Verður Sýrland - Víetnam Pútíns?

Það hafa borist skýrar fregnir um það á síðustu dögum, að rússneskir hermenn séu komnir til Sýrlands. Ekki virðist um mikinn fjölda að ræða - ekki vitað akkúrat hvers konar hersveitir - en líkur sterkar að um sé að ræða sambærilegar sérsveitir eins og þær sem t.d. voru notaðar til að taka Krím-skaga, og sáust mjög vel á fjölda mynda - Speznac.

Rannsakendurnir í Bellingcat - náðu merkilegri ljósmynd í Sýrlandi.

R-166-0.5 signals vehicle

910

Að sögn Bellingcat -rannsakendanna- þá er um að ræða farartæki, sem sérhæft er í því að -trufla fjarskipti- en einnig í því að auðvelda fjarskipti. Tækið þjóni þeim tilgangi, að auðvelda hermönnum að eiga samskipti sín á milli - samtímis að samskipti annarra eru trufluð.

Á nærmyndinni sjáist rússneskur hermaður í einkennisklæðnaði rússn. hersins

tzHbwwl

Enginn veit akkúrat hvað Rússar hyggjast fyrir í Sýrlandi:

Syrian army starts using new weapons from Russia - military source

Russian moves in Syria have coalition questioning motives

Are Iran and Russia Risking Their Own Vietnam in Syria?

http://img15.hostingpics.net/pics/899483iraqsyria20150601.png

Nýtt Víetnam stríð?

Ein möguleg túlkun væri að Rússar hefðu í huga - umtalsverða innkomu. Höfum í huga að á nk. ári, hætta refsiaðgerðir á Íran. Þá fær Íran peninga er voru frystir í Bandar. fyrir 30 árum, og voru í eigu íranska ríkisins fyrir byltingu. Samtímis, þá má reikna með því að Íranar fái auknar tekjur af sölu á olíu - auk þess að þeir eiga verulegar birgðir af olíu, sem þeir augljóst munu selja.

Undirbúningur Rússa, gæti verið með þetta til hliðsjónar - að Íran muni á nk. ári ráða yfir umtalsverðu fjármagni. Og það geti samtímis gert Íran kleyft, að auka sínar aðgerðir samtímis innkomu Rússlands.

  1. Í Víetnam, þá voru Bandaríkin að styðja mjög óvinsæla ríkisstjórn.
  2. Sú ríkisstjórn var að glíma við innanlandsuppreisn er var víðtæk, og auk þess naut aðstoðar utanaðkomandi landa.
  3. Bandaríkin börðust með hersveitum ríkisstj. S-Víetnam, árum saman - gegn þeirri uppreisn. Gegn uppreisn er naut aðstoðar Kína og Sovétríkjanna, auk N-Víetnam.

Það má alveg teikna upp töluvert sambærilega sviðsmynd af átökum í Sýrlandi.

Ef maður setur í stað Bandaríkjanna -Rússland- og í stað Víetnam -Sýrland.-

Ef maður gerir ráð fyrir því, að Rússar ætli nú að berjast með Sýrlandsstjórn - gegn uppreisn innan Sýrlands, er sannarlega er víðtæk og auk þessa nýtur aðstoðar utanaðkomandi landa.

 

Ég persónulega stórfellt efa að slík tilraun, mundi líklega leiða fram sigur

  1. Sennilegra að stríðið yrði - enn mannskæðara.
  2. Bardagar stærri, og harðari.
  3. Og líkur aukast á því að það breiðist frekar út.
  4. Og þá að sjálfsögðu - - fleiri flóttamenn, jafnvel mun fleiri.

En ég fastlega reikna með því, að eins og í Víetnam - þá mæti andstæðingar þ.e. Saudi Arabía + flóa Arabar, innkomu Rússa og væntanlega auknum styrk innkomu Írana - - > Með því að bæta í það fjármagn sem þeir verja til þess að styðja við hreyfingar í Sýrlandi, er njóta velþóknunar þeirra - auk þess að auka við vopnasendingar.

  1. Ég er alls ekkert viss, að rússnesk innkoma veiki ISIS.
  2. Það þveröfuga gæti gerst, að hún mundi styrkja þá hreyfingu enn frekar.

Síðan 2013 hefur Sýrlandsstríðið - verið hreint "proxy war" milli Írana, með stuðningi Hesbollah, og þeim hersveitum sem stjórnin í Damascus enn ræður yfir.

Og Arabaríkja sem eru í bandalagi við Saudi-Arabíu.

  1. Þessar 2-fylkingar, hafa gert Sýrland að bardagavelli.
  2. Eiginlega tekið yfir stríð er hófst upphaflega á uppreisn innan sýrl. hersins.
  • M.ö.o. - stolið stríðinu.

Punkturinn er sá, að ef -kristnir hermenn- bætast inn, berjast við hlið Shítanna í Hesbollah hreyfingunni, og Írana -sem auðvitað eru Shítar, með hersveitum Assads sem flestir eru af þjóðflokki Alava eða Alavíta, sem hafa eigin sértrú af meiði Íslam.

Þá styrkir það - - trúarstríðs tón þessara átaka.

Þegar þessar sveitir standa gegn hersveitum - - sem eru Súnní Arabar að stærstum hluta.

  • Þetta -trúar-element- gerir þetta svo eldfymt.

 

Róttækir Súnníta-hópar er berjast í Sýrlandi - muni túlka þetta sem "krossfaraher"

Og þeir muni nota það, að -kristinn her- standi gegn trúbræðrum þeirra, sé að drepa -súnní Múslima- til þess að kveikja í hópum Araba í Mið-Austurlöndum, í borgum og bæjum um N-Afríku og Mið-Austurlönd.

Og þannig fjölga þeim -hugsanlega til muna- er ganga í þeirra raðir, og gerast sjálfboðaliðar með þeim í átökum innan Sýrlands.

  • M.ö.o. nettó áhrif gætu verið þau, að fjölga Jihadistum er streyma til Sýrlands, það mikið - að vegi upp og gott betur, þá sem falla í harðnandi átökum.
  • Og að auki, getur verið að -ISIS- geti notað þetta, til þess að fjölga fylgismönnum er mynda svokallaðar "svefn sellur" í borgm og bægjum um Mið-Austurlönd.

-------------

Hættan gæti orðið veruleg á frekari útbreiðslu stríðsins.

Ég held ekki að þessi átök séu líkleg, að enda með - sigri.

Eina leiðin sé - samkomulag.

 

Hvers konar samkomulag?

Ég er að tala um, að -bandalögin 2- hittist á hlutlausum stað - - þannig að Íranar, en án nokkurs vafa ráða nú Íranar meir í Sýrlandi en ríkisstj. þar, og Saudar, en þeir eru klárlega höfuð bandalags flóa Araba - - > Geri upp sín megin ágreiningsmál.

Ég hugsa að - skipting Sýrlands sé óhjákvæmileg.
Saudar og Íranar - geri upp sín á milli, hvar landamörk liggi.Íranar haldi Assad, ef þeir vilja að hann stjórni áfram, og þeirri landspildu er Assad enn stjórnar. Og auðvitað svæðum í Írak er lúta enn stjv. í Bagdad.
Saudar og bandalag Araba, fái þau svæði sem tilheyra uppreisnarhópum og -ISIS.-

Þau verði á áhrifasvæði - Sauda og bandamanna Sauda.
Og þeirra að gera við, hvað þeir vilja.

Síðan gæti verið mögulegt, að sannfæra þetta bandalag Araba, um að þeir sjálfir standi fyrir því að ganga á milli bols og höfuðs á ISIS.
Enginn Vestrænn her komi nærri.

Þetta væri ráðstefna - sambærileg við svokallaða Yalta ráðstefnu.
Þar væri skipting Mið-Austurlanda milli bandalaganna - ákveðin.
Og formlega bundinn endir á stríðsátök - bandalaganna 2-ja.

Við tæki - kaldur friður.

 

Niðurstaða

Ef mál fara þannig, að Rússar og Íranar, ætla að gera tilraun á nk. ári - að breyta verulega víggsstöðunni í Sýrlandi, stjórnvöldum í Damaskus í hag.
Þá reikna ég með því, að átök muni stórfellt harðna, því bandalag Sauda og Arabaþjóða, muni sennilega mæta þeirra innkomu, með því að auka við - af sinni hálfu.

Það gæti leitti til - - umtalsverðs viðbótar flóttamannastraums til Evrópu á nk. ári.

Auk þess - - skapað vaxandi hættu á frekari útbreiðslu átakanna, ef það fer svo að þau átök fari í stigmögnun milli fylkinga.
En frekari útbreiðsla - - þíddi hugsanlega stórfjölgun flóttamanna.

Ég held að það sé afar ósennilegt, að Rússland/Íran, geti unnið hernaðarsigur.
En tilraunir þeirra til að ná fram slíkum sigri - gætu leitt fram mjög stórfellda aukningu átaka, og eins og ég sagði - hugsanlega leitt fram nýja útbreiðslu stríðsins.

 

Kv.


Bloggfærslur 18. september 2015

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 53
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 318
  • Frá upphafi: 847494

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 314
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband