Útlit fyrir að Front Nationale vinni nærri helming héraðsstjórna í Frakklandi

Höfum í huga að kosningin sl. sunnudag var einungis - fyrri umferð. Á hinn bóginn, virðist Sósíalistaflokkurinn hafa hafnað að styðja hægri fylkingu Sarkozy í seinni umferð - í þeim 5 héröðum sem skv. niðurstöðu fyrri umferðar hægri fylking Sarkozy er í 2-sæti en FN er í fyrsta, þannig að það er tæknilega mögulegt að hindra yfirvofandi sigur FN í 5 héröðum af 6. Ef Sósíalistar stendur við sinn keip - en Sarkozy er mjög hataður í þeirra röðum; þá sé fátt sem komi í veg fyrir að FN nái 6 af 13 héraðsstjórnum nk. sunnudag.

Þessi afstaða Sósíalista - getur einnig bent til þess, að svipað geti gerst í forsetakosningunum eftir 18 mánuði, ef Sarkozy verður No. 2 á móti Marine Le Pen.

En líkur virðast góðar á að hún vinni sigur í 1-umferð forsetakosninga.
En einhver óvissa er nú um það, hvort Hollande eða Sarkozy verður Nr. 2, eftir að Hollande þykir hafa sýnt sköruglega framkomu í kjölfar hryðjuverkanna í París.

Á hinn bóginn, er fremur sennilegt að sú fylgissveifla geti verið búin, eftir 18 mánuði.
Þannig, að þá gæti neitun Sósíalista að styðja Sarkozy í 2.-umferð, mögulega tryggt Marine Le Pen sigur - þar með stöðu forseta Frakklands.

National Front stuns Europe’s political elites

https://arunwithaview.files.wordpress.com/2014/09/1690100_3_fede_marine-le-pen-le-soir-du-premier-tour-de_a6cba6adb662aa4b12f9819346754457.jpg

Tek fram að ég er alls ekki meðal aðdáenda Marine Le Pen, eða Front Nationale

Það er líka spurning um það - hversu róttæk hún verður þegar á reynir.
Og höfum í huga, að þó FN mund ná forseta-embættinu; þá gæti Marine Le Pen endað sem veikur forseti, ef það verður þingmeirihluti andstæður Front Nationale.

En forseti Frakklands er einungis yfirgnæfandi valdamaður Frakklands - þegar flokkur forseta fer einnig með meirihluta á franska þinginu.

Þing sem væri mjög andvígt stefnu Marine Le Pen, gæti klippt mjög rækilega á möguleika forsetans, til að koma stefnu sinni fram.

  • Það mundi þá reyna mjög á dyplómatíska hæfileika Marine Le Pen, þ.s. afar ósennileg sé að FN geti náð meirihluta þingmanna.

Þá yrði FN-að mynda samsteypustjórn - líklegar með einhverjum hluta hægri flokka bandalags Sarkozy. En það væri alveg hugsanlegt, að ef Sarkozy mundi tapa fyrir Marine Le Pen, að það bandalag mundi - leysast upp.

Sem gæti skapað Marine Le Pen þann möguleika, að mynda samsteypustjórn.

  1. Punkturinn er auðvitað sá, þó svo að afar ósennilegt sé að FN-mundi ná þingmeirihluta. Gæti FN orðið stærsti einstaki þingflokkurinn, eða sá næst stærsti.
  2. Þá auðvitað mundi reyna á -eins og ég sagði- dyplómatíska hæfileika Marine Le Pen.

Það sé langsamlega sennilegast, að eini möguleiki Le Pen á að - raunverulega stjórna landinu, væri að mynda samsteypustjórn þ.s. áhrif FN-væru sem mest.
En samstarfsflokkur, í slíku samhengi, yrði langt í frá áhrifalaus.
Og hefði þá hótun, að fella stjórnina - til að mynda gerólíkan meirihluta.

  • Það sé þá spurning - - hvaða hlutfall af sínu prógrammi, Marine Le Pen nær fram.
  1. En unnt er að túlka það fremur róttækt, sbr. þjóðernis-sinnaða efnahagsstefnu, þ.s. Marine Le Pen, talar um að - berjast fyrir rétti fransks iðnaðar.
  2. Það hljómar eins og afturhvarf til stefnu Frakklands á 7. áratugnum. Og virðist mér sennilegt, að það mundi rekast á reglur Innra-markaðar ESB.
  3. Og Marine Le Pen, lofar að endurreisa Frankann.
  4. Því má við bæta, að Marine Le Pen, virðist höll undir skoðanir Pútíns t.d. í Mið-Austurlöndum, og hefur virst höll undir sjórnarmið þess efnis að -þrátt fyrir gríðarlega stríðsglæpi- sé vænlegast að styðja Assad. Afstaða sem ég tel afar heimskuleg. Frakkland gæti þá rekist í stefnu annarra NATO landa, spurning hvort að Frakkland mundi endurtaka afstöðu Frakklands til NATO frá 7. áratugnum, þegar Frakkland neitaði að taka þátt í hernaðarsamvinnu NATO þjóða - þó að Frakkland væri meðlimur.

Rétt að árétta - - að samstarfsflokkur eða flokkar FN, ef Marine Le Pen, mundi takast að mynda samsteypusjórn; hefðu mikla möguleika til að - milda þessa stefnumörkun.

Eða, ef Marine Le Pen mistekst að mynda samsteypustjórn - og ríkisstjórnin ásamt þingmeirihluta er í eiginlegri andstöðu við forseta sinn.
Þá gæti ríkisstjórnin og þingið, væntanlega að mestu hindrað Marine Le Pen í að ná sínum megin málum fram.

  • Nettó útkoma af því, yrði þó sennilega - nokkurs konar stjórnleysi, eða, stjórnlömun.
  • Því væntanlega mundi Le Pen ekki hika við að - beita neitunarvaldi. Þó að þingið geti samþykk lögin aftur með nægum meirihluta --> Spurning þó hvort að sá nægilegi meirihlut væri til staðar. Það getur farið þannig að hann væri til staðar.

Það er nefnilega málið - að úrslit þingkosninganna sem haldnar verða samhliða, eru ekki síður mikilvæg, en úrslit forsetakosninganna; þó tilhneyging sé sögulega að stara meir á forsetakosningarnar.

 

Niðurstaða

Það er nefnilega langt í frá öruggt að hugsanlegt kjör Marine Le Pen sem forseta Frakklands mundi verða sá mikli landskjálfti sem a.m.k. sumir vonast eftir. Lykillinn að því að hún verði sterkur forseti, fær um að ná sínum málum fram, eru úrslit þingkosninganna - sem fara fram samhliða.

Vegna þess að afar ósennilegt er að FN-geti náð þingmeirihluta, blasir við nær öruggt - að samsteypustjórn væri eini möguleiki Marine Le Pen, að ná sínum málum fram.
Samstarfsflokkur hefði alltaf sterka stöðu í samstarfinu, vegna þess að það geti verið raunhæf hótun - að fella stjórnina og mynda aðra samsteypustjórn yfir til vinstri.

Það gæti tekið við, tímabil mikilla átakastjórnmála í Frakklandi.
Ef Marine Le Pen, spilar það rétt, gæti hún komið sterkar úr slíkum átökum.
En þ.e. að sjálfsögðu undir hennar tjáningarhæfileikum og dyplómatískum hæfileikum komið, að hvaða marki hún hefði möguleika að ná sínu prógrammi fram.

Það mundi alveg geta farið svo, að hún næði fram einungis litlu af því.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

En hvað er FN?  Fyrir hvað standa þeir?  Hvað er planið?

Ekkert af þessu veit ég með vissu.  Wikipedia gefur mjög loðin svör.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.12.2015 kl. 01:43

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Enn ein konan sem Frans Páfi og hans baktjalda valda-co, (landa/mannræningja-stjórar heimsins), ætla að nota fyrst, til að niðurlægja síðar konur almennt.

Það vantar hreinsun í bankaræningja-pottinum í Vatíkaninu, því þaðan mun ekki koma annað en  siðlaus stjórnleysis-tortíming, með brjálæðis stríðsplönuð grimmdarverk og sjúklega valdagræðgi.

Hver borgar klerkum Vatíkansins framfærslukostnaðinn óskráða? Hver borgar fyrir hertöku/aftöku-gögnin tortímandi?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.12.2015 kl. 12:24

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ásgrímur Hartmannsson, - Það sem maður hefur heyrt, hljómar gamaldags, þess vegna nefni ég 7. áratuginn - forsetatíð De Gaulle.

Mér virðist það helst einkenna stefnu FN - afturhvarf, áhersla á að endurreisa gildi sem talin hafa verið á fallandi fæti, leitun til þess samfélags - sem var í Frakklandi á árum De Gaulle.

Ef maður sleppir - andstöðu við innflytjendur. Þá virðist mér stefna FN, vera klassísk þjóðernis-sinnuð stefna, með áherslu á þætti sem taldir eru -franskir,- endurreisn þjóðlegra gilda sem menn telja hafi verið í hnignun.

Það mundi ekki koma mér á óvart, að FN mundi leita til baka til "national champions" stefnu gömlu Gaullistanna, þegar áhersla var á að efla franskan iðnað, efla samkeppnishæfni útflutnings-iðnaðar, gjarnan gert með lág-gengi frankans.

Þess vegna sennilega vill FN endurreisa Frankann.Til þess að geta hagað genginu, svo að útflutningsiðnaður fái samkeppnisforskot að nýju.
Það gæti auðvitað rekist á stefnu annarra landa.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.12.2015 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 249
  • Frá upphafi: 847331

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 245
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband