Nýjar leyndarreglur í Rússlandi, sem mér virðist hindra alla rannsóknarblaðamennsku

Pælið í þessu - ef sett væru lög hér á landi þar sem það gilti um allar óbirtar upplýsingar í eigu opinbers rekstrar eða stofnana, að gögn er ekki hefðu enn fengið opinbera birtingu; væru undir leyndarhjúp.
Það væru viðurlög gegn því, að birta upplýsingar er tengjast opinberum stofnunum eða opinberum rekstri -sem hefðu ekki fengið opinbera birtingu.

  • Þetta ætti við allar upplýsingar um fyrirtæki eða stofnanir í eigu hins opinbera.

Blaðamenn, yrðu formlega að óska heimildar yfirvalda fyrir því, að birta tiltekin gögn.
Þeir yrðu þá að láta uppi allar upplýsingar um það, hvernig þeir komust yfir þau.

Russia considers stronger secrecy laws

 

Lög til að vernda spillingu?

Það er vart unnt að sjá hverjir aðrir græða á þessu - en innanbúðarmenn, sem vilja ekki að óþægilegar upplýsingar sjái dagsins ljós.

"“This is a law for the hiding of corruption schemes,” said Denis Primakov, chief lawyer at Transparency International Russia."

Það er einmitt það hvað mér virðist.

Erlend fyrirtæki t.d. sem telja að brotið hafi verið á sér - geta ekki lengur þá notfært sér þá aðferð, að kæra málið á erlendri grundu.
If implemented, this would bar Russian citizens and in particular Russian lawyers from testifying in foreign courts,”

Þá er einnig lokað á þá glufu - að beita erlendum dómstólum.

Það er einnig bent á að þetta geti dregið úr skilvirkni - viðskiptahindrana NATO landa á Rússland, sem fela það í sér að strangt til tekið er ekki Rússland sjálft undir banni; heldur tilteknir einstaklingar er tilheyra innsta valdahring klíkunnar í Kreml.

  1. Það er einnig lagt til að setja leyndarhjúp yfir - skráningu á opiberra eigna:
    "This month the government proposed barring public access to the state property registry..."
  2. Þegar síðan er bætt við, banni á að birta allar - óbirtar upplýsingar í eigu opinberra aðila, nema gegn sérstakri heimild.

Þá getur sennilega orðið mjög erfitt að fylgjast með því - - hvernig valdaklíkan í Kreml, fer með þær eignir sem hún stjórnar.

En málið er - að valdaklíkan í Kreml -> Hegðar sér með rússneskan opinberan rekstur; sem um væri að ræða - fyrirtæki í þeirra persónulegu eigu.

Það er gjarnan af aðdáendum Pútíns -> Talað um það, hvernig hann hafi náð til baka yfir til ríkisins, eignum er voru - einkavæddar gjarnan undir vafasömum formerkjum í tíð fyrri forseta.
Vandinn er, að það virðist ekki hafa tekið neitt betra við -> Þ.e. að núverandi stjórnendur virðast a.m.k. ekki minna spilltir - sennilega meir, og þeir virðast notfæra sér það ástand að reksturinn telst í opinberri eigu; þannig að það þíði að þeir hafi einnig nær óheftan aðgang að sameiginlegum sjóðum landsmanna.

  • Þeir m.ö.o. sitja beggja vegna borðs.
  1. Einræði -sögulega séð- verða spilltari með tímanum.
  2. Mig grunar að slík þróun sé einmitt í gangi innan Rússlands.

Eftir að með lagabreytingum - - er með öllu hindrað að unnt sé að grafast fyrir um spillingu innan stofnana og fyrirtækja í eigu hins opinbera.
Þá að sjálfsögðu, verður kerfislæg spilling þar með rökrétt séð, gersamlega hömlulaus.

 

Niðurstaða

Rússland virðist á stöðugum kúrsi inn í sífellt yfirgripsmeiri leyndarhjúp. Rétt að nefna að á sl. ári, t.d. var sett bann ásamt viðurlögun -utan um upplýsingar um mannfall rússneska hersins á erlendri grundu á friðartímum.
Þannig að ef fjölskylda er ósátt við opinberar skýringar á láti hermanns, þá er unnt að henda fjölskyldumeðlimum í fangelsi, ef þeir gera tilraun til þess að rannsaka lát viðkomandi sjálf.

Þessar nýjustu lagabreytingar virðast í sama tón.

Þær virðast hindra alla möguleika á því, að utanaðkomandi aðilar - geti rannsakað söguskýringar yfirvalda, meðferð opinberra eigna eða á rekstri í eigu hins opinbera, og það að því er virðist - nær yfir allt sem telst til opinbers rekstrar.

  • Eins og ég sagði, virðist mér slík lög loka á alla möguleika til þess að ástunda rannsóknarblaðamennsku í Rússlandi - í framtíðinni.

Elítan í Kreml er þá að tryggja að enginn möguleiki sé á að afhjúpa þær lygar sem aðilar meðal hennar, kjósa að halda á lofti um meðferð þeirra á opinberum eignum eða rekstri.

 

Kv.


Bloggfærslur 31. október 2015

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 39
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 540
  • Frá upphafi: 847261

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 515
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband