Engin takmörk hve langt Trump getur sokkið? Nú kallar hann Clinton - djöful, og talar um kosningasvik 100 dögum fyrir kosningar

Ákaflega sérstakt, að tala um kosningasvik -- 100 dögum fyrir kosningar!
En vanalega þegar slíkar ásakanir koma fram, gerist það að afloknum kosningum.
Trump: 'I'm Afraid' The General Election's 'Gonna Be Rigged'

""I'm afraid the election's gonna be rigged, I have to be honest," Trump told the crowd."

3-möguleikar koma upp í hugann!

  1. Trump sé með þessu, að leitast við að auka líkur á því að sem flestir stuðningsmanna hans, mæti til að kjósa.
    --Skapa tilfinningu spennu meðal þeirra.
  2. Gæti einnig verið tilraun til þess, að dreifa umræðu undanfarinna daga sem hefur verið Trump ákaflega óhagstæð -- eftir vægt sagt umdeilda sennu milli Trumps og foreldra hermanns er fórst í Persaflóastríði Bush forseta, er Trump virtist gera lítið úr móður hermannsins --> Sem er óhætt að segja að hafi ekki vakið lukku meðal bandar. þjóðarinnar.
  3. Og síðan - gæti hann hreinlega verið farinn að óttast að tapa kosningunum.
    Og sé farinn að undirbúa afsökun frammi fyrir eigin stuðningsmönnum -- að hann hafi í reynd ekki tapað, heldur hafi sigurinn verið tekinn af honum með svikum.

Alveg fullt af liði í kringum Trump - er væri fullkomlega tilbúið að trúa ásökunum um sviknar kosningar --> Burtséð frá því hvort nokkuð væri hæft í slíkum ásökunum.

Fyrir utan þetta, hefur Trump toppað öll ummæli tengd kosningabaráttu sem ég hef heyrt um, með eftirfarandi:
Trump calls Clinton 'devil,' warns of 'rigged' race, makes ISIS charge

"Speaking at a stop Monday night in Pennsylvania, Trump did not mince words as he also blasted Sanders for backing Clinton. “If he would have just not done anything, go home, go to sleep, relax, he would have been a hero. But he made a deal with the devil. She's the devil. He made a deal with the devil. It's true,” Trump said."

Augljóslega er Trump mjög pyrraður út í Sanders -- að hafa valið að styðja Clinton sem hinn skárri kost eða "lesser evil" - en ef Sanders t.d. hefði farið í sérframboð eru mjög miklar líkur að slíkt sérframboð hefði gert kosningasigur Trumps öruggan!

En nú -í ljósi ummæla þar sem hann talar um meint kosningasvik 100 dögum fyrir kosningar- þá er hann væntanlega nú -- enn pyrraðri en fyrr, gagnvart Sanders.

Kannski lísa ummælin um Clinton -- vonbrigðum Trumps.

Er hann ef til vill sjái sæng sína uppbreidda, í ljósi nýjustu skoðanakannana: Clinton extends lead over Trump to 8 percentage points: Reuters/Ipsos.

 

Niðurstaða

Ummæli Trumps um kosningasvik 100 dögum fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum, og ótrúlega hatrammleg ummæli um Sanders og Clinton þar sem Trump kallar Clinton -djöful- sem getur bent til biturðar. Séu ef til vill vísbendingar þess, að Trump sé að tapa voninni um sigur.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk fyrir góðann pistil

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.8.2016 kl. 00:46

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Takk fyrir innlitið. Var að horfa á "Back to the Future" myndirnar. Skrítið hvernig maður upplifir þessar kosningar - eins og maður væri staddur á -gatnamótum- milli 2-ja tímalína. Þar sem önnur úrslitin þíða, að sá tími sem við þekkjum - haldi áfram. En, hin úrslitin, að heimurinn taki skarpa beygju til annarrar framtíðar - sem ég óttast að ef verði, geti orðið verulega mun dekkri.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 3.8.2016 kl. 03:36

3 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þú hefur ótrúlega stutt minni Einar.

Það er ekki nema vika síðan að Hillary varð uppvís að grófum kosningasvikum.

Það er þesvegna alls ekkert út úr kú að Trump óttist kosningasvik af hennar hálfu,sérstaklega af því hún er með allt kerfisliðið í vasanum.

.

Að kalla hana djöful er alls ekki ónákvæmt. Auðvitað meinar hann ekki að hún sé djöfull í stöngustu merkingu þess orðs ,en þetta er oft notað til að lýsa ómerkilegri ofbeldisfullri manneskju og þá oft í samsettum orðum eins og Kalldjöfull eða kerlingardjöfull.

Mér finnst þetta lýsa henni ágætlega fyrst við höfum ekkert sterkara orð á takteinum. 

Borgþór Jónsson, 3.8.2016 kl. 17:22

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hillary er að vinna fyrir hernaðarlið sem hefur ekkert betra að gera en að skjóta eldflaugum á einhverja menn í Afríku.  Sömu menn og Obama er að vinna fyrir.  Enda hafa fáir látið skjóta jafnmörkum rakettum á Afríku.

Sömu menn eru sífellt að streða við, að því er virðist, að koma á öðru köldu stríði.  Sem okkur vantar eins og augu innan í lifrina.

Hvernig er hún betri en *einhver?*  Hver sem er?

Ástæðan fyrir dálæti fólks á Trump er að hann er ekki tengdur inní neitt svona furðulegt.  (Það, og hann fer í taugarnar á allskyns hundleiðinlegu fólki sem hefur fengið að vaða uppi allt of lengi.)

Það sagt...

Áfram Gary Johnson!

Ásgrímur Hartmannsson, 3.8.2016 kl. 21:42

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Boggi, hvaða kosningasvik ertu að tala um? Bendi þér á að ég fylgdist vel með þeim afhjúpunum sem fram komu þegar e-mailarnir voru birtir sem fram fóru milli meðlima sem sátu í stjórn Demókrataflokksins.

--En þ.e. engin leið að þó þeir hafi haft sínar eigin skoðanir á málum, að það sé unnt að líkja því við kosningasvik.

    • Það eina sem þeir gátu skipt sér af -- voru dagsetningar á prófkjörum.

    • Og dagsetningar á kappræðum.

    Þ.e. afar langsótt að halda því fram að þær dagsetningar hafi skipt öllu máli.

    Síðan ræður Clinton engu um það hvert fyrirkomulag kosninga er í einstökum fylkjum.
    Það er undir hverju fylki fyrir sig komið.

      • Bentu mér á sögu kosningasvika innan Bandaríkjanna ef þú getur.

      Kv.

      Einar Björn Bjarnason, 4.8.2016 kl. 01:24

      6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

      Ágrímur -- ég virkilega nenni ekki að tj+a mig um svona dellu "Hillary er að vinna fyrir hernaðarliðið."

      Þú munt kynnast raunverulegri geðveiki, ef Trump nær kjöri.

        • Trump býr til heimskreppu - gerir nær allar þjóðir í heiminum brjálaðar út í Bandaríkin.

        • Trump hefur fjárkúgunarherferð á hendur bandamönnum Bandar. -- sbr. yfirlýsingar Trump að hann muni eingöngu taka þátt í vörnum bandalagsríkja sem - hafa borgað Bandaríkjunum.
          --Og á skömmum tíma tvístrar bandalögum Bandaríkjanna.

        • Ef Trump heimskast til að segja Bandaríkin út úr "WTO" --> Þá einfaldlega færir hann yfirráð yfir "WTO" yfir til Kína.

        • Ef Trump hættir að verja NATO --> Þá færir Trump það til Pútín á silfurfati að leppríkisvæða E-Evrópu að því marki sem Pútín getur.

        • Og ef Ísland getur ekki greitt fjárkröfu þá sem Trump mundi koma með til Íslands --> Gæti það verið að rússneskur her lendi á Íslandi sumarið 2017, og sjálfstæði Íslands taki snarlega enda.

        ------------
        Heimskreppa - Kína með yfirráð innan heims-kerfisins -- Rússland að endurreisa járntjaldið.
        --Kannski að taka yfir Ísland --> Nema að eins og 1940 Bretland kannski verði fyrra til.

        Hver veit -- Heimsstyrrjöld 3-gæti hafist ekki löngu síðar.

          • Það þarf mjög sérstaka geðveiki til að styðja Trump, og hans geðveikislegu stefnu.

          Kv.

          Einar Björn Bjarnason, 4.8.2016 kl. 01:32

          Bæta við athugasemd

          Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

          Um bloggið

          Einar Björn Bjarnason

          Höfundur

          Einar Björn Bjarnason
          Einar Björn Bjarnason
          Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
          Apríl 2024
          S M Þ M F F L
            1 2 3 4 5 6
          7 8 9 10 11 12 13
          14 15 16 17 18 19 20
          21 22 23 24 25 26 27
          28 29 30        

          Eldri færslur

          2024

          2023

          2022

          2021

          2020

          2019

          2018

          2017

          2016

          2015

          2014

          2013

          2012

          2011

          2010

          2009

          2008

          Nýjustu myndir

          • Mynd Trump Fylgi
          • Kína mynd 2
          • Kína mynd 1

          Heimsóknir

          Flettingar

          • Í dag (29.4.): 6
          • Sl. sólarhring: 31
          • Sl. viku: 492
          • Frá upphafi: 847147

          Annað

          • Innlit í dag: 6
          • Innlit sl. viku: 468
          • Gestir í dag: 6
          • IP-tölur í dag: 6

          Uppfært á 3 mín. fresti.
          Skýringar

          Innskráning

          Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

          Hafðu samband