Sala Bandaríkjanna á fullkomnum orrustuþotum til Qatar - vekur spurningar um afstöðu Bandaríkjanna til deilu Qatar og Saudi Arabíu, auk bandalagsríkja Saudi Arabíu

Viðbrögð ríkisstjórnar Donalds Trumps virðast meira en lítið - ósamkvæm.
--En Donald Trump hefur tekið undir ásakanir Saudi Araba og Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna - að Qatar styðji hryðjuverkahreyfingar, að þeirra sögn.
--Á sama tíma, hafa ráðherrar utanríkismála og varnarmála í ríkisstjórn Trumps - óskað almennt eftir því að deiluaðilar stilli sig; auk þess talað um mikilvægi bandalags Bandaríkjanna við Quatar.

Sala Bandaríkjanna á háþróaðri útgáfu af F15 Strike Eagle - sem var formlega staðfest eftir að deilan blossaði upp.
--Er síðan önnur skýr vísbending þess, að hægri höndin tali ekki við vinstri höndina.
--Þegar kemur að afstöðu ríkisstjórnar Trumps til mikilvægra mála!

  1. Þetta virðist eiginlega tjá það, að ríkisstjórn Bandaríkjanna viti ekki sjálf - hver afstaða Bandaríkjanna sé til deilunnar.
  2. En forsetinn sjálfur - og einstakir ráðherrar, greinilega tala út og suður um málið; m.ö.o. sitt hver afstaðan eftir því - hver talar.

"Secretary of Defense Jim Mattis met today with Qatari Minister of State for Defense Affairs Dr. Khalid al-Attiyah to discuss concluding steps in finalizing the Foreign Military Sales purchase of US-manufactured F-15 fighter aircraft by the State of Qatar. The $12 billion sale will give Qatar a state of the art capability and increase security cooperation and interoperability between the United States and Qatar,"

"The secretary and the minister also discussed mutual security interests, including the current status of operations against ISIS, and the importance of de-escalating tensions so all partners in the Gulf region can focus on next steps in meeting common goals,"

F-15 E Strike Eagle

https://media.defense.gov/2009/Aug/05/2000508979/-1/-1/0/081112-F-7823A-306.JPG

Qatar agrees $12bn deal to buy fighter jets from US

Pentagon agrees $12 billion jet deal with Qatar

Qatar signs $12 billion deal to buy F-15 jets from US

Mattis virðist fyrst og fremst leggja áherslu á að rugga ekki aðstöðu Bandaríkjanna við Persaflóa!
En það er ekkert leyndarmál að í Qatar er staðsett megin flugherstöð Bandaríkjanna við flóann!
--Hann hafi því gætt þess, að taka ekki afstöðu með formlegum hætti milli deiluaðila.

  • Trump hafi á hinn bóginn - tekið undir ásakanir Sauda gegn Qatar.
    --Því tekið afstöðu gegn Qatar.

Hvernig ríkisstjórn Bandaríkjanna á eftir að leysa úr þessari, að því er virðist, ósamrýmanlegu stefnu -- á eftir að koma í ljós!

Ekki hefur komið fram, hvað fór Mattis og Trump á milli - áður en Mattis formlega handsalaði með Dr. Khalid al-Attiyah söluna á herflugvélunum til Qatar.

 

Niðurstaða

Stefna ríkisstjórnar Bandaríkjanna um deilu Saudi Araba, og nokkurra bandalagsríkja Saudi Arabíu við Persaflóa ríkið Qatar - virðist vægt sagt óljós. Ekkert samhengi hægt að sjá um þá afstöðu, ef maður ber saman viðbrögð Donalds Trump og hans nánustu ráðgjafa - annars vegar og hins vegar það hvernig varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafa nálgast og rætt sama mál.

Það sé engu líkara en að utanríkisráðherrann og varnarmálaráðherrann, séu að komast upp með það að hafa aðra stefnu um mikilvæga deilu er varðar utanríkismál - en forsetinn.
--Það að sjálfsögðu hljóti að vekja spurningar um, aðhald forsetans gagnvart sínum ráðherrum.

Kv.


Bloggfærslur 21. júní 2017

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 438
  • Frá upphafi: 847085

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 415
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband