30.11.2016 | 01:05
Skv. yfirlýsingu talsmanns hersveita er styðja stjórnvöld í Damaskus - er stefnt að töku Aleppo fyrir 20. janúar 2017 er Donald Trump tekur formlega við embætti
Miðað við fréttir af stöðugum hörðum árásum á varnir uppreisnarmanna í Aleppo í samhengi við harðar loftárásir flughers Rússa -- er stefnt að því að þær árásir haldi áfram fullkomlega linnulaust, í von um að takmarkið að taka svæði uppreisnarmanna í Aleppo fyrir valdatöku Donalds Trumps náist fram!
Assad, allies aim to seize all Aleppo before Trump takes power: official
Þessi mynd virðist sýna nokkurn veginn núverandi stöðu eftir að uppreisnarmenn hafa misst nokkurn veginn helmings síns yfirráðasvæðis í Aleppo!
- Uppreisnarmenn skv. fréttum segjast hafa náð jafnvægi að nýju á varnarlínuna - sem er nú smærri hringur en áður.
- Þau hverfi sem eftir eru - eru þéttbýlli skilst mér en þau sem uppreisnarmenn hafa misst á undanförnum dögum --> Sem getur þýtt að sókn þar inn, verði tafsamari - uppreisnarmenn fastari þar fyrir.
- Sérstaklega er kemur að þeim hópum sem tengjast svokölluðum "Frjálsum-sýrl.-her" en leyfar hópa er tengjast honum, upphaflega uppreisnin gegn Assad - hefur enn verið að finna í Aleppo.
--Þeir hópar sennilega eru líklegast mannaðir einstaklingum frá þeim svæðum sem þeir verja -- sem skapar að sjálfsögðu mjög erfiða spurningu, þ.s. í annan stað eru fjölskyldur þeirra sjálfra að þjást, en einnig að láta lífið <--> En á móti kemur spurningin, hvort þeir geta treyst stjórninni, að refsa ekki þeirra fjölskyldum harkalega fyrir - ef þeir gefast upp.
--Það gæti verið að sú óvissa haldi þeim í baráttunni, þrátt fyrir að matarbirgðir séu svo á þrotum skv. fréttum, að sultur blasir fljótlega við.
- En eitt öflugasta tæki stjórnvalda, hefur verið það elsta sennilega í sögu hernaðar gegn borgum --> Þ.e. umsátur.
- Hverfum - bægjum - hefur verið haldið í umsátri, þangað til matarbirgðir hafa þrotið. Uppreisnarmenn sem eiga fjölskyldur á sama svæði, þá stara á eigin fjölskyldur á brún hungurs --> Það sé líklega -umsátur- og -hungur- sem hafi verið öflugasta vopnið í átökum um að binda endi á uppreisnir hér og þar.
- Sl. ár hefur töluverður fj. slíkra umsátra lokið með -- uppgjöf, eftir að matur var algerlega búinn og íbúar farnir að svelta.
--Ekki hafa fréttir neinar borist af því, hvað síðan kom fyrir þá uppreisnarmenn - er gáfust upp, svo fjölskyldur þeirra fengu mat.
- Það getur vel verið -- að það verði ekki árásir, heldur -hungur- sem á endanum leiðir fram endalok umsátursins um Aleppo!
Hungur sem vopn -- hefur allaf verið fullkomlega miskunnarlaus aðferð!
En að sama skapi -- þegar því er beitt, mjög áhrifaríkt!
Hungur tekur alltaf þó tíma að virka -- umsátur getur tekið fleiri ár!
Enginn heldur út gegn hungurvofunni - endalaust!
Þannig að það sé líklega engin spurning - að ef umsátrinu er viðhaldið áfram. Og ef það þíðir að - engar matarsendingar til uppreisnarmanna berast.
--Þá getur borg í umsátri einungis haldið út í takmarkaðan tíma.
- Þau 5.000 ár sem hungur hefur verið notað með velheppnuðum hætti, til að taka borgir.
Hefur það margítrekað - virkað!
Það sem þó væri forvitnilegt að vita - er mannfall sveita er styðja Assad!
En uppreisnarmenn eftir að hafa barist linnulaust síðan ca. ágúst 2011, eru orðnir "veterans." Þ.e. hermenn með reynslu.
--Að auki höfðu þeir nægan tíma, til að undirbúa sig fyrir árás!
--Auk þess að þeir þekkja sín svæði vel!
Fram að þessu, hafði þeim alltaf tekist að brjóta á bak aftur - árásir inn í sín hverfi. Orðnir mjög færir í því að slátra þeim.
Á hinn bóginn, er ein aðferð sem einnig sl. 5.000 ár hefur virkað, þ.e. að ráðast fram með nægum mannafla -- en það þíðir einnig, mikið mannfall þeirra er ráðast fram!
--Fyrir atlöguna að Aleppo, virðist hafa verið mikill liðsafnaður - þ.e. Íranar sjálfir með hópa úr Lýðveldisverðinum - skv. nýlegri frétt hafa Íranar viðurkennt a.m.k. 1.000 menn fallnir -- það eru bara "Republican Guard Troops."
Hvað með - mannfall Hezbollah?
Hvað með - mannfall "Pro Syrian Militias" undir stjórn Írana, en mannaðar Sýrlendingum?
Hvað með - mannfall Shíta "militias" frá Írak, sem eru þarna einnig í einhverjum fjölda?
Hvað með - mannfall hins eiginlega hers stjórnvalda?
- A.m.k. virðist eitt algerlega klárt, að mannfall hlýtur að hafa verið mikið.
- En málið er að verið er að berjast í rústahrúgum, í návígi --> Þá er ekki unnt að beita skriðdrekum að ráði, né öðrum brynvörðum tækjum --> Heldur snúast bardagar líklega um - einvígi milli vopnaðra hermanna!
- Í slíkum átökum, yfirleitt falla fleiri af þeim er ráðast fram, en af þeim sem - verjast.
- Spurning þó hve mikið manntjón verður af loftárásum, sem stöðugt er beitt.
Ég mundi ekki verða steinhissa -- ef heildarmannfalla þeirra er hafa ráðist fram!
Væri orðið á bilinu 5-6þúsund.
Á síðasta ári -- viðurkenndi Assad, heildarmannfall herja hans á bilinu 60-70þ. frá því að stríðið hófst!
--Bardagar í návígi eru mjög mannskæðir.
Ég á þó ekki von á því að úr þessu er lítur út sem yfirvofandi fall Aleppo, þíði að stríðið taki endi!
Það breytist þó - þ.e. verður líklega meir í ætt við skærustríð "hit and run tatics." Heldur en það sem átökin hafa verið - herir að takast á um stjórnun landsvæða.
--En það hefur verið, skæruher til staðar.
Skæruátök geta verið umtalsvert stór í skala, þó eðli þeirra verði líklega síður en hefur verið í þá átt - að gerð væri tilraun til að halda tilteknu landsvæði.
--Það þíðir auðvitað að skæruliðar þurfa afdrep einhvers staðar.
- Það hafa nærri 6 milljón Sýrlendinga flúið landið.
- Milljón í viðbótar gæti kosið flótta - þ.e. fólk er tengist þeim hópum er hafa verið að berjast, annað af tvennu - stuðningsmenn eða tengt einstaklingum er hafa verið að berjast.
Ef við erum að tala um 6-7 milljón varanlega landflótta, fólk sem hefur flúið átökin - vegna þess að svæði þau er það fólk bjó á, hafa verið lögð gersamlega í rúst.
Sá stóri hópur virðist einkum Súnní Íslam, þ.e. tilheyra þeim hópi er hefur verið meirihluti Sýrlendinga -- þaðan sem uppreisn fékk einna helst fylgi/stuðning - sem sést ekki síst á því að allir uppreisnarhópar eru Súnní.
- Það virðist sennilegt að svo fjölmennar flóttamannabúðir - þó þær séu dreifðar milli Tyrklands, Lýbanon og Jórdaníu --> Þegar haft er í huga, að þar fer fólk sem líklega margt hvert upplifði heimili sín eyðilögð - líkur á að hafa misst ástin eða ástvini.
- Líklegt að upplifa það að geta ekki snúið aftur - sem væri mörgu leiti sambærilegt við það, er Ísraelar hröktu fjölda Palestínumanna úr landi, meðan 1948 stríð Ísraels og Araba herja stóð yfir og lyktaði með sigri Ísraela -- sem þíddi að flóttamenn hafa aldrei getað snúið aftur heim.
--Þeir urðu eins og þekkt er, áratugum saman -- uppspretta átaka við Ísrael, og hryðjuverka gegn Ísrael.
Sýrlendingar landflótta --> Eru mun fleiri!
Því líklegt að þeir geti viðhaldið --> Átökum gegn Assad að töluvert stærri skala!
Önnur samlíking væri þá, átökin í Afganistan -- þ.s. fjölmennar flóttamannabúðir Afgana í Pakistan, er spruttu upp í kjölfar 1979 innrásar Sovétríkjanna - en hafa viðhaldist samfellt síðan þá.
--En í þeim búðum spratt fram nokkrum árum eftir brotthvarf herja Sovétríkjanna, hreyfing svokallaðra - Talibana "sem mig rámar í að þíði stúdentar."
Sú hreyfing hefur síðan verið <-> Ósigrandi, vegna hins örugga afdreps í flóttamannabúðum innan Pakistan, sem og vegna þess að hafa þaðan stöðugt aðgengi að - nýliðum.
--Talibanar hafa því alltaf getað, endurskipulagt lið sitt - þjálfað nýliða, og komið aftur inn sterkir - aðeins seinna.
- Það er vel hugsanlegt --> Að framhalds átökin í tengslum við Sýrland, verði í sambærilegu fari.
- Þ.e. að róttækir hópar, en það má vel vera að nýir slíkir spretti fram innan búðanna sjálfra, sbr. Hamas í Gaza í útjaðri Ísraels.
- En punkturinn er sá, að eftir gríðarlegt mannfall stríðsins - það að mjög sennilega hefur mannfall þess hluta sýrlensku þjóðarinnar verið meira - vegna stöðugra loftárása og stórskota árása á öll þau svæði er voru á einhverjum punkti í uppreisn - er gerði þau eiginlega öll að rústahrúgum og leiddi fram fjöldaflótta af þeim svæðum meðal íbúa.
----> Er örugglega til staðar yfrið nægt hatur til að viðhalda blóðhefndum nk. 100 ár eða svo.
Átökin í Afganistan -- hafa eftir allt saman verið linnulaust frá 1979 og nú er nærri árslokum 2016.
Niðurstaða
Assad, eða nánar tiltekið - Íran og Hezbollah, getur tekist að stjórna þeim svæðum innan Sýrlands sem mestu máli skipta, þ.e. þeim er innihalda helstu þéttbýlis svæðin. Þau svæði í ljósi þeirra aðferða er hefur verið beitt - þ.e. loftárása og stórskotaliðsárása, eru þó víða mjög mikið í rústum -- þó finna megi svæði enn innan Sýrlands sem eru heil.
Óskaplegt tjón - þíðir líklega að fyrir landinu blasir - sára fátækt. Þó svo að átökin mundu ekki halda áfram - sem þau örugglega gera!
--Landið er þá í raun og veru "failed state" þó svo að með áframhaldandi stuðningi Írana - Hezbollah og Rússa; má vel vera að unnt verði að viðhalda stjórninni í Damaskus.
Að mínu viti hefði verið mun betra - ef landinu hefði verið formlega skipt, til að binda endi á átökin!
--En þess í stað, hafi -tel ég- verið tekið það val, að viðhalda átökunum líklega um alla fyrirsjáanlega framtíð.
En með því að svipta þá sem flúið hafa öllum möguleikum á að snúa aftur til baka!
Þá sé það líklega fullkomlega öruggt, að átökum verði viðhaldið -- kynslóð eftir kynslóð.
Landið verði þá áfram, líklega eins lengi og unnt er að sjá fram í tímann - "failed state."
--M.ö.o. sé sigur sá sem við blasi, ef menn kalla það sigur, sá -- að ríkja yfir rústunum.
--En þó í ástandi sem líklega verður áframhaldandi stöðugt stríðs ástand!
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
- Skoðanakannanir líklega ofmeta fylgi Donalds Trumps -- sem er...
- 2 ár síðan Rússland hóf innrás í Úkraínu, febr. 2022: Stríðið...
- Batnandi efnahagur Bandaríkjanna gæti bætt sigurlíkur Joe Bid...
- Hæstiréttur Bandaríkjanna, varðandi mál Donalds Trumps - ætti...
- Arabaríki leggja fram friðartillögu í átökum Ísraels og Hamas...
- Yfirlit yfir stöðuna í Úkraínu: Stuttu máli sagt, gekk sókn Ú...
- Vegna mikillar umræðu um, vinsældir Donalds Trump vs. óvinsæl...
- Harðir bardagar sl. 3 vikur um borgina Avdiivka í SA-Úkraínu,...
- Er Ísrael að falla í gildru Hamas Samtakanna? Hamas samtökin ...
Nýjustu athugasemdir
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstuda...: Rússneskar 152 mm fallbyssur draga svona 18 km, svo 12 km er lí... 17.5.2024
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstuda...: Napoleon þar sem að hann sveiflaði sverðinu fram og til baka in... 17.5.2024
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstuda...: Þetta minnir dálítið á litla sókn franska hersins í upphafi Sei... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Lárus Ingi Guðmundsson , óttarleg froða er þetta -- Rússar töpu... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Ásgrímur Hartmannsson , þú meinar að Trump gerist svikari, gefi... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Auðvitað hverfa græjurnar af geymzlusvæðinum þegar þau eru teki... 14.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Það er greinilegt að viðkomandi ætti að kynna sér hversu Hátt e... 13.5.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- gudspekifelagid
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 411
- Sl. sólarhring: 475
- Sl. viku: 1300
- Frá upphafi: 849489
Annað
- Innlit í dag: 382
- Innlit sl. viku: 1196
- Gestir í dag: 374
- IP-tölur í dag: 364
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aleppo er þegar fallin, og mun verða undir áhrifum stjórnarhersins innan viku. Tyrkir eru þegar búnir að ráðast inn í Sýrland, og Ukraína er að búa sig undir að ráðast á Krímskaga.
Rússar sitja um kyrrt, og bíða eftir Casus Belli.
Casus Belli, sem Einar kallinn vill gera allt í að gefa þeim ... og afleiðingar þessa, verða endalok NATÓ samkomulagsins.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 30.11.2016 kl. 22:38
Bjarne, hvað varstu að reykja?
Einar Björn Bjarnason, 30.11.2016 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning