Landsfundur VG getur orðið forvitnilegur!

Það virðast flestir fjölmiðlamenn reikna með því að Katrín Jakobsdóttir taki við sem formaður. En er það líkleg útkoma? Ég mynni fólk á að Framsóknarflokkurinn stóð frammi fyrir sambærilegri stöðu haustið 2008, að vera kominn niður í milli 5-6% í skoðanakönnunum. Það var haldinn auka landsfundur í janúar 2009. Og mjög stórar breytingar gerðar á forystu flokksins.

 

Svo ég set fram þá spurningu: verður stór eða lítil breyting?

Ég bendi á, að breytingin á Framsókn á sínum tíma. Skóp í framhaldinu nýja fylgisstöðu. Þó að niðurstaða kosninga 2009 hafi ekki verið "brillíant" sögulega séð miðað við eldri sögu flokksins. Voru þau þó miklu mun hagstæðari. En útlit haustsins á undan benti til.

Mér finnst þetta ekki vera neitt "absúrd" samanburður, að fræðilega geti VG endurtekið þennan árangur, svo fremi að breytingin á forystunni sé nægilega stór!

Ég er að tala þá um, að enginn af þeim sem hafa verið ráðherrar í núverandi ríkisstjórn, verði áfram í forystu flokksins. Það verði skipt út, annaðhvort nærri eins rækilega og gert var í Framsókn, eða eins rækilega?

-------------------------------

Eða verður einungis "kosmetísk" breyting? Varaformaður tekur við af formanni. Og Katrín gerir tilraun til að koma fram með flokk sinn, eins og hann sé orðinn - nýr og endurnýjaður.

Þó ekkert annað hafi breyst.

Ef það verður útkoman, þá efa ég að kjósendur verði sérlega "impóneraðir" - að ef einhver fylgisuppsveifla á sér stað, verði sú lítil.

VG endi kannski með á bilinu 6-8%. Jafnvel minna.

-------------------------------

Ef aftur á móti VG geri stóra breytingu - jafnvel yfirgefi stjórnarsamstarfið fyrir kosningar. Nokkurs konar minnihluta starfsstjórn - með mjög takmarkað umboð sitji fram að kosningum. Kannski Samfylking ein.

Öll forystan verði endurnýjuð - nýir ferskari vindar umleiki flokkinn fram að kosningum.

Þá má vera, að VG nái fylgi svipuðu á við fylgi Framsóknar í kosningunum 2009.

  • Ég hvet fólk til að leggja orð í belg - og segja hvað þið haldið að muni gerast.
  • Hver er spá ykkar um fylgi VG? Í þeirri sviðsmynd sem þið teljið líklega?

 

Niðurstaða

Frétt helgarinnar er án nokkurs vafa, tilkynning Steingríms J. að hann ætli ekki að vera formaður Vinstri Grænna lengur. Ég tók eftir orðum hans, í frétt RÚV. En þar talaði hann um "endurnýjun forystunnar."

Sem getur þitt, að hann hafi meint afsögn sína eina. En einnig, að hann hafi meinað - mun stærri breytingu á forystu VG.

Hver verður útkoman. Verður spennandi. En að mínu viti, hafandi í huga nýlega sögu Framsóknarflokksins, sem var í svipaðri stöðu haustið 2008 og VG virðist nú í vera.

Þá blasir við, hafandi í huga árangurinn sem varð innan Framsóknarflokksins af stóru byltingunni í flokknum, að það sé líklega einnig til staðar tækifæri fyrir VG. Í því að gera sem mesta breytingu og sem víðtækasta á forystunni.

Jafnvel svo, að VG geti náð fram vopnum sínum með eins öflugum hætti, og átti við Framsókn í kosningunum vorið 2009.

  • Það verður áhugavert að sjá svör lesenda, um það hvað þið haldið

Ps: Katrín ætlar að bjóða sig fram. Ég er efins að varaformaður sl. 10 ára auk þess ráðherra í núverandi ríkisstjórn, geti komið fram sem ferskur andi í ísl. stjórnmál sem formaður. 

  • En einn möguleiki er að VG sé á leið í þá endurtekningu vegferðar Framsóknar, að eftir að Dóri hætti voru tíð formannskipti. En Dóri einmitt fór frá og varaformaður Jón Sig. tók við. Og það dugði ekki til að lyfta flokknum fyrir þær kosningar. Og flokkurinn hélt áfram að dala - þvert á móti kjörtímabilið á eftir.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvaða samfélagsleg baráttumál minna kjósendur á Katrínu Jakobsdóttur? Hún er tákn lærdóms og mennta, en hefur hún hvesst róminn í ávörpum til Háskólanna þar sem hún hefur ávítt þá fyrir geldstöðu í aðdraganda efnahagshrunsins? Hefur hún spurt sig gagnrýnna spurninga um t.d. nýtingu sjávarauðlindarinna og hvort viðunandi sé að greiða Hafrannsóknarstofnun ógrynni fjármuna þrátt fyrir að stofnunin treystir sér ekki til að heimila ámóta nýtingu og fyrir kvóta? Er líklegt að Katrín Jakobsdóttir hrífi kjósendur með flugnasuði um aukna akademiska þekkingu þegar háskólar unga út ómögum í hundraðatali á hverju ári?

Hér verður ekki byggt upp þróttmikið samfélag með kjaftagangi. Við erum þjóð sem framleiðir hrein og auðseljanleg matvæli og eigum að merkja okkur inn á því sviði ásamt því að sækja fram á sviðum friðar og náttúruverndar. Það þarf bæði kjark og áræði ásamt góðum skammti af hugmyndaflugi til að standast stóriðjukröfur hægri pólitíkusanna.

Og það þarf bæði kjark og sannfæringarkraft til að kalla til alþjóðasamfélagsins:

Veislan er búin gott fólk!

Nú skulum við einbeita okkur að því að bjarga afganginum af heiminum!

Þetta er ávarp sem fá - ef nokkur ríki heims eiga eins góða möguleika á að fá heiminn til að hlýða á. 

Árni Gunnarsson, 16.2.2013 kl. 23:40

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Árni - það er einn möguleiki að Katrín taki við eins og Jón Sig. á sínum tíma tók við af Dóra, eins og þegar Jón Sig. tók við dugi það ekki að Katrín taki við, að lyfta flokknum fyrir kosningarnar. Og hörð gagnríni á formanninn eftir kosningar verði til staðar. Harðar deilur innan flokksins haldi áfram eins og innan Framsóknar á sínum tíma. Spurning þó hvort VG fari í gegnum eins marga formenn á einu kjörtímabili eins og Framsókn gerði kjörtímabilið eftir að HÁ hætti.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.2.2013 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 465
  • Frá upphafi: 847116

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 441
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband