Fjöldamorð í Bandaríkjunum - nánast sem gjöf til Trumps

Eins og flestir fjöldamorðingjar sem ég hef séð myndir af, er ekkert sérstakt að sjá á myndinni einni saman - að þarna fari einstaklingur sem á eftir að myrða 50 manns.
Omar Mateen -- að því er best verður séð, virðist hafa verið yfirkominn af hatri á hommum, og morðið fór fram á vinsælum samkomustað homma og lesbía: Omar Mateen: From Early Promise to F.B.I. Surveillance -- Orlando Aftermath: Red Flags, Yet Legally Able to Buy a Gun.
Merkilegt hvernig margir af fjöldamorðingjum þeim sem hafa drepið fólk innan Bandaríkjanna með skotvopnum, hafa áður vakið athygli yfirvalda vegna hegðunarferlis utan við það venjulega, en samt getað fjárfest í skotvopnum með löglegum hætti.

https://heavyeditorial.files.wordpress.com/2016/06/omar-mateen-11.jpg?quality=65&strip=all&strip=all

Eins og mátti búast við - hefur Trump að nýju kallað eftir algeru banni á múslima að setjast að í Bandaríkjunum!

Donald Trump Seizes on Orlando Shooting and Repeats Call for Temporary Ban on Muslim Migration

  • "“I said this was going to happen — and it is only going to get worse,” Mr. Trump said in a statement, arguing that Mrs. Clinton’s presidency would mean “hundreds of thousands” more Middle East migrants."
  • “And we will have no way to screen them, pay for them, or prevent the second generation from radicalizing,”

Frekar auðvelt að spá því -- að aftur verði framið fjöldamorð innan Bandaríkjanna með skotvopnum - þ.s. þau gerast með örfárra ára fresti að meðaltali.
--Alveg séns að einhver þeirra fjöldamorðingja verði Íslamtrúar eða ættar.

Omar Mateen var ekki innflytjandi - heldur fæddur á bandarískri grundu, þ.e. 2-kynslóð innflytjenda frá Afganistan.

  • Rétt að benda á, að fólk af múslímskum ættum er einungis um -- 0,5% Bandaríkjamanna.

-----------Annars er mjög erfitt að henda reiður á stefnu Trumps!

T.d. í stefnuræðu sinni um utanríkismál, þá talaði hann um að -- standa með bandamönnum Bandaríkjanna, að Obama hefði ekki gert nóg af því - sem væri til skammar.
Í þeirri ræðu, kemur hvergi fram -- hvaða lönd akkúrat hann á við.
Fyrir utan að hann talar mikið um Ísrael - þörf á að styðja betur við það land!
Sjá ræðu: Ræðan hans Trump -- fullur texti.

  • Rétt að benda á - fyrir utan Ísrael, eru hefðbundnir bandamenn Bandaríkjanna; Saudi Arabía og Egyptaland - innan Miðausturlanda!

Ég hef því nokkrum sinnum velt því fyrir mér -- hvort eða að hvaða leiti, Trump hugsar sína stefnu í stærra samhengi!
---Eða hvort þetta eru einfaldlega "sound bites" sem hann hendir fram, og telur falla í kramið - í það sinnið.

  1. En hvernig mundi hann ætla að bæta samskipti sín - við Egyptaland og Saudi Arabíu?
  2. Samtímis og hann fordæmir Múslima almennt, og lokar landinu fyrir þeim?

-------Minnir mig reyndar á annan tvískinnung!

  1. Hvernig hann ætlar sér samtímis að bæta samskiptin við Kína?
  2. Og endursemja við Kína um viðskipti -- með þeim hætti er mundi gera viðskiptakjörin við Bandaríkin miklu mun óhagstæðari en áður fyrir Kína?
    --Þessu mundi fylgja hótun af hans hálfu, um einhliða verndartolla, ef Kína mundi ekki beygja sig fyrir hans vilja.

Ég held að hann mundi þurfa að velja! Ef maður ímyndar sér hann -- forseta!

  1. Annaðhvort að bæta samskiptin við hefðbundna bandamenn Bandaríkjanna meðal Múslima landa -- eða láta þau til muna versna: Hann geti ekki gert hvort tveggja í senn.
  2. Annaðhvort að bæta samskiptin við Kína, eða færa þau til mun verri vegar: Sama eigi við, að hann þurfi að velja á milli mjög sennilega betri samskipta, og hans stefnu um stórfellda tilfærslu viðskiptakjara við Kína!
  • Ef hann mundi velja mjög harða stefnu gegn Íslam -- þá líklega uppsker hann fyrirlitningu og skipbrot samskipta við hefðbundna bandamenn Bandaríkjanna meðal Múslimalanda.
  • Og ef hann velur að -- færa viðskiptakjör Kína við Bandaríkin til mun verri vegar, þá sé ég ekki hvernig hann kemst hjá því - að samskiptin við Kína bíði harkalegt skipbrot.
  1. Það áhugaverða er að sjálfsögðu -- að samtímis það gerist, að samskipti Saudi Arabíu og Bandaríkjanna, bíða skipbrot -- og samskipti Bandaríkjanna við Kína, einnig gera það.
  2. Þá gæti Trump hleypt Kína upp í rúmið hjá Saudi Arabíu.
    **Ég hef heyrt þær kenningar er halda því fram, að ef Saudar hætta að selja olíu í dollurum, þá hrynji dollarinn!
    **Ég hef ekki endilega trúað á það að ef t.d. Saudar selja olíuna sína í renminbi, þá muni það gerast -- að dollarinn mundi hrynja.
  • En Trump gæti hugsanlega náð a.m.k. fram þeirri framtíð -- að Saudar söðli yfir í renminbi.
  • Og í kjölfarið, gerst --- handgegnir Kína.

Það væri auðvitað -- mjög verulegt strategískt valda-áfall fyrir Bandaríkin.
Ég efa reyndar að það hefði afdrifaríkar afleiðingar á virði dollarsins.
En það væri gríðarlegur strategískur -heimsvaldagróði- fyrir Kína, að verða verndari Saudi Arabíu -- í staðinn fyrir Bandaríkin.

  • Valdastaða Bandaríkjanna -- gæti veikst umtalsvert í kjölfarið.
  1. En -öfugt við fullyrðingar þeirra sem halda fram "olíudollarakenningunni"- þá tel ég að bandalag Sauda og Bandaríkjanna - - hafi alltaf einkum snúist um völd.
  2. Hervernd Bandaríkjanna, styrki völd Sauda og hafi gert, samtímis þá styrki aðstaðan við Persaflóa og umsjón yfir siglingum þ.s mesta olíuverslun heims fer fram, með margvíslegum hætti - völd Bandaríkjanna.
    ---Fyrir utan þetta, hafa Saudar eignast gríðarlega dollarasjóði, sem þeir ávaxta í Bandaríkjunum, og sem einnig skapa þeim töluverð peningaleg völd innan Bandar.

Rétt að benda á að Kína er stærsti einstaki fjárfestirinn í olíuiðnaðinum innan Íraks.
Sem er kaldhæðið í ljósi þess, að Nýíhaldsmenn Bush - ætluðu að færa íraska olíuiðnaðinn til bandar. fyrirtækja -- ekki kínverskra.

  1. Ef Trump -sem forseti- mundi gera Íslam hatur eitt af hans megin stefnumálum, þá gæti það einnig skapað Kína -- tækifæri í Egyptalandi, þ.s. Súesskurðurinn er!
  2. En þegar hefur Kína kynnt mikil fjárfestingaráform í Djibútí, landið sem er við enda Rauða-hafs, en Súesskurðurinn er við N-enda þess hafs.

------Ég sé m.ö.o. fyrir mér að hatursstefna Trumps á Múslimalöndun, gæti fært Kína á silfurfati mjög mikla valdastöðu!
**Sem Bandaríkin í dag ráða yfir!

Ég er ekki alveg að átta mig á því -- hvernig það fer saman við það að gera Bandaríkin - mikil á nýjan leik!

 

Niðurstaða

Hræðilegur glæpur fjöldamorðið í Bandaríkjunum, og ljóst að Trump ætlar að nota það í kosningabaráttunni á næstunni.

Hvað stefnu hans varðar, þá veit maður aldrei í reynd hvað mikið er að marka hugmyndir Trumps um stefnu. Fyrir utan það að það má líklega gera því skóna -- að hann virkilega meini hugmyndir sínar í viðskiptamálum! En skv. umfjöllun The Economist um stefnu Trumps, þá hefur Trump lengi haft hugmyndir í þá veru: American politics: Trump’s triumph.
Þannig að Trump forseti, líklega og án lítils vafa, hefur viðskiptastríð við Kína, í kjölfarið hrynja samskipti Kína og Bandaríkjanna á mjög lágt plan - þróun yfir í Kaldastríðs átök milli risanna tveggja, gæti þá orðið - mjög hröð.
---Í slíku samhengi mundi Kína án einskis vafa, vera til í að notfæra sér sérhvert það tækifæri sem Trump mundi skapa Kína, til að höggva inn í valdastöðu Bandaríkjanna inna Miðausturlanda!

Ef í samhengi við stórfellt niðurbrot í samskiptum við Kína -- Trump mundi einnig stuðla að stórfelldu niðurbroti í samskiptum við Múslimaríki -- gæti innreið Kína inn í núverandi stöðu Bandaríkjanna í Miðausturlöndum gerst með ógnarhraða!
---En Kína mundi örugglega ekki hika við það verk að bjóða einræðisherrum Araba -- vopn á niðursettu verði, eins og Sovétríkin á árum áður gerðu.Auk hagstæðra kjara á lánsfé!

Ég man vel eftir því hvernig ástandið var í Kalda-stríðinu er Arabalöndin voru vopnuð af Sovétríkjunum -- en þá a.m.k. áttu Vesturlönd alltaf Persaflóa á móti.

Ef Trump verður forseti -- gæti næsta Kaldastríð hafist í til muna veikari valdastöðu, með arabaríkin studd með kínv. vopnum - Kína einnig með Persaflóa!
---Ef samskipti Múslimalanda og Vesturlanda hrynja, þá gæti skapast mjög hættulegt ástand við Miðjarðarhaf á mjög mjög skömmum tíma - Kína með kannski raun eign á Súerskurðinum.
Með Múslimalönd fjármögnuð og vopnuð af Kína.

Auðvitað ef þess fyrir utan, Trump mundi framkvæma sitt hótaða "walk away" þ.e. færa lið Bandaríkjanna frá Evrópu - hætta að verja hana!
---Gæti Rússland riðið á vaðið samtímis og Kína gengur á að sínu leiti, og rutt borðið innan Evrópu -- endurreist Járntjaldið a.m.k. að hluta um sömu lönd og áður!

Þá yrði staða Evrópu -- enn veikari, ef Rússland yrði samtímis bandamaður Kína í því nýja Kalda-stríði, að Trump hefði stuðlað að því að "landamæri NATO" væru miklu lengra í Vestur en þau í dag eru!

  • V-Evrópa yrði þá sem -- umsetin.
    --Hugsanlega í miklu erfiðari stöðu en í síðasta Kaldastríði.


Kv.


Bloggfærslur 14. júní 2016

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 32
  • Sl. sólarhring: 40
  • Sl. viku: 518
  • Frá upphafi: 847173

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 494
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband