24.6.2016 | 22:23
Ég er ekkert viss að það séu miklar líkur á því að Skotland yfirgefi Bretland í kjölfar Brexit
Það má alveg teikna upp þá mynd að líkur séu á því að Skotland yfirgefi Bretland.
Eftir allt saman þá vildu 62% Skota að Bretland væri áfram í ESB, meðan að einungis 38% Skota studdu Brexit.
-Ráðherra Skotlands, Nicola Sturgeon, sagði það ólýðræðislegt að Skotland væri dregið út úr ESB gegn þess vilja - og sagði nýja atkvæðagreiðslu um brotthvart úr breska sambandinu, líklega.
Skotland væri að sjálfsögðu ekki sjálfvirkt meðlimur að ESB!
Rétt að ryfja upp þegar umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu Skota var í gangi -- og sjálfstæðissinnar í Skotlandi héldu því fram að Skotland yrði áfram meðlimur að ESB.
Þá var þeirri afstöðu samstundis hafnað af Mariano Rajoy forsætisráðherra Spánar!
En forsætisráðherra Spánar er að glíma við sjálfstæðissinna í Katalóníu.
Og það síðasta sem hann vill - er að skapa það fordæmi að svæði innan meðlimalanda geti sagt bless við meðlimalandið, og verið sjálfkrafa ESB meðlimir.
Eftir umræðu milli meðlimalanda -- var formúlan skýr.
- Sjálfstætt Skotland yrði að sækja um aðild að ESB.
- Þannig að ef maður ímyndar sér það að Skotar vilji sem fyrst hætta í breska sambandinu, til þess að halda í ESB aðildina -- áður en Bretland formlega yfirgefur ESB.
- Þá gengur það ekki upp!
- Það má að auki nefna það, að stjórnvöld í Belgíu -- vildu ekki heldur skapa þannig fordæmi.
En ella gæti það verið fordæmi, sem leitt gæti til slita sambands Vallóníu og Flæmingjalands, þ.e. upplausnar Belgíu.
Olíuverð er í dag ennþá töluvert lægra en það var meðan Skotar höfðu sitt þjóðaratkvæði
Þjóðernissinnaðir Skota dreymdi um að lifa á olíunni eins og Norðmenn - en skoski olíuiðnaðurinn er eins og sá norski, þ.e. olíuborpallar og óskaplegur rekstrarkostnaður.
Sem þíðir, að olíuverð þarf að vera hátt - til að reksturinn skili hagnaði.
Í dag er skoski olíuiðnaðurinn örugglega í taprekstri eins og sá norski.
Það sem verra er - Skotar eiga engan olíusjóð eins og Norðmenn.
Það er örugglega um að ræða - umtalsverða fjármagnstilfærslur í formi skattfjár frá hinu hlutfallslega auðuga, Englandi - til Skotlands.
--Sem Skotar mundu missa af.
Ég sé ekki ESB aðildarlönd -- dæla miklu fé til Skota.
Enda nóg af verulega fátækari löndum í ESB í A-Evrópu, og SA-Evrópu.
--Sem fá rjómann af byggðastyrkjum úr sameiginlegum sjóðum, og styrkjum til vegaframkvæmda.
- Það sem ég er að segja er, að Skotar yrðu fátækari utan við breska sambandið.
- Og þeir yrðu að óska eftir ESB aðild - fara síðan í dæmigert umsóknarferli með samningum um aðild.
Niðurstaða
Ég held að það sé ekki efnahagslega séð aðlaðandi kostur fyrir Skota að yfirgefa Bretland - þó svo að það líti út fyrir það að Bretland sé virkilega á leið út úr Evrópusambandinu.
Sem segir ekki að Skotar geti ekki tekið slíka ákvörðun -- þ.e. verða sjálfstætt land, síðan að ákveða að ganga í ESB.
Kv.
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstudag í NA-Úkra...
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríði, allt að ...
- Rússland ætlar að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan ...
- Gríðarlega mikilvægt að Úkraína fær bráðnauðsynlega hernaðara...
- Ég er eindregið þeirrar skoðunar - Ísrael geti ekki unnið str...
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
- Skoðanakannanir líklega ofmeta fylgi Donalds Trumps -- sem er...
- 2 ár síðan Rússland hóf innrás í Úkraínu, febr. 2022: Stríðið...
- Batnandi efnahagur Bandaríkjanna gæti bætt sigurlíkur Joe Bid...
- Hæstiréttur Bandaríkjanna, varðandi mál Donalds Trumps - ætti...
- Arabaríki leggja fram friðartillögu í átökum Ísraels og Hamas...
- Yfirlit yfir stöðuna í Úkraínu: Stuttu máli sagt, gekk sókn Ú...
- Vegna mikillar umræðu um, vinsældir Donalds Trump vs. óvinsæl...
- Harðir bardagar sl. 3 vikur um borgina Avdiivka í SA-Úkraínu,...
- Er Ísrael að falla í gildru Hamas Samtakanna? Hamas samtökin ...
Nýjustu athugasemdir
- Rússar hafa tekið 8 km. landræmu síðan sl. föstuda...: Þetta minnir dálítið á litla sókn franska hersins í upphafi Sei... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Lárus Ingi Guðmundsson , óttarleg froða er þetta -- Rússar töpu... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Ásgrímur Hartmannsson , þú meinar að Trump gerist svikari, gefi... 16.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Auðvitað hverfa græjurnar af geymzlusvæðinum þegar þau eru teki... 14.5.2024
- Rússland getur hugsanlega haldið fram Úkraínustríð...: Það er greinilegt að viðkomandi ætti að kynna sér hversu Hátt e... 13.5.2024
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- gudspekifelagid
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 325
- Sl. sólarhring: 392
- Sl. viku: 1214
- Frá upphafi: 849403
Annað
- Innlit í dag: 298
- Innlit sl. viku: 1112
- Gestir í dag: 293
- IP-tölur í dag: 286
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning