Bandaríkin ætla að hefja útflutning á gasi!

Það merkilega er að sl. 2 ár hefur útflutningur á gasi víst verið "restricted" eða í reynd bannaður. Þrátt fyrir hraða aukningu í gasvinnslu. Þetta hefur leitt til þess að verð á gasi í Bandaríkjunum hefur hrunið.

Skv. frétt Financial Times hefur Obama nú heimilað gasútflutning, frá nýrri stöð "LNG liquefied natural gas" í Texas sem kostar mikið fé að setja upp, sem kemur gasinu yfir á vökvaform við mínus 170°C.

Japanskir og evrópskir aðilar hafa boðist til að setja ma. dollara í aðra slíka stöð í Louisiana, sem áform eru um að reisa.

Það er auðvitað ástæða af hverju útflutningur hefur verið "takmarkaður" eða "restricted" þar sem þ.e. eina leiðin, til að tryggja það að verðlag á gasi innan Bandaríkjanna, sé lægra en heimsmarkaðsverð á gasi.

 

Takið eftir því hvað hefur náðst fram, með því að takmarka gasútflutning!

US energy revolution gathers pace

"Shale gas production has soared in the US in recent years, creating a supply glut that has driven prices down to about $4 per million British thermal units from a peak above $13 in 2008."

Það er ca. 70% verðfall.

"Cargoes of LNG, supercooled to minus 160 degrees so it can be transported on tankers, are selling in Asia for the equivalent of about $15 per mBTU, creating an attractive opportunity for exports from the US."

Ef verðið er 4 $/mBTU vs. 15$/mBTU.

Þá þíðit það að fyrirtækin sem vilja flytja gast út til Asíu, geta grætt heilan helling.

En aðeins ef þau fá að flytja gasið út.

Á sama tíma, eru önnur fyrirtækja "lobbí" í Bandaríkjunum, þ.e. þau sem græða á lágu verðlagi fyrir gas, að þrýsta á um að - útflutningur verði takmarkaður áfram!
  • "However, a vocal lobby of companies in industries such as chemicals and steel has urged restrictions on gas exports to ensure US manufacturers continue to derive a competitive advantage from cheap energy."

 

Þetta minnir töluvert á umræðuna hérlendis, hvort á að flytja út rafmagn með sæstreng, eða nota rafmagnið hér heima!

Lága gasverðið, hefur lækkað verð á gasi til margvíslegra iðnstarfsemi sem nýtir það í margvíslegum tilgangi þ.e. t.d. í efnaiðnaði ekki síst plast.

En ekki síst, þá njóta gas-orkuver sem framleiða rafmagn þess, að geta selt rafmagn á hagstæðu verði.

Og kaupendur þess rafmagns njóta þess, í hærri kjörum - því þá þurfa þeir að borga minna fyrir rafmagn sem þíðir að þeir eiga meir eftir hver mánaðamót til annarra hluta.

En ekki síst, þá hefur verið aukning í fjárfestingum innan geira, t.d. orkufrekrar starfsemi. 

Sem er mjög háð orkuverði, t.d. stálvera og álvera.

-----------------------------------

Þetta getur allt breyst, ef verðlagið á gasi innan Bandaríkjanna - fer á heimsmarkaðaverð.

Sem mun óhjákvæmilega gerast, ef allar takmarkanir á útflutnings eru afnumdar.

  • Að þessu leiti svipar umræðunni, til umræðunnar hérlendis um rafmagnssölu!
  • Sannarlega græðir Landsvirkjun mun meir, og innan Bandaríkjanna geta þeir sem vinna gas úr jörðu, einnig aukið mjög mikið gróða sinn.
  • En - nánast allir aðrir innan hagkerfisins tapa, það á einnig við hér á Íslandi.

Það verður forvitnilegt að fylgjast með þessu - - hvort Obama gefur fleiri útflutningsleyfi.

Þannig, að gasverðlag í Bandaríkjunum fer að stíga, og nálgast heimsmarkaðsverð.

Eða hvort, hann mun leitast við, að viðhalda umframframboði á gasi innan Bandaríkjanna, svo verðlag haldist áfram mun lægra á gasi innan Bandaríkjanna - en á heimsmörkuðum.

  • Ljóst er að framleiðendur þ.e. þeir sem vinna það úr jörðu, munu þrýsta á sem mestan útflutnings.
  • Kaupa til þess sem flesta þingmenn.
  • Leitast við, að höfða sem mest til Obama.
Áhugavert að japönsk, bresk og frönsk orkufyrirtæki. Virðast hafa bæst við, og leggja sín lóð á vogarskálarnar. Að fá meiri útflutning. En sjálfsagt vonast þau eftir því, að geta fengið hagstæðara verð á gasi frá Bandaríkjunum en t.d. Gasprom er viljugt að selja gas á til Evrópu, í tilviki franskra og breskra fyrirtækja.
  • Meðan að þeir sem vilja setja upp flr. verksmiðjur innan Bandaríkjanna, sem hagnýta sér lága orkuverðið þar.
  • Munu þrýsta í hina áttina, benda á störfin sem geta skapast.
  • Síðan má ekki gleyma, neitendum sem njóta lækkaðs verðlags á náttúrugasi beint til heimilisnota, sem og í óbeinu formi í gegnum rafmagn framleitt í gasorkuverum.
  • Þeirra hagsmunir eru að lága verðið haldist áfram.

Spurning hver vinnur þetta reipitog!

 

Niðurstaða

Þetta er ákveðið lúxusvandamál. Mig grunar samt að Obama muni leitast við að feta einhvers konar bil beggja leið. Enda getur það skaðað hagvöxt innan Bandaríkjanna. Ef gasverð nálgast alþjóðlegt verðlag of mikið. En lágt orkuverð - er eitt af því sem getu hjálpað Bandaríkjunum. Að snúa vörn í sókn. Í samkeppni um störf.

En þó svo Asíulönd hafi lægri laun, þá kemur mun lægra orkuverð nokkuð á móti. Réttir þannig aðeins af samkeppnisstöðu bandarískrar framleiðslu - hið minnsta þeirrar framleiðslu þ.s. orkuverðið skiptir máli að einhverju ráði.

En auðvitað skiptir lágt orkuverð einnig máli fyrir neyslu. Þ.e. bætir efnahag heimila þ.e. þeirra sem búa á þeim svæðum, þ.s. nýting á gasi er tíðkuð hvort sem er í gegnum rafmagnsframleiðslu eða beinna form af notkun.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

það má líta stórt á málin og segja ef USA eykur farmboð af af gas [og olíu] inn á heimsmarkað þá heldur það hækkum niðri.  UK er Í vandamálum USA og EU ásakar UK orku risa um að hafa sameinast um að leggja 5,0% meir á enn aðri aðilar í stöðuleika grunni: eitthvað  er líka verið að hnýta í Norðmenn.

Í USA er föst flutfallsleg skiping á tekju 90% fátækusti og 10% ríkust og Heildameðalaunum af GDP [PPP] = GDP[OER] í USA.  hækki PPP [við útflutting] þá græða allir  á því. Gas getur því hækkað almennt í USA í samræmi við hækkað útborgað kaup.

Íslensk hagfræði skapar ranghugmyndir. Íslendinga upplifa ekki eigin skinn free market= fair market.  Skilja því ekkert í fræðingum ríkja sem byggja á öðrum grunni. Hækka raunvirði þjóðartekna GDP[PPP] fyrst og síðan meðalaun.

Júlíus Björnsson, 18.5.2013 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 26
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 461
  • Frá upphafi: 847108

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 437
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband