Áhugaverð rök S&P fyrir hækkun lánshæfis Grikklands um 6 flokka!

Skv. þessu er lánshæfi Grikklands hækkað úr "selective default" í "B-." Það sem er áhugavert við þessa ákvörðun, er að hún virðist ekki byggja á vaxandi tiltrú á Grikklandi sjálfu. Heldur, endurskoðuðu mati starfsmanna Standards&Poors á afstöðu aðildarríkja evrusvæðis til stöðu Grikklands innan evru!

S&P raises Greece's ratings

"The upgrade reflects our view of the strong determination of European Economic and Monetary Union (eurozone) member states to preserve Greek membership in the eurozone."

  • Akkúrat, þeir telja að aðildarríki evrusvæðis - hafi tekið þann pól í hæðina, að halda Grikklandi innan evru, nánast - hvað sem það kostar.

"The outlook on the long-term rating is stable, balancing our view of the government's commitment to a fiscal and structural adjustment against the economic and political challenges of doing so."

  • Þeir telja, það verður áhugavert að sjá hvort það stenst síðar meir, að gríska ríkisstjórnin hafi nægilegt bakbein, til að standa við núverandi samkomulag - þrátt fyrir enn hratt vaxandi kreppu í Grikklandi, og versnandi ástand hjá almenningi - sjá stórfína fréttaskýringu WSJ: Struggling Greeks Face Harsh Winter

Áhugaverð mynd úr frétt Wall Street Journal!

image

  • "Golden Dawn currently polls around 12%, up from 7% of votes in the June elections."
  • "It could reach 20% support if the economy continues to sink, Mr. Nikolakopoulos says."

Merkilegt, mjög svipuð þróun og þegar hin hyldjúpa kreppa 4. áratugarins í Þýskalandi, magnaði fylgi við nasista - stig af stigi.

Um það þarf ekki að efast, að gríska hagkerfið mun sökkva áfram - sennilega í gegnum hið fyrirhugaða 4 ára niðurskurðartímabil. Sem ríkisstj. Grikkl. hefur samþykkt og gríska þingið staðfest.

Ef Golden Dawn hefur 20% fylgi á nk. ári, þá væri það eins og endurtekning á Þýskalandi 4. áratugarins. Er nasistar og kommar börðust um völdin á götum borga.

En annar flokkur, Zyrisa flokkur róttækra "anti" globalista. Mælist í dag skilst mér í kringum 30%.

Þrátt fyrir það, virðist mér Zyrisa ekki eins hættuleg hreyfing, og Golden Dawn sem hefur formann sem afneitar helför Gyðinga.

------------------------

En þ.e. vel unnt að sjá aðra hvora þessara hreyfinga við völd, innan nk. 2 - 3 ára.

 

Niðurstaða

Ég fullyrði ekki neitt um líkur þess að starfsmenn S&P hafi rétt fyrir sér. Það má vera að eftir þingkosningar í Þýskalandi sept. 2013, muni aðildarríki evru standa við fyrirheit um það að bæta greiðslukjör Grikklands - svo fremi að ríkisstj. Grikklands sé enn að standa að fullu við hið nýlega samþykkta "3. björgunarprógramm Grikklands." Og að auki, afskrifa að einhverju leiti af höfuðstól skulda Grikklands.

Eiginlega er ekki nokkur leið að vita fyrirfram, hvort ríkisstjórn Þýskalands var einungis að framkvæma "Björgun 3" til að halda Grikklandi innan evru, fram yfir kosningarnar 2013. Eða hvort, að það var í reynd í gangi, framtíðarstefnumörkun - sem starfsmenn S&P virðast veðja á um, að halda Grikklandi innan evru. Gera þ.s. til þarf, svo það gangi upp.

Hver sem sannleikurinn er, þá a.m.k. er ljóst - að þanþol gríska samfélagsins er óþekkt. Sá strengur getur gefið sig þá og þegar, eða haldið út um óþekktan tíma til viðbótar.

En slæmt, afskaplega slæmt, er ástandið þegar orðið og enn, hratt versnandi.

Það er því alls ekki öruggt, að ríkisstjórn Grikklands verði fær um að halda fram þeim niðurskurðaráformum nk. 4 ár - sem ríkisstjórn Grikklands hefur skuldbundið sig til.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 30
  • Sl. sólarhring: 45
  • Sl. viku: 531
  • Frá upphafi: 847252

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 506
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband