Paul Manafort um hríđ kosningastjóri Trumps samţykkir ađ vinna međ Robert Mueller

Örugglega stórfrétt vikunnar í bandarísku samhengi, ađ Robert Mueller sé nú búinn ađ hafa sigur í enn einni rimmunni. Sú viđ Robert Manafort var sérdeilis hörđ. Á föstudag hinn bóginn, lagđi hann niđur skottiđ -- viđurkenndi sekt um ţau 4 ákćruatriđi, sem undirréttur hafđi nýveriđ dćmt hann sekann.
--Í stađinn virđist ađ önnur 8 ákćruatriđi verđi felld niđur.
--Síđan háđ ţví ađ hvađa marki hann reynist samvinnuţíđur Mueller, ţá getur hann átt von á afslćtti af heildarrefsingu fyrir atriđin 4 sem hann samţykkir sekt um.

Trump - Manafort hliđ viđ hliđ ţegar allt lék í lyndi

Trump ex-campaign head Manafort changes mind, cooperates in Russia probe

Manafort to co-operate with Mueller probeff

  1. "Manafort made millions of dollars working in Ukraine before taking an unpaid position with Trump’s campaign for five months."
  2. "He led the campaign when Trump was selected as the Republican presidential nominee at the party convention."
  3. "Manafort was present at a June, 2016, Trump Tower meeting with a Russian lawyer at which his son expected to receive possibly damaging information about election opponent Clinton."
  • "The plea agreement requires him to cooperate completely with the government, which includes giving interviews without his attorney present and testifying before any grand juries or at any trials."

Hversu alvarlegt ţetta er fyrir Trump er algerlega óţekkt!

Manafort er greinilega hankađur á skattalagabrotum tengdum tekjum sem hann aflađi sér í vinnu fyrir stjórnvöld Úkraínu - árin fyrir svokallađa Úkraínukrísu, m.ö.o. hann hafi faliđ á annan tug milljóna dollara í tekjum fyrir bandarískum skatt-yfirvöldum.
--Skattalagabrot eru alltaf litin alvarlegum augum af bandarískum yfirvöldum.

En hvort hann veit eitthvađ sem skiptir máli - er annađ mál.
En vart hefur Mueller samţykkt ađ veita honum "plea bargain" ef hann metur Manafort ekki hafa neitt í pokahorninu - og Manafort hefur ţurft ađ sýna honum eitthvađ bitastćtt, til ađ fá slíkt samkomulag fram.

Ţekktu stađreyndirnar eru ţćr, ađ Manafort var um nokkra hríđ, kosningastjóri Trumps.
Og Manafort var á frćgum Trump turns fundi, ţ.s. Donald Trump yngri, Jared Kushner - hittu rússneskan lögfrćđing, sem var ađ bjóđa til sölu meintar skađlegar upplýsingar um Hillary Clinton.
--Ţađ sem ţeir sem á ţeim fundi voru hafa hingađ til allir neitađ, er ađ kaup slíkra upplýsinga hafi fariđ fram.

Hinn bóginn er ţađ brot á bandarískum kosningalögum, ađ kaupa upplýsingar af erlendum ríkisborgara međ ţađ markmiđ í huga - ađ hafa áhrif á kosningahegđan innan Bandaríkjanna.
--Ţađ er aftur á móti löglegt, ađ kaupa "dirt" af öđrum bandarískum einstakling.

  • Ef Mueller fćr Manafort til ađ vitna um ađ - ólögleg kaup af slíku tagi hafi fariđ fram á ţeim fundi, sérstaklega ef Manafort hefur einhver gögn í höndum -- gćti Mueller hjólađ í Jared Kushner, eiginmann Invönku Trump dóttur forseta Bandaríkjanna eđa jafnvel Donald Trump yngra, son forseta Bandaríkjanna.

--Fyrir utan ţetta, er ţađ einnig spurning - hvađ annađ hugsanlega Manafort veit og enn frekar, hvađ Manafort hugsanlega getur sannađ!

Talsmađur Hvíta-hússins var ekki sein ađ neita ţví ađ máliđ tengdist hugsanlega forsetanum!

Sarah Sanders - "This had absolutely nothing to do with the president or his victorious 2016 presidential campaign,..." - "It is totally unrelated."

 

Niđurstađa

Hvort sem mönnum líkar verr eđa betur, ţá virđist Robert Mueller vegna vel í sinni rannsókn upp á síđkastiđ - hann er nú komin međ röđ "plea bargain" samninga viđ margvíslega einstaklinga sem tengjast Trump međ einum eđa öđrum hćtti.
--Nú mćtti Mueller far ađ sína spilin, ţví eitthvađ bitastćtt hlýtur ađ felast í öllum ţessum vitnisburđum sem hann nú rćđur yfir. Annars vćri hann vart ađ ţessu.

--Spurning, mun Donald Trump fyrir rest yfirgefa Hvítahúsiđ í handjárnum?

 

Kv.


Bloggfćrslur 14. september 2018

Um bloggiđ

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Eldri fćrslur

2025

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Trump tollastrid bidstada
  • Markaðir Bandar. H
  • Markadir Bandar. heimur

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 448
  • Frá upphafi: 869768

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 399
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband