Trump segist ætla hindra N-Kóreu í að smíða eldflaug er geti borið kjarnasprengju til Bandaríkjanna

Eins og virðist vani Donald Trump, þá sendir hann inn stutt svokallað -tweet- á Twitter. Útskýrir að sjálfsögðu ekki eitt einasta atriði - eins og að Trump telji að fólk vilji ekki útskýringar!

"North Korea just stated that it is in the final stages of developing a nuclear weapon capable of reaching parts of the U.S. It won't happen!" - North Korea will be stopped.

http://cdn.images.express.co.uk/img/dynamic/78/590x/North-Korea-brands-Donald-Trump-s-offer-to-meet-Kim-Jong-un-as-insincere-nonsense-673137.jpg

Vandamál með Kimmana af N-Kóreu, er að þeir hafa fram að þessu - kallað öll "bluff"

Eins og vanalega veit enginn hve mikil alvara er að baki fullyrðingu Trumps. Á síðasta ári fylgdist ég nokkuð með athöfnum N-Kóreu, og þar var töluvert um að vera:

  1. N-Kórea storkar heimsbyggðinni - eina ferðina enn, með kjarnorkutilraun
  2. Norður Kórea heldur áfram að ógna nágrönnum sínum með eldflaugum
  3. N-Kórea smíðar miklu mun öflugari hreyfil fyrir eldflaugar! Yfrið nægilega öflugan fyrir - ICBM

Ég er m.ö.o. ekki í minnsta vafa, að N-Kórea ætlar sér að smíða -ICBM- sem geti dregið til Bandaríkjanna. Nýi hreyfillinn sem N-Kórea prófaði á sl. ári, eins og fram kemur í grein minni hlekkjað á að ofan, sá virðist sá nægilega öflugur fyrir ICBM (Intercontinental Ballistic Missile).

https://www.sciencenews.org/sites/default/files/2016/01/main/blogposts/010616_ts_NKorea_map_free.jpg

Trump gæti auðvitað fyrirskipað loftárásir á N-Kóreu!

Vandinn er að N-Kórea ræður yfir kjarnorkusprengjum - þó ekki sé enn staðfest að N-Kórea hafi svokallaðan "warhead" þ.e. kjarnorkusprengju sem unnt er setja upp á nothæfa eldflaug.
--Þá gæti fylgt því töluverð áhætta, hafandi í huga að ómögulegt er að vita hversu ofsafengin viðbrögð N-Kóreu yrðu.

  1. Eins og sést er ekki svo langt frá N-Kóreu yfir til Kína.
  2. Peking - er í reynd ekki það langt í burtu, sjá kort.
  • Það þíðir, að geislavirk ský frá hugsanlegum kjarnorkusprengingum á Kóreuskaga!
  • Gætu borist alla leið til Peking.

--Kínverjum yrði að sjálfsögðu ekki skemmt.

  • Fyrir utan - að höfuðborg S-Kóreu, Seoul --> Er í skotfæri mikils fjölda fallbyssna sem N-Kórea hefur alltaf staðsettar í skotfæri við þá borg.

Þetta eru gamlir úreltir hólkar - mikið af þeim skilst mér að séu samskonar og Sovétríkin beittu í Seinni-styrrjöld.
--En það breyti þó ekki því, að N-Kórea gæti svarað með því - að hefja stórskotahríð á Seoul.
--Svo margar eru víst þessar byssur, að það mundi taka töluverðan tíma að eyðileggja þær allar.

Á meðan gætu þær lagt í rúst stór svæði í Seoul.

 

Niðurstaða

Með öðrum orðum, blasir ekki við mér nein sú aðgerð sem Trump gæti beitt N-Kóreu, sem mætti kalla að hefði í för með sér -- ásættanlega áhættu. Sem mundi geta dugað til þess að hindra það fullkomlega að N-Kórea smíði - ICBM.
--Loftárásir væru afar líklegar til að starta aftur Kóreustríðinu.

En rétt er að ryfja upp, að 1953 lauk því einungis með - vopnahléi. M.ö.o. er formlega ennþá stríðsástand milli N-Kóreu og S-Kóreu, og hefur verið skv. því samfellt í 63 ár.
--Það þarf því enga - stríðsyfirlýsingu.

Sem sagt, einungis það að herirnir hefji aftur skothríð.
--Hafandi í huga kjarnorkuvopnaeign N-Kóreu, ásamt gríðarlegu vopnabúri hefðbundinna vopna, eru afleiðingarnar líklegar til að verða afar - banvænar.

  • Ég vona þar með að Trump fari varlegar en hraustleg ummæli geta bent til.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Af því ég er virk í umræðunni núna,seg mér missturðu af R-inu í kimmana? í einlægni þá gæti eitthvað kallast í et.Kimmar án þess að ég viti....

Helga Kristjánsdóttir, 3.1.2017 kl. 04:07

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Mér finnst alltaf vanta rödd FRAMKV.STJ. SAMEINUÐUÞJÓÐANNA  í þessa umræðu:

Myndi hann vilja eyðileggja allt kjarnorkufikt í N-kóreu? Y/N?

Jón Þórhallsson, 3.1.2017 kl. 08:31

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég hef ekki skilið hingað hversvegna þjóðir láta N Kóreu hóta okkur í Vestræna heiminum. ISIS hótar og það er reynt að spyrna við þeim en þegar ein þjóð hótar að senda gjöreyðingavopn sem eingin veit hvar mun lenda þá á að eyða þeirri þjóð eða ná þeim sem vill gera þetta. Það eru ekki bara Bandaríkin sem eru í hættu heldur allur heimurinn. 

Valdimar Samúelsson, 3.1.2017 kl. 10:35

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Valdimar, ISIS ræður ekki yfir kjarnorkuvopnum - né milljón manna her búinn miklum fjölda skriðdreka sem og stórskotavopna.
--Þegar aðilar ráða yfir kjarnavopnum - þá komast þeir upp með nánast hvað sem er. Eða hvernig getur það verið með öðrum hætti?
**Eftir allt saman er alltaf gríðarlega áhættusamt að hefja stríðsátök við aðila er hafa kjarnavopn, burtséð hvað þeir aðilar á undan hafa gert eða hverju þeir hafa hótað í fortíðinni.

    • M.ö.o. er N-Kórea miklu mun hættulegri en ISIS.

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 3.1.2017 kl. 10:51

    5 Smámynd: Jón Þórhallsson

    Kína hefur hingað til valdið sinn litla bróður í N-kóreu og er þar með í raun orðin samsek í þessu óæskilega kjarnorkubrölti.

    Einhver þar að spyrja ráðamenn í kína hvað þeir myndu gera ef að NATó með leyfi FRAMKV.STJ,SAMEINUÐUÞJÓÐANNA myndi eyðileggja allar kjarnorkustöðvar í N-kóreu?

    Jón Þórhallsson, 3.1.2017 kl. 10:51

    6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Jón, ef það leiðir til þess að kjarnorkusprengingar verða á Kóreu skaga, til þess að geislavirk ský valda dauða fjölda manns í Kína, til þess að um milljón manns á Kóreuskaga láta lífið -- manntjón verði mikið beggja vegna landamæranna á Kóreuskaga!
    -----> Ertu þá að segja að það sé samt ásættanleg niðurstaða?
    Ef það leiðir til þess að kjarnavopn Kimmana séu í kjölfarið ekki til lengur?
    ________________
    Ég reikna ekki með að Kína taki því vel - ef verulegt tjón af geislamengun þar á meðal manntjón verður á kínversku landi?
    Er það þá einnig í lagi -- ef árás á N-Kóreu einnig leiðir til alvarlegra átaka í kjölfarið við Kína?

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 3.1.2017 kl. 10:58

    7 Smámynd: Jón Þórhallsson

    Ég er ekkert viss um að BANDAMENN þurfi kjarnorkusprengju til að eyðileggja hættulegustu svæðin í N-kóreu.

    Það er vitað hvar kjarnoku-fiktið hjá N-kóreu fer fram þannig að það ætti að nægja að senda nokkrrar venjulegar eldflaugar á þær herstöðvar; og láta þar við  sitja án þess að beina neinum ógnum að venjulegum borgurum.

    Jón Þórhallsson, 3.1.2017 kl. 11:19

    8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Jón, hvað í því að N-Kórea ræður yfir kjarnorkusprengjum -- er óskiljanlegt?

    --Ég er að sjálfsögðu að tala um, beitingu N-Kóreu á kjarnorkuvopnum sínum, sem hugsanlegt andsvar við árásum sem Tump kann að framkvæma á N-Kóreu.

    Eða var það ekki nægilega skýrt?

      • N-Kórea ræður yfir færanlegum skotpöllum, fjöldi flauga þeirra eru á þeim -- þannig að þ.e. ekki eins og þú heldur, að unnt sé að eyðileggja þær með því að senda örfáar flaugar.

      • Síðan er mikið af mannvirkjum N-Kóreu, niðurgrafin - þ.e. í byrgjum.

      • Að auki, er vitað um umfangsmikil neðanjarðargöng milli þeirra -- sem hafa ekki verið nákvæmlega kortlögð.

      Til þess að eyðileggja þetta, þyrfti mjög umfangsmiklar árásir -- þ.e. ekki örfáar eldflaugar.
      --Þú ímyndar þér virkilega að N-Kórea beiti ekki vopnum sínum, ef þ.e. verið að reyna að eyðileggja þau?

      Af hverju ertu svo sannfærður um það -- að N-Kórea skjóti ekki á loft flaugum með kjarnavopn við slíkar aðstæður?
      --Þegar tilraun væri í gangi til að eyðileggja þær?

      Eða að Kim, skipi ekki sínu stórskotaliði að hefja stórskota-árásir á höfðuðborg S-Kóreu, til að hafna hana við jörðu?
      --Þú heldur að N-Kórea einfaldlega sytji með hendur í skauti meðan Bandaríkin væri að leggja þeirra herbúnað í rúst?

        • Þó svo að bandar. flugherinn geti tæknilega lagt þetta allt í rúst --> Efa ég að Bandaríkin geti tryggt að allar n-kóreanskar flaugar yrðu skotnar niður.

        • Áður en einhverjar þeirra næðu til skotmarka.

        • Ef þeim yrði öllum skotið samtímis.

        Það þarf ekki nema eina kjarnasprengju til að gera höfðuðborg S-Kóreu að rjúkandi rústahrúgu.
        --Að auki eru fallbyssur N-Kóreu það margar, að það tæki töluverðan tíma að eyðileggja þær allar, og á meðan gæti þeirra skothríð ein og sér dugað til að leggja töluvert mikið af höfuðborg S-Kóreu í rúst.

          • Síðan ef Kim tekst að sprengja einhverjar kjarnabombur á Kóreuskaganum.

          • Væri ekkert sem Bandaríkin gætu gert, til að hindra það að geislavirk ský berist ekki út fyrir landamæri Suður og Norður Kóreu.

          Þau gætu hæglega borist síðan til Japans -- strádrepið þar fólk.
          Eða Kína!
          ____________

          Ég ítreka að slík aðgerð virðist of áhættusöm.

          Kv.

          Einar Björn Bjarnason, 4.1.2017 kl. 04:47

          9 Smámynd: Jón Þórhallsson

          Það þyrfti að stilla málinu upp þannig að eitthvert herskip mætti þarna á svæðið UNDIR FÁNA SAMEINUÐUÞJÓÐANNA og stillti N-kóreu upp við vegg: (Svo að það sé ekki verið að blanda einstökum þjóðum í málið eins og USA, japan eða S-kóreu).

          Ananð hvort hlíðið þið okkur í einu og öllu eða hafið verra af.

          Jón Þórhallsson, 4.1.2017 kl. 09:34

          Bæta við athugasemd

          Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

          Um bloggið

          Einar Björn Bjarnason

          Höfundur

          Einar Björn Bjarnason
          Einar Björn Bjarnason
          Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
          Apríl 2024
          S M Þ M F F L
            1 2 3 4 5 6
          7 8 9 10 11 12 13
          14 15 16 17 18 19 20
          21 22 23 24 25 26 27
          28 29 30        

          Eldri færslur

          2024

          2023

          2022

          2021

          2020

          2019

          2018

          2017

          2016

          2015

          2014

          2013

          2012

          2011

          2010

          2009

          2008

          Nýjustu myndir

          • Mynd Trump Fylgi
          • Kína mynd 2
          • Kína mynd 1

          Heimsóknir

          Flettingar

          • Í dag (26.4.): 2
          • Sl. sólarhring: 253
          • Sl. viku: 354
          • Frá upphafi: 846995

          Annað

          • Innlit í dag: 2
          • Innlit sl. viku: 336
          • Gestir í dag: 2
          • IP-tölur í dag: 2

          Uppfært á 3 mín. fresti.
          Skýringar

          Innskráning

          Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

          Hafðu samband