13.7.2016 | 23:39
Virðist algerlega ljóst að aldrei nokkru sinni verði af lagningu raforku sæstrengs milli Bretlands og Íslands
Ég held að útkoma nákvæmrar greiningar á kostum og göllum verkefnisins, leiði þá útkomu fram án nokkurs minnsta raunverulegs vafa - að algerlega sé ljóst að aldrei verði nokkru sinni af þessu.
Sæstrengur til Evrópu skýrsla verkefnisstjórnar
- Verkefnið ber sig ekki, nema að bresk stjórnvöld samþykki að styrkja við það.
- Áætlaður kostnaður - 800ma.kr. eða milli 1/3-1/4 af landsframleiðslu Íslands.
--En ég held að öruggt sé að líkur séu á að kostnaður verði hærri, vegna fjölda óvissu þátta. - Raforkuþörf verkefnisins væri 1.459MW, sbr. Kárahnjkúkavirkjun er 690MW.
- Raforkuverð til almennings yrði milli 5-10% hærra.
--Orkuverð atvinnulífs hækkar um 2,1 - 4,2ma.kr./ár. - Áætluð aukning landsframleiðslu 1,2 - 1,6%.
- Mundi uppfylla um 2% af raforkuþörf Bretlands.
Ég held að það hafi komið nægilega í ljós á kjörtímabilinu 2009-2013, þegar rætt var um drauma um 3-risaálver, sem hefðu þurft einnig gríðarlega umfangsmiklar virkjanir.
Að andstaða innan lands sé slík gagnvart risastórum virkjanaframkvæmdum, að óraunhæft sé að slíkt verkefni séu -- pólitískt séð mögulegt.
- Þó hefðu þær virkjanir - ekki hækkað raforkuverð til landsmanna.
- Eða stuðlað að hækkun raforkuverð alls atvinnulífs starfand á Íslandi.
Vandamálið er að sjálfsögðu sú raun tekjuskerðing, sem felst í þessu fyrir almenning.
Bæði beint í gegnum hækkun raorkuverðs heimila -- og óbeint, en fyrirtæki munu þurfa að mæta raforkuverðs hækkun með því að skera niður kostnað; sennilega að það bitni á launum eða starfsmannahaldi, eða bil beggja.
- Í dag er ferðamennska orðin sú atvinnugrein sem mestu fjármagni skilar inn í landið.
- Erfitt er að sjá að sú atvinnugrein, mundi bregðast við með öðrum hætti, en andstöðu við stórfelldar framkvæmdir - hvort sem þær væru í virkjunum á hálendinu eða umfangsmiklum línulagningum um hálendið.
- Þar sem ferðamennskan hefur aukist mjög mikið sl. 6 ár, eða síðan rætt var um risaálverin 3-þá hafa pólitísk ítök hennar sama skapi vaxið.
- Ég held að klárt sé, að líkur á að samstaða geti myndast um slíkar risaframkvæmdir hér innanlands - á næstu misserum.
- Sé verulega mikið minni - þar af leiðandi, en fyrir 6-árum, og þó reyndist það ómögulegt fyrir 6 árum.
Síðan er svo augljóst að auki að vafasamt er að verkefnið borgi sig yfir höfuð!
En vegna þess að rafstrengur hefur aldrei verið lagður á svo miklu dýpi - einnig ekki svo langa vegalengd.
Þá hljóti tæknileg óvissa vera umtalsverð.
Ekki síst, veruleg óvissa um raunverulegan kostnað við lagningu, og viðhald slíks strengs.
Gríðarleg óvissa að sjálfsögðu væri einnig um kostnað hér innanlands, vegna þess m.a. að mikil óvissa augljóslega er um það -- hvernig pólitísk andstaða mundi hafa áhrif á skilvirkni virkjana, og kostnað við lagningu lína.
- En t.d. er auðvelt að minnka skilvirkni virkjunar, t.d. ef stíflan er lægri en til stendur, vegna kröfu um minna lón.
- Eða að krafa er gerð um, umfangsminni miðlanir á vatni.
- Að auk gæti það vel verið, að gufuvirkjanir fengu ekki eins mikið frelsi til borana, og til stendur -- eða að svæði væru friðuð að hluta, sem áætlað væri að virkjun þyrfti á að halda.
Ef strengir eru verulega mikið -- neðanjarðar að kröfu sveitafélaga og almennings í sveitafélögum, þá auðvitað vex mjög verulega kostnaður við lagningu.
Það má auðvitað reikna með umtalsverðum töfum á mörgum stigum framkvæmda -- vegna mótmæla.
Niðurstaða
Hún er afar einföld, að ég er næsta öruggur á því, að enginn raunverulegur pólitískur vilji sé til staðar á Íslandi, að taka þau óskaplegu samfélagslegu átök er mundu hefjast, ef gerð væri tilraun til að koma þessari gígantísku framkvæmd á koppinn.
Réttast væri að jarða þessar hugmyndir að fullu og öllu.
Kv.
Bloggfærslur 13. júlí 2016
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
- Skoðanakannanir líklega ofmeta fylgi Donalds Trumps -- sem er...
- 2 ár síðan Rússland hóf innrás í Úkraínu, febr. 2022: Stríðið...
- Batnandi efnahagur Bandaríkjanna gæti bætt sigurlíkur Joe Bid...
- Hæstiréttur Bandaríkjanna, varðandi mál Donalds Trumps - ætti...
- Arabaríki leggja fram friðartillögu í átökum Ísraels og Hamas...
- Yfirlit yfir stöðuna í Úkraínu: Stuttu máli sagt, gekk sókn Ú...
- Vegna mikillar umræðu um, vinsældir Donalds Trump vs. óvinsæl...
- Harðir bardagar sl. 3 vikur um borgina Avdiivka í SA-Úkraínu,...
- Er Ísrael að falla í gildru Hamas Samtakanna? Hamas samtökin ...
- Árás Hamas samtakanna frá Gaza svæðinu á Ísrael - stærsta bló...
- Staðfest gegnumbrot Úkraínmanna, á Varnarlínu Rússar No. 2 --...
- Hafa Úkraínumenn, þegar 'de facto' haft sigur á Rússum í S-Úk...
Nýjustu athugasemdir
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynleg...: Vandræðin eru að Selensky og allir sem hann leyfir að vera í k... 26.4.2024
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynleg...: Trump mun ganga frá friðarsamningum þar sem Rússar fá það sem þ... 25.4.2024
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekk...: Grímur - gersamlega hlægileg hugmynd að, Úkraínu-átök, geri Ves... 14.4.2024
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekk...: Stríðið er þegar hafið, en það er unnið á annan hátt. Árásin er... 14.4.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- gudspekifelagid
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 81
- Sl. sólarhring: 106
- Sl. viku: 433
- Frá upphafi: 847074
Annað
- Innlit í dag: 76
- Innlit sl. viku: 410
- Gestir í dag: 75
- IP-tölur í dag: 71
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar