of Iran’s political economy. -- Britain has a new Iran strategy and is so far the only country which has in practice got involved in helping the US aggression gainst Iran, -- We had no choice but to react and remind Britain that this is not 1953

Ég held það geti verið töluvert til í þessu, að Íranar hafi þannig séð -- sýnt Bretum að þeir séu ekki heimsveldi lengur.

Bretar hafa nú skýrt val, þ.s. engin aðgerð sem ekki mundi færa spennuna á miklu mun hærra stig er möguleg, til að ná skipinu aftur.

Þannig ef Betum er alvara með því að vilja draga úr spennu, eins og þeir sjálfir segjast vilja, þá er valið skýrt -- þeir þurfa að semja um málið við Írana!

--Þetta er vissum hætti pattstaða, Íran getur einungis þrýst á Breta um að sleppa íranska skipinu, með þessari aðferð -- Bretar sjálfir geta í reynd ekkert gert Íran er mundi ekki leiða líklega beint til stríðs.

 

Niðurstaða

Það er ekkert sem við á Íslandi getum annað gert en að fylgjast með fjölmiðlum. Ég ætla enn að halda mig við þá spá -- stríð sé ólíklegt!
--Þeir einu er gætu grætt á slíku stríði, væru olíuríki önnur en Íran og Írak.
--En olíuverð færi í hæstu hæðir.
Bandaríkin sjálf líklega mundu tapa stórfellt á því að hefja slík átök, þ.s. ég er þess fullviss Íranar mundu ekki gefast upp, Íran er nærri eins fjöllótt og Afganistan en miklu fjölmennara, auk þess að enginn vafi geti verið að Pútín mundi smygla vopnum til Írans, Kína væri einnig líklegt til að styðja Íran.
Algerlega viss, Bandaríkin mundu aldrei hafa úthald í stríð á þeim skala lengi, þ.e. Lýbanon þ.s. Hesbollah væri með, Sýrland þ.s. Hesbollah og Íran er einnig þar með herlið, Írak þ.s. fjölmennir vopnaðir Shíta herflokkar mundu ganga í lið með Íran, og auðvitað Íran.
Útkoman mundi fyrir rest verða Bandar. hrökkluðust brott eftir mikið mannfall, ótrúlegan kostnað og fullkomlega hruninn orðstír!

Ég held að Íranar átti sig á þessu, að þrátt fyrir allt séu Bandaríkin ólíkleg að hefja stríð -- sem líklega skýri hugrakka stefnu Írans! Að Íran gefur ekki eftir þumlung.

Heilt yfir verður maður að líta svo á að Bretar hafi farið heimskulega að.
Og Íran hafi sýnt Bretum hversu veik þeirra staða sé raunverulega!

Þrátt fyrir allt er þó stríð mögulegt, mann grunar Bolton vilji stríð - Pompeo kannski einnig; en ég er nokkuð viss að Donald Trump ætlar sér ekki í stríð.
--En hann sé að spila samt sem áður hættulegan leik, með því að fara svo langt eftir vilja Saudi-Araba og Ísraela í málinu -- hann gæti misst stjórn á atburðarásinni, ein röng ákvörðun er allt og sumt!

Dómur sögunnar yrði harður ef hann leiddi Bandar. inn í slíkt stríð.

 

Kv.


Bloggfærslur 23. júlí 2019

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Eldri færslur

2025

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Trump tollastrid bidstada
  • Markaðir Bandar. H
  • Markadir Bandar. heimur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 449
  • Frá upphafi: 869762

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 401
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband