Færsluflokkur: Heimspeki

Hvaða áhrif hefðir það á alþjóðaviðskipti - ef "róbótar" taka yfir alla framleiðslu?

Ástæða þess að ég velti þessu fyrir mér er umræða sem ég lenti óvænt í á erlendum miðli, spannst upp í tengslum við upphaflega ótengda umræðu - um Kína.
En ég lenti á aðila líklega kínverskum sem virtist sannfærður um það í annan stað að róbótar muni framleiða flesta hluti og það ekki eftir mjög mörg ár, og að hinu leiti virtist hann einhvern veginn sannfærður um það að það mundi leysa þann vanda Kína að þar mun á nk. árum eins og stefnir á að hendi fyrir Evrópu - verða fólksfækkun, þ.e. framreiknað nk. áratugi.

Í þessar umræðu komst ég að eftirfarandi niðurstöðu:

  1. Að ef róbótar framleiða allt eða nærri allt, þá þíði það að laun hætti að skipta máli - þar með sé ekki lengur ástæða til þess að framleiða hátæknivarning frekar í Kína en t.d. Evrópu - Bandaríkjunum eða Japan.
  2. Það hafi sennilega þá afleiðingu, að iðnríki með nægilega stóran heima-markað, framleiða hátæknivarning sjálf -- þannig að heimsverslun milli iðnríkja á hátæknivarningi líklega deyi drottni sínum.
  3. Í þriðja lagi, þurfi iðnríki samt sem áður áfram að fá hráefni frá löndum sem séu lítt iðnvætt eða þá mjög auðug að hráefnum -- iðnríki líklega eiga þá viðskipti við slík lönd, selji á móti - tæki af margvíslegu tagi.
  4. Málið sé að þegar -samkeppni um laun sé ekki lengur til staðar- ef maður gerir ráð fyrir áframhaldandi samkeppnisumhverfi milli landa og fyrirtækja --> þá yrði flutningskostnaður krítískur - en í dag, vegna þess að fólk enn framleiðir varning sé launamunur nægilega mikill milli svæða til þess að flutningskostnaður sé ekki mikilvægur --> en þegar laun hætta að skipta máli, verði sennilega kostnaður við flutning þegar kostnaðarmunur vegna launa hverfur úr myndinni að hinum krítíska kostnaði.
  • Þetta gæti þítt að verslun milli iðnríkja minnki mjög mikið.
  • Hvert um sig yrði að sér miðju verslunar, þ.e. hrávara gegnt iðnvarningi.

Stór iðnríki þyrftu þá síður á hverju öðru að halda!
Sem gæti minnkað þeirra vilja til samstarfs!
Meðan að megin fókus þeirra samkeppni, gæti snúist um það að -- tryggja sér aðgang að auðlindum.

Þetta gæti leitt til framtíðar aukinnar spennu og átaka iðnríkja á milli.

 

Niðurstaða

Ég hef ekki séð vangaveltur um það hvaða áhrif það hefði á verslun í heiminum, ef það er rétt sem margir halda fram - að róbótar eiga eftir að taka yfir alla eða nær alla framleiðslu á vélum og tækjum; þannig að mannlega höndin komi þar hvergi nærri lengur.

Ofangreindar vangaveltur eru því algerlega mínar eigin.

  • Margir hafa velt því fyrir sér hvað gerist innan iðnríkjanna sjálfra -- það virðist rökrétt að svokallað "citizen wage" gerist í þeim.

En hvað með þau lönd sem ekki eru iðnvædd, þ.e. iðnvarningur er ekki megin framleiðsla?
T.d. lönd sem eru fyrst og fremst, útflytjendur hrávara?

Það blasi ekki endilega við að þar sé sambærilegur grundvöllur fyrir - "citizen wage."

Þó verið geti að einhver þeirra séu nægilega auðug af hráefnum eða hrávöru, til þess að þar sé áfram grundvöllur fyrir sæmilegum kjörum.
______________
Það gæti hugsanlega orðið ný skipting "haves" og "have nots."
Þ.e. lönd sem eru iðnvædd, þ.s. grundvöllur iðnframleiðslu er til staðar - þ.s. er nægt ríkidæmi og nægur markaður til að skapa grundvöll fyrir framleiðslu hátæknivarnings.
Og hins vegar lönd sem eru fátæk fyrir, eða of smá til þess að grundvöllur sé fyrir slíkri framleiðslu, sem kannski lenda varanlega í fátæktargildru.

Iðnríkin ef til vill yrðu eins og -millahverfin- sem maður sér sums staðar í 3-heiminum, sem eru nánast viggirt og þar kemst enginn inn nema með réttan passa.
Þau væru þá sennilega mjög hötuð af þeim fyrir utan -- eins og fátæka fólkið í löndum þ.s. eru slík lokið hverfi hata þá sem þar búa.

  • Spurning hvernig Íslendingar tryggja að þeir séu meðal þeirra auðugu?

 

Kv.


Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband