Við erum "markmiðssettur flokkur"?

Ákvað að hlusta aftur á viðtalið við Guðmund Steingrímsson í ríkissjónvarpinu þann 16/4. Hann má eiga það karlinn að hann er alltaf huggulegur í fasi, lítur vel út. En það var áhugavert á að heyra. Hve ílla fréttamönnunum gekk að fá hann til að útlista leiðir að þeim markmiðum. Sem flokkurinn hans hefur sett fram.

Ég skal alls ekki draga í efa að það er mikilvægt að setja sér markmið.

Og einnig mikilvægt að fókusa á þau markmið.

En það þarf einnig að skilgreina - leiðir að þeim markmiðum.

Einhvern veginn virðist Gumma frænda vefjast tunga um tönn, þegar að þeim þætti kemur.

 

Af hverju ætli það sé?

Áherslur Bjartrar Framtíðar!

Björt Framtíð - Ályktunin

Björt Framtíð - Yfirlýsingin

En þetta er allt sem ég sá á þeirra vef, og innihélt e-h sem gæti nálgast að vera hugmyndir að stefnu.

Ef maður les sig í gegnum þessi 3-plögg. Þá er langsamlega megnið af þessu - mjög almenns eðlis.

Eins og Guðmundur orðaði það - markmið.

En ef maður leitar að "leiðum" er mjög fátt að sjá - en þarna á tveim til þrem stöðum, má sjá tal um - einföldun skattkerfis. T.d. að einfaldað skattkerfi - geti gert litlum og meðalstórum fyrirtækjum auðveldar með að þrífast.

Síðan er töluvert talað um "grænan iðnað" en það eru engin dæmi nefnd um það - hvað er grænn iðnaður. Algerlega óskilgreint hugtak - því algerlega í lausu lofti. Hvað hann á við með "grænum iðnaði."

En eins mikið og hann talar um þetta, virðist eins og menn telji "grænan iðnað" einn helsta framtíðar vaxtasprota Íslands - - eða eins og Guðmundur sagði á einum stað í viðtalinu, nefndi þ.s. grein sem gæti "vaxið án takmarkana."

En ekki nefndi hann í viðtalinu nokkurt dæmi, um hvað hann ætti við - þegar hann talaði um "grænan iðnað."

-----------------------------------------

Ég held að vandi Bjartrar Framtíðar - sé að hópurinn samanstefndur annarsvegar af:

  1. Hópi Frjálshyggjumanna - þó hann noti orðið "frjálslyndur flokkur" þá er hin gamla þýðing á íslensku á stefnu "frjálslyndra flokkar" nefnilega "frjálshyggja."
  2. Og hinsvegar hópi sem kemur frá Besta Flokknum, sem líklega ekki síst, sprettur fram í andstöðu við einmitt "frjálshyggju" og önnur hörð form markaðskapítalisma.

Eins og að hafa "svart" og "hvítt" vinnandi saman.

Og útkoman sé niðurstaða þess - - að þau eru ekki sammála um neitt.

Annað en hin almennu markmið!

 

Hann er að leitast við að selja lítið innihald sem eitthvert nýtt og stórmerkilegt!

Það er kannski fyrir það sem viðtalið er fyrst og fremst áhugavert. Og hvernig Guðmundur leitast við að komast hjá því, að gefa nokkur skýr svör.

Enda hefur hann engin að gefa. 

Vegna þess hve lítið innihald stefna flokksins hefur.

En á sama tíma. Er Guðmundur Steingrímsson. Að leitast við að selja flokkinn. Sem eitthvað nýtt og stórfenglegt framlag innan ísl. stjórnmála.

Þetta er eiginlega stórt trix í sölumennsku - - að selja eitthvað lítilfjörlegt sem eitthvað magnað og merkilegt.

Ég held hann hafi engan sannfært - nema þá sem þegar voru sannfærðir fyrir.

 

Niðurstaða

Við fljótan lestur á stefnu BF þá eigum við öll að vera góð við hvert annað, hætta að rífast, vinna saman og vera ekki leiðinleg. Horfa bjartsýn fram á veg. Stefna að því að ekkert af því slæma sem áður hefur komið fyrir okkur, endurtaki sig. Ganga í ESB. Stefna að því að hafa eins lága vexti á húsnæðislánum og þau lönd sem lántökuvextir eru lægstir.

Það eina sem vantar - er ein góð hasspípa meðan maður les þetta yfir hjá þeim. 

Svo maður geti gert það í réttu sælu stemmingunni :)

  • Sennilega mesta froðusnakk sem ég hef séð!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Einar Björn, Þetta er merki um úrkynjun stjórnmálanna, í stjórnmálum eiga öll dýrin í skóginum alls ekki að vera vinir, það á að takast hart á um hlutina og ræða þá frá öllum hliðum, stjórnmálin á íslandi í dag eru bara eitthvert miðjumoð, allir að fiska í sama pollinum spurningin bara um hver hefur girninlegustu beituna, Alþingi er afgreiðslustofnun fyrir Ríkisstjórnirnar að mestu með gjammi og frammíköllum án átakamikilla sannfærandi umræðna. kv KBK.  

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 18.4.2013 kl. 07:32

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Mikið til í þessu.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 18.4.2013 kl. 10:34

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

þetta er marksvæðing grunngilda í hotskurn. Gengur vel upp í ríkjum þar sem stofnanna baklandið er fast bundið greindustu eintaklingum innan skilmerkilegra lagarama: policy. Stofnanir sem lifa heimsóknir misvitra stjórmála trúða. Í mörgum ríkjum nægir að hafa einn yfirgreindan í toppi hvers valflokks 10% geta skipt máli í úrslitum [Boston og Oxford.   Lýðræði er í lagi ef tryggt er að lýðurinnn fá ekki breytt hlutfallslegri stöðuleika skipingu. Infrastucture. Lýður þráir val. Toppur hefur annað gera en velja.  Botninn hefur ekkert val, og þarf því ekki velja.    Lýðræðileg stjórnmál, er fjámögnuð í dag með sköttum víða hlutfalllega jafnt, og bjóða víða upp á mörg áhættu laus hlunnindi.  Á Íslandi er hefðbundinn mikill áhugi á lýðræði.  Peningavaldið [eignhaldið] er númer 1.2 og 3.

Júlíus Björnsson, 18.4.2013 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 36
  • Sl. viku: 509
  • Frá upphafi: 847164

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 485
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband