19.3.2010 | 16:11
Nýtt stjórnmála-afl, gæti orðið leiðandi í íslenskum stjórnmálum. Ný skoðanakönnun, tel ég, sýnir að gott pláss er fyrir nýtt afl, ef einhver vill stofna það!
Mín skoðun, sem væntanlega margir þeir sem lesa bloggið verða sennilega ósammála, er að fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins nú, hafi meira að gera með nær algert gangsleysi núverandi ríkisstjórnar, þegar kemur að getu hennar við það að ráða við endurreisn hagkerfisins og fjármál ríkisins; fremur en stórfenglega stöðu Sjálfstæðisflokksins.
Að mínum dómi, hefur Sjálfstæðisflokkurinn, enn verulega veikleika - sbr. vafasöm viðskipti sem formaðurinn er flæktur í, er lykta vægast sagt ílla og ætti hann, að mínu mati, að hætta bæði sem formaður og taka sér frí sem þingmaður, þar til máls hans hafa verið skoðuð nánar og hann, annað af tvennu fengið syndaaflausn eða ákært verður í hans máli.
Að auki, er varaformaðurinn, í óþægilegum málum, er tengjast þó ekki henni sjálfri beint, heldur hennar eiginmanni, en að mínu mati, gera hana óhæfa sem forystumann í stjórnmálum.
Að auki mætti nefna, mál þingmanns er staðinn var af því í vetur, að hafa innheimt gróða af fyrirtæki í eigin eigu, er það taldist vera með neikvæða eiginfjár stöðu - sem er lögbrot. Að mínu mati, hefði þingflokkurinn, átt að krefjast afsagnar hans, en afsökunarbeiðni og skil á peningum, var látið gott heita.
Skoðum könnunina sjálfa
Sjálfstæðisflokkur: 40,3% og 27 þingm, hefur 16 nú.
Framsóknarflokkur: 13,3% og 8 þingm, hefur 9 nú.
Samfylking: 23,1%, og 15 þingm., hefur 20 nú.
Vinstir-Grænir: 20,6% og 13 þingm., hefur 15 nú.
Borgarahreyfing: 2,1% og 0 þingm., hefur nú 4.
39,8% neituðu að svara könnun.
VG stendur greinilega skv. þessu best að vígi stjórnarflokkanna, heyrt hef ég þá kenningu að þrátt fyrir klofning leiti fylgi ekki frá honum, heldur safnist það í kringum hvorn pólinn þ.e. Ögma og Steingrím; en fari ekki annað.
Fyrir Samfylkingu, ætti könnunin að calda nokkrum áhyggjum, en samt heldur flokkurinn sæti sínu sem 2. stærsti flokkurinn.
Fyrir Framsóknarflokkinn, verður þetta að skoðast sem nokkur vonbrigði, því málefnalega stendur sá flokkur gríðarlega sterkt um þessar mundir, hafa unnið sigur í Icesave málinu, hafa gengið lengst allra flokka við að hreinsa spillingu úr eigin röðum; og hafa allan tímann, boðið upp á miklu mun trúverðugri, leiðir til uppbyggingar en sjálf ríkisstjórnin. En, einhvern veginn, er flokknum ekki að ganga nægilega vel, í áróðursstríðinu á vettvangi fjölmiðla. Þó formaðurinn, hafi haft rétt fyrir sér, í 100% tilvika í Icesave málinu og einnig um, efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar; þá einhvern vegnnn samt, hefur Samfylkingu með flesta fjölmiðla landsins í eigin bandalagi, tekist að skapa neikvæða ímynd af honum. Framsókn, er þó ekki í slæmri stöðu, og ætti að bæta við sig fylgi í kosningabaráttu.
Hvað með nýjan flokk?
Þ.e. klárt, að mjög mikið af Íslendingum er óánægt með sjálf stjórnmálin, í landinu. Það sést m.a. að um 40% neita að svara könnuninni, þrátt fyrir að spyrlar hafi alla klæki úti.
Ég held nefnilega, að hægt sé að búa til mjög sterkan stjórnmálaflokk á Íslandi. Hrun Borgarahreyfingarinnar, hafi í raun verið sönnun þess, því áður en fræg rífrildissena hófst þar innan veggja, var sá flokkur að mælast með allt að um 10% fylgi
Leggjum saman í púkk:
- þingmennina 3 úr Borgarahreyfingunni, sem nú kalla sig, Hreyfinguna.
- 4 þingmenn úr VG ásamt Ögmundi.
- Auk þessa, Frjálslynda flokkinn, og Borgarahreyfinguna, sem enn starfar án þingmanna.
Hvaða stefnumál?
Ég ætla aðeins að vitna í fræga bloggfærslu Alex Jurshevski: Why Iceland Must Vote No
Í öllum ákafanum, um að rífast um tillögur hans, er ég ekki viss um, að allir hafi tekið eftir hvað hann legurr til, í bloggfærslunni sinni.
Structural Reform
Iceland must free up parts of its economy and make increased revenues available to the Government as part of the attempt to did itself out of this hole. For example Icelands Treasury currently receives no recurring revenue from the domestic fishery. Fishing Licenses have become a rentier instrument whose benefits accrue to a narrow slice of the populace This needs to be changed to the benefit of the entire country rather than the few insiders who now control the licenses.
Among the other issues to address is the free lunch given to financial firms through debt indexation which places the burden of adjustment primarily on households and has led to a rash of mortgage defaults.
Jurshevski leggur til 2. meginlagfæringar:
- Veiðileyfagjald.
- Aflagningu verðtryggingar lána.
Í dag fari auðurinn af auðlindum hafsins til fámennrar elítu, og því þurfi að breyta. Ríkið þurfi að tryggja sér, hæfilegar rentur af þeim auðlindum.
Það sé mjög óheppilegt fyrir hagkerfið, að viðhafa fyrirkomulag þ.s. allri áhættu af lánum sé skellt á skuldara. Það sé að hans mati, ein af orsökum þeirrar húsnæðis skuldakreppu, sem nú ríki.
Þessar breytingar, muni hjálpa Íslandi að grafa sig upp úr núverandi holu.
------------------------------
Ég held að það sé ljóst, að þetta væru mjög heppileg stefnumál fyrir hinn nýja stjórnmálaflokk.
Síðan, auk þessa eftirfarandi:
- Einbeittrar umhverfisstefnu, sem miðuð væri við umhverfisstefnu Íslandshreyfingarinnar sálugu.
- Áhersla á, að komið verði á fót, þjóðaratkvæðagreiðslufyrirkomulagi. En, þá á ég við sambærilegt og gerist í Sviss, þ.s. má kjósa um öll mál, krafan einungis um tiltekinn fjölda undisskrifta.
- Síðan, umbætur í stjórnkerfinu - þ.s. styrkja innviði eftirlitsaðila, og bæta gæði stjórnsýslunnar, með áherslu á að gera ráðningar faglegar.
- Leggja áherslu, á uppbyggingu í atvinnumálum er markist að aðgerðum, í átt að skapa aðstæður fyrir sjálfssprottinn hagvöxt. Þ.e. áhersla frá stórum kostnaðarsömum verkefnum, en í átt að því, að skapa sem bestar aðstæður fyrir sjálfssprottin fyrirtæki, iðnað - til að vaxa og dafna. Sem dæmi, á að lagaumhverfi sé hagstætt fyrir ný fyrirtæki og einnig, að skattalegt umhverfi sé einnig hagstætt, þannig að ríkið sogi ekki til sín um of það fé, sem fyrirtæki þurfi til eigin uppbyggingar.
Með þennan lista af stefnumála að vopni, ætti nýr flokkur að gera orðið mjög öflugur, jafnvel leiðandi í íslenskum stjórnmálum.
Ég held, að þörf sé á ferskum andvara.
Kv.
Bloggfærslur 19. mars 2010
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump getur hafa eyðilagt fyrir sjálfum sér: Dómsmálið gegn, ...
- Gæti 3ja heimsstyrrjöldin hafist á Indlandshafssvæðinu? Skv. ...
- Er samningur Trumps við Japan - er inniber 550 milljarða$ fjá...
- Hótel-bókanir í sumar, gefa vísbendingar um kjaraskerðingu al...
- Kjarnorkuáætlun Írana hefur líklega beðið stórtjón, fremur en...
- Netanyahu, virðist hafa hafið stríð við Íran - beinlínis til ...
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemu...
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 375
- Frá upphafi: 871901
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 349
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar