Elon Musk hefur lofað Suður-Ástralíu svæðinu, að rafhlöðupakkinn verði tilbúinn á 100 dögum.
Ef það tekst verður það mjög góð auglýsing fyrir fyrirtæki Musk, og Musk sjálfan.
--Jafnvel svo að það sé ekki endilega víst að þessi tiltekna framkvæmd gangi upp efnahagslega fyrir Tezla fyrirtæki Musks.
--En manni virðist sennilegt að það auki kostnaðinn við verkið, að flýta því svo mikið - sem sennilegt virðist að verið sé að gera.
Tesla wins giant battery contract in Australia, has 100-day deadline
En það sem sennilega hangir á spýtunni, er að ef verkið gengur upp á tilsettum tíma.
Getur Tezla átt von á fleiri slíkum samningum frá Ástralíu og víðar að.
--Enda verkefnið vakið umtalsverða athygli.
Þetta snýst um vandamálið að geyma mikið magn af orku með hagkvæmum hætti!
Málið er að Suður-Ástralíu hérað hefur búið við mikil vandræði í rafkerfi sínu sl. 3 ár, eftir að ákvörðun var tekin um að -- hefja lokun kolaraforkuvera.
--Fjölgun vindorkuvera hefur verið stefna í staðinn.
- Útkoman að sjálfsögðu var fyrirsjáanleg, þ.e. miklar spennusveiflur í kerfinu.
- Og svokölluð "blackouts" eða víðtækt rafmagnsleysi - við og við, einnig viðvarandi hætta.
"In September, South Australia's 1.7 million residents were left without power, some of them for up to two weeks, when the grid overloaded and collapsed."
Þetta er auðvitað vegna þess - að sólarorka og vindorka framleiðir ekki rafmagn með stöðugum hætti.
Heldur eru toppar og lægðir þar um - er fara efti veðri.
--Ekki sveiflum í eftirspurn innan rafkerfisins eftir rafmagni.
--Að auki geta toppar og lægðir - verið á röngum stöðum innan rafkerfisins.
- Engar ódýrar lausnir eru til á þessu.
- Þ.e. gríðarlega kostnaðarsamt fyrir atvinnulíf, er rafmagn er mjög óstöðugt - því þá þurfa flest fyrirtæki að kaupa sér, vara-aflstöðvar.
--Auk þess að heimili þurfa á slíku að halda líklega einnig.
"The battery, designed to light up 30,000 homes if there is a blackout, will be built on a wind farm operated by France's Neoen - parts of which are still under construction."
Það þíðir að verkefni Tezla er ekki nema dropi í hagið - miðað við umfang vanda S-Ástralíu.
En það þíðir á sama tíma - ef útkoman er sú að mat manna er að verkefnið hafi gengið upp, og sé nánar tiltekið hagkvæm eða tiltölulega hagkvæm lausn.
--Þá getur Elon Musk átt von á því að selja margar slíkar rafhlöður til Suður-Astralíu á nk. árum.
- Vandamálið er að varðveita rafmagn þegar framleiðslutoppar eru í rafkerfinu.
- Svo það rafmagn geti síðan farið inn í kerfið, þegar framleiðslulægðir á rafmagni lenda á kerfinu.
--Lægðir og toppar eru fullkomlega óhjákvæmilegir ef rafkerfi á að vera mjög háð framleiðslu á rafmagni með vindi og sól.
Niðurstaða
Ég ætla ekki að dæma neitt um það hvort að rafhlöðupakkarnir hans Elons Musk eru lausnin á þeim stóra vanda sem margir klóra sig í hausnum yfir -- vegna áherslunnar á framleiðslu rafmagns með vindi eða sól.
En ef hátt hlutfall er framleitt með vindi eða sól -- þá verður kerfið að innihalda einhvern skilvirkan "buffer" því annars verða spennusveiflur fullkomlega óviðráðanlegar.
- Hátæknibúnaður þarf yfirleitt stöðugt rafmagn -- sjónvörp og töluvur geta eyðilagst, ef stórir spennutoppar skella yfir.
Kv.
Nikki Haley: "One of our capabilities lies with our considerable military forces. We will use them if we must, but we prefer not to have to go in that direction, ..."
Þetta hljómar sem afar skýr hótun um beitingu vopnavalds, ef N-Kórea hættir ekki við uppbyggingu núverandi eldflaugavopna, með tæknilegri getu til að bera kjarnavopn til annarra heimsálfa.
U.S. prepared to use force on North Korea 'if we must': U.N. envoy
US options narrow on North Korea military action
Það sé órökrétt að gera ráð fyrir öðru, en því að hernaðarárás á N-Kóreu líklega starti Kóreustríðinu á nýjan leik!
- Ítreka að Kóreustríðinu lauk einungis með - vopnahléi.
- Þannig, að það þarf ekki annað til að starta stríðinu að nýju - en herirnir hefji aftur skothríð.
Hafandi í huga að N-Kórea er í reynd "armed camp" - t.d. er áætlað að heildarfjöldi fallbyssa sem N-Kórea ræður yfir, og er unnt að fyrirskipa að hefja skothríða á borgir í S-Kóreu.
--Sé ca. 6.000.
Herra Kim þarf líklega einungis að senda boð, og skothríð líklega hefst á sömu klukkustund. Þúsundir Suður-kóreumanna, geta verið látnir í borgum S-Kóreu klukkustundu síðar.
Það væri auk þessa órökrétt að líta það óhugsandi, að herra Kim mundi ekki beita kjarnavopnum - ef hann sannfærist um það, að markmið árása Bandaríkjanna væri að þurrka út ríkisstjórn hans eða ráða hann af dögum.
- Þess vegna velti ég því fyrir mér, hvað haukarnir nú við völd í Hvíta-húsinu, eru að hugsa.
- En sérfræðingar segja, að N-Kórea hafi grafið mikið af sínum mikilvægustu vopnum niður í djúpum, vel vörðum byrgjum.
--Þannig að nær ómögulegt væri að tryggja eyðileggingu þeirra.
--Áður en Kim mundi geta fyrirskipað beitingu þeirra vopna.
En flugvélar geta ekki eytt vopnum - sem ekki er unnt að staðsetja.
--Þannig gæti loftárás, án þess að hún næði nokkrum umtalsverðum árangri í því að eyða mikilvægustu vopnum N-Kóreu, samt dugað til að endurræsa Kóreustríðið - með því gríðarlega mannfalli og tjóni er þá líklega verður.
Niðurstaða
Mun Donald Trump endurræsa Kóreustríðið, og þar með óbeint valda langt yfir milljón manns líklega fjörtjóni, auk þess mikla tjóns á mannvirkjum á Kóreuskaga er þá líklega yrði?
--Höfum í huga, að ef það gerist, líklega kenna íbúar Kóreuskaga - Donald Trump um, hvort sem þeir búa í Suður- eða Norður-Kóreu.
--Þannig að Donald Trump getur ekki endilega reiknað með því að sameinuð Kórea - verði bandamaður Bandaríkjanna. Fyrir utan að það ríki þá réði yfir tækni beggja landanna þ.e. tækni til kjarnorkuvopnagerðar - til smíði langdrægra eldflauga - auk hernaðartækni S-Kóreu sem er sambærileg við vestræna hernaðartækni annars staðar.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.7.2017 | 22:53
Eldflaugatilraun N-Kóreu nærri að vera geimskot - en flaugin fór langt yfir lágmarksbrautarhæð fyrir gerfihnetti
Skv. fréttum náði flaugin a.m.k. 2.500km hæð - í stað 2.100km. eins og fyrst virðist hafa verið talið, sem þíðir að -parabólísk- braut er lengri en sýnd á mynd að neðan; a.m.k. 6.000km.
Skv. áætlunum sérfræðinga -- þá erum við að tala um drægi upp á a.m.k. 6.0000km. Ef brautin er hefðbundin -parabóla- langdrægrar kjarnavopna berandi flaugar!
North Korea says tests first ICBM; experts say Alaska within range
North Korea claims first long-range missile launch
"Given the flight time and altitude reached, he missile could have a range of more than 6,500km if fired at a standard trajectory, said David Wright, a prominent North Korea missile expert." - That range would not be enough to reach the Lower 48 states or the large islands of Hawaii, but would allow it to reach all of Alaska,
Hvað á ég við með - næstum því geimskot?Þessi mynd sýnir lægstu sporbauga gerfihnatta yfir Jörð!
- 2.500km, kannski er fullyrðing N-Kóreu rétt að flaugin fór í 2.800km. hæð, þar sem hvor hæðin um sig er langt fyrir ofan - lágmarks brautarhæð fyrir gerfihnetti.
--Þá klárlega fór flaugin alla leið upp í geim. - Hinn bóginn, fór hún samt ekki á sporbaug þ.e. féll strax niður nærri jafn lóðrétt og hún fór upp -- sem þíðir að ekki var orka flaugarinnar næg fyrir einu sinni, lágmarks sporbaug upp á ca. 160km. um Jörðina.
Nær alveg lóðrétt skot upp í svo mikla hæð, hefur þó brennt mjög mikið eldsneyti.
Þannig að líklega má treysta því að flaugin mundi hafa endað miklu lengra í burtu frá skotstað en rúmlega 900km. - ef flaugin hefði tekið verulega til muna láréttari feril.
Trump er auðvitað bandbrjálaður
Trump: "Hard to believe South Korea and Japan will put up with this much longer," - "Perhaps China will put a heavy move on North Korea and end this nonsense once and for all!"
- Ég sé samt sem áður ekki að hvort sem á í hlut Kína - eða S-Kórea, séu líkleg til þess eftir sem áður að beita N-Kóreu nægum þrýstingi til að knýja N-Kóreu til uppgjafar í málinu.
- Einfaldlega vegna þess, hversu stór áhætta ríkjanna er.
Myndin að ofan sýnir vel hversu litlar fjarlægðirnar eru til landanna í kringum N-Kóreu.
Ef það yrðu kjarnorkusprengingar á Kóreuskaganum, jafnvel þó þær væru allar innan N-Kóreu - er ljóst að geislavirk ský gætu borist til allra landanna í kring! Valdið óskaplegu tjóni.
--En ógnarstjórnin í N-Kóreu, ef beitt þrýstingi, gæti vel hrunið saman í nokkurs konar stjórnleysis ástand, þ.s. fylkingar innan elítunnar leituðust við að ná stjórn á einstökum herfylkjum hers N-Kóreu, til að berjast um völdin.
--Gætu menn fyrirfram útilokað, kjarnasprengingar í slíku ástandi?
--Það fyrir utan auðvitað þá augljósu hættu af milljónum flóttamanna!
- Þarna er ég ekki að nefna -- hugsanlega innrás eða stórfelldar loftárásir.
- En þá virðist mér nánast alveg öruggt, að kjarnorkusprengjum yrði beitt - sem þíddi án nokkurs vafa, að geislavirk ský berðust langt út fyrir Kóreuskagann.
--Hafandi þetta í huga, þá virðist mér litlar sem engar líkur á því, að Donald Trump takist að sannfæra Kína eða S-Kóreu, til þess að beita það nægilega harkalegum úrræðum gegn N-Kóreu.
--Að kjarnorkuprógramm stjórnar N-Kóreu verði stöðvað.
Niðurstaða
Kim Jong-un, greinilega sýnir Donald Trump fingurinn, með því að fyrirskipa tilraun með nýja langdræga eldflaug, er virðist alveg ný gerð langdrægra eldflauga N-Kóreu: Síðast er Bandaríkin réðust inn í N-Kóreu, fór her Kína yfir hin landamæri N-Kóreu. Næsta spurning getu þá verið, hvort að Donald Trump í framtíðinni - gerir tilraunir til þess að fyrirskipa hernaðarárás á N-Kóreu.
Ekki er algerlega víst hvar valdmörk bandaríska þingsins og forsetans liggja, en skv. lögum frá 1973: WarPowersAct. Þá þarf forseti alltaf að tilkynna þinginu um fyrirhugaða hernaðarárás af hvaða tagi sem er -- innan 48klst. áður en sú árás fer fram. Forsetar Bandaríkjanna eftir Nixon, hafa alltaf gætt þess að tilkynna árásir með þeim fyrirvara; en það hafi samt ekki formlega reynt á það -- hvort að lögin veita þinginu neitunarvald.
--Gæti þurft úrskurð æðsta dómstóls Bandaríkjanna.
En stjórnarskráin veitir forseta Bandaríkjanna, stöðu yfirmanns herafla.
Meðan að einungis Þing Bandaríkjanna má lísa yfir stríði, eða heimila innrás landhers.
--Gömul ákvæði auðvitað, er ekki voru til flugvélar né eldflaugar.
Forsetar virðast hafa getað beitt án formlegrar afgreiðslu þingsins - að öðru leiti en því að láta það vita með tilsettum fyrirvara, sérsveitum Bandaríkjahers sem og stýriflaugum, og flugvélum!
- Hinn bóginn, getur enginn vafi verið á því, að sérhver hernaðarárás á N-Kóreu.
- Sé nærri algerlega örugg til að -- starta Kóreustríðinu aftur.
Það geti því orðið mjög forvitnilegt, hvað gerist -- ef Trump ætlar að fyrirskipa árás á N-Kóreu með 48klst. fyrirvara - og þingið ef til vill; segist hafa neitunarvald í krafti laganna frá 1973.
- Þingið að sjálfsögðu hafi stjórnarskrárvarða réttinn til að lísa yfir stríði.
--Sérhver árás á N-Kóreu, mundi þíða tafarlaus stórstyrrjöld á Kóreuskaga.
Ef maður ímyndar sér sérstaklega að Marine General James Mattis verði eins ákveðinn í orðum og hann nýlega var, sbr:
"A conflict in North Korea, John, would be probably the worst kind of fighting in most people's lifetimes," ... "The North Korean regime has hundreds of artillery cannons and rocket launchers within range of one of the most densely populated cities on Earth, the capital of North Korea."
Kannski mundi þingið segja -- nei!
--Trump lenda í enn einni stjórnarskrárdeilunni!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2017 | 02:08
Trump ætlar að keppa við Rússland í sölu á gasi til A-Evrópu
Ég ætla ekkert að segja um líkur þess að þessi stefna Trumps hafi erindi sem erfiði. En eitt af stefnuatriðum Trumps, er að auka útflutnings á gasi frá Bandaríkjunum. Og gasfyrirtækin, virðast sjá fyrir sér þann möguleika - að höggva í gasútflutning Rússlands til A-Evrópu.
--Ég sel þetta auðvitað ekki dýrar en ég keypti!
Trump to promote U.S. natgas exports in Russia's backyard
Hugmyndin virðist vera ekki síst sú, að Bandaríkin séu áreiðanlegri
En það hafa komið upp eintök tilvik að deilur hafa sprottið upp milli A-Evrópuríkis og Rússlands, og það legið í loftinu sú hætta - að Rússland mundi hugsanlega skrúfa fyrir gasið.
- Members of the initiative include Poland, Austria, Hungary and Russia's neighbors Latvia and Estonia.
- "I think the United States can show itself as a benevolent country by exporting energy and by helping countries that dont have adequate supplies become more self-sufficient and less dependent and less threatened,"
- "It undermines the strategies of Putin and other strong men who are trying to use the light switch as an element of strategic offense,"
- "In many ways, the LNG exports by the U.S. is the most threatening U.S. policy to Russia,"
Bandaríkin m.ö.o. ætla skv. þessu að notfæra sér það vantraust gagnvart Rússlandi sem er til staðar - en þjóðirnar hafa orðið vitni að því að Rússland getur skrúfað fyrir gas; ef deilur um verð koma upp.
Bandaríkin geta a.m.k. auglýst það sem kost - að dreifa kaupum milli Bandaríkjanna, og Rússlands.
--Þannig minnka áhættu ríkjanna!
- "Cheniere Energy Inc (LNG.A), which opened the first U.S. LNG export terminal in 2016, delivered its first cargo to Poland in June. Five more terminals are expected to be online by 2020."
- "Tellurian Inc (TELL.O) has proposed a project with a price tag of as much as $16 billion that it hopes to complete by 2022, in time to compete for long-term contracts to supply Poland that expire the same year and are held by Russian gas giant Gazprom (GAZP.MM)."
Rússland hefur auðvitað tiltekið forskot: Stóra atriðið eru auðvitað sá infrastrúktrúr til flutninga á gasi, Rússland hefur til staðar - þ.e. leiðslur, með nægri flutningsgetu.
Kannski hefur Rússland efni á að selja gasið - ódýrar.
--Hinn bóginn eru það nokkuð veik rök.
--Því Rússland að sjálfsögðu vill hámarka sinn gróða af sínu gasi, ekki lágmarka.
Bandaríkin mundu þurfa að treysta á risa-tankskip sérbúin til flutninga á náttúrugasi undir þrýstingi, sem vöka m.ö.o. sbr. "LNG Liquefied natural gas."
- Ég spái engu sérstöku um árangur þessarar - söluáætlunar Bandaríkjanna.
- Hinn bóginn - væri ég hissa ef þau næðu ekki að taka einhverja sneið af þeirri köku.
--Rússlandi mun auðvitað mislíka, ef Bandaríkin draga út tekjum Rússlands.
--Spurning hvort Rússland getur nokkuð gert í því?
Niðurstaða
Ég hef nokkrum sinnum heyrt þá kenningu að Rússland standi svo vel, vegna þess hve mikið af gasi og olíu Rússland enn hefur. En vandamálið er einmitt að --> Rússland hefur nánast ekkert annað en gas eða olíu.
--Enn nærri 70% útflutningstekna Rússlands, eins og er Yeltsin var forseti.
Ég mundi kalla þetta, alvarlegan veikleika.
Ekki styrkleika!
Fyrir utan olíu og gas.
Virðist Rússland einna helst hafa gjaldeyristekjur af vopnasölu.
M.ö.o. ef þ.e. stór vopnasölusamningur eitt árið, getur hlutfall olíu og gas, dottið í 60% það árið.
- Ef Bandaríkin naga í þessa mikilvægu grein - þ.e. sölu á gasi til Evrópu.
--Þá gæti það raunverulega veikt rússneskan efnahag. - En gasleiðslurnar eru - samtímis veikleiki/sem styrkleiki. En meðan skip geta siglt annað. Þá tekur mörg ár að smíða nýjar leiðslur -- ef Rússland mundi þurfa leita annarra markaða.
--Að naga í gasútflutning Rússland, gæti þar með raunverulega veikt rússneskan efnahag töluvert.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Meginátök svokallaðs Kóreustríðs voru milli hers Bandaríkjanna, herja bandalagsríkja Bandaríkjanna, og hers Kína. McArthur yfirhershöfðingi Bandaríkjahers á Asíusvæðinu, hafði séð um yfirherstjórn frá upphafi svokallaðs Kóreustríðs. Hann hafði leitt hjá sér aðvaranir frá Kína, að stjórnvöld Kína mundu ekki sætta sig við hernám Bandaríkjanna á gervallri N-Kóreu alla leið að landamærum Kína.
--Þegar að því kom að ljóst var að McArthur ætlaði sér að virða aðvaranir þeirra að vettugi, fór her kína yfir landamæri N-Kóreu við Kína, og réðst að hersveitum undir stjórn McArthur og hersveitum ríkja í bandalagi við Kína er þátt tóku í stríðinu.
Það er áhugavert að ryfja upp þessa atburðarás í mjög grófum dráttum nú!
Vegna þess að Donald Trump forseti hefur talað digurbarklega um möguleika þess að beita hervaldi gegn N-Kóreu.
- Fyrst hafði her N-Kóreu gert snögga innrás í S-Kóreu, er gekk afar vel framan af.
- Þar til McArthur skipulagði landgöngu norðar á skaganum er klippti á samgönguleiðir fyrir N-Kóreuher, þannig að stærsti hluti hers N-Kóreu glataðist þá á einu bretti.
- Gagnsókn McArthur gekk síðan hratt, og hann leiddi hjá sér aðvaranir frá Kína er hersveitir undir hans stjórn nálguðust landamærin við Kína.
- Síðasta kortið sínir síðan - vopnahléslínuna, eftir tveggja og hálfs árs átök við Kína um N-Kóreu.
--Eiginlega þ.s. herirnir voru þá staddir.
Spurning hvort að ný innrás í N-Kóreu þíddi stríð við Kína?
Mattis hershöfðingi - varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur gefið fram skýra aðvörun - að árás á N-Kóreu þíddi stórfellt mannfall í borgum S-Kóreu - gríðarlega eyðileggingu þar.
--Spurning hvort að Donald Trump hlustar á Mattis hershöfðingja.
En það eru skýrar vísbendingar þess að Donald Trump sé aftur orðinn órólegur!
Trump to speak with Xi, Abe as North Korea, steel issues loom
China lashes out at US as Trump-Xi honeymoon ends
- Trump er greinilega aftur óþolinmóður, því honum finnst Kína ekki vera gera nóg.
- En málið er, að Kína var aldrei líklegt að hrinda í framkvæmd það skæðum aðgerðum gegn N-Kóreu, að stjórnvöld þar lentu í alvarlegum vandræðum.
Eitt málið, gæti verið viss trúverðugleikavandi: Það að Kína trúi augljóslega ekki því að Bandaríkin ráðist á N-Kóreu með hervaldi, alveg sama hvað þau í dag segja.
Rétt að minna á orð varnarmálaráðherra Bandaríkjanna - James Mattis: War with North Korea would be "catastrophic,
- "A conflict in North Korea, John, would be probably the worst kind of fighting in most people's lifetimes,"
- "The North Korean regime has hundreds of artillery cannons and rocket launchers within range of one of the most densely populated cities on Earth, the capital of North Korea."
Punkturinn er sá, að afleiðingarnar yrðu það hrikalegar, beinar afleiðingar slíks stríðs.
Ég hef sjálfur nefnt þetta margsinnis - enda ekki nýjar upplísingar, N-Kórea hefur haft þessar stórskotasveitir í færi við borgir S-Kóreu í skotfæri við hefðbundin stórskotavopn, síðan Kóreustríðinu lauk - óformlega.
Það er algerlega augljóst, að um leið og hernaðarárás hefst á N-Kóreu.
Fyrirskipar Kim Jong-un, leiðtogi N-Kóreu stórskotaliðssveitum N-Kóreu hers að hefja skothríð.
Þó að sjálfsögðu þær stórskotasveitir væru eyðilagðar af flugher Bandaríkjanna.
Væri ósennilegt að það mundi takast - áður en þúsundir almennra borgara í S-Kóreu væru í valnum.
- Fyrir utan þetta, má nefna að ef Kim Jong-un sprengir kjarnorkusprengjur, þá getur geislun sannarlega dreifst yfir landamæri.
- Það getur verið að hann geti sent eldflaug með kjarnasprengju til S-Kóreu með skammdrægri eldflaug.
--Eða til vara, sprengt slíka á eigin landi, grafna niður í jörð með blýkápu - til að sprengja upp bandarískan her á eigin landi.
--Ef geislun mundi berast yfir landamæri N-Kóreu í norður, þá gæti geislun drepið töluverðan fjölda kínverja - einnig eitrað veruleg svæði á því svæði innan Kína.
--Kína yrði vart skemmt.
Síðan vill Kína líklega raunverulega ekki sameiningu Kóreu: Kína hefur líklega litið á N-Kóreu sem "buffer" eða stuðpúða á móti bandalagsríki Bandaríkjanna, S-Kóreu. Vill líklega ekki hafa öflugt bandalagsríki Bandaríkjanna, beint upp við eigin landamæri.
- Það sé einnig líklega hvers vegna, er her undir stjórn McArthur nálgaðist landamæri Kína í Kóreustríðinu, að her Kína fór þá inn á móti.
- Hætta geti þar af leiðandi verið fyrir hendi - það sama gerist, að Kína fari inn á móti norðan frá um landamæri N-Kóreu við Kína.
--Kína veit að ríkisstjórnin í N-Kóreu er óþægilegur bandamaður í besta falli.
--Að stefna N-Kóreu að tryggja eigið öryggi með kjarnavopnum, líklega æsir upp vopnakapphlaup á Asíusvæðinu.
- En það sé ekki endilega algerlega víst að Kína líti það sem slæman hlut.
- Enda geti það alveg veitt skjól fyrir Kína sjálft, að efla sinn herafla á móti - er önnur ríki bæta við sínar varnir til að fást við aukinn viðbúnað N-Kóreu.
M.ö.o. geti það vel verið að "beliggerence" N-Kóreu, sé hreinlega gagnlegt fyrir Kína.
Punkturinn er sem sagt sá, að líklega vill Kína ekki stuðla að falli ríkis N-Kóreu.
Það geti verið raunveruleg hætta, að ef Trump leiddi hjá sér kínverskar aðvaranir eins og McArthur hershöfðingi, að þá gæti það sama endurtekið sig og í Kóreustríði, að kínverskur her mæti á móti.
Niðurstaða
Hvernig sem menn velta málum upp, þá væri innrás bandarísks hers í N-Kóreu gríðarlegt hættuspil. En viðbrögð Kim Jong-un eru þannig séð algerlega útreiknanleg, þ.e. hann mun nota allt sem hann ræður yfir - ef hann sannfærist um það að hernaðarárás hafi það markmið að skipta um landstjórnendur. En hann hlýtur að taka allar meiriháttar hernaðar-árásir sem slíka tilraun, eða ekki sé unnt að reikna með öðrum viðbrögðum. Þannig, að Bandaríkin geta ekki rökrétt reiknað með nokkru öðru en því að árás á N-Kóreu leiði alltaf til mikils manntjóns og tjóns á mannvirkjum einnig í S-Kóreu.
--En síðan á Kim Jong-un einnig kjarnorkusprengjur, og hann örugglega beitir þeim einnig, ef hann getur - ef hann sannfærist um það að eyðilegging N-Kóreu sé markmið árása.
--Þá auðvitað, stækka til mikilla muna afleiðingar stríðsins - því geislavirk ský berast með vindum.
- Manntjón getur verið langt yfir milljón manns, m.ö.o.
--Jafnvel milljónir, m.ö.o. sannarlega "catastrophic" eins og James Mattis orðar það.
Og það án þess að taka tillit til hugsanlegra viðbragða Kína.
Sem geta verið þau, að senda sinn eigin her yfir landamærin á móti.
--M.ö.o. sé það slíkt hættuspil að hefja slík átök.
--Að það væri klikkun!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.7.2017 | 01:43
25 bandarísk ríki virðast hafa neitað að starfa með rannsóknarnefnd sem Trump skipaði til að rannsaka meint kosningasvik
Ef einhver man ekki eftir málinu - fullyrti Donald Trump skömmu eftir forsetakosningarnar, að víðtæk kosningasvik hefðu orðið - er hefðu dregið úr ljóma kosningasigurs hans.
--En Trump hefur alltaf fullyrt að hann hafi einnig unnið "the public vote" þ.e. einnig fengið meirihluta atkvæða á landsvísu - en skv. kosningatölum fékk hann ca. 3 milljónum færri atkvæði en Hillary Clinton.
--Trump nefndi aldrei nokkrar sannanir fyrir sínum fullyrðingum.
--Ég heyrði aldrei nokkurn mann innan Bandaríkjanna, sem ekki voru Trump stuðningsmenn -- taka undir þær ásakanir.
Trumps voting commission asked states to hand over election data. Some are pushing back.
States refuse Trump commission request for U.S. voter data
Tump eigi að síður gaf út tilskipun um skipun rannsóknarnefndar, og sú sendi í vikunni bréf til fylkja Bandaríkjanna þ.s. farið var fram á gögn!
Af viðbrögðum að dæma - virðist gríðarleg tortryggni ríkja gagnvart þeirri rannsóknarnefnd í fjölda fylkja.
--Ætla ekki að fullyrða neitt, en fjöldi samsæriskenninga fljúga um - um meintan raunverulegan tilgang nefndarinnar, sem skv. þeim kenningum er þá annar en yfirlýst markmið hennar.
- Ein vinsæl kenning virðist vera - að til standi að búa til lysta yfir kosningasögu einstaklinga -- svo Repúblikanar geti í framtíðinni, beitt honum sér til hagsbótar.
It looks like theyre putting together a database of who people voted for, - Democrat, Republican, independent, everybody should be outraged by that." - "This is from the same people, from Kris Kobach to Donald Trump, whove tried to make it harder for people to vote, and this seems like a step in the process." - "If the Obama administration had asked for this, Kris Kobach would be holding a press conference outside the Capitol to denounce it. - Önnur vinsæl "vote suppression" - þ.e. að greiningin verði notuð, til þess að breyta lögum þannig, að erfiðara verði fyrir tiltekna hópa að - kjósa. T.d. með því að herða reglur um persónuskilríki - en fólk virðist ekki alltaf vera með slík í Bandar. Fátækt fólk geti veigrað sér við því - ef það þá þarf að standa í auknu veseni til að kjósa.
This is an attempt on a grand scale to purport to match voter rolls with other information in an apparent effort to try and show that the voter rolls are inaccurate and use that as a pretext to pass legislation that will make it harder for people to register to vote,
Þetta er sennilega vísbending um þá tortryggni er nú ríkir milli Demókrata og Repúblikana í Bandaríkjunum - að því sé einfaldlega ekki treyst af hinum aðilanum; að tekið verði á málum með sanngjörnum hætti.
Upplýsingar sem nefndin vill:
"...trove of information, including names, dates of birth, voting histories and, if possible, party identifications." - "The letters also asked for evidence of voter fraud, convictions for election-related crimes and recommendations for preventing voter intimidation all within 16 days."
Eitt er víst að þetta eru upplýsingar af því tagi sem hægt er að misnota.
Ef þú hefur nöfn - hvaða flokk viðkomandi kaus mörg ár aftur í tímann.
Þá eru það auðvitað - töluvert gagnlegar upplýsingar hugsanlega, fyrir flokksmaskínu.
Það virðist einmitt útbreidd trú a.m.k. í fylkjum þ.s. Demókrata meirihluti stjórnar, að ekki sé unnt að treysta nefndinni sem Trump hefur skipað.
- Nefndarformaður segir að einungis sé beðið um -- upplýsingar sem þegar eru "on public record."
- En einstök fylki úr hópi 50 - fullyrða að sumt af því sem óskað sé eftir, sé ekki "public record" og vilja meina að a.m.k. sumt sé ólöglegt að veita nefndinni.
--Ekki treysti ég mér til að rengja hvora fullyrðinguna!
Niðurstaðan
Ætli að viðbrögðin við rannsóknarnefndinni hans Trumps - sé ekki ein byrtingarmynd þeirrar gjár sem er nú til staðar í innanlands pólitík í Bandaríkjunum, þ.s. útbreitt vantraust beggja fylkinga líklega hafi aldrei verið meira.
En líklega sé einnig rannsókn Trumps, vísbending um slíkt vantraust -- þ.e. hann og hans fólk, hafi vantreyst gögnum frá fylkjum þ.e. kosninganiðurstöðum - án þess að hafa nokkuð í höndunum.
--Nema kannski, eigin tilfinningu.
Einnig vantreyst yfirlýsingum sérfræðinga í meðferð kosningatalna.
M.ö.o. sé staðan orðin sú, að hvort fylkingin fyrir sig - treysti því ekki að hin fylkingin fylgi reglum rétt eftir.
--Vantreysti síðan sjálfkrafa gjarnan yfirlýsingum, þeirra sem séu taldir pólitískt litaðir fulltrúar hinnar fylkingarinnar.
- Það sé að sjálfsögðu ákaflega hættulegt lýðræðinu í Bandaríkjunum, það útbreitt vantraust.
--Ég veit ekki til þess að nokkrar umtalsverðar sannanir hafi nokkru sinni komið fram, um meiriháttar kosningasvik.
--Hvorki á seinni árum, né fyrir síðustu kosningar. - En ásökunin um -spillt lýðræði- hefur sögulega séð verið notuð af þeim, sem vilja afnema lýðræði.
--Útbreidd trú um slíkt - jafnvel tilhæfulaus trú af slíku tagi, getur leitt til stuðning einstakra kjósendahópa við einræði.
--Útbreitt djúpt vantraust, getur leitt til hruns lýðræðiskerfis.
--Vegna algers skorts á sönnunum í tengslum við þessa umræðu um meinta spillingu kosningakerfisins, þá skil ég ekki alveg þessa útbreiddu trú á kosningasvik - meðal sumra hópa Bandaríkjamanna, sem m.a. nefndarformaðurinn Kobach virðist haldinn -- en hann hafi t.d. ítrekað á undanförnum árum, gert tilraunir til að kæra meint svik, en alltaf verið rekinn til baka af dómstólum.
- Sérkennilegt fyrirbæri - fullvissa án nokkurra sannana!
--Eiginlega fyrirbærið - þráhyggja.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.6.2017 | 23:35
Farsakennd þyrluárás á byggingu Hæstaréttar Venezúela - Maduro kallaði atburðinn valdaránstilraun, sagðist einmitt hafa óttast atburði af þessu tagi
Afar freystandi að túlka atburðinn sem sviðsetningu, að neðan - viðbrögð Maduro.
The person who took that aircraft launched a coup and took up arms, - This is the kind of escalation I have been warning about.
En um fyrr í vikunni sagði Maduro eftirfarandi á fundi með stuðningsmönnum sínum.
- Niculos Maduro: If Venezuela was plunged into chaos and violence and the Bolivarian Revolution destroyed, we would go to combat. We would never give up, and what we failed to achieve with votes, we would do with weapons. We would liberate the fatherland with weapons.
- Listen, President Donald Trump, - You would have to build 20 walls in the sea, a wall from Mississippi to Florida, from Florida to New York, it would be crazy ... You have the responsibility: stop the madness of the violent Venezuelan right wing.
--Hann virtist greinilega hóta borgarastríði, ef stjórnarandstaðan réðist að stjórninni með vopnavaldi!
--Það sé þar af leiðandi freystandi að túlka þyrluárásina sem sviðsetningu, ætlað að veita Maduro átyllu - til að beita hervaldi gegn fjöldafundum andstæðuinga í fjölda borga.
Hvellir sem heyrast geta verið púðurkerlingar eða púðurskot!
Venezuela movie actor behind helicopter attack on government buildings
Police helicopter attacks supreme court with grenades
Venezuelas B-movie drama threatens to turn from farce to tragedy
- Oscar Pérez, hinn meinti árásarmaður, er meðlimur í herlögreglu Venezúela.
- Fyrir utan það, var hann aðalleikari í B-mynd frá 2015 - Suspended Death, þ.s. herlögregla landsins kom við sögu; Perez lék þá auðvitað herlögreglumann - var aðalhetja þeirrar myndar, og í henni skv. fjölmiðlum hafi verið teiknuð afar rósrauð mynd af herlögreglu Venezúela.
- Enginn virðist hafa meiðst í meintri árás - sprengjum sem sagt er að hafi verið varpað, ekki sprungið að sögn yfirvalda.
--Erfitt að teikna upp, meir grunsamlega atburðarás en þetta!
Það kemur í ljós, hvort að Maduro notar þetta sem átyllu til beitingu skotvopna gegn almenningi á götum landsins.
En ef hann gerir það, gæti það einmitt verið stundin - er borgarastríð hefst.
Það má alveg sjá fyrir sér svipaða upphafs-atburðarás borgarastríðs og í Sýrlandi!
En þegar Assad skipaði her og lögreglu að beita skotvopnum á hvað þá enn voru óvopnuð fjöldamótmæli - fór af stað atburðarás sem Assad alveg örugglega reiknaði ekki með!
Hluti stjórnarhersins gekk til liðs við götu-uppreisnina!
--Flestir virðast hafa verið óbreyttir hermenn, sem gripu með sér vopn þau er þeir náðu að grípa með sér úr nærstöddum herstöðvum.
--Afar fáir yfirmenn virðast hafa tekið þátt í þeirri uppreisn.
En þetta leiddi til þess, að uppreisnin fékk til liðs við sig -- vopnþjálfaða einstaklinga í umtalsverðum fjölda, auk þeirra vopna er þeir náðu að stela.
--Sem þíddi, að uppreisnin náði strax verulegum árangri - áður en stjórnarhernum tókst að endurskipuleggja sig!
- Það er nefnilega punkturinn -- að þegar uppreisn/andstaða gegn stjórnvöldum er orðin ákaflega almenn.
- Getur stjórnin ekki verið viss um það -- að hernum sé treystandi.
3/4 þjóðarinnar styður ekki lengur stjórn Maduro.
Það er það útbreiddur matarskortur, að hlýtur að ná til fjölskylda er hermenn þekkja náið.
Samtímis, herja fjöldi læknanlegra smytsjúkdóma á landið sem plágur, vegna hruns heilbrigðiskerfisins.
Og það er í gangi niðurbrot á "public order" sem hefur gerist fjölda borga ótryggar.
- Þetta eru yfrið nægar ástæður að ætla, að fjöldi hermanna séu ekki lengur hliðhollir stjórnvöldum.
--Það þíði þó ekki endilega að uppreisn sé yfirvofandi, enda erfitt fyrir hermenn gjarnan að stíga það skref, að hætta að hlíða yfirboðurum sínum.
--En ef, Maduro hefur blóðbað á götum, gæti það vel gerst að frændur eða frænkur sumra hermanna, lendi í valnum -- eða a.m.k. þeirra eigin fjölskyldur sumra hermanna, þekki einhverja látna.
- Bendi á að í borgaraátökum í Lýbanon - reyndist her landsins gagnslaus, þ.e. það klofinn að hann tók aldrei formlegan þátt í stríðinu, hélt sér til hliðar.
- Svipaða afstöðu tók herinn í Úkraínu - þegar þar síðast urðu mjög víðtæk götumótmæli er leiddu til falls sytjandi stjórnvalda -- þá þverneitaði herinn að skipta sér af.
- Bendi á, að Kína er blóðbað varð á "Tianamen" torgi í Peking fyrir slatta af árum -- þá sérvaldi stjórnin í Kína hersveitir úr héröðum fjarri Peking.
--Til að lágmarka líkur á að hermenn hefðu samúð með mótmælendum.
--Þegar andstaðan gegn stjórn eins og í tilviki Venezúela - sé orðin það útbreidd, að mikill meirihluti landsmanna sé andsnúinn.
--Þá geti reynst afar erfitt að leita uppi hersveitir - sem unnt væri að treysta fullkomlega.
- Og það væri, tel ég, umtalsverð áhætta fyrir Maduro að starta blóðbaði á strætum borga landsins.
- Því jafnvel þó honum mundi takast að leita uppi hersveitir til verksins -- gæti samúð annarra hersveita með þeim er mundu liggja í valnum, eins og í Sýrlandi, brotist fram með uppreisn þeirra hluta hersins.
Ef það gerðist, þá væntanlega mundi sá hluti er berðist með stjórnarandstöðunni -- ná undir sig hlutum landsins.
Meðan að sá hluti hersins er héldi tryggð við stjórnina, héldi öðrum hlutum.
--M.ö.o. endurtekning á Sýrlandi.
- Síðan gætu nágrannalönd Venezúela ákveðið - að skipta sér af.
--Eftir að átökin væru hafin.
Niðurstaða
Spurning hvort að Niculas Maduro er nærri þeirri stund að fremja sambærileg mistök við þau er Assad framdi sumarið 2011, er Assad fyrirskipaði beitingu skotvopna gegn óvopnuðum múg á götum landsins.
En mig grunar að líkur geti verið á klofningi innan hersins, ef óbreyttir borgarar fara að falla í gríð og erg á götum og torgum borga landsins -- enda hafandi í huga mikla útbreiðslu götu-mótmæla, og gríðarlega útbreiðslu óánægju með stjórn Maduros meðal almennings.
--Verulega sennilegt a.m.k. hluti hermanna stjórnarhersins, hafi einhverja verulega samúð með núverandi götumótmælum.
- Ef slík atburðarás hefst, að hluti hersins gengur í lið með stjórnarandstöðu, meðan að stjórnin heldur öðrum hlutum hersins.
- Grunar mig að stjórnin muni fyrir rest verða undir í þeim borgaraátökum.
Það sé vegna þess, að ég efa að nokkurt utanaðkomandi land sjái hag í því að styðja með vopnum stjórn Maduros. Vegna þess að mikill meirihluti landsmanna sé líklegur þá að styðja uppreisnina, þá vil ég meina að það mundi ekki þurfa að koma til nokkur veruleg utanaðkomandi aðstoð við uppreisn til þess að hún hefði betur - er uppreisnin nyti slíks fjöldastuðnings.
--Bendi á hvernig Sandinistar unnu hratt sigur á stjórn Somoza á sínum tíma.
--Og hvernig Castro í Kúpu gerði það sama gegn einræðisherranum Batista.
Þær stjórnir hafi nánast algerlega verið rúnar stuðningi innan eigin landa, því ekki haft neinn umtalsverðan viðnámsþrótt gegn vel skipulagðri vopnaðri uppreisn.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2017 | 00:02
Maduro forseti Venezúela - hótar borgarastríði og risastórri bylgju flóttamanna, mun verri en þeirri frá Sýrlandi
Það versta er að ég trúi Niculas Maduro fullkomlega, er hann segir hann og þann kjarna stuðningsmanna sem eftir eru er enn styðja stjórn hans í Venezúela; mundu grípa til vopna!
--Ef stefni í að andstöðunni í landinu takist að steypa stjórn hans.
- Einmitt hvað ég hef óttast um skeið, að ástandið í Venezúela endi í blóðbaði og upplausn.
- En það því miður virðist rökrétt afleiðing þess, að hvorki stjórnin né stjórnarandstaðan virðast ætla að gefast upp.
- Nú eru 3-mánuðir liðnir af samfelldum götumótmælum.
--Vísbendingar skýrar að þau mótmæli séu að - færast upp á skaptið!
Sbr: Venezuelan opposition lays siege to air base
Einmitt, hópur meðal mótmælenda gerði tilraun til þess að ná undir sig - flugherstöð.
A.m.k. vel hugsanlegt að unnt hefði verið að komast yfir - einhver skotvopn.
Áhugavert blogg: What a slide into civil war looks like.
Sammála honum, þannig líti það út er land virðist á leiðinni í borgaraátök!
--Þetta sé mjög óþægilega farið að líkjast ástandinu í Sýrlandi!
--Rétt áður en víðtæk götumótmæli umhverfðust í vopnuð skæruátök.
Síðan kemur hótun Maduro, einmitt um borgaraátök:
Venezuela president says supporters will take up arms if government falls
Venezuela's Maduro warns of war if 'revolution' toppled
- Niculos Maduro: If Venezuela was plunged into chaos and violence and the Bolivarian Revolution destroyed, we would go to combat. We would never give up, and what we failed to achieve with votes, we would do with weapons. We would liberate the fatherland with weapons.
- Listen, President Donald Trump, - You would have to build 20 walls in the sea, a wall from Mississippi to Florida, from Florida to New York, it would be crazy ... You have the responsibility: stop the madness of the violent Venezuelan right wing.
--Aðvörun Maduro sú, að flóttamannabylgjan frá Venezúela yrði miklu stærri en sú frá Sýrlandi.
--Því miður, gæti það nákvæmlega reynst vera rétt - að algert hrun Venezúela í borgaraátök og ástand fullkominnar upplausnar; gæti leitt til gríðarlegrar bylgju flóttamanna.
Varðandi ásökun Maduro að andstaðan sé fasísk, bendi ég á umfjöllun al-Jazeera: A country divided.
Vönduð umfjöllun, með viðtölum hvort tveggja við -- stuðningsmenn stjórnarinnar, og stuðningsmenn andstöðunnar!
Síðan eigin greining al-Jazeera: "In fact, several parties in the MUD (the Table of Democratic Unity, which is made up of about 20 opposition parties) identify as centrist or left-of-centre, and three of the largest ones are members of the Socialist International."
- Andstaðan samanstandi af öllum öðrum starfandi flokkum í landinu, þvert yfir sviðið frá hægri til vinstri.
--Hægri menn, miðju menn og hófsamir vinstri menn m.ö.o.
Síðast en ekki síst, mjög áhugaverð umfjöllun -- er lýsir því stórmerkilega ástandi, að land sem er frábært landbúnaðarland; getur ekki brauðfætt sig: People are hungry, but farmers cant feed them.
--Menn kalla þetta gjarnan í dag, Maduro kúrinn, það merkilega ástand að meirihluti landsmanna þarf að sleppa úr einni máltíð per dag.
--En á sama tíma, svelta fjölskyldur í bændahéröðum ekkert síður en fólk í borgum!
- Þetta sé einungis mögulegt með beitingu stórfurðulegrar óskynsemi um stjórnun.
--Eiginlega virðist Maduro hafa tekist að endurtaka öll verstu mistök landbúnaðarstjórnunar kommúnistaríkjanna í A-Evrópu á dögum Kalda-stríðsins.
--En t.d. þá hélt ca. 20% landsins, sem Pólland heimilaði bændum að rækta sjálfir - fæðuframleiðslu í Póllandi uppi, meðan að 80% ræktarland sem var rekið með samyrkjubúskaparaðferð kommúnismans framleiddi ekki nægilegt magn matvæla til að brauðfæða landið.
Ef þetta er ekki nóg: Er bersýnilega hratt vaxandi lögleysa í landinu, sem sjáist í því að í heilu hverfunum hafi íbúar sjálfir tekið yfir að gæta eigna sinna - lögregla sjáist þar ekki lengur, og í því að verslanir eru yfirleitt rændar nema að vopnaðir verðir gæti þeirra.
--Maduro virðist nota það sem eftir er af lögreglu landsins, í það verkefni að verja stjórnina fyrir mótmælendum!
- Ástand vaxandi niðurbrots stofnana landsins sé í gangi.
Ekki síst: Sjáist þetta niðurbrot í hratt vaxandi sjúkdóma-faröldum, því lyf fást ekki og auðlæknanlegir sjúkdómar verða þá að faröldrum -- malaría t.d. geysar í vaxandi mæli í landinu, berklar að auki, og fjöldi annarra sjúkdóma séu að auki á leiðinni að verða að faröldrum.
- Hættan sé m.ö.o. -- allsherjar niðurbrot!
Niðurstaða
Það sé einmitt það sem ég óttast, að fullkomin upplausn skelli á Venezúela - þegar andstöðunni takist loksins að ná undir sig mikilvægum stofnunum; nái þeim á sitt vald.
Og Maduro þá líklega standi við hótun sína, að grípa til skotvopna! Er hann sjái endanlega sæng stjórnarinnar upp breidda!
Þá sennilega gerist það sama og í Sýrlandi síð sumars 2011, að Venezúela leysist upp í borgaraátök -- og við taki fullkomin upplausn í landinu; er fylkingar íbúa þess berjast á banaspjót.
Það sé sennilega alls enginn vafi að þá skellur stór flóttamannabylgja á nágrannalöndum Venezúela!
--Við erum að tala um milljónir, kannski fleiri milljónir en þær milljónir er flúið hafa Sýrland.
- Spurning hvað gerist þá --> En einn möguleikinn er þá sá, að nágrannalöndin skipuleggi sameiginlegan her; og hefji innreið í landið - til að skakka leikinn.
- Ég held að það sé virkilega ekki sérdeilis ósennileg útkoma, ef slík allsherjar óöld og upplausn brýst fram í Venezúela.
--Slíkur her mundi ekki endurreisa völd Maduro - það sé það eina sem sé algerlega víst.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þetta má kalla -- áfangasigur, eða takmarkaðan sigur. En rétturinn virðist hafa þrengt bann undirréttar með þeim hætti -- að þrengja bann það sem undirréttur lagði á tilskipun Trumps; þannig að það gildi einungis fyrir einstaklinga frá þeim löndum sem bann Trumps gildir fyrir sem hafa engin skjalfest tengsl við Bandaríkin.
- Þetta þíði, að ef einstaklingar frá þeim Múslimalöndum sem bann Trumps gildir fyrir - getur sýnt fram á slík skjalfest tengsl!
- Þá er þeim einstaklingi heimilt þrátt fyrir bann Trumps að koma til Bandaríkjanna!
Þetta gæti þó reynst ákaflega flókið og erfitt í framkvæmd!
Því klárlega munu þeir sem vilja komast til Bandaríkjanna, fullyrða að þeir hafi tengsl af því tagi sem rétturinn - skilgreini sú undanþága frá banninu gildi fyrir.
--Það geti einnig hugsanlega gerst, að einstaklingar kæri úrskurð sér í óhag!
Supreme Court to Hear Travel Ban Case:"Todays compromise will burden executive officials with the task of deciding on peril of contempt whether individuals from the six affected nations who wish to enter the United States have a sufficient connection to a person or entity in this country, Justice Clarence Thomas wrote."
Hans skoðun að úrskurður réttarins verði flókinn og erfiður í framkvæmd!
The Economist: The Supreme Courts curious compromise on the travel ban
Supreme Court gives Trump partial travel ban victory
The most significant aspect of this is that its unanimous, that all the justices agreed the lower courts made a big mistake, said Josh Blackman, a professor at the South Texas College of Law."
Narrowed travel ban could sow confusion in U.S. and abroad, experts say
- "Today's compromise will burden executive officials with the task of deciding - on peril of contempt - whether individuals from the six affected nations who wish to enter the United States have a sufficient connection to a person or entity in this country,"
- "Bona fide connections to entities, it said, must be "formal" and "documented.""
- "That would include students who have been admitted to a U.S. school and workers who have accepted an offer of employment from an American company, the court said."
Supreme Court breathes new life into Trump's travel ban
- "In an unusual unsigned decision, the Supreme Court on Monday said the travel ban will go into effect "with respect to foreign nationals who lack any bona fide relationship with a person or entity in the United States."
- "A lack of a clearly defined relationship would bar from entry people from the six countries and refugees with no such ties."
Eins og ég skil þetta!
Rétturinn tryggir þá aðgengi einstaklinga frá löndunum 6 að langskólanámi í Bandaríkjunum - ef þeir hafa fengið staðfesta skólavist séu það tengsl við Bandaríkin.
Bandarísk fyrirtæki eða stofnanir t.d. herinn, geta þá tryggt það að einstaklingar frá löndunum 6 sem hafa unnið fyrir þau eða bandarískar stofnanir í heimalandi sínu eða annars staðar - fái að koma til Bandaríkjanna
Fljótt á litið virðast þetta sanngjarnar takmarkanir á banni Trumps.
Meðan að rétturinn tekur síðar afstöðu til kröfunnar að bannið verði dæmt ólögmætt, eða mótkröfu Trumps að lögmæti þess verði staðfest.
- Rétturinn muni úrskurða um lögmæti banns Trumps að þrem mánuðum liðnum.
Niðurstaða
Bráðabirgðaúrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna, hafi ekki leitt til endanlegrar niðurstöðu - heldur einungis fjallað um þá takmörkun á ferðabann Trumps sem undirréttur hafði sett. Það bann ákvað Hæstiréttur að þrengja, þ.e. rétturinn ákvað að bann undirréttar gilti einungis fyrir einstaklinga sem hafa skjalfest tengsl við Bandaríkin. Þannig að bann undirréttar, var þrengt - ekki afnumið.
Að þrem mánuðum liðnum, mun Hæstiréttur Bandaríkjanna síðan taka afstöðu til deilunnar um það - hvort ferðabann Trumps á þegna 6 Múslimalanda, hafi brotið bandarísk lög eða jafnvel stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Niðurstaðan sé því hvorki endanlegur sigur né endanlegur ósigur.
--Eftir 3 mánuði vitum við það svar!
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skv. erlendum fréttum hefur Framkvæmdastjórn ESB heimilað Ítalíu að leysa úr bankakrísu innan Ítalíu -- án þess að farið sé eftir reglum þeim sem Framkvæmdastjórninni ber að framfylgja skv. lögum ESB um úrlausn bankagjaldþrota!
En þær reglur spruttu fram í evrukrísunni milli 2010-2012, ekki síst skv. kröfum ríkisstjórnar Þýskalands og var ætlað að lágmarka framlög ríkissjóða m.ö.o. skattgreiðenda til gjaldþrota banka.
Ekki síst höfðu menn í huga er ríkissjóður Írlands varð nærri því gjaldþrota í kjölfar þess að veita mjög umfangsmiklar tryggingar -- sem síðar leiddu til óskaplegs kostnaðar fyrir írska ríkið.
--Skv. þeirri lagasetningu sem þá spratt fram innan ESB, er ekki heimilt að leggja skattfé inn í gjaldþrota banka, fyrr en: A)Eigendur bankanna hafa verið núllaðir út. B)Ótryggðar skuldir hafa verið núllaðar út. C)Ótryggðar innistæður hafa verið núllaðar út!
- Eins og frægt er, var þessum reglum beitt er stærsti banki Kýpur varð gjaldþrota.
- Mikið af ótryggðum innistæðum voru núllaðar - í umræðu um það bankagjaldþrot var sagt að verulegt hlutfall þeirra ótryggðu innistæðna hefði verið í eigu rússneskra aðila.
--Ég læt ósagt, hvort að það hafi skipt einhverju umtalsverðu máli, um það að ESB framfyldi þessum þá nýju reglum fram í tilviki Kýpur.
--Hinn bóginn er Kýpur dvergríki - meðan að Ítalía er eitt af stærstu ríkjunum innan evrunnar.
- Ekki sama Jón og séra Jón m.ö.o.
Italy winds up Veneto banks at cost of up to 17 billion euros
Rome sets aside 17bn to wind down failing lenders
Eftir 2-ja ára samningaviðræður milli Framkvæmdastjórnar ESB og stjórnvalda Ítalíu - er niðurstaðan eftirfarandi!
- Intesa Sanpaolo bankinn, stærsti viðskiptabanki Ítalíu -- kaupir Banca Popolare di Vicenza og Veneto Banca; fær í móti meðgjöf frá ítalska ríkinu að andvirði lítilla 17 milljarða evra, þ.e. 5,2 milljarða evra strax, auk 12 milljarða evra í tryggingum.
--Það virðist að samkomulagið feli í sér að góðar eignir séu metnar samanlagt upp á 1 milljarð evra.
--12 milljarðar séu trygging meðan að farið verði í kostnaðarsamt ferli í að meta mikið magn mislélegra lána -- óvíst að allt það fé endi sem kostnaður ríkisins. - Framkvæmdastjórnin virðist að auki hafa heimilað ítalska ríkinu að leggja fé í 3ja-bankann, þ.e. Monte dei Paschi di Siena, í borginni Siena - hugsanlega elsti starfandi banki í heimi stofnaður á endurreisnartímabilinu á Ítalíu -- upp á litlar 8,8 milljarða evra.
Ekki hef ég þekkingu á ítalskri bankagjaldþrots löggjöf - en skv. samkomulaginu verður farið með gjaldþrotamál Banci Popolare di Vicenza og Veneto Banca skv. ítalskri löggjöf um gjaldþrot banka og fjármálafyrirtækja.
--Ekki, eins og áður er komið fram, skv. gildandi löggjöf um slíkt skv. núgildandi sameiginlegri löggjöf evrusvæðis innan ESB.
- Ég geri ráð fyrir því - að það leiði til mýkri meðferðar fyrir eigendur hins gjaldþrota Banca Popolare di Vicenza og Veneto Banca, en annars hefði orðið.
- Og síðan það, að allar innistæður verði tryggðar af ítalska ríkinu -- en væntanlega er slík trygging hluti af meðgjöfinni með þeim tveim gjaldþrota bönkum til Intesa.
--Skv. frétt eru þúsundir einstaklinga hluti eigenda.
--Sjálfsagt hafa margar þekktar fjölskyldur í Veneto héraði verið meðal eigenda, og beitt sínum pólitísku áhrifum innan stjórnkerfis Ítalíu og flokkakerfis Ítalíu.
Það sé þó rétt að nefna tvennt!
- Að ef ótryggðar innistæður hefðu verið núllaðar, eins og gert var á Kýpur - hefði það hugsanlega getað leitt til óróa meðal ítalskra innistæðueigenda víðar á Ítalíu.
--Það má velta því fyrir sér, hversu miklar líkur voru á slíku, þ.e. áhlaupi á ítalska bankakerfið.
--En ef Framkvæmdastjórnin sannfærðist um það, að hættan væri hugsanlega umtalsverð - má vera að slíkur ótti hafi haft a.m.k. eitthvað um ákvörðun hennar að gera. - Ef eigendur bankanna tveggja hefðu verið núllaðir út + ótryggðar innistæður; þá hefði það líklega verið töluvert efnahags áfall fyrir Veneto hérað á Ítalíu.
--Ekki klár á því hve alvarlegt það hefði heilt yfir verið fyrir ítalskan efnahag.
--En auðvitað, víðtækari fjármagns flótti hefði getað valdið töluverðum efnahagsskaða víðar á Ítalíu.
Niðurstaða
Það má vera að skýringin að baki ákvörðun Frakvæmdastjórnarinnar liggi í því fornkveðna --: Ef þú skuldar banka 10 milljónir, er það þitt vandamál -- ef þú skuldar banka 10 milljarða, er það vandamál bankans.
Ítalía er sennilega að auki með viðkvæmasta fjármálakerfið á gervöllu evrusvæði, þ.s. sennilega hundruð milljarða evra í slæmum lánum hanga sem myllusteinn, samtímis því að ítalska hagkerfið er enn dragbítur á meðalhagvöxt evrusvæðis.
Til viðbótar, þá skuldar ekkert aðildarland evrusvæðis eins mikið fé í opinberum skuldum og ríkissjóður Ítalíu.
Ekki síst, svo miklar eru ríkisskuldir Ítalíu að önnur aðildarlönd evrusvæðis líklega treysta sér ekki til að ábyrgjast þær skuldir.
--Að lokum, Ítalía er eitt af evrulöndunum sem er "to big to fail" þ.e. evran líklega mundi ekki hafa það af ef ríkissjóður Ítalíu yrði gjaldþrota.
Þannig að útkoman í tilviki Ítalíu - sé ekki bara vegna þess að Ítalía sé stórt land innan evrusvæðis meðan að Kýpur er dvergríki.
Heldur líklega að auki vegna þess, að það síðasta sem restin af evrusvæði líklega vill - sé ný fjármálakreppa hugsanlega nægilega stór til að skapa aðra sameiginlega krísu fyrir allt svæðið.
--Kýpur hafi ekki verið nægilega stór til að rugga öllum bátnum.
--Meðan að Ítalía sannarlega sé það!
En útkoman sé óneitanlega sú:
- Að reglum sé framfylgt þegar smáríki lendir í vandræðum.
- En ekki þegar eitt af stærstu aðildarríkjunum lendir í vanda!
--Sumir jafnari en aðrir m.ö.o.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 07:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumir mö...
- Yfirlýsing Trumps um yfirvofandi 50% tolla á ESB lönd, afhjúp...
- Tollar Bandaríkjanna á Kína - líklega ca: 50%. Kína á Bandarí...
- Að það verður af hráefnasamningi Úkraínu og Bandaríkjanna - v...
- Margt bendi til yfirvofandi kreppu í Bandaríkjunum! Skv. áhug...
- Vaxandi líkur á að Trump, reki: Jerome Powell. Yfirmann Seðla...
- Gideon Rachman hjá Financial Times -- útskýrir af hverju, Ban...
- Trump undanskilur frá tollum á Kína -- snjallsíma, og nánast ...
- Talið af sérfræðingum, verðfall á ríkisskuldabréfum Bandaríkj...
- Viðskiptastríðsyfirlýsing Donalds Trumps gagnvart heiminum li...
- Stríðið í Úkraínu getur verið að þróast aftur í pattstöðu - s...
- Friedrich Merz, virðist ætla að takast að stórfellt auka hern...
- Kreppuhætta í Bandaríkjunum getur verið stærri en margir hald...
- Trump líklega græddi: 350mn.$ á Trump-Coin, á einungis 18 dögum!
- Ríkisstjórn Donalds Trumps, sbr. JD. Vance, alítur aðstreymi ...
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
-
eyglohardar
-
bjornbjarnason
-
ekg
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
neytendatalsmadur
-
bogason
-
hallasigny
-
ludvikjuliusson
-
gvald
-
thorsteinnhelgi
-
thorgud
-
smalinn
-
addabogga
-
agnarbragi
-
annabjorghjartardottir
-
annamargretb
-
arnarholm
-
arnorbld
-
axelthor
-
arnith2
-
thjodarsalin
-
formosus
-
birgitta
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
virtualdori
-
bookiceland
-
gattin
-
davpal
-
dingli
-
doggpals
-
egill
-
jari
-
einarborgari
-
einarsmaeli
-
erlaei
-
ea
-
fannarh
-
fhg
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gillimann
-
bofs
-
mummij
-
gp
-
gudmbjo
-
hreinn23
-
gudrunmagnea
-
gmaria
-
topplistinn
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
hallurmagg
-
haddi9001
-
harhar33
-
hl
-
diva73
-
himmalingur
-
hjaltisig
-
keli
-
fun
-
johanneliasson
-
jonsullenberger
-
rabelai
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
gudspekifelagid
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kristbjorg
-
kristinnp
-
larahanna
-
leifurbjorn
-
lifsrettur
-
wonderwoman
-
maggij
-
elvira
-
olafureliasson
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
rafng
-
raksig
-
redlion
-
salvor
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
logos
-
duddi9
-
sigingi
-
sjonsson
-
sigurjons
-
stjornlagathing
-
athena
-
stefanbogi
-
lehamzdr
-
summi
-
tibsen
-
vala
-
valdimarjohannesson
-
valgeirskagfjord
-
vest1
-
vignir-ari
-
vilhjalmurarnason
-
villidenni
-
thjodarheidur
-
valli57
-
tbs
-
thorgunnl
-
thorsaari
-
iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 51
- Sl. sólarhring: 182
- Sl. viku: 1480
- Frá upphafi: 868243
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 1411
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar