Áhugavert hvernig Donald Trump virðist vera að gera tilraun, til að skapa nokkurs konar McCarty stíl andrúmsloft í Bandaríkjunum

Ástæðu þess að Donald Trump virðist beina sjónum sérstaklega að Múslimum í Bandaríkjunum, og ferðum Múslima til Bandaríkjanna - - er atburður er varð 2. des. sl., þegar ungt par bæði Múslimar eiginmaðurinn fæddur í Bandaríkjunum en eiginkonan upphaflega frá Pakistan, drápu 14 manns með hríðskotaryfflum.

Trump defends proposed Muslim ban from U.S. as outrage mounts

  • Í skemmtilegri kaldhæðni, keyptu þau öll sín skotvopn, löglega - og við rannsókn á heimili þeirra, reyndist vopnasafn þeirra hjóna - magnað að vöxtum. En fyrir utan skotvopn, og 6.000 skothylki, höfðu hjónin búið til fjölda rörasprengja - nokkra tugi.
  • Til að byrja með, vakti þessi skotárás - enga sérstaka umfram-athygli, þ.e. enn ein skotárásin, enda Bandaríkjamenn nánast orðnir vanir slíkum atburðum.

En einungis nokkrum vikum fyrr - var framkvæmd banvæn skotárás í bandarískum skóla, er varð 9 manns að fjörtjóni, í Rosenburg - Oregon:

Deadliest U.S. mass shootings | 1984-2015.

  1. Það er einmitt dæmigert fyrir fjöldadráp í Bandaríkjunum, með skotvopnum - að vopnin eru  keypt löglega; og ekki síst, að gjarnan á viðkomandi mun umfangsmeira vopnasafn en viðkomandi hafði tækifæri til að beita.
  2. Ef tekið er mið af öllum þessum fjölda skotárása er hafa orðið í Bandaríkjunum þessi 30 ár, þá er erfitt að sjá - með hvaða hætti Múslimar í Bandaríkjunum skera sig úr sem hætta fyrir bandarískan almenning.

Sennilega er óhugnalegasta árásin í Bandaríkjunum, eftir 2010 - árás er varð í des. 2012, þegar ungur maður réðst inn í barnaskóla og drap fjölda 6 ára barna ásamt kennurum; alls 27 manns.
Þegar maður horfir á þennan lista - er áhugavert hve skotárásir eru algengar.

  • Langsamlega yfirgnæfandi, virðist sá sem fremur verknað - -> Vera hvítur karlmaður.

Donald Trump er að sjálfsögðu ekki að leita nokkurs sannleika.
Þvert á móti, virðist hann statt og stöðugt bulla út í eitt, og beita hroka óspart til að komast upp með ummæli sem í háu prósenti tilvika, virðast innihalda alvarlegar staðreyndavillur.
M.ö.o. -eins og ég sagði- hann bullar út í eitt.
Beitir síðan persónulegu nýði á hvern þann, sem vogar sér að svara honum.

Donald Trump virðist afskaplega fyrirlitleg persóna!

 

Tillögur Trump um að banna öllum Múslimum að ferðast til Bandaríkjanna, og neyða Múslima í Bandaríkjunum til að bera sérstök persónuskilríki --> Að sjálfsögðu er stjórnarskrárbrot

Það virðist alveg dæmigert fyrir tilsvör hans, hvernig þau eru algerlega gjarnan út í hött.
Þegar hann segir það fordæmi, þegar Franklin Delano Roosevelt, lét takmarka frelsi Japana í Bandaríkjunum - í kjölfar árásinnar á Perluhöfn.

Eins og það sé sambærilegur atburður!
Eða að gervallt Íslam sé í stríði við Bandaríkin - væntanlega íbúar Malasíu og Indónesíu ekki undanskotnir.
Þarna virðist Trump - höfða til samsæriskenninga um Íslam, allra lengst á jaðrinum - kenningar sem standast ekki nokkra hina minnstu skoðun, m.ö.o. - þvættingur.

  1. Áhugavert að Múslimar eru einungis 1% íbúa Bandaríkjanna.
  2. Til samanburðar, ca. 6% íbúa ESB.  Í engu meðlimalanda ESB, eru Múslimar yfir 8% að heildarhlutfalli íbúa - fyrir utan Kýpur ef tyrkneski hl. Kýpur er talinn með.
  • Það sýnir vel, hversu gargandi vitlausar hugmyndir - um yfirvofandi yfirtöku Múslima á Evrópu eru.
  • En Evrópa með sína milli 500-600 milljónir íbúa, gæti tekið hvern einasta íbúa Sýrlands - eða 19 milljónir, án þess að prósentulega séð mundi hlutfall Múslima meðal heildarfj. íbúa, hækka að ráði.
  • Sem auðvitað stendur ekki til <--> En núverandi aðflutningur, ca. ein milljón per ár, skapar íbúum Evrópu - ekki hina minnstu hættu.
  • Það tæki t.d. áratugi, fyrir aðflutning á því róli, að fjölga Múslimum í ESB í 100 millj.

Á hinn bóginn, virðist ekki hætta á að sá aðflutningur - - haldist á því róli, þ.s. mjög líklegt virðist að aðflutningur frá N-Afríku og víðar, verði verulega takmarkaður.

Þá værum við aftur komin á þann stað, að fjölgun Múslima í ESB í 100 milljónir mundi taka meir en 100 ár, sennilega meir en 200.
Ef við gefum okkur, að fjölgun meðal Múslima í Evrópu - haldi áfram að vera hlutfallslega meiri en meðaltal íbúa Evrópu.
En það þarf alls ekki að haldast!

 

Niðurstaða

Það er einfalt mál - hugmyndir um yfirvofandi yfirtöku Múslima á Evrópu á nk. áratugum, standast ekki nokkra tölfræðilega skoðun.
Flokkast undir -> Bull.

Við skulum hafa í huga, að í Evrópu farast tugir þúsunda hvert ár - í bílslysum.
Og enn stærri fjöldi en það, ferst ár hvert af völdum sjúkdóma af margvíslegu tagi, sem unnt hefði verið að koma í veg fyrir.

Miðað við bílslys eða sjúkdóma, eru dauðalíkur af árás hryðjuverkamanna - hverfandi.
Það má flokka þá umræðu eins og hún leggur sig, sem heldur því fram að Vesturlöndum standi stórfelld ógn af Múslimum - almennt séð. Sem hræðsluáróður!

Flokkar ala á hræðslu - til þess að efla eigin áhrif.
Til að afla sér fylgis meðal íbúa Evrópu.
Svo einfalt sé það! Að þetta séu kaldrifjuð aðferðafræði, ætlað að skapa tilteknum flokkum á jaðri stjórnmála - fjöldafylgi.

  • Minnir þannig að einhverju leiti á aðferðir Nasista fyrir valdatöku þeirra, þegar þeir beittu skefjalausum hræðsluáróðri gegn gyðingum.

Þannig sé aðferðafræði evr. hægri öfgaflokka, svipuð og hjá Donald Trump - þ.e. menn bulla út í eitt.
Fullyrða þvætting, með hroka og yfirlæti að vopni, og eins og Donald Trump - komast upp með.

Því blaðamenn og aðrir stjórnmálamenn, standa sig ekki nægilega vel í stykkinu - við það verk að afhjúpa augljóst bullið í málflutningi Trumps og öfgaflokka í Evrópu sem aðhyllast svipaðar skoðanir og viðhorf og Trump.

En ég hef tekið eftir hroka og yfirlæti aðila með slíkar skoðanir - hvernig þeir gjarnan grípa til þess að vega að persónu viðkomandi, tala gjarnan á þeim grunni að þeir flytji staðreyndir meðan þeir bulla, og gjarnan láta sem að þeir sem trúa ekki bullinu séu fífl af einhverju tagi.

  • Eiginlega virðist þessi stefna, orðin að nýjum sértrúarbrögðum.


Kv.


Bloggfærslur 9. desember 2015

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 19
  • Sl. sólarhring: 42
  • Sl. viku: 284
  • Frá upphafi: 847460

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 281
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband