Pútín hvetur Bandaríkin til að stilla saman strengi landanna gegn ISIS í Sýrlandi

OK - mörgum finnst þetta aðlaðandi hugmynd, að aðstoða stjórnvöld í Damascus - með beinni hernaðaríhlutun í átök þar í landi. Á hinn bóginn hefur sú hugmynd alvarlega galla, sem aðilum er laðast að þessari leið - annað af tvennu, líta fram hjá eða hafa ekki kynnt sér.

Russia calls on US to co-operate with its military in Syria

 

Assad er ekki -jihadisti- sem gerir hann skárri kostinn!

Þetta er hugmyndin í hnotskurn.

  1. En þetta lítur algerlega framhjá því atriði - að stríðið í Sýrlandi hófst með fjölda uppreisn stórs hluta íbúa, uppreisn sem ekki hefur hætt - þó að margir utanaðkomandi hópar hafi blandað sér síðan í málið.
  2. Að auki lítur þetta framhjá óskaplegri grimmd herafla Assads, er hefur meira eða minna lagt borgir og bæi landsins í rúst með sprengju-regni. Höfum í huga -margir sem eru hrifnir af stuðningi við Assad gjarnan samtímis gagnrýna stjv. í Úkraínu þ.s. liðlega 7.000 mann hafa látið lífið- en síðan stríðið hófst hafa yfir 300.000 manns eða ca. jafngildi allrar ísl. þjóðarinnar látið lífið, mjög sennilega langsamlega flestir almennir borgarar - og langsamlega flestir þeirra látið lífið vegna sprengjuregns stjv. **Þetta sýnir mikinn mun á grimmd átakanna í þessum tveim löndum, einnig hve stjórnarher Sýrlands er til mikilla muna - skeytingarlausari um mannfall almennings.
  3. Svo má ekki gleyma 8 milljón manns á faraldsfæti, þeirra heimili sennilega eru eyðilögð - fólk sem hefur kynnst hryllingi stríðsins þarna.
  • Það sem mér finnst magnað - - > Hvernig fólki dettur í hug, að almenningur geti fyrirgefið stjórnvöldum þessi ósköp?
  • Þ.e. sætt sig við að verða aftur stjórnað af Assad?

Ég hef enga trú á öðru en að landið yrði að herseta með varanlegum hætti.

Ef ætti að tryggja völd Assads yfir því öllu.

Og samtímis, væri slíkt setulið undir stöðugum árásum - íbúar mjög líklega litu það sömu augum og t.d. Lýbanir litu setulið Ísraela á 9. áratugnum.

-----------------------

Þó að ISIS sé sannarlega hræðileg hreyfing - - er langt langt í það, að sú hreyfing hafi drepið nándar nærri þetta marga Sýrlendinga.

Með þessa 2-valkosti þ.e. "evil vs. evil" ekki "evil vs. lesser evil."

Er einhver furða að margir kjósi að - leggja á flótta?

 

Það þarf auk þeirra galla er ég hef nefnt, að nefna að síðan 2013 hefur stríðið í Sýrlandi umhverfst í - - trúarstríð Shíta vs. Súnníta

Það má greina 4-fasa í því:

  1. Upphafleg uppreisn, sem hefst samtímis og mótmæli geysa um Mið-Austurlönd tengt svokölluðu "arabísku vori" - eftir mótmæli á götum úti í nokkra mánuði, sem mætt var með miklu harðræði lögreglu, þannig að hundruð óvopnaðra borgara láta lífið. Hefst klofningur innan stjórnarhers Sýrlands - er verulegur hluti liðsafla, gengur í lið með því sem í upphafi voru götumótmæli - > Vopnuð átök brjótast út ca. sept. 2011.
  2. Margvíslegir "jihadista" hópar byrja síðan að mæta á svæðið þegar átök hafa staðið í nokkra mánuði. Þeir eflast hratt - virðast þegar hafa notið stuðnings utanaðkomandi afla, sennilega Arabaríkjanna v. Persaflóa. Þegar árið rennur fram, ráða þeir stærri svæðum en - upphaflega uppreisnin, þ.e. svokallaður frjáls sýrl. her.
  3. ISIS mætir á svæðið 2013, framan af fer ekki mikið fyrir þeirri hreyfingu. En sú hreyfing ræðst að -uppreisnarmönnum- það ár, fyrst og fremst. En þegar svo var komið, voru stór landsvæði undir stjórn kraðaks hópa, þ.e. uppreisnin var orðin mjög klofin, margir hóparnir smáir. Það gerir -ISIS- mögulegt að beita klassískri aðferð -defeat in detail- þ.e. velja sér fyrst veikustu hópana einn af öðrum, taka þá yfir eða drepa, taka af þeim vopnin - þeir sem kjósa að lifa, efla raðir ISIS. Svo trappar ISIS sig upp, eftir því sem hreyfingin eflist, og ræðst á öflugari hópa - tekur yfir þeirra vopn og í mörgum tilvikum einnig, liðsmenn. **Þannig virðist ISIS hafa komist yfir nokkuð af bandar. vopnum sem CIA hafði látið einhvera þeirra hópa hafa er gáfust upp fyrir ISIS.
  4. ISIS eflist hratt, Íranar bregðast við með því að - - kalla til bandamenn sína, hið lýbanska Hesbollah. Og hefur sú hreyfing síðan - - barist með sveitum Assads.

Punkturinn er að - - þegar við höfum ISIS á annan kannt, bersýnilegan stuðning margra arabaríkja við fjölda -jihadista- hópa er berjast við Assad.

En Hesbollah á hinn kannt - - ásamt stuðningi Írans við stjv. í Sýrlandi.

Þá hefur stríðið öðlast mjög sterkan - - trúar stríðs undirtón.

-------------

Hættan er m.ö.o. að ef Vesturlönd færu að styðja Assad, í bandalagi við Írani.

Að þá færu Arabar að líta á þ.s. svik við málsstað sinnar trúar.

Og Súnní Arabar eru til mikilla muna fjölmennari í Mið-Austurlöndum, heldur en Shia Múslimar.

  1. Ég tel það blasa augljóst við, að Súnní Íslam haturshreyfingar af margvíslegu tagi, mundu græða mjög stórfellt á slíku bandalagi við Assad. Þar á meðal ISIS að sjálfsögðu.
  2. M.ö.o. að ef menn hafa þá stefnu að efla ISIS sem mest, og aðra hættulega Súnní Íslam haturshópa, þá væri það mjög skilvirk leið að slíku markmiði - - að ákveða að styðja Assad með beinum hætti, eins og Pútín leggur til.

Rétt að árétta að langsamlega flestir þeirra ca. 40 milljón Múslima er eiga heima í Evrópu, eru Súnní Íslam.

Menn verða að skilja - að hatursbylgjan meðal Súnní Múslima er mundi myndast, mundi einnig ná til Súnní Múslima er búa meðal vor á Vesturlöndum, þar á meðal í Evrópu.

 

Það þarf allt allt aðra nálgun á þetta mál!

Samningur við Íran gæti verið upphafið. En áður en unnt er að hefjast handa. Þarf að - afkúpla þetta trúarstríð milli Saudi Araba og bandamanna þeirra við Persaflóa, og Írans - sem staðið hefur nú yfir samfellt síðan á 9. áratugnum,

Stríðið í Sýrlandi - er eiginlega hreint "proxy war" milli þeirra fylkinga, orðið í dag.

Það verði að gera með einhvers konar - friðar samkomulagi milli arabaríkjanna við Persaflóa, og Írans.

Líklega þarf að leysa Sýrlands málið - - með skiptingu Sýrlands, þ.e. Íran fái að halda sneið, með sennilega bandamanni Írans -Assad- áfram við völd.

Meðan að Arabaríkin fái - svæðin sem ISIS nú ræður yfir.

  1. Eftir að slík skipting væri í höfn.
  2. Væri sennilega unnt að fá Arabalöndin sjálf, til þess að - safna saman í eitt púkk, dágóðum heralfa, svo að þau gangi milli bols og höfuðs á ISIS.

Ég held að Vesturlönd sjálf.

Ættu alls alls ekki, undir nokkrum kringumstæðum, að senda þangað fjölmennt lið.

 

Niðurstaða

Með öðrum orðum er ég að segja, að bein hernaðaraðstoð við Assad. Sé líklega sú hinn allra versta hugmynd, sem er inni í umræðunni. En þvert ofan í þ.s. fylgismenn halda fram - yrðu áhrifin algerlega þver öfug. Að stórfellt efla fylgi við hættulegar haturshreyfingar meðal Súnní Múslima.

Ef menn hafa áhuga á að - - starta aftur styrrjöldunum milli íbúa Norður strandar Miðjarðarhafs og Suður strandar Miðjarðarhafs. Væri stuðningur við Assad sennilega öflug leið að slíku takmarki.

Spurning hvort að Pútín - sé að leggja þetta fram. Í von þess að Vesturlönd væru svo heimsk, að falla með slíkum hætti - á eigið sverð?

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Einar Já það er engin furða að fólk í Sýrlandi leggi á flótta og það á við alla Afríku líka. Spurningin er hvernig á að stöðva flótta þessara þjóða bæði sem eru í flóttamanna búðum og á faraldsfæti. Ef það er ekki gert með hörðu þá munu milljónir streyma inn í Evrópu.Hér þarf ískalda rökhyggju. Ískalda. Fólkið mun deyja í hrönnum utan við landamæri Ungverjalands þegar vetur skellur yfir.Vopnlaus her er það versta sem vopnaðir mæta. þetta er hryllilegt ástand og ekki okkar Íslendinga að skipta sér að nema með matvæla hjálp. 

Valdimar Samúelsson, 12.9.2015 kl. 07:05

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þú heldur að Ungverjaland muni loka landamærum sínum - ok, sennilega rétt. Á hinn bóginn efa ég að Evrópa lofi flóttamönnum að deyja úr hungri í hrönnum. Hún frekar bregðist við með -stórfelldri dreifingu matvæla. Fyrst þ.e. hægt að skipuleggja slík ef slíkur atburður gerist í Afríku, er hægt að skipuleggja umfangsmikla matvæladreifingu - nær okkar svæðum.

    • Ég hef verið þeirrar skoðunar að löndin þangað sem flóttamennirnir flúðu til fyrst - hefðu átt að fá rausnarlega aðstoð, þegar 2012 er mánuðir voru síðan stríðið í Sýrlandi hófst.

    • Á hinn bóginn, má vera að -aðstoð nú, komi of seint, til að stöðva flóttann- en hóparnir er fyrst fóru til Jórdaníu og Líbanon, virðast í dag á hreyfingu til Evrópu - - > Þegar flóðbylgja er farin af stað, er mun erfiðara að stöðva hana, en ef við hefðum brugðist við fyrir 3 árum.

      • Bendi einnig á, að þ.e. horft á gerðir okkar, af Þjóðum Afríku.

      • Einnig af þjóðum Mið-Austurlanda.

      Þessi allsherjar netvæðing, hefur einnig náð til a.m.k. borga í þeim löndum. Fólk er -eins og hér- með spjall á netinu, og gegnum vefinn - berst umræðan hratt, miklu leiti eins og hér.

        • Áhrif netsins eru þannig mikil.

        Neikvæð viðbrögð - - jákvæð viðbrögð, berast hraðar en áður.

        Vefurinn veitir einnig - - haturssamtökum, mun auðveldari leiðir en áður, til að koma áróðri sínum til skila.

        ------------------

        M.ö.o. tel ég nauðsynlegt, að aðgerðir okkar taki tillit til líklegra áhrifa þeirra, á samfélagsumræðu - í samfélögum Afríku, og Mið-Austurlanda.

          • Ef við förum verulega illa með flóttamenn.

          • Þá gæti það mjög hratt orðið vatn á myllu hættulegra haturssamtaka, er mundu notfæra sér slíkt - til að sá meira hatri, fá fleiri til liðs við sig.

          Hvað sem við gerum.

          Þá má m.ö.o. meðferð flóttamanna ekki vera með þeim hætti, að hættuleg haturssamtök - græði á.

            • Eiginlega er ég að segja, sjálfra okkar vegna - þarf meðferð okkar á flóttamönnum, að vera góð.

            • Sem þarf ekki að þíða, að eina leiðin sé að taka við þeim.

            En það má ekki láta það gerast, að hungurdauði verði.

            Og ef menn vilja setja upp búðir í -þriðja landi- þurfa aðstæður að vera nægilega rausnarlegar, til að - haturssamtök græði ekki.

            -----------

            Þ.e. ástæða af hverju ég hef gert samlíkingu við Kalda Stríðið. En munum að þjóðir A-Evrópu, ákváðu að ganga til liðs við okkur.

            Það var vegna þess, að hinn eiginlegi sigur var sá - að okkar sýn á hvað væri gott samfélag, varð ofan á.

              • Ég held að í glímu við hættuleg haturssamtök, múslima.

              • Sé það sama í gangi, að megin baráttan sé - á áróðurrsviðinu.

              Jihadistar - eins og Kommar, halda fram sínu samfélagsmódeli.

              Við erum með okkar - - þ.s. ég er að segja, að við eigum að verja okkar -samfélagsmódel.

                • Þetta frjálsa reglusamfélag sem byggt hefur verið upp.

                • Þess vegna verðum við að fara mjög varlega í nálgun.

                  • Ekki falla í þá gildru, að fara sjálf að grafa undan okkar samfélagsgerð, t.d.

                  • Það eru sumir sem leggja slíkt til.

                  Ef við förum í þá átt.

                  Þá mundu -jihadistarnir- vinna.

                  En þeir vilja ná á sitt vald, samfélögum N-Afríku og Mið-Austurlanda. Og endurvekja - stríðin.

                    • Eiginlega mikilvægasta glíman - snýr að íbúum þeirra landa sjálfra, að fá þá til að velja ekki að ganga til liðs við haturssamtökin.

                    • En til þess að það gangi upp, þurfa þeir íbúar að læra að trúa á aðrar lausnir.

                    Þ.e. ein ástæða þess - að ég tel rangt, að styðja -einræðisstjórnir.

                    Lausnin liggi nær því - að Vesturlönd, aðstoði þessi lönd við efnahags uppbyggingu, svo að fólkið sjái - > Framtíð í öðru en fullyrðingum haturrsamtaka.

                    Kv.

                    Einar Björn Bjarnason, 12.9.2015 kl. 12:45

                    3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

                    Þú segir.: Þá munu Jihadistarnir- vinna. Þeir eru líklega búnir að vinna en þessi fótti stoppar ekki. Fólk mun riðjart út úr flóttamanna búðunum þegar það sér þessa linkind Evrópubúa. Mundu þetta eru frekustu mannverur í heiminum þ.e. Múslimar. Stéttarskiptingin byggist á hve hátt þú ert settur trúarlega og hve oft þú hefir farið til Mekka. Kóranin ræður og sveðjan mun hræða flóttafólkið til hlýðni hvar sem það er í heiminum. Lastu eftir Halldór Jóns 

                    Valdimar Samúelsson, 12.9.2015 kl. 15:22

                    4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

                    Nei það tel ég ekki rétt, að þeir hafi þegar unnið. Fer auðvitað hvað maður á við með - sigri.

                      • En ég á við með sigri, að -Jihadistarnr- verði undir í baráttunni um völdin í Mið-Austurlöndum.

                      • Ég held það sé langt langt í frá ljóst - að sú barátta sé töpuð.

                      Og ég virkilega held, að meðferð okkar á þessu flóttafólki þ.e. hvernig við tökum við þeim, hvernig við förum með það <-- Muni hafa mikil áhrif á samfélagsumræðu innan Mið-Austurlanda.

                        • Það er þ.s. ég meina, að því verr sem við förum með flóttamennina.

                        • Því meir fylgi græði -jihadista- haturssamtök fylgi á því innan Mið-Austurlanda.

                        • Ekki heldur gleyma því, að margir Múslimar búa í Evrópu <-- Þeir sannarlega munu veita því athygl hvernig farið verður með þeirra trúbræður.

                          • Hatirrsamtökin eru að segja <-- Evrópa hatar Múslima.

                          • Er það ekki ljóst, að ef það lítur svo út, að við séum að koma þannig fram við múslima i sannarlegum vanda <-- Að þá fjölgi þeim sem trúa því sem þeir segja - - > Að Evrópa hati Múslima.

                          Hvernig við bregðumst við.

                          Hefur mikil áhrif.

                          Mun hafa mikil áhrif.

                          -----------------

                          "Kóranin ræður og sveðjan mun hræða flóttafólkið til hlýðni hvar sem það er í heiminum. Lastu eftir Halldór Jóns "

                          Þetta er ekki svona einfalt <- - Ef þú lest Biblíuna, getur þú fundið þar mörg fyrirmæli í Gamla-Testamentinu, sem eru ákaflega grimm.

                            • Íslam hefur sína róttæklinga.

                            • En það eru ekki allir þeir sam aðhyllast Íslam róttæklingar.

                            Ef það væri rétt að Kristnir geta ekki lifað með Múslimum.

                            Hvernig stendur þá á því, að öll samfélögin á Balkan-skaga eru enn kristin, en Múslimar þar í nokkrar aldir?

                            Of margir eru að - - ræða um Íslam, eins og Íslam sé það Íslam sem haturshópar Jihadista segja það vera. En vandinn er sá, að haturshóparnir eru ekki að gefa rétta mynd af eigin trú.

                              • Ekki fremur en t.d. - - endurvakningar kristnir, gefa endirlega rétta mynd af allri kristinni trú.

                              Ég get ekki samþykkt slíkan málflutning eins og Dóri Jóns er með.

                              -----------------

                              Hafðu í huga það - - að okkar viðbrögð skipta máli.

                              Ef við bregðumst mjög neikvætt við - - þá mun það efla neikvæð viðbrögð á móti. Og með þeim hætti - - gæti hræðsla okkar, ótti - ef sá ótti/hræðsla - kallað fram þá útkomu er við hræðumst.

                              Sbr. "self fulfilling prophecy" - þegar ef við hefðum brugðist við með allt öðrum og mun vægari hætti, að þá hefði útkoman einnig orðið vægari.

                                • Ég er þvert á móti þeirrar trúar.

                                • Að unnt sé að sigrast á -Jihadistum- með sama hætti og við sigruðum kommúnismann.

                                  • Þ.e. að á endanum, þá velji samfélög Múslima, að líkjast okkar samfélögum meir.

                                  En það virkar ekki nema að við höldum okkur fast við okkar samfélagslega módel, eins og það hefur verið sl. áratugi.

                                  Sem m.a. felur í sér, að við höldum áfram fast í okkar mennréttinda reglur, og þá grunn reglu -að koma fram við aðra- -eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur.-

                                    • Við verðum að vera sú fyrirmynd.

                                    • Sem við viljum að aðrir verði.

                                    Ef við ætlumst til þess að hinir breyti sér í jákvæða átt, til að líkjast okkur.

                                    Fyrst að þetta virkaði í Kalda-stríðinu, sé ég ekki af hverju það ætti ekki að virka í dag líka.

                                    Ég sé ekki að -kommúnistar- hafi verið, meira skynsamir, en -jihadistar.-
                                    Og sannarlega drápu kommúnistar gríðarlega marga.
                                    Ógnin af þeim var mjög mikil.
                                    Ef e-h er, meiri en af Jihadistum dagsins í dag.
                                    Þess vegna tel ég að við eigum algerlega að halda ró okkar, hættan sé of metin af sumum, stórfellt tel ég -það sé ekki verulega hættulegt að fylgja áfram því módeli er virkaði í Kalda-Stríðinu.

                                    Kv.

                                    Einar Björn Bjarnason, 12.9.2015 kl. 16:47

                                    5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

                                    Gleymdi því að eitt samfélag á Balkan-skaga gerðist Múslímskt, svokallaðir Bosníu Múslimar. En önnur samfélög á Balkan-skaga sannarlega héldu sinni Kristni, aldir þær sem Múslimar stjórnuðu þar.

                                    Kv.

                                    Einar Björn Bjarnason, 12.9.2015 kl. 18:09

                                    Bæta við athugasemd

                                    Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

                                    Um bloggið

                                    Einar Björn Bjarnason

                                    Höfundur

                                    Einar Björn Bjarnason
                                    Einar Björn Bjarnason
                                    Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
                                    Maí 2024
                                    S M Þ M F F L
                                          1 2 3 4
                                    5 6 7 8 9 10 11
                                    12 13 14 15 16 17 18
                                    19 20 21 22 23 24 25
                                    26 27 28 29 30 31  

                                    Eldri færslur

                                    2024

                                    2023

                                    2022

                                    2021

                                    2020

                                    2019

                                    2018

                                    2017

                                    2016

                                    2015

                                    2014

                                    2013

                                    2012

                                    2011

                                    2010

                                    2009

                                    2008

                                    Nýjustu myndir

                                    • Mynd Trump Fylgi
                                    • Kína mynd 2
                                    • Kína mynd 1

                                    Heimsóknir

                                    Flettingar

                                    • Í dag (2.5.): 0
                                    • Sl. sólarhring: 44
                                    • Sl. viku: 279
                                    • Frá upphafi: 0

                                    Annað

                                    • Innlit í dag: 0
                                    • Innlit sl. viku: 271
                                    • Gestir í dag: 0
                                    • IP-tölur í dag: 0

                                    Uppfært á 3 mín. fresti.
                                    Skýringar

                                    Innskráning

                                    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

                                    Hafðu samband