7.1.2013 | 00:45
Er það of gott til að vera satt, kjarnorka án hliðarverkana? Er lausn orkuvanda heimsins á næsta leiti?
Ég rakst á grein, sem sagði frá því. Að Kína og Japan eru í dag, að hanna nýja kynslóð af kjarnorkuverum. Sem líklega munu nýta svokallaðan "Thorium-Fuel-Cycle" og líklega nota tegund af kjarnaofni, kallað "Liquid fluoride thorium reactor."
Það sem er sagt er af hvatamönnum þessarar nýju gerðar, er að nánast hver einasti galli sem er við nýtingu á kjarnorku í dag - - sé unnt að kveðja; þ.e. bæ, bæ - - ókostir.
Sjá m.a. síðuna: energyfromthorium.com
- Það á að vera unnt að eyða upp í nær öllu hættulegu kjarnorkueldsneyti heimsins, með því að blanda því saman við eldsneytið, í þessari hönnunarstúdíu, er myndi nota Thorium blöndu í saltlausn, og starfa við ca. 700°C. Hin endanlega útkoma, hafi hálflíf upp á 30 ár. Þau aukaefni sem sannarlega verða til, með lengri hálflíf sé unnt að setja sjálf inn aftur, og endurnýta. Hugmyndin er, að einungis verði eftir geislavirkur úrgangur með 30 ára hálflíf.
- Vökvanum sé ávallt haldið á hreyfingu, því sé engin staðbundin upphleðsla á hliðarefnum "byproducts" sem minnki skilvirkni, sem oft á sér stað í hönnunum sem nota eldsneyti á föstu formi.
- Ekki síst, kerfið starfi við herbergisþrýsting, vökvaþrýstingur ca. sami og menn eru vanir, í heimilis kranavatni. Það þurfi því ekki, eins og í dag, "pressure vessel" eða þrýsti-hjúp utan um sjálfan ofninn.
- Ekki síst, skv. því sem fram kemur, þá sé Thorium vökvinn mjög stöðugur, hafi mjög litla hitaþenslu. Þannig, að þrýstingur hækkar ekki neitt verulega mikið, þó það eigi sér stað yfirhitun vegna bilunar. Hann geti ekki brotnað niður og myndað gas sem geti sprungið, eins og t.d. átti sér stað í Fukushima, þó vökvinn hitni í mörg þúsund gráður.
- Hægt sé að útbúa kerfið með tappa sem gerður er úr efni, sem bráðnar við tiltekið hitastig - - þannig að ef bilun veldur því að kerfið hitnar óeðlilega. Þá hleypi tappinn er hann bráðnar vökvanum af kerfinu. Þannig að það lendi ofan í sértilbúni keri, sem hannað sé að taka við honum og halda stöðugum.
- Fyrir utan, að thoriumið sé ekki "fissile" þ.e. sé þ.s. kallað er "fertile" - með öðrum orðum, þarf að örva það með neftrónu gjafa, sem einfaldast sé að framkalla með því, að blanda litlu magni af kjarnakleyfu efni með inni í kjarnanum. Síðan sé thorium vökvinn að leika í kring, taka við nevtrónunum. Þá verði svokallað "decay" og thoriumið umbreytist í tveim skrefum, í báðum á sér stað kjarnaklofnun. Þeir segja, að mun auðveldara sé að eiga við þetta dæmi - því svo lítið magn af kjarnakleyfu efni sé til staðar hverju sinni. Hliðarafurðir séu stöðugt hreinsaðar út, þ.s. vökvinn er á hreyfingu. Svo endurunnar, notaðar aftur sem hluti af eldsneytinu ef þær eru hágeislavirkar.
- Ekki síst - - miklu meira er til í heiminum af Thorium en af Uranium. Miðað við núverandi nýting á kjarnorku, geti Thorium byrgðir enst flr. árþúsundir.
- Að lokum, v. þess að slíkur ofn þarf ekki þrýsti-hjúp. Þá geti slíkir "ofnar" verið miklu minni. T.d. sé vel unnt að sjá fyrir sér, hannanir sem ætlað sé að knýja einstakar verksmiðjur. Sem sagt, miklu mun minni ofnar en í dag eru vanalega smíðaðir með óskaplegum tilkostnaði.
Ég get vel skilið að Kína og Japan séu að endurhugsa kjarnorkumál!
Vandi Japans er, að Japan hefur engar orkulyndir. Ekki nein stór vatnsföll. Enga olíu. Engin kol. Ekkert gas, o.s.frv. Þegar Japanir lokuðu flestum kjarnorkuverum sínum eftir Fukushima óhappið. Þá hefur innflutningur á olíu og gasi - margfaldast. Með óheppilegum afleiðingum fyrir viðskiptajöfnuð Japans.
Sem sl. ár hefur verið "neikvæður."
Að auki, er fyrirsjáanlegt - - olía og gas munu ekki endast endalaust.
Ekki síst, að án eigin orkulinda, er Japan algerlega háð innflutningi á orku. Sem getur haft margvíslega galla í för með sér, ef t.d. spennuástand skapast.
- Þess vegna er kjarnorka mjög aðlaðandi fyrir Japan - sérstaklega fyrir Japan.
- Það er enn þannig, greinilega er almennings álit nú mjög andvígt þeirri tegund kjarnaofna, sem feilaði svo alvarlega í Fukushima. Þ.e. vatnskældum kjarnaofnum sem nota fast eldsneyti. Galli - þ.s. Japan hefur engin stór vatnsföll. Þarf að staðsetja þá nærri sjó. Sem er óheppilegt í landi, þ.s. risaflóðbylgjur geta skollið á ströndum hvenær sem er, eins og við sáum með mjög dramatískum hætti, í Fukushima.
- Ég get því mjög vel skilið, að Japanir séu að pæla í nýjum byltingarkenndum hönnunum, eins og t.d. Thorium vökva ofnum.
----------------------------------
Kína hefur þann vanda, að sú meginorkuauðlind sem Kína ræður yfir þ.e. kol. Framkallar óskaplega loftmengun. Sem hefur í för með sé, mjög alvarleg heilsufarsleg vandamál í borgum.
Auk þess, að kolanámur í Kína eru mjög hættulegar, flr. þúsund verkamenn farast víst ár hvert.
Að auki, hefur Kína ekki olíulindir. En þarf stöðugt vaxandi magn af olíu og gasi. Allt sem þarf að flytja inn.
Þannig, að eins og fyrir Japan. Lítur kjarnorka mjög aðlaðandi út.
En Thorium getur verið enn meir aðlaðandi en Uranium í tilviki Kína, þ.s. innan Kína eru gnægtir af Thorium - skilst mér. Segja spekingar, nóg magn til að knýja Kína í flr. árþúsundir.
Ekki má gleyma því, að kapphlaup Kína eftir orkulindum - er að skapa vaxandi spennuástand í Asíu. Þ.s. Kína á t.d. í harðri deilu við Japan, v. tiltekinna skerja. En í lögsögunni þar, getur verið að sé olía undir hafsbotni. Kína deilir í dag við allar þjóðir v. S-Kína haf, um lögsögu. Vill eigna sér allt hafið, nánast upp að landsteinum hvers þeirra landa þ.e. Filippseyja, Malasíu, Indónesíu, Víetnam.
Öll þessi lönd hafa verið að efla sína heri og flota, til að mæta eflingu Kínv. á sínum her og flota á hafsvæðinu.
Hættan á styrjöld, ef deilur halda áfram að stigmagnast - virðist augljós.
Sem gerir auðvitað fræðilega lausn byggða á Thorium, enn áhugaverðari ef e-h er.
Ef loforðin standast, þ.e.
Niðurstaða
Auðvitað er þ.e. rétt, að unnt sé með Thorium ofnum á vökvaformi, að eyða upp öllu því há geislavirka kjarnorku rusli sem safnast hefur upp í heiminum, þar með talin kjarnaoddunum sjálfum. Þá auðvitað skilur maður ekki, af hverju enginn hefur smíðað slíka ofna. Maður sér enga augljósa galla, sem ekki virðast yfirstíganlegir.
En ein hugsanleg ástæða þess, að Uranium ofnar urðu ofan á.
Snýr líklega að kapphlaupinu um það að smíða sem mest af kjarnavopnum.
En Thorium Breeder ofnar - skilst mér, búa ekki til neitt Plutonium. Né annað af þeim hágeislavirku efnum, sem nýtast í smíði kjarnavopna.
----------------------
Sennilega tekur þessi tækniþróun einhver ár, áður en Kínverjar og Japanar, fara að fjöldaframleiða slíka ofna. Til notkunar víða um sín lönd. En þ.s. þeir geta verið miklu mun smærri. Þá væri unnt að koma þeim miklu mun víðar fyrir. Sem gæti verið t.d. hagkvæmt fyrir Kína. Þurfa t.d. ekki að leggja raflínu langa vegalengd að verksmiðju. Heldur setja upp kjarnaofn við hana.
- Fræðingarnir segja, að Thorium geti séð öllu mannkyni fyrir nægri orku í flr. árþúsundir.
- Hljómar of gott til að vera satt.
- En ég hef ekki þekkingu til að rengja þá.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 7. janúar 2013
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
- Stríðið í Úkraínu getur verið að þróast aftur í pattstöðu - s...
- Friedrich Merz, virðist ætla að takast að stórfellt auka hern...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 869824
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar