Wallstreet hækkar um 4% á þriðjudag, markaðir víða hækkuðu aðeins, verðfallið virðist búið a.m.k. í bili!

Það sem virðist hafa haft mest áhrif á aukna bjartsýni á bandar. hlutabréfa markaðinum, var niðurstaða daglangra fundahalda stjórnenda Seðlabanka Bandaríkjanna sbr. "Federal Reserve" um að, halda vöxtum í Bandaríkjunum mjög lágum, út 2013 a.m.k.

Það er uppi vangaveltur, að svör starfsmanna "Fed" gefi vísbendingu um að QE3 sé til skoðunar, en það var rætt um að "Fed" muni halda áfram að fylgjast náið með málum, og ef frekari aðgerða verði þörf - þá sé engin aðgerð fyrirfram útilokuð.

Gull hækkaði í verði - dollarinn féll gagnvart jeni og svissn. franka!

 

Fed Pledges Low Rates Through 2013 :"Fed officials said they expect the weak economy to warrant exceptionally low levels for the federal funds rate "at least through mid-2013." Seven voted in favor of this action, with three voting against.

Bloomberg: Fed to Keep Rates at Lows at Least Through Mid-2013

"“Economic growth so far this year has been considerably slower than the committee had expected,” it said. The Fed also said it expects a “somewhat slower pace of recovery over coming quarters.” The “downside risks to the economic outlook have increased,” the Fed concluded."

Fed holds short-term rates to mid-2013: "The Japanese yen strengthened to Y76 versus the dollar, just below the level at which the Bank of Japan began a market intervention earlier this month."

Swiss franc surges to record highs : "The (Swiss) franc climbed...6.1 per cent at one stage...all-time high of SFr0.7085 against...dollar before easing...to... SFr0.7182 to the dollar..."

Treasury yields plunge to record lows

 - þ.e. bandar. ríkisskuldabréf hækkuðu í verði, með öðrum orðum, vaxtakrafan lækkaði, og varð um tíma sú lægsta sem sést hefur, en náði svo jafnvægi í því lægsta sem sést hefur lengi.

Niðurstaða þriðjudagsins varð, að Dow Jones vísitalan, fór upp um 3,98% og fór aftur upp fyrir 11.000 stiga múrinn, sem hún féll niður fyrir á mánudag. Sbr.: Dow Jumps 4% to Reclaim 11000 Mark

Bloomberg: Stocks Soar Most in Two Years, S&P 500 Up 4.8%

 

Evrópskar vísitölur fóru einnig upp, náðu hluta af fyrra tapi til baka: European Stocks End Losing Streak

  • "Stoxx Europe 600 index ended 1.4% higher at 232.20, following a 4.1% slide Monday..."
  • "The U.K.'s FTSE 100 index rallied 2.1%..."
  • "In Paris, the CAC 40 index rose 1.6% to 3176.19,..."
  • "Germany's DAX was unable to end in positive territory, falling 0.1%..."

Ljóst samt, að miðað við stöðu miðað við upphaf sl. viku - hafa allar vísitölurnar fallið umtalsvert!

En, verið getur, að smá friður skapist um tíma - en vandamálin að sjálfsögðu ekki úr sögunni!

 

Ein mikilvæg spurning, er hvað gera Þjóðverjar?

En það er raunverulega mikil andstaða innan Þýskalands, við hugmyndir þess efnis að Þjóðverjar fjármagni í reynd, ríki í vanda - svokallað "transfer union" eða millifærslu-samband.

Angela Merkel, á nú í glímu við aukna andstöðu meðal raða eigin flokksmanna - og meðlima samstarfsflokksins Frjálsra Demókrata - en andstaða við hugmyndir um stækkun björgunarsjóðs eða um Evrubréf, fer harðnandi!

 

Merkel faces revolt over eurozone deal : "Angela Merkel...face(s) a revolt among...own supporters..."The complex political landscape means...Merkel is determined to resist pressure from her partners, and from the European Commission, for any further measures...for fear of losing...parliamentary majority."

 

Svo það er mjög góð spurning - hvort það sé pólitískt mögulegt fyrir Merkel að stækka björgunarsjóðinn?

En, með 440ma.€ sem þíðir í reynd að hann getur lánað kringum 300ma.€, þá sjá markaðir að fjármagn í spilum, er hvegi nærri nógt - sbr. cirka 2.250ma.€ skuldir Spánar og Ítalíu samanlagt.

Það eru engir augljósir kostir aðrir í stöðunni þar fyrir utan - en að Seðlabanki Evrópu taki upp peningaprentun án takmarkana! 

En, fræðilega getur hann keypt upp allar skuldir Ítalíu og Spánar, en gagnvart þeim tilkostnaði að sökkva evrunni - þá á ég við, gengi hennar - skapa um leið mjög umtalsverða verðbólgu!

 

Beware the ECB’s brave new world :"The ECB...Greece...Irish and Portuguese...Before this week’s intervention, the SMP held €74bn-worth of government securities from these three countries. That is 14 per cent of the around €520bn of bonds they have outstanding..."

  • Martin Sandbu, gefur upp töluna 2.250ma.€ og 14% af því er 315ma.€. 
  • Það er klárt - að 440ma.€ þakið á björgunarsjóðnum, er hvergi nærri nógt, ef inngrip Seðlabanka Evrópu, eiga að vera einhvers staðar sambærileg í hlutfalli sbr. fyrri inngip hans.
  • Og þau inngrip - ef fólk man svo langt aftur - mistókust öll fyrir rest, því í dag eru löndin 3 öll í reynd gjaldþrota, þeirra skuldabréf á markaðsvirði sem er langt fyrir ofan mörk sem ríkisstjórnir þeirra hafa efni á.
  • Sagan vinnur því ekki með ECB - stofnunum ESB - né ríkisstjórnum Evrusvæðis.

 

Niðurstaða

Vandræði Bandaríkjanna, geta hugsanlega farið í smá pásu - eftir yfirlísingu "Federal Reserve" þ.s. hann skuldbindur sig um, að halda vöxtum áfram mjög lágum - það svo lengi sem út 2013 a.m.k.

Þá beinast sjónir okkar aftur að Evrópu, vandræðunum þar. En, inngrip Seðlabanka Evrópu hófust sl. mánudag með kaupum á bréfum Ítalíu og Spánar. Klárt er af litlum samanburði við það hlutfall, sem bankinn keypti að meðaltali af skuldum Grikkland, Írland og Portúgals; að ef hann kaupir sambærilegt hlutfall skulda Ítalíu og Spánar - þá skapast virkilega mjög áhugaverð staða.

En þá, verður hann kominn með svipaða upphæð á sína reikninga af þeirra bréfum, og sem nemur þeirri upphæð sem eftir er í björgunarsjóð Evrópu.

Fjárfestar vita að sú upphæð cirka 300ma.€ er sennilega þak á því sem Seðlabanki Evrópu er til í að kaupa fyrir. En, ef hann kaupir meir - þá getur hann ekki átt möguleika á því, að láta björgunarsjóðinn taka þær skuldbindingar yfir. Nema sá sé stækkaður!

----------------------

Það má því slá því algerlega föstu - að á einhverjum tímapunkti muni fjárfestar láta reyna á málið með stöðutökum gagnvart Ítalíu og Spáni. 

En, ef til vill ekki alveg strax! 

Það getur því verið að friður verði ef til vill út ágúst - einnig á evrusvæðinu.

Áhugaverðir hlutir fari ekki að gerast aftur - fyrr en þjóðþingin koma saman í september.

En þá ætti þegar að liggja dágóður slatti af skuldum Ítalíu og Spánar, á bókum ECB.

Fjárfestar munu auðvitað fylgjast með þeim tón sem umræður á þingunum munu taka - en þörf fyrir það að stækka björgunarsjóðinn ætti að blasa mjög vel við - en ef fjárfestum sýnist klárt að andstaða við slikar hugmyndir sé öflug í tilteknum lykilríkjum, sérstaklega Þýskalandi.

Þá kemur sennilega sú stund - sem fjárfestar láta slag standa!

------------------------------

Spennandi haust - sem sagt!

 

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Með því að sökkva evrunni þá hagnast mest þau ríki sem eru í mesta skuldabasli. Sem dæmi að frá 2005 til 2010 þá hefur fækkað ferðamönnum í Grikklandi um 18% (aðallega frá evrulöndum) og þeir hafa meiri innflutning en útflutning þar sem þeir eru ekki samkeppnisfærir við önnur evrulönd.

Þegar neysluverðvísitalan var gerð 100 árið 2005 þá var hún komin í kringum 120 í Grikklandi en stóð í kringum 111 í þýskalandi. Þannig að Grikkland er ekki samkeppnisfært við Þýskaland og þarf af leyðir minnkar líka útflutningur til bræðsluofnsins í evrunni.

Ómar Gíslason, 10.8.2011 kl. 22:59

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það er rétt, skuldugu ríkin myndu græða á gengisfalli. En, það myndu þau ríku einnig gera - benda sumir á. Ein hugmynd er að ríku þjóðirnar taki sig út og stofni nýjan gjaldmiðil, gamla evra falli og þá um leið lækki einnig skuldir ríku landanna. Skuldugu ríkin verði eftir í gömlu evru, fái það hagræði af bættri samkeppnisstöðu sem gengisfall framkallar + skuldalækkun. Þetta er hugmynd sem flögrað hefur um, að best væri að ríku ríkin færu og stofnuðu nýjan gjaldmiðil.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.8.2011 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 43
  • Sl. sólarhring: 273
  • Sl. viku: 1409
  • Frá upphafi: 849604

Annað

  • Innlit í dag: 42
  • Innlit sl. viku: 1300
  • Gestir í dag: 42
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband