Bandarískar njósnastofnanir ekki sammála Trump í mati á Norður-Kóreu, ekki heldur merkilegt nokk varðandi Íran

Dan Coats, sem er nokkurs konar talsmaður njósnastofnana Bandaríkjanna gagnvart bandaríska þinginu, og ríkisstjórn Bandaríkjanna -- fer fyrir apparati kallað -national intelligence- sem samræmir upplýsingar frá njósnastofnunum Bandaríkjanna, svo unnt sé reglulega að flytja þingi og ríkisstjórn - nokkurs konar heildarsýn þeirra stofnana.

Hann kom fram fyrir Bandaríkjaþing, með sína árlegu heildarúttekt.

Intelligence chief contradicts Trump on North Korea and Iran

North Korea seen as ‘unlikely’ to abandon nuclear weapons

Þó flestir fjölmiðlar fjalli um þann hluta úttektarinnar er kemur að málefnum Norður-Kóreu.
Eru ályktanir um Íran ekki síðust áhugaverðar!

Daniel Coats, the director of national intelligence, testifies before the Senate intelligence committee on Capitol Hill.

  1. Íran stendur enn við kjarnorkusamninginn - segir Dan Coats. Það virðist á skjön við fullyrðingar sumra er standa nærri Trump á sl. ári.

    US intelligence continue to assess that Iran is not currently undertaking the key nuclear weapons-development activities we judge necessary to produce a nuclear device...

    Sjálfsagt dregur þetta úr ótta sumar að Bandaríkin hugsanlega stefni að frekari aðgerðum gegn Íran.

  2. Norður-Kórea, ætlar sér ekki að - afsala sér kjarnorkuvopnum. 
    Tek fram, ég er fullkomlega sammála því mati.

    We continue to assess that North Korea is unlikely to give up all of its nuclear weapons and production capabilities, even as it seeks to negotiate partial denuclearization steps to obtain key US and international concessions. -- North Korean leaders view nuclear arms as critical to regime survival,... -- The capability and threat that existed a year ago are still there.

    Þetta er að sjálfsögðu á skjön við fullyrðingar Trumps og Pompeo, að mikið hafi áunnist í viðræðum. 
    Sannast sagna, sé ég ekkert verulegt sem augljóslega hefur áunnist - en NK heldur enn tilraunum með eldflaugar og kjarnavopn í pásu - fjöldi aðila benti á, tilraunasvæði NK hefur lofað að eyðileggja, sýni einkenni þess að hafa orðið fyrir tjóni í síðustu tilraun.
    --Það geti hafa verið orðið, ónýtt.

    NK hefur í reynd engin bindandi loforð gefið.

Það virðist því afar óljóst, hvað ætti að ákveða á fyrirhuguðum leiðtogafundi feb. nk.
Eitt sem hefur einkennt NK í samningum - er mikil samningafærni.
Þeim hafi hingað til ætíð tekist að gefa lítt eftir.

  1. Menn voru eðlilega hræddir sumarið 2017 er DT virtist á köflum hóta beitingu kjarnorkuvopna, hugsanlega.
  2. Með því að pása tilraunir - hefur Kim Jong Un - landstjórnanda NK, tekist að lægja öldurnar, án þess að séð verði -- hann hafi fram að þessu, gefið nokkurn skapaðan hlut eftir er máli skiptir.
  3. Það er hvað marga grunar, að Kim ætli sér að selja litla eftirgjöf með rósamáli þ.s. hann fer fögrum orðum um Trump -- er virðist auðveldlega uppveðrast við gullhamra.
  4. Síðan skrifi þeir undir fallega orðað skjal - með sára litlu raunverulegu innihaldi.

Kemur í ljós síðar hvort útkoman verður með þeim hætti.
Stríðshættan a.m.k. virðist fyrir bý - Kim hafi blásið loftið úr Trump með því að setja mál í pásu.
--Þ.e. allt og sumt sem má vera Kim ætli sér fyrir, að lifa af forsetatíð Trumps án nokkurs umtalsverðs í formi eftirgjafar.

 

Niðustaða

Eins og ég hef áður bent á, þá er áhugavert að ryfja upp kjarnorkusamning er gerður var í tíð Bill Clinton - sá fól í sér, lokun og innsiglun kjarnorkuvers NK sem notað er til framleiðslu plútons, lokun og innsiglun tilraunasvæða, og þess tilraunasvæðis sem notað var við tilraunaskot á stórum eldflaugum. Áætlanir NK voru settar í frysti m.ö.o. Alþjóða-kjarnorkumálastofnunin IAEA fylgdist með því innsigli væru ekki rofin.
Þetta stóð fram í forsetatíð George W. Bush. Á þessum punkti hafði NK ekki enn smíðað kjarnorkusprengju. En sprengdi sína fyrstu í tíð W. Bush - eftir að NK labbaði frá samkomulagi Clintons og komst upp með það í tíð George W. Bush.

Sá samningur verðu að sjálfsögðu ryfjaður upp, ef það birtist eitthvert samkomulag út úr viðræðum ríkisstjórnar Bandar. núverandi við stjórn Kim Jong Un, og árangur Bandaríkjaforsetanna tveggja þar með borinn saman.

Það sem hefur gerst fram að þessu, a.m.k. bendir ekki klárlega til þess DT nái meiru fram, eða því sem Clinton náði fram.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

En er ekki ennþá allt í góðu á milli suður og norður-kóreu;

en það ekki fyrir mestu?

Jón Þórhallsson, 29.1.2019 kl. 23:27

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Jón Þórhallsson, hvað veit maður hvað Kim meinar -- ekki gleyma hann lét drepa bróður sinn fyrir nokkrum árum í Malasíu.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 30.1.2019 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 22
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 854
  • Frá upphafi: 848176

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 826
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband