Marine Le Pen, virðist geta unnið sigur - ef marka má greiningar á fylgi frambjóðenda

Það eru komnar nú margar áhugaverðar greiningar á viðhorfum þeirra, sem segjast styðja forsetaframbjóðendurnar fyrir frönsku forsetakosningarnar -- er verða í apríl 2017.
--Kannanir sýna nú, að líklegast verður Marine Le Pen með mest fylgi einstakra frambjóðenda eftir fyrstu umferð, eða um eða rétt rúmlega 26%.
--Meðan að Emmanuel Macron verður annar með rúmlega 24%.

  • Aðrir frambjóðendur fá minna en 20%.

Divisions in anti-Le Pen front open a narrow path to victory

https://www.thelocal.fr/userdata/images/article/bb7ceac2fbb342c59becefb17fba11105082fdefeb69574a06f1e27ae74e0441.jpg
Nú er þetta orðið - Le Pen vs. Macron!

Þetta gerir valið að einu leiti áhugaverðara - því meðan Fillon virtist líklegur höfuð-andstæðingur Le Pen - þá virtist ekki skipta lengur máli hvort Fillon eða Le Pen yrði ofan á!
--Utanríkisstefna Frakklands hefði tekið svipuðum róttækum breytingum, í báðum tilvikum.

  1. En Macron aftur á móti - styður áframhald þeirrar sömu stefnu og Frakkland hefur fylgt.
  2. Þannig að einhverju leiti má segja - að Macron standi fyrir "status quo."
    --Meðan að Le Pen, standi fyrir breytingar.

--Meðan að Fillon eða Le Pen, hefði í báðum tilvikum -- leitt til fremur róttækra breytinga.

  • Þessu leiti má líkja þessu við -- það val sem Bandaríkjamenn stóðu fyrir, þ.e. Clinton var "status quo" meðan Trump var breytingar - eða það var sú skynjun er varð ofan á.

Greiningar á fylgismönnum frambjóðenda sýna: Ef Fillon vs. Le Pen.

  1. 38% af þeim sem ætluðu að kjósa Fillon - líklega kjósa Le Pen.
    26% kjósenda Fillons segjast - sitja heima.
  2. 45% stuðningsmanna vinstri mannsins, Mélenchon - segjast sitja heima. En skv. könnunum hefur Mélenchon milli 10-11% fylgi.
  3. 21% stuðningsmanna vinstri mannsins, Hamon - er hefur fylgi milli 13-14%, segjast sitja heima.

Auk þess eru flestir yfirlýstir stuðningsmenn Le Pen, ákveðnir í að kjósa:

  1. 80% stuðningsmanna Le Pen, segjast alveg örugglega mæta.
  2. 70% stuðningsmanna Fillon, segja það sama.
  3. Sama um rúmlega 60% stuðningsmanna Melenchon.
  4. Og um 50% stuðningsmanna Macron.
  5. Síðan, tæplega 50% stuðningsmanna Hamon.

--Þetta sýni að Le Pen mundi líklega vinna, ef þáttaka verður ekki mikið yfir 50%.
--Kannanir a.m.k. núna, spá nær öruggum sigri Macron í seinni umferð, ef þátttaka er a.m.k. rúmlega 60%.

Ef Marine Le Pen vinnur - þá er það pólitískur jarðskjálfti.
Enginn vafi þar um hinn minnsti!

  • Það þarf samt ekki endilega að leiða til endaloka ESB.
  • Jafnvel ekki, endaloka evrunnar.

En höfum í huga, að Le Pen hefur lofað að setja málið um evruna í þjóðaratkvæði.
Sama um aðildina að ESB.

Það sérkennilega gæti alveg gerst, að Marine Le Pen verði næsti forseti - en tapi þjóðaratkvæðagreiðslunum.
--Ekki ætti að bóka útkomu þeirra - fyrirfram!

  1. Síðan þarf að auki að hafa í huga, að það þyrfti ekki að fara svo, að Marine Le Pen yrði - valdamikill forseti.
  2. En forsetinn getur einnig verið valdalítill, þ.e. ef flokkur forsetans -- er ekki í ríkisstjórn.

--Það virðist ósennileg útkoma, að Le Pen stjórnaði með þingmeirihluta sér hliðhollann!
Þannig að það væri algerlega óvíst, að hún mundi geta hrint sínum áhugamálum í framkvæmd, þó hún yrði forseti Frakklands.

En án þess að hafa þingið með sér - hefði hún mjög óveruleg áhrif á franska lagasetningu.
Ríkisstjórn með þingmeirihluta henni andstæður - mundi ráða meiru en hún!
--Það sé því algerlega óvíst, að þó kjör hennar yrði pólitískur jarðskjálfti.
--Að hann yrði eins rosalega stór slíkur, og stuðningsmenn hennar dreymir um.

 

Niðurstaða

Málið er að forseti Frakklands, er fyrst og fremst verulega valdamikill - ef flokkur forseta er í ríkisstjórn, þar með með veruleg áhrif á lagasetningu og bein áhrif á stjórn landsins.

Ef Marine Le Pen, mundi hafa þingmeirihluta er væri henni andstæður.
Samtímis að ríkisstjórnin, væri með stefnu sem gengi gegn hennar stefnu í mikilvægustu málum.

Gæti hún orðið að - áhrifalitlum forseta.
--Hið eigiðlega lykilatriði fyrir hennar áhrif.
--Væri hvort henni mundi takast, að koma Front Nationale (FN) inn í ríkisstjórn.
Sem yrði án vafa að vera, samsteypustjórn.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 26
  • Sl. sólarhring: 34
  • Sl. viku: 461
  • Frá upphafi: 847108

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 437
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband