Bretland gæti verið að nálgast víðtæka pólitíska sátt um að yfirgefa ESB

Ég skal viðurkenna að ég hef ekki mikla þekkingu á skoðunum Jeremy Corbyn, sem virðist líklegastur næsti leiðtogi Verkamannaflokksins breska. En þ.s. mesta athygli vekur - - eru viðhorf hans: Wikipedia Jeremy Corbyn

  1. Móti ESB aðild, vill m.ö.o. Bretland út úr ESB.
  2. Vill reyndar að auki Bretland út úr NATO.
  3. Er uppsigað við Bandaríkin.
  4. Hann virðist styðja sjónarmið Rússlands, í þá átt - að rangt hafi verið að hleypa A-Evr. þjóðum inn í NATO, og að ástandið í Úkraínu sé V-Evrópu, og NATO að kenna.
  5. Mjög sterk viðhorf gegn Ísrael, og ákveðinn stuðningsmaður sjónarmiða Palestínuanna, þar á meðal - Hamas.
  6. Vill að Bretland hætti að vera kjarnorkuveldi.
  7. Vill opna aftur kolanámur í Bretlandi, er lokað var í tíð Möggu Thatcher.
  8. Vill ríkisvæða járnbrautir.
  9. Móti skólagjöldum í breskum skólum.
  10. Meðlimur að Amnesti International.

http://i.telegraph.co.uk/multimedia/archive/03365/Jeremy-Corbyn_3365555b.jpg

Þau viðhorf hans er gætu haft einna mest áhrif, gætu verið viðhorf hans gagnvart ESB

Það gæti haft áhugaverð áhrif, ef hann verður leiðtogi Verkamannaflokksins - þegar fyrirhugað er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Bretland verður áfram meðlimur eða yfirgefur ESB.

Sannarlega er David Cameron ekki - beint andvígur aðild. Eða þannig les ég ekki hann. En á hinn bóginn, eru mjög sterk andstöðuhreyfing við aðild innan Íhaldsflokksins.

Síðan er það 3-aflið í bresku pólitíkinni, þ.e. UKIP er nú 3-flokkurinn í breskri pólitík. Hefur nú meira fylgi en Frjálslindir. Afstaða UKIP er sannarlega þekkt.

  • Ofan í allt þetta - bætist hin nýja flóttamanna krísa.
  • Og öflug andstaða innan Bretlands - að veita móttöku mörgum flóttamönnum.

Ég þekki ekki viðhorf Jeremy Corbyn um það atriði.

En það getur verið að hann sé stuðningsmaður þess að taka við þeim flóttamönnum.

Hafandi í huga ákafan stuðning hans við málstað Palestínumanna.

 

Niðurstaða

Mig grunar að það geti haft merkileg áhrif á bresk stjórnmál, líklegt kjör Jeremy Corbyn sem formanns Verkamannaflokksins.

Ekki nærri öll hans viðhorf virðist mér sennilegt að öðlist almanna hylli - sbr. virðist mér ekki neinn verulegur stuðningur innan Bretlands, að landið hætti að vera meðlimur að NATO. Það gæti verið töluverður stuðningur við það, að hætta að vera kjarnorkuveldi. Síðan efa ég að víðtækur stuðningur sé við það sjónarmið - að rangt hafi verið að hleypa A-Evr. þjóðum í NATO - - að með því hafi NATO veitt Rússlandi gilda átyllu. Eða að deilan í Úkraínu sé V-Evr. og NATO að kenna.

En afstaða hans til ESB aðildar - gæti haft áhrif. Þegar tekið er tillit til áhrifa UKIP + hóps íhaldsmanna sem vilja Bretland úr ESB - - > Og ekki síst, sennileg áhrif núverandi flóttamannakrísu til þess að efla stuðning við brotthvarf Breta úr ESB.

Þess vegna sagði ég í fyrirsögn.

Að það geti verið að nálgast sú stund.

Að það myndist víðtæk pólitísk sátt í Bretlandi.

Að landið yfirgefi ESB.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Jeremy Corbyn er nú ekki í minnihluta Evrópubúa að vera illa við USA og.auðvitað er hann að vera með sleikjuskap við múslima sem auðvitað virkar ekki nema að hann gerist mússi.

En eg er hrifinn að kolanámu hugmynd Jeremy, þegar fíflið hér í USA er að loka kolanámum, þá opna Bretar kolanámur, þetta er flott.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 11.9.2015 kl. 02:37

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég held hann fókusi á þau störf er glötuðust er námunum var lokað, og auðvitað að þeir voru kjósendur Verkam.fl. Ekki tékkað á því hvort að hann tengist sjálfur í eigin fortíð - verkamannafjölsk. sem missti sitt lífsviðurværi er námunum var lokað - en það gæti einnig skýrt þessa afstöðu. Sem virðist vera töluvert stílbrot við dæmigerða -krata- afstöðu í dag. Sem er meir í þá átt, að vilja hætta að nýta Það hvað framleiðir gróðurhúsalofttegundir.

Svo má nefna - að hann er andvígur niðurskurði ríkisútgjalda.

Vill að ríkið standi fyrir framkv. til að eyða atvinnnuleysi.

Og að seðlaprentun sé aukin.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.9.2015 kl. 08:31

3 Smámynd: Snorri Hansson

 Ef Verkamannaflokkurinn eða hluti hans skiptir um skoðun gagnvart ESB aðild!! Þá er nokkuð ljóst hvernig kosningin um aðild Breta fer.

Í nýlegri skoðanakönnun voru aðeins 14% Breta samþykkir frekara valda afsali til sambandssins. Málflutningur UKIP um ESB vinnur á.

Snorri Hansson, 11.9.2015 kl. 11:28

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

# 7 vill opna aftur kolanámur í Bretlanndi..... 

Varstu að búa Etta til, get ekki séð að kolanámuverkamenn vinni kolanámum nema að þær séu opnaðar aftur.

Þess vegna skil eg ekki athugasemd þína Einar í athugasemd #2.

Annað hvort er hann með opnun kolanáma eða ekki, ef svo er þá getur hann ekki verið með á nótunum með góða fólkinu.

Gróðurhús er að mestu vatn, hef ekki skilið hvernig vatn getur eyðilagt jörð og þá sem þar búa.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 13.9.2015 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 43
  • Sl. viku: 290
  • Frá upphafi: 847283

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 281
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband