Búið að uppgötva uppruna Indó-evrópa?

Rakst á þessa áhugaverðu frásögn í NyTimes: DNA Deciphers Roots of Modern Europeans. En þessar genarannsóknir virðast sýna fram á að Evrópumenn séu -gróft séð- samsettir úr 3-megin hópum, sem komu til Evrópu með löngu millibili:

  1. Fyrst er um að ræða veiðimenn og safnara, sem birtast í Evrópu á Ísöld, þ.e. fyrir 45þ. árum, sjálfsagt þeir sem titlaðir voru "cro magnon" menn. Þetta fólk virðist ekki hafa dáið út, heldur viðhaldist sem sérhópur lengi eftir að síðari hópur mætti á svæðið. En síðan að lokum - horfið inn með blóðblöndun.
  2. Svo eru það bændur er koma í gegnum Tyrkland frá Mið-Austurlöndum fyrir 8-9þ. árum. Lengi vel virðast bændurnir og veiðimannasamfélagið hafa lifað hlið við hlið, þ.e. a.m.k. í 2þ. ár, áður en sjást merki í greiningu fræðimanna - að blóðblöndun á sér stað. Þ.e. áhugavert, að svo virðist ekki að -veiðimennirnir- hafi tekið upp lifnaðarhætti bændanna, heldur lifað sem annað samfélag meðfram bændasamfélögunum í þessu ca. 2þ. ár. Þetta fólk skv. frásögn fræðimannanna - - var eins ólíkt genetískt séð, og í dag eru Asíubúar og Evrópubúar. Sjálfsagt hefur menningarmunur - - a.m.k. ekki verið smærri en það, líklega hefur það stuðlað að því, hve langan tíma það tók fyrir samfélögin að renna saman.
  3. Svo eru það -Indó-Evróparnir- en skv. fræðimönnunum þá berst næsta bylgja í gegnum Rússland, hirðingjasamfélag sem mætir á svæðið fyrir 4.500 árum, fyrst í Mið-Evrópu. Það virðist afar freistandi að líta á að þetta fólk hafi borið með sér hin -indóevrópsku- tungumál. Þetta var fólk, sem hafði ekki fasta búsetu, heldur lifði á steppum Rússlands, með stórar hjarðir af sauðfé - - er því freystandi að líta svo á að til þeirra sauðfjárræktar og sauðfjárstofna, megi rekja þann stofn sem endaði fyrir rest á Íslandi.

"A Yamnaya skull found near Samara, Russia, colored with ocher."

Rök fyrir því að þetta geti verið -IndóEvrópar?

  • Eru mættir til Mið-Evrópu fyrir 4.500 árum, sem virðist nægilega snemma til að gríska menningin sem fyrst kom fram 3.500 árum síðan, geti hafa myndast í millitíðinni. Þ.e. hirðingjarnir leitað til Grikklands, en þ.e. sauðfjárrækt einnig á gömlum merg í Grikklandi; og haft nægan tíma til að mynda - - sérstakt tungumál þegar fyrir 3.500 árum.
  • Er komin skýringin á svokölluðu "tocharian" tungumáli í Synkiang í Kína? En rannsóknir nú sýna, að -svokölluð Afanasevo menning- í Síberíu, er skild hinni svokölluðu -Yamnaya- menningu, er barst til Evrópu skv. genagreiningu, og þá má ætla að líkur séu á að það fólk hafi talað tungumál er hafi verið skilt tungumáli hirðingjanna rússn. sem nefndir eru Yamnaya menningin.

Takið eftir kortinu af vef -Wikipedia- að staðsetning Afanasevo fólksins fyrir 4.700 árum er ekki fjarri landamærum Kína í dag.

En -Tocharian- er þekkt frá handriti er fannst í Synkiang er skv. aldursgreiningu er 1.200 ára gamalt. Miðað við þetta, getur það mjög vel verið, að útbreiðsla Yamnya menningarinnar - - til austurs. Ekki síður en til vesturs.

Skýri þessa útbreiðslu - indóevrópskra tungumála, þ.e. að þau hafi verið til staðar í Vestur hluta Kína, en einnig borist frá Mið-Asíu til Suðurs, alla leið til Indlands og Írans.

Genarannsóknir eru virkilega mögnuð aðferð til að leita sannleikans, mér finnst þetta fremur sannfærandi að svarið við því - - hverjir Indó-Evrópar voru sé fundið.

 

Niðurstaða

Kannski er loksins búið að svara þeirri spurningu sem fræðimenn hafa spurt sig að í meir en 100 ár, síðan tungumálasérfræðingar greindu svokölluð indó-evrópsk mál, og áttuðu sig á því að fornt tungumál á Indlandi, sanskrít ásamt írönsku sem enn er töluð í dag; eru fjarskild en samt skild tungumál hinum evrópsku tungumálum sem við þekkjum þ.e. germönskum, rómönskum, sem og slavneskum, ekki síst - grísku.

 

Kv.


ISIS að færa út kvíarnar í Líbýu

ISIS hefur ekki einungis verið í sókn undanfarið í Sýrlandi og Írak, þ.s. ISIS hefur tekið sitt hvora borgina í sitt hverju landinu, og heldur sinni sókn síðan áfram í því framhaldi.

Nei, ISIS hefur einnig skotið rótum í Líbýu og er að því er best verður séð - - að notfæra sér "valdatóm" sem sennilega er til staðar í því landi, á svæðum sem völd þeirra fylkinga sem berjast um völdin í landinu eru veik.

Rétt er að muna, að innan Sýrlands - hefur ISIS elfst mjög mikið með þeim hætti, að ráðast að margvíslegum uppreisnarhópum, og taka yfir þau svæði sem hafa fallið uppreisnarhópum af margvíslegu tagi í hendur.

  1. Á hinn bóginn, hafa átakalínur í Sýrlandi verið miklu mun flóknari, því að fylkingar andstæðinga stjórnvalda í Damascus klofnuðu fljótlega í ákaflega marga tiltölulega smáa hópa.
  2. Sá klofningur uppreisnarinnar í Sýrlandi - - sennilega gerði ISIS auðvelt um verk. Þ.s. um var að ræða "marga smáa hópa" sem hver um sig vann ekki með öðrum hópum nema að litlu leiti; þannig að ISIS gat stundað þ.s kallað er "defeat in detail." Þ.e. ráða niðurlögum eins hóps, síðan þess næsta, svo koll af kolli.
  • Á hinn bóginn eru átakalínur í Líbýu ekki þetta margbrotnar - - þó svo að hóparnir séu þar einnig margir.
  • Þá hafa þeir myndað 2-meginfylkingar, þ.e. bandalög. Og þau bandalög berjast um völdin í landinu.

Þetta sennilega gerir Líbýu líklega að síður auðveldum stað fyrir ISIS.

En ISIS virðist samt vera að finna sér pláss - - á svæðum í miðju landinu. Sem sennilega liggja ca. mitt á milli átakalína.

ISIS Proves Its Persistence With Attacks in Libya and Iraq

Sjá á kortinu bæinn - - Surt þ.s. ISIS nú ræður

http://www.ezilon.com/maps/images/africa/Libya-physical-map.gif

",,,the Islamic State captured a critical power plant along the coastal road westward from its stronghold in Surt toward Misurata." - "The loss was the second significant retreat in less than two weeks by the Misuratan militia..." - "...the capture of the power plant now means the Islamic State can threaten to cut off electricity to parts of the central and Western regions of the country."

  • Þetta virðist vera taktík ISIS - - að ná valdi á einhverjum mikilvægum "strategic asset."

ISIS ræður nú svæðinu næst - Surt. Þar á meðal flugvelli þar í grennd, sem sé þó ónothæfur vegna skemmda. Svo nú þessu orkuveri.

Hersveitirnar frá -Misuratah- sem er kjarni uppreisnarinnar innan Líbýu, er ræður höfuðborginni og að lang mestu leiti - - Tripolitania svæðinu.

Meðan að hinn megin hópurinn, sem inniheldur leyfar hins "gamla stjórnarhers" og það þing sem er "alþjóðlega viðurkennt" sem situr í borginni Tobruk Austast í landinu, sá hópur virðis stórum hluta - ráða Cyrenaica svæðinu.

  1. En í miðjunni - - milli þeirra svæða er hvor fylkingin um sig ræður.
  2. Sé sennilega valdatóm - - sem ISIS hafi ákveðið að fylla.

ISIS virðist hafa kosið, að beita sér fyrst gegn -Misuratah- hópunum, þeirra árásir virðast hingað til ekki hafa dugað til að hrekja ISIS liða á brott - - sem þvert á móti virðast hafa sókt fram í humátt til Misuratah.

 

Vesturlönd virðast samt sem áður, sjá visst tækifæri í þessari rás atburða

M.ö.o. menn vonast eftir því, að unnt verði að láta megin fylkingarnar skilja - - að ISIS sé ógn við þær báðar, og ekki síst - framtíð landsins.

Þannig að hugsanlega verði unnt, að fá báðar fylkingar að samningaborði - um nýja tilraun til þess að binda endi á þeirra átök.

En sameiginlega eru fylkingarnar sjálfsagt nægilega sterkar. Til þess að stökkva ISIS á flótta. Meðan að ef átök þeirra halda áfram, þá viðhaldist svigrúmið - - sem ISIS notfæri sér, til þess að eflast og styrkja sín áhrif og yfirráð.

Enn sé ekki of seint, að stökkja ISIS á flótta, neyða ISIS undir yfirborðið innan Líbýu.

 

Niðurstaða

Bersýnilega hefur enginn áhuga á því að senda her til Líbýu. En ef tækist að fá megin fylkingarnar sem berjast um völdin í landinu til að slíðra sverðin. Og þess í stað til að beita sér gegn ISIS - - þá þarf ekki að fara að Líbýa verði ISIS að bráð.

En meðan að stríðið viðhelst, þá getur ISIS notfært sér átök fylkinganna til þess, að narta í yfirráðasvæði beggja - - meðan þær berjast sín á milli. Og smám saman verða sterkara á milli þeirra - - þangað til að hugsanlega ISIS gæti tekið yfir.

Þetta þarf ekki að gerast - ekki of seint enn að forða slíkri útkomu.

 

Kv.


Bloggfærslur 10. júní 2015

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 253
  • Frá upphafi: 847335

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 249
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband