9.8.2015 | 01:15
Yemen gæti aftur klofnað í Suður vs. Norður Yemen
En það vekur athygli mína fókus sóknar fylkingar í bandalagi við Saudi Arabíu og S.A.F. eða Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, en skv. fréttum virðist megin fókus sóknar þeirrar bardagasveita sem tóku Aden, næst stærstu borg Yemen nýverið af fylkingu svokallaðra Hútha sem -sagðir eru í bandalagi við Íran- sá, að þær sækja fram í héröðunum Abyan og Lahj.
Af hverju þetta er áhugavert, sést ef maður tékkar á gömlu korti er sýnir skiptingu landsins í Suður og Norður Yemen, sem var við lýði fram til 1990.
Og maður setur síðan til samanburðar upp kort sem sýnir héraðaskiptingu landsins Yemen í dag.
Eins og sést, þá tilheyrðu héröðin Abyan og Lahj áður ríkinu Suður-Yemen.
Það hefur heyrst af viðtölum við þá hópa sem tilheyra þeirri fylkingu sem Saudi Arabar og SAF eru að vopna, til að veita Shíta hópi svokallaðra Hútha andstöðu - - að þeir hópar gætu vel hugsað sér, að endurreisa skiptingu landsins.
N-Yemen er einnig til muna fjöllóttara, og gæti reynst þrautin þyngri að sækja fram á því svæði, gegn varnarvígum Hútha.
Ný skipting landsins, gæti þó verið gegn vilja Saudi Araba og S.A.F. - en spurning hversu góða stjórn þau 2-lönd hafa á rás atburða?
2-ja ára gömul grein, sýnir að þessi klofningur var þegar í gerjun, áður en núverandi átök hófust, hinn hataði á Suður svæðinu Saleh, er nú í bandalagi við Hútha, og sameiginlegar hersveitir þeirra ráða N-hluta Yemen, sem væntanlega er hvatning til aðskilnaðar, en Saleh er lengst sat forseta sameinaðs Yemen - virðist illa þokkaður í S-hlutanum, og Shíta hópurinn Húthar virðast ekki heldur í miklu uppáhaldi meðal Súnníta hópanna í S-Yemen: "Large sections of the population of South Yemen favor independence"
Anti-Houthi forces take strategic city in Yemen, Emirati troops killed
Anti-Houthi fighters score more gains in south Yemen
S.A.F. og Saudi Arabía - hafa bersýnilega verið treg til að senda eigin hermenn á svæðið. Virðast í staðinn, hafa kosið þá nálgun - að standa fyrir þjálfun hópa sem eru andvígir yfirráðum fylkingar Hútha frá N-Yemen.
Það virðist mjög vel geta þítt, að þar með séu Saudar og SAF, að vopna akkúrat þá hópa - þeirra á meðal er útbreiddur stuðningur uppi, um að - - aðskilja S-Yemen aftur frá N-Yemen.
Það gæti því þítt, að eftir að þeir hópar með stuðningi Sauda og SAF hafa sparkað hermönnum hlinntum Húthum alfarið út af því landsvæði er áður tilheyrðu hinu áður sjálfstæða S-Yemen. Að þá komi fljótlega í kjölfarið - sjálfstæðis yfirlýsing nýs S-Yemen, með Aden sem höfuðborg.
Það mundi að sjálfsögðu, gersamlega eyðileggja þá hugmynd, að koma þeim forseta sem um skamma hríð sat að völdum í landinu öllu, með stuðningi Sauda - aftur til valda yfir því sameinuðu.
- En það gæti leitt fram þá útkomu, að Húthar haldi a.m.k. N-Yemen.
- Og festist þar í sessi, sem valda-afl.
Niðurstaða
Vegna þess að útbreiddur stuðningur virðist til staðar á því landsvæði er áður var sjálfstætt ríki S-Yemen, um að aðskilja S-Yemen aftur frá N-Yemen. Þannig að skipting Yemen í 2-ríki verði endurreist. Hafandi í huga að Saudar og S.A.F virðast vera að vopna hersveitir sem meginhluta séu skipaðar hópum frá S-Yemen. Samtímis því að Saudar og SAF, virðist forðast það að hafa nokkurn umtalsverðan fjölda eigin herliðs í landinu.
Þá virðist mér það geta vel gerst, að Saudum og SAF, takist ekki að stjórna rás atburða. Að í stað þess að gera tilraun til að sækja í Norður inn í hið fjöllótta og hálenda N-Yemen. Þá láti sveitir frá S-Yemen sem Saudar og SAF hafa vopnað. Það duga að sparka sveitum hliðhollar Hútum frá þeim svæðum er áður tilheyrðu S-Yemen. Og síðan lísi landið sem áður var S-Yemen að nýju - sjálfstætt.
Og löndin verði að nýju 2.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 9. ágúst 2015
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
- Skoðanakannanir líklega ofmeta fylgi Donalds Trumps -- sem er...
- 2 ár síðan Rússland hóf innrás í Úkraínu, febr. 2022: Stríðið...
- Batnandi efnahagur Bandaríkjanna gæti bætt sigurlíkur Joe Bid...
- Hæstiréttur Bandaríkjanna, varðandi mál Donalds Trumps - ætti...
- Arabaríki leggja fram friðartillögu í átökum Ísraels og Hamas...
- Yfirlit yfir stöðuna í Úkraínu: Stuttu máli sagt, gekk sókn Ú...
- Vegna mikillar umræðu um, vinsældir Donalds Trump vs. óvinsæl...
- Harðir bardagar sl. 3 vikur um borgina Avdiivka í SA-Úkraínu,...
- Er Ísrael að falla í gildru Hamas Samtakanna? Hamas samtökin ...
- Árás Hamas samtakanna frá Gaza svæðinu á Ísrael - stærsta bló...
- Staðfest gegnumbrot Úkraínmanna, á Varnarlínu Rússar No. 2 --...
- Hafa Úkraínumenn, þegar 'de facto' haft sigur á Rússum í S-Úk...
Nýjustu athugasemdir
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynleg...: Vandræðin eru að Selensky og allir sem hann leyfir að vera í k... 26.4.2024
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynleg...: Trump mun ganga frá friðarsamningum þar sem Rússar fá það sem þ... 25.4.2024
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekk...: Grímur - gersamlega hlægileg hugmynd að, Úkraínu-átök, geri Ves... 14.4.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- gudspekifelagid
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 24
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 487
- Frá upphafi: 847138
Annað
- Innlit í dag: 24
- Innlit sl. viku: 463
- Gestir í dag: 24
- IP-tölur í dag: 24
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar