Sumir virðast halda að það væri sniðugt af ESB að reyna að kljúfa Bretland samhliða BREXIT viðræðum

Þetta er með allra sérkennilegustu hugmyndum sem ég hef lesið, en skv. nefndum prófessor við Queen Mary háskóla í London -- þá ætti Skotland tæknilega að geta yfirtekið aðildarsamning Bretlands, ef Skotland færi í viðræður við aðildarríkin samhliða BREXIT viðræðum Bretlands.

---Til þess þyrfti einungis meirihluta samþykki aðildarríkja, vill sá ágæti maður meina -- þ.s. hann heldur því fram að Skotland geti beitt - Gr. 50.

An independent Scotland would only need majority to join EU, even if Spain wanted to block it, expert reveals

Mér finnst stundum sérkennilegt -- hvað sérfræðingar láta stundum hafa sig í.

__________________________: núgildandi sáttmáli ESB

Article  50

1. Any Member State may decide to withdraw from the Union in accordance with its own     constitutional requirements.

2. A Member State which decides to withdraw shall notify the European Council of its intention. In the light of the guidelines provided by the European Council, the Union shall negotiate and conclude an agreement with that State, setting out the arrangements for its withdrawal, taking  account of the framework for its futurere lationship with the Union. That agreement shall be negotiated in accordance with Article 218(3) of the Treaty on the Functioning of the European Union. It shall be concluded on behalf of the Union by the Council, acting by a qualified majority, after obtaining the consent of the European Parliament.

3. The Treaties shall cease to apply to the State in question from the date of entry into  force of the withdrawal agreement or, failing that, two years after the notification referred to in paragraph 2, unless the European Council, in agreement with the Member State concerned, unanimously decides to extend this period.

4. For the purposes of paragraphs 2 and 3, the member of the European Council or of the Council representing the withdrawing Member State shall not participate in the discussions of the European Council or Council or in decisions concerning it. A qualified majority shall be defined in accordance with Article 238(3)(b) of the Treaty on the Functioning of the European Union.

5. If a State which has withdrawn from the Union asks to rejoin, its request shall be  subject to the procedure referred to in Article 49.

------------------------------

Mér finnst þetta vægt sagt sérkennileg lagaskýring!

  1. Fyrsta lagi þá er Skotland ekki meðlimur að ESB -- heldur hérað í landi sem er meðlimur að ESB - ergo, Skotland samdi ekki um ESB aðild á sínum tíma heldur sambandsríkið Bretland.
  2. Greinilega þá er Gr. 50 um þann hugsanlega möguleika, að aðildarríki -- ákveði að hætta sem meðlimaríki.
    --Skotland er greinilega ekki meðlimaríki.
    Gr. 50 getur því ekki vísað til Skotlands.
  3. Skotland getur augljóslega ekki - yfirgefið Bretland, nema að Bretland samþykki eða viðurkenni sjálfstæði Skotlands -- en væntanlega mundi breska lögreglan hindra allar ólöglegar aðgerðir.
  4. Meðan að Skotland er enn meðlimur að Bretlandi -- þá er Skotland ekki -fullvalda.-
    --ESB hefur aldrei samið um aðild við hérað sem tilheyrir öðru landi.
    --Sem er bundið samþykki þess lands, til að geta náð fram sínu sjálfstæði.

Ég held að þessi hugmynd sé í einu orði -- rugl!

  • Mariano Rajoy - forsætisráðherra Spánar: “I am radically against it, the treaties are radically against it, and I think everyone else is radically against it.”" - “If the United Kingdom leaves [the EU], so does Scotland,” - “Scotland has no competences to negotiate with the EU. The Spanish government rejects any negotiation with anyone other than the United Kingdom.”

Spánn augljóslega mundi líta hugmyndir af slíku tagi sem alvarlega ógn við Spán.
--Við erum því ekki að tala um -- einhverja litla andstöðu.

En Spánn óttast augljóslega sköpun fordæma sem sjálfstæðissinnaðir Katalónar gætu notað.

Spurning einnig hvaða afstöðu Belgía mundi taka -- en lengi hefur verið töluvert erfitt að halda Belgíu saman, vegna deilna Vallóna og Flæmingja.

Belgía gæti m.ö.o. hætt að vera til, ef fordæmi af slíku tagi væri skapað.

--Spurning hversu öruggt það væri að eitthvert þýsku landanna gæti ekki hugsað sér til hreyfings.
--Eða svæði innan Rúmeníu með umtalsverðan ungversku mælandi minnihluta.
--Eða ítalska Tírol.

  1. Spurning hvort að ESB hafi ekki nóg af krísum?
  2. Hvort að snjallt væri að fjölga þeim frekar?

Aftur á móti er örugglega engin hætta á því að ESB mundi hafna aðildarumsókn frá Skotlandi, eftir að Skotland væri hugsanlega síðar meir búið að slíta ríkjasambandi við Bretland!

Örugglega rétt að skoða ummæli Sigmar Gabriel í slíku ljósi.

 

Niðurstaða

Ég ætla að leyfa mér að efa það að ráðandi pólitíkusar í aðildarlöndum ESB séu það veikir á geðinu, að þeim komi til huga að - opna eitt Pandóru boxið til viðbótar; ofan í þær krísur sem ESB er þegar með í gangi.

 

Kv.


Bloggfærslur 5. júlí 2016

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 260
  • Sl. viku: 354
  • Frá upphafi: 846995

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 336
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband