Auknum mæli spurt, hvar er stórárás Úkraínuhers í S-Úkraínu? Rússar hafa fært mikið lið til að mæta henni! Ekki bólar á þeirri árás enn! Sl. 2 - 3 vikur, hafa sáralitlar breytingar orðið á víglínum Rússa/Úkraínu í A-Úkraínu!

Eiginlega fyrir utan dramatískar árásir - er mikla fjölmiðlarathygli hafa fengið - af hálfu Úkraínu-hers, á svæði vel handan við víglínu Rússa. Sérstaklega nokkur skipti á Krím-skaga, þ.s. meðal annars fjöldi flugvéla var eyðilagður á rússn.herflugvelli.
Sú árás vakti auðvitað mesta athygli, ekki síst vegna fjölda mynd-banda sem óttaslegnir rússn.ferðamenn á Krím-skaga, sendu út á netið -- á Youtube má leita uppi fj. slíkra.

HlekkurUkraine Conflict Updates

 

Videó er sýnir myndir teknar af rússn. ferðamönnum á Krímskaga fyrir 3-vikum!

Besta mynda-syrpa af flugvellinum ég veit um: Zelenskyy says 9 Russian jets were destroyed in Crimea blasts. Þar sjást þessar 2-myndir betur.

Image: Saki airbase

En fyrir utan, að sýna getu til árása á svæði undir herstjórn Rússa!
Hefur ekki mikið gerst - auðsjáanlega!

Ukraine has telegraphed its big counteroffensive for months. So where is it?

Frankly, from a military point of view, absolutely it does not make sense, because if you are a Ukrainian military commander you would much rather fight, let's say, the seven Russian battalion tactical groups that were in northern Kherson a month ago, not the 15 or 20 there now,

Eins og kemur þarna fram, hafa Rússar fært verulega mikið lið á Suður-Svæðið.
Til að mæta, væntanlegri stórsókn Úkraínuhers!
--Sem ekkert bólar á enn!

  1. Nú veit maður ekki hvað fyrir Úkraínu vakir!
    En þ.e. út af fyrir sig árangur, að Rússar hafa fært allt þetta lið þangað.
  2. Því, það er sennilegasta skýring þess -- hvers vegna, sókn Rússa í Donbas.
    Hefur að virst hafa nánast alveg lognast niður sl. 3-vikur.
  • Ef það var allt og sumt tilgangur Úkraínu.
    Að plata Rússa til að færa lið, frá sóknar-vængjum er þeir höfðu í Donbas.
    Þannig, að þær sóknir -- virðast nú þessar mundir, nokkurn veginn stöðvaðar.

Þá ef út í þ.e. farið, hafa þá Úkraínumenn, stöðvað sókn Rússa í Donbas.
Með þeim ódýrasta mögulega hætti þeir gátu!
--En ef þetta var allt saman eitt stórt gabb, fatta Rússar það væntanlega fljótlega.

 

Sóknarlínur Rússa í Donbas, hafa nánast ekkert hreyfst í nokkrar vikur nú!

Hinn bóginn, þá gæti það - verið tilgangur Úkraínumanna!

  1. Að plata Rússa til að færa lið frá Donbas.
  2. Vegna þess, að Úkraínu-menn, ætla -kannski- einmitt að hefja sókn þar.

Hið minnsta, hafa liðsluftningar Rússa á Suður-Svæðið í Úkraínu.
Augljóslega gert það minna áhugavert, að hefja stórsókn á þeim slóðum.
--Rússar eru vart svo grænir, að þeir hafi sent lið þangað, án þess að sjá nokkurt á gerfihnatta-myndum, er benti til úkraínskra liðslutninga á það svæði.

Ef þ.e. e-h plat í gangi, þyrfti það að vera - sniðuglega útfært.
Því, e-h hefur þurft að hafa verið á hreyfingu, er leit e-h svipað her.
--Hvort sem það var það eða ekki, þ.e. her.

 

Úkraínumenn, halda samt sem áður áfram að ráðast að mannvirkjum Rússa!

Sú hegðan, er a.m.k. nokkuð í samræmi við undirbúning fyrir árás.
Hinn bóginn, kosta það ekki endilega e-h rosalega mikið!
--Að senda sprengjur við og við!

Má velta því fyrir sér, hvort stríðið er að verða að - pattstöðu.

  1. Það getur vel verið, að Úkraínumenn séu með mikinn liðsafnað, sem Rússar sáu.
    En Úkraínumenn séu lengi að ákveða sig -- er hafi gefið Rússum nægan tíma.
  2. Þannig séð, þá væri það samt sem áður - einhver árangur.
    Að hafa - þvingað Rússa til að færa það mikið lið frá Donbas.
    Að, sókn Rússa á því svæði, sé nánast alfarið stopp.

Það eitt að færa lið, a.m.k. þíðir að það lið er þá enn til staðar, óskemmt.
Hvort það voru Úkraínumenn er færðu lið, eða Rússar.
--Ef Úkraínumenn eru þarna einnig í miklum styrk.

Þá standa herirnir þá gráir fyrir járnum beint á móti hvorum öðrum.
Meðan, hvorugur ræðst fram, þá a.m.k. hafa hermennirnir það sæmilega náðugt!
--A.m.k. meðan báðir herir eru ekki að berjast sjáanlega að ráði á svæðinu.

  • Fyrir utan - artillery duels - virðist lítið sl. 2-3 vikur, gerast!

 

 

Darya Dugina, dóttir Alexander Dugin þekkts stuðningmanns Pútíns, látin!

Spurning hvaða dilk á eftir sér - sá atburður hefur. En ef marka má fregnir, var sprengja falin undir bifreið þeirri hún ók -- og bamm. Talið er að sprengjan hafi frekar verið ætluð föður hennar, en hver veit!

Daughter of Putin ally killed in Moscow car blast

Einfaldlega ekkert vitað um þetta mál annað, en að konan lést í bílsprengju.

 

Niðurstaða

Eftir litlar hreyfingar sjáanlega á herjum Rússa og Úkraínumanna sl. 2-3 vikur. Líkist stríðið í Úkraínu, vaxandi mæli -- tja: Pattstöðunni á víglínunni 1916-1917.
M.ö.o. fyrra stríði!

Nánast eina sem er markvert fyrir utan - áhugaverðar sprengju-árásir langt að baki víglínu Rússa. Er loforð Bandaríkjanna -- um: 775millj.$ vopnasendingu: US announces new $775m Ukraine military aid package.

Speaking on condition on anonymity, the official said the assistance would include 15 Scan Eagle surveillance drones, 40 mine-resistant, ambush-protected vehicles known as MRAP, and about 1.000 Javelin anti-tank missiles. - It will also include additional ammunition and 16 105mm Howitzer systems ...

Fréttin virtist benda til þess, að slíkar sendingar verði reglulegir atburðir.
Áhugavert af hverju er verið að senda, smærri gerð fall-stykkja, sbr. 105mm.
Kannski: M119 Howitzer!
--Ekki sérlega nýtt vopn, ef þessi tegund. Nýrri útgáfur með - digital kerfum.
Drægi ekki nema á bilinu 10km - 20km. Eftir týpum af skotum.

Eini kostur þessa vopns, hve létt það er. Miðlungs þyrlur bera auðveldlega. Og margvísleg létt farartæki, draga það auðveldlega. Og má henda út í fallhlíf.
--Gæti hreinlega, hentað í skæruhernað!
------------

Varðandi stríðið almennt, þá leiðir tíminn allt í ljós.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Drónar verða sumir örsmáir þannig að hægt verður að láta þá líta út eins og flugur og senda þá til að mynda inn um opna glugga til að drepa fólk með eitursprautu þegar það sefur á sínu græna eyra.

Snyrtilegt að losa sig þannig við Pútín karlinn og aðrar leiðindaskjóður. cool

Black Hornet is the Smallest Military Drone

Þorsteinn Briem, 22.8.2022 kl. 17:41

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þorsteinn Briem, vantaði að fram kvæmi hvað gripurinn endist lengi á lofti, ef það eru t.d. einungis nokkrar mínútur, væri það einungis nothæft í mikilli nálægð við e-h herflokk, kannski einmitt í aðstæðum að berjast um byggingar, innan bygginga.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.8.2022 kl. 21:14

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þorsteinn Briem, meira svona til gamans, rússn.yfirvöld formlega saka leyniþjónustu Úkraínu um morðið á Daryu Duginu - hafa virst soðið saman heilan söguþráð, er hljómar eins og úr skáldsögu: https://www.politico.eu/article/fsb-russia-blame-ukraine-murder-vladimir-putin-darya-dugina/. 
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.8.2022 kl. 21:27

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Extremely light, nearly silent, and with a flight time up to 25 minutes, the combat-proven, pocket-sized Black Hornet PRS transmits live video and HD still images back to the operator."

"Black Hornet
only weighs 33 grams and can fly for up to 25 minutes. The drone operates with a low acoustic signature and is well-suited for operations in highly-contested, GPS-denied environments."

"The cost to equip the UK Army with 30 Black Hornets is just shy of USD 1.8 million. That is about USD 60,000 [um 8,5 milljónir íslenskra króna] apiece for the drone."

5.7.2022:

"Teledyne Flir Defense - which, not incidentally, continues developing and producing the Black Hornet line in Norway - has thus far delivered more than 12,000 of the intelligence gathering drones to military and defense clients around the world."

Teledyne Flir signs USD 48 million (um sjö milljarða íslenskra króna) Black Hornet drone deal with Norway

Þorsteinn Briem, 22.8.2022 kl. 22:30

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þorsteinn Briem, sagan er svo farsakennd - skáldskapurinn verður sífellt sýnilegri eftir því sem þeir bæta fleirum meintum úkraínskum aðilum inn í söguna, sbr. Azov --> Augljósa skýringin, auðvitað að e-h rússn. aðili annaðhvort innan ríkisstj. sjálfrar, eða hangandi utan í henni; eða þessi meinti hópur yfirlýstra Pútín andstæðinga, er hafa lýst yfir ábyrgð - segjast hópur ungra Rússa, ósáttir við núverandi ástand í Rússla. Hvers vegna ekki, kannski líklegasta skýringin, að risinn sé hópur sem vilji myrða ráðamenn.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 23.8.2022 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 401
  • Sl. sólarhring: 547
  • Sl. viku: 874
  • Frá upphafi: 848146

Annað

  • Innlit í dag: 390
  • Innlit sl. viku: 849
  • Gestir í dag: 377
  • IP-tölur í dag: 369

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband