Ísrael virðist óvænt ætla að verða það land sem mest græðir á deilum Tyrklands og Rússlands

Fréttir hafa borist af óvæntum sáttum Tyrklands og Ísraels, en löndin 2-hafa haft stirð samskipti síðan 2010, er ísraelskir sérsveitarmenn - réðust um borð í tyrkneskt skip, er var á leið til Gaza strandar - með hóp aðgerðasinna um borð; hópur sem var andvígur viðvarandi umsáturs ástandi Ísraels um Gaza - síðan Hamas náði þar völdum.

Israel and Turkey Agree to Restore Diplomatic Ties

Israel and Turkey poised to restore ties after 5-year rift

http://ichef.bbci.co.uk/news/624/media/images/67567000/gif/_67567232_gas_fields_464.gif

Tyrkland virðist planleggja að kaupa gas af Ísrael, í stað þess að kaupa gas af Rússlandi

  1. Eins og sést á korti, hefur Ísrael fundið nokkuð af gasi innan sinnar lögsögu. Gaslyndin kennd við "Leviathan" er langsamlega stærst. En einnig enn sem komið er - ekki nýtt. Það stafar af því, að fram að þessu hefur Ísrael vantað nægilega stóran kaupanda.
  2. Þar kemur Tyrkland til sögunnar, nú þegar gas-viðskipti Tyrklands og Rússlands, eru komin í óvissu eftir að samskipti Tyrklands og Rússlands hafa versnað til mikilla muna undanfarið.
  3. Aðrar gaslyndir gera Ísrael sjálfu sér nægt um gas og gott betur.

Skv. fréttum -- þá mun Tyrkland:

  1. Falla frá dómsmálum gagnvart ísraelskum sérsveitarmönnum.
  2. Og vísa frá Tyrklandi sendimönnum Hamas er hafa fengið að starfa fyrir opnum tjöldum í Tyrklandi í nokkur ár.

Ísrael mun á móti:

  1. Setja upp sjóð til að veita fjölskyldum þeirra Tyrkja er létust í árás ísraelskra sérsveitarmanna 2010 - fébætur.
  2. Löndin 2-munu síðan að nýju, skiptast á sendiherrum, og taka aftur þar með upp full dyplómatísk samskipti.

Samningar um byggingu leiðslu frá "Leviathan" svæðinu til Tyrklands - munu síðan fljótlega hefjast.

Löndin 2 hafa ræðst við - við og við í gegnum árin.
En einungis nýlega - virtist nýr vilji til sátta hafa risið.

  • Ég sé ekki að það geti mögulega verið tilviljun - að þ.e. skömmu eftir að Tyrkland lenti í alvarlegri deilu við Rússland - sem ekki lýtur út fyrir að ljúka fljótlega.

 

Niðurstaða

Miðað við þessar fréttir - virðist stefna í að 2-gamlir bandamenn í Mið-austurlöndum, en löndin 2-voru það á árum áður; jafni 5-ára langar deilur sínar þannig að fullar sættist takist.
En Tyrkland og Ísrael á árum áður, höfðu með sér víðtækt samstarf, ekki síst á hernaðarsviðinu.
Sennilega verður það samstarf endurreist - í kjölfar þess að Tyrkland hefur viðskipti við Ísrael.

  • Útkoman er augljóst tjón fyrir Rússland - sem stefnir þá í að tapa stórum viðskiptavini, þ.e. Tyrklandi.
  • Bendi á að þ.e. ekki endilega svo einfalt fyrir Rússland að selja það gas, eitthvert annað. Gaslyndirnar eru þar sem þær eru - Rússland er risa stórt. Að selja gasið annað, getur falið í sér -- mikla fjárfestingu í formi nýrrar gasleiðsla. Sem mundi taka fjölda ára að reisa.
  • Á meðan, hefði Rússland hugsanlega engar tekjur af þeim lyndum, er voru notaðar til að veita gasi til Tyrklands.

Höfum í huga að auki - að heims markaðsverð fyrir olíu og gas, er nú það lægsta sem sést hefur í langan tíma. Rússland er því í harðindum þ.s. olía og gas er 70% útflutningstekna Rússlands.

Að missa stóran kaupanda - er að bæta gráu ofan á svart.

  1. Annað tap er einnig til staðar í því að Tyrkland og Ísrael, endurreisi sín fyrri samskipti.
  2. Sem er það, að þar með taka 2-öflugustu hernaðarveldi Mið-Austurlanda, að nýju upp samvinnu.

Afar ósennilegt er að - sú samvinna verði Rússlandi sérlega vinsamleg.
Þannig að þessar fréttir fela þá í sér - nýja ógn fyrir stöðu Rússlands innan Sýrlands og Mið-Austurlanda almennt.

 

Kv.


Hin heimskulega andstaða Pútíns gagnvart frýverslun Úkraínu við meðlimalönd ESB, hefur nú leitt til ákvörðunar Pútíns að enda frýverslun Úkraínu við Rússland

Persónulega er ég algerlega viss að þetta eru mistök af hálfu Pútíns.
Eitt af fjölmörgum vandamálum við Pútín - virðist eindregin "zero/sum" hugsun hans.
M.ö.o. virðist hann ófær um að sjá - að Rússland í reynd græði á því að Úkraína hafi frjálsa verslun við aðildarlönd ESB. Samtímis, að það sé í reynd umtalsvert tap fyrir Rússland, að frjáls viðskipti Úkraínu við Rússland séu afnumin.

Hann virðist ekki geta séð, að frjáls verslun Úkraínu við ESB - sé alls engin ógn við Rússland.
Eða að áframhaldandi frjáls viðskipti Rússlands við Úkraínu, gátu ákaflega vel farið saman við, frjáls viðskipti Úkraínu á sama tíma við ESB aðildarlönd.

Pútín <--> Virðist ekki skilja eða samþykkja hugtakið, gagnkvæmur gróði.
Í hans heimi, hljóti gróði eins, alltaf að vera tap einhvers annars.

Í "zero/sum" hugmyndaheimi hans - þá sé frýverslun Úkraínu við ESB aðildarlönd, áfall - ógn - tap fyrir Rússland.
Sem sé fullkomlega órökrétt afstaða!

Putin suspends trade zone with Ukraine

 

Í hugmyndaheimi Pútíns - er barátta um Úkraínu í gangi milli Vesturlanda og Rússlands, og lengi hefur verið!

En málið er að Pútín bjó þau átök til - algerlega einn og óstuddur.

  1. Hann kaus að sjá frýverslunarsamning ESB og Úkraínu sem ógn, þegar sá samningur var alls engin ógn við Rússland - þvert á móti til lengri tíma litið, einnig gróði Rússlands.
  2. Þegar skammt var í að þeim samningi væri lokið, beitti hann þáverandi forseta Úkraínu, Viktor Yanukovych - þrýstingi að falla frá þeim samningi -> Bauð þess í stað, samning við Rússland. Jafnharðan, beitti Pútín Úkraínu - stigmagnandi viðskiptaþvingunum, mjög sambærilegum þeim sem Rússland í dag beitir Tyrkland. En aðferðin var sú hin nákvæmlega sama, og beitt er til að stöðva matvæla-innflutning frá Tyrklandi. Þ.e. að beita heilbrigðis-eftirliti Rússland, og láta það stöðva innflutning matvæla undir yfirskyni meintrar heilbrigðis ógnar. Þessari aðferð hefur nú Pútín ítrekað beitt - t.d. einnig gagnvart Moldavíu. Og að auki gegn V-Evrópu löndum til að stöðva matvæla innflutning þaðan. Formlega er þetta ekki viðskiptaþvinganir -> En einungis þeir sem stinga hausnum í sandinn, sjá ekki að slíkar aðgerðir eru algerlega undir stjórn Kremlar, og viðskiptaþvinganir í reynd. Þær þvinganir voru tilfinnanlegar fyrir Úkraínu, sem hefur lengi selt mikið af matvælum til Rússlands. Og því -- öflug þvingunaraðgerð á ríkisstjórn Viktors Yanukovych.
  3. Fyrst að það þurfti stigvaxandi þvinganir, til að fá Viktor Yanukovych til að undirrita samning í staðinn við Pútín, og lokum 3-ma.dollara mútur til Viktors Yanukovych ásamt loforði um 11ma. í framhaldinu - er ljóst að eitthvað mikið var að þeim samningi. Og svo var, en hann í reynd - - að stórum hluta, hefði afnumið efnahagslegt sjálfstæði Úkraínu. Þ.e. hann fól í sér, svipað fullveldis afsal til Kremlar, og tja - það afsal fullveldis sem ríki verða fyrir er þau ganga í ESB. Þannig að samningurinn við Pútín, fól í sér umtalsvert meira fullveldis afsal Úkraínu, en samningur sambærilegur við EES samning Íslands - sem Úkraína var við það að undirrita er afskipti Pútíns hófust af málefnum Úkraínu.
  4. En sem meðlimaríki ESB, þá hefur stórt lands eins og Úkraína, heilmikil áhrif innan ESB --> Úkraina hefði raunverulega náð til baka í formi áhrifa á ákvarðanatöku ESB, stórum hluta eða jafnvel öllum hluta af því sjálfstæði sem Úkraína hefði sem meðlimur lagt í hið sameiginlega Púkk. Meðan að Pútín --> Bauð ekki upp á nokkur hin minnstu áhrif til baka. Þannig að samningurinn sem Pútín reyndi að þvinga upp á Úkraínu. Fól í sér mjög raunverulegt fullveldis afsal, til Pútíns sjálfs --> Sem engin ástæða er að ætla að ekki hefði verið varanlegt.
  5. Í þessu samhengi, verður það fullkomlega skiljanlegt - af hverju það varð þessi risastóra reiðibylgja meðal almennings í Úkraínu, og einnig - af hverju sú reiðibylgja fékk sterkan þjóðernis tón. Enda, fól andstaða við samning þann við Pútín, sem Pútín tókst fyrir rest að þvinga Viktor Yanukovych til að undirrita --> Í sér, að almenningur var að leitast við að verja sjálfstæði Úkraínu.
  • Í reynd hafa átök Úkraínu við Rússland <--> Alla tíð síðan, Viktor Yanukovych - hrökklaðist frá völdum. Snúist um varnarbaráttu landsins gagnvart ásælni Pútíns.
  • Sem sér virkilega ofsjónum yfir sjálfstæði þess lands, enda margsinnis lýst því yfir í vitna viðurvist, að hrun Sovétríkjanna - sem leiddi til sjálfstæðis Úkraínu, hefði verið eitt hið stærsta áfall er Rússland hefur orðið fyrir.

Í augum Pútíns - fela aukin viðskipti Úkraínu við Vesturlönd það í sér, að Vestræn áhrif innan Úkraínu vaxi á kostnað rússneskra áhrifa.
Hann virðist sannfærður um það, að til staðar sé - masterplan á vesturlöndum um það að valta yfir Rússland í Úkraínu, og að viðskiptasamningurinn við Úkraínu hafi verið mikilvægur þáttur í þeirri herferð.
Þetta er auðvitað -- algerlega snargalin afstaða.

  1. En það sem Pútín hefur í reynd gert, með offorsi sínu, með því að vísvitandi hefja átök við Vesturlönd um Úkraínu.
  2. Er að gera meirihluta íbúa Úkraínu, andsnúna Rússlandi - í miklu mun meira mæli en áður.

Með tilraunum hans, til að afnema stærstum hluta sjálfstæði Úkraínu.
Síðan, þegar hann - rændi stórum landskika af Úkraínu, notaði algerlega ólýðræðislega kosningu sem tilliástæðu, og fullkomlega tilbúna meinta hættu fyrir Sevastopol.
Og ekki síst, sendi flugumenn á sínum vegum, til að magna upp stríð í A-Úkraínu - fékk fámennan hóp þjóðernis ofstækismanna til að rísa upp, sendi þeim síðan þúsundir rússn. málaliða ásamt vopnum --> M.ö.o. algerlega tilbúin uppreisn, í sambærilegu stíl við aðgerð Reagans gegn Sandinista stjórn Nicaragua á 9. áratugnum þegar Bandaríkin bjuggu til svokallaða Contra skæruliða.

Þannig hafa skipulagðar árásir Pútíns á Úkraínu - - haldið áfram nú samfellt í nokkur ár.
Og leitt til manntjóns meir en 8þ. manns.
Allt fullkomlega á ábyrgð Pútíns.


Fyrir Pútín, hefur það sannað trú Pútíns á Vestrænt samsæri, að Vesturlönd hafa komið Úkraínu til aðstoðar með margvíslegum óbeinum hætti!

En vesturlönd eru þarna að bregðast við - - stöðugum skipulögðum árásum Pútíns á Úkraínu. Pútín gat vart reiknað með því, að Vesturlönd - létu málið algerlega afskiptalaust. Né gat hann vart reiknað með - vægari aðgerðum en þeim sem Vesturlönd hafa beitt.

Þetta er í reynd hugtakið -- "self fulfilling prophecy."

Þ.e. að líta svo á - að þegar aðilar svara veita viðspyrnu; þá sé það þar með sönnun þess - að sá aðili hafi allan tímann haft illt í hyggju.

M.ö.o. þegar Vesturlönd, komu Úkraínu til aðstoðar -- virðist Pútín þar með hafa litið á það sem staðfestingu þess; að Vesturlönd hafi haft áform um að ásælast Úkraínu.

  • Í reynd var það Pútín sjálfur sem allan tímann var að ásælast það land.
  • En hann virðist fljótur að reikna með því --> Að aðrir hugsi eins og hann sálfur.

 

Af hverju var viðskiptasamningur Úkraínu engin ógn við Rússland?

Þetta er afar einfalt mál - en ég bendi á að Rússland hefur til margra ára viðhaft mjög mikil viðskipti við Þýskaland.
Þjóðverjar reka fjölmörg fyrirtæki innan Rússlands - þar með framleiðslufyrirtæki.

Þjóðverjar eru auðvitað - fullir meðlimir að ESB.
Úkraínu stóð í reynd ekki til boða - full aðild.
Einungis samningur sambærilegan við EES - sem Ísland gerði 1994.

  1. Rússland hefur lengi grætt á því að fá ódýrara vinnu-afl frá Úkraínu.
  2. Síðan hefur Rússland fengið matvæli frá Úkraínu - á hagstæðara verði en matvæli frá V-Evrópu bjóðast.
  3. Rússland hefur einnig verið kaupandi á stáli frá Úkraínu - sem og flutningavélum þ.e. Antonov, og Zenith eldflaugum sem geta skotið gerfihnöttum á sporbaug, og margvíslegri annarri framleiðslu frá Úkraínu - er hefur verið sérhæfð fyrir Rússlands markað.

Það var ekkert sem benti til þess, að nokkur þeirra viðskipta mundu verða í hættu.
Fremur en það hefur verið vandamál fyrir Rússland að eiga í viðskiptum við Þýskaland.

Og fyrst að þau hafa verið hagstæð fyrir Rússland.
Var ekkert sem benti til þess, að þau gætu ekki áfram verið það.

M.ö.o. var ekkert sem benti til þess <--> Að þó svo að Úkraína mundi auka viðskipti við V-Evrópu, að það mundi skerða í nokkru, viðskipti Úkraínu við Rússland.

M.ö.o. sé það gersamlega rangt, að líta á þessi mál í "Zero/sum" samhengi.
Þess í stað erum við að tala um - batnandi efnahag Úkraínu, sem nettó útkomu.

Það blasir ekki beint við mér, að það hefði verið ógn við Rússland.

  • Pútín hefur aldrei nefnt nokkurt það vandamál, sem ekki hefur verið auðvelt að leysa - ef vilji væri fyrir hendi.
  • T.d. varðandi meinta hættu, á að úkraínsk fyrirtæki - "dumpuðu" Vestrænum varningi ódýrar yfir Rússland; auðvelt að hindra - með uppbyggingu nægilega öflugra eftirlits stofnana.

Þetta snýst um - upprunavottun varnings.
Og að fylgst sé með því - að ekki sé svindlað.

Slíkt eftirlit er eðlilega á könnu samkeppnis eftirlits stofnunar.
Sem Úkraína hefði þurft að byggja upp - en fyrst að þ.e. mögulegt að uppruna votta vörur í V-Evrópu, og fylgjast síðan með -- þá var ekkert ómögulegt að láta það virka í samhengi Úkraínu og Rússlands.

  1. Ég er að segja - að aðför Pútíns að Úkraínu hafi verið fullkomlega óþörf aðgerð.
  2. Pútín hafi miklað upp ógn fyrir Rússland, sem raunverulega var ekki til staðar.
  3. Hann hafi með aðgerðum sínum gegn Úkraínu, valdið dauða yfir 8þ. manns, ásamt miklu tjóni innan Úkraínu -- og fengið yfir sig, refsiaðgerðir Vesturlanda, sem valda efnahagstjóni fyrir Rússland ofan á það tjón er Rússland hefur orðið fyrir vegna lækkunar olíuverðs.
  4. Hann hafi eyðilagt viðskiptasambönd við Vesturlönd, sem áður fóru vaxandi - en t.d. voru framundan miklar fjárfestingar Vestrænna olíufyrirtækja í rússn. olíu-iðnaði, til að leita nýrra olíulynda í N-Íshafi, og einnig í því skyni að hefja -fracking- innan Rússlands. Þær fjárfestingar - er áður nutu blessunar Pútíns, hefðu aukið olíuframleiðslu Rússlands til framtíðar.
  5. Ekki má gleyma því heldur, að ári áður en Pútín hóf aðgerðir gegn Úkraínu - þá kom forseti Kína í langa opinbera heimsókn til Evrópu, þ.s. hann lagði mikla áherslu á svokallaða -silkileið- þ.e. verslunarleið í gegnum Rússland. Alla leið til Evrópu.
  • Vegna þeirra átaka sem Pútín - bjó til við Vesturlönd, fullkomlega að óþörfu. Þá eru þau áform - á ís um óákveðinn tíma.
  • En ég er öruggur að ekkert land hefði meir grætt á þeim áformum, en einmitt Rússland.
  • Þarna hefði getað hafist gríðarleg efnahags-uppbygging innan Rússland, meðfram þeirri nýju viðskiptaleið - - en öll þau svæði innan Rússland, sem þær samgöngu-æðar hefði hríslast í gegnum; hefðu þar með - komist í alfararleið viðskipta milli Evrópu og Kína.

Þessu öllu hefur Pútín fórnað - þ.e. uppbyggingu er hefði tryggt að lífskjör Rússa hefðu áfram getað farið stig hækkandi.
Þess í stað, hefur Pútín lokað á þetta, á þessa uppbyggingu - fjárfestingar Vestrænna aðila í Rússlandi hafa að mestu hætt - Kína hefur sjálft eingöngu í dag, áhuga á fjárfestingum á olíu og gasi.
Og Kína í staðinn, beinir vaxandi mæli sjónum á -- pólsiglingar.

Útlit fyrir að - Rússland verði áfram fast í því að selja olíu og gas.
Og lífskjör Rússa hafa hrunið um meir en ---> 50%.
Sem þíðir - að kjör Rússa eru að nálgast aftur upphafsreit þegar Pútín tók við ca. 2000.

___________________

Þvert ofan á fjálglegar lýsingar sumra á snilligáfu Pútíns.
Þá virðist mér Pútín vera að sigla Rússlandi inn í öngstræti.

 

Niðurstaða

Í mínum augum er Pútín sem leiðtogi, hamfarir fyrir rússneskt samfélag. En hann virðist á góðri leið með að loka Rússland og rússneska þjóð - inni í öngstræti. Á sama tíma og heimurinn er óðum að stefna að því að - minnka notkun á olíu og gasi.
Sem eru nánast einu útflutningsvörur Rússlands.

Þá hefur Pútín lokað á stórfellda efnahags uppbyggingu er sannarlega var í farvatninu fyrir Rússland, ári áður en - aðför Pútíns að Úkraínu hófst.
Og það út á meinta hættu, sem einfaldlega var ekki til staðar.

M.ö.o. er ég að segja að Pútín sé þröngsýnt fífl.

Allt heila klabbið sé honum að kenna, þ.e. deilurnar um Úkraínu - sem aldrei hefðu farið af stað ef Pútín hefði ekki ákveðið að líta á samning Úkraínu við ESB sem ógn við Rússland; sem sá samningur alls ekki var og aldrei hefur verið.

 

Kv.


Bloggfærslur 17. desember 2015

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 19
  • Sl. sólarhring: 41
  • Sl. viku: 284
  • Frá upphafi: 847460

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 281
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband