ISIS hefur nú á skömmum tíma tekið tvær mikilvægar borgir -þ.e. Ramadi í Írak, og Palmyra í Sýrlandi

Palmyra er merkileg fyrir fornar rústir -hinnar fornu Palmyra borgar- en nútímaborgin sem stendur í grennd við þær rústir - - kvá vera mikilvæg samgöngumiðstöð þ.s. vegir mætast. Þannig að taka Palmyra sé mikilvægur -strategískur- sigur með sama hætti og taka Ramadi í Írak einnig virðist svo vera, þ.e. mikilvægur -strategískur- sigur.

ISIS Conquest of Palmyra Expands Militants’ Hold in Syria

  • Þetta virðist í fyrsta sinn, að -ISIS- tekur borg af stjórnarher Sýrlands.
  • En borgina Raqqa, tók -ISIS- af uppreisnarmönnum, er áður höfðu náð henni á sitt vald.

Taka Palmyra -- > Getur því markað viss tímamót í átökunum innan Íraks. En síðan -ISIS- spratt fram 2013, hefur -ISIS- í sýrlensku samhengi, stærstum hluta -fókusað á átök við aðra þátttakendur í sýrlenska borgarastríðinu en stjórnarher Sýrlands.

  • Þ.e. umráðasvæði -ISIS- hafi stærstum hluta verið tekið af -uppreisnarmönnum.
  • Síðan voru meginátök -ISIS- 2014, við sýrlenska Kúrda. Sbr. frægar loftárásir Bandaríkjanna Kúrdum til stuðnings.
  1. Það sé eins og að -ISIS- hafi nú árið 2015, ákveðið að leggja í stjórnarherinn í staðinn.
  2. Kannski vegna þess, að Bandaríkin séu mun síður líkleg, til að -beita loftárásum gegn liðssveitum -ISIS- þegar þær liðssveitir, beina spjótum sínum gegn liðssveitum Assads!
  • Enda hefur ríkisstjórn Obama marginnis lýst því yfir, að Addad og hans stjórn -verði að fara frá.
  • Það væri því afar erfitt -fyrir ríkisstj. Bandar. að veita herjum stjv. í Damascus stuðning með nokkrum hinum minnsta hætti.
  • Þannig, að -ef ég les rétt í plott ISIS- þá geti vel verið að það gangi upp.

Rústir hinnar fornu Palmyra

File:Palmyra, view from Qalaat Ibn Maan, Temple of Bel and colonnaded axis.jpg

Það eru vísbendingar uppi að her stjórnvalda í Damaskus sé í vanda

En fréttir hafa borist af -mannafla vanda, þ.e. að liðssveitir Assads eigi í erfiðleikum með það að -útvega sér nýja liðssmenn í stað fallinna.

Það bendi til þess að -ályktun mín um veikt bakland stjórnarinnar- sé rétt.

En það geti vel verið, að svo margir hafi fallið meðal þeirra hópa sem -enn styðja stjv. í Damascus, að þeir hópar séu að verða -uppiskroppa með karlmenn á bardagahæfu aldursskeiði.

  • Þetta t.d. kom fyrir liðssveitir Nasista í Seinni Styrrjöld, þegar árið 1944 var að nálgast enda.
  • En þá fóru nasistar, að herskylda unglinga niður í 14-15 ára, og karlmenn yfir hefðbundnum herskyldualdri.

Þegar gengið hefur á -baklandið- getur hnignunin orðið hröð.

Þ.e. þegar liðssveitir geta ekki útvegað sér nægilega marga nýja meðlimi, til að fylla í skörð -þá sé frekar mannfall líklegt til að neyða þær sveitir til að hörfa.

Svo koll af kolli, eftir því að frekari árásir leiða til mannfalls, og síðan frekara undanhalds.

  1. Það sé alveg hugsanlegt, að -ISIS- standi nú frammi fyrir tækifæri, til þess að -sækja gegn liðssveitum stjv. í Damascus.
  2. Þannig að verið geti, að Palmyra verði kannski einungis -fyrsta sýrlenska borgin til að falla til ISIS í ár.

Auðvitað -kemur að því, að liðssveitir Assads hafa hörfað það langt, að þær eiga engan valkost annan en að berjast af hörku.

En með því að hörfa, styttist víglínan, og auðvitað -hún færist nær þeim kjarnalöndum þ.s. svokallaðir "Alavítar" kjarninn í baklandi stjórnarinnar -býr.

 

Niðurstaða

Mér virðist hugsanlegt að -ISIS- skynji tækifæri í ár til þess að sækja fram gegn stjórnarher Sýrlands. Og að fall Palmyra geti markað upphaf þeirrar stórsóknar. Sem kannski marki upphaf að falli fleiri borga í Sýrlandi til ISIS.

Vegna þess hve neikvæð afstaða Vestrænna ríkja er til stjv. í Damascus -verði það afar ósennilegt að herir Vesturlanda muni beita sér gegn sókn ISIS á hendur stjórnarher Sýrlands.

Það sé hin ástæða þess, að ISIS standi sennilega frammi fyrir tækifæri, með því að beina sókn sinni gegn stjórnarher Sýrlands.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

 Það að vonlausir aular eins og ISIS geti rekið stjórnarherinn í burtu segir okkur einmitt í hve hörmulegu ástandi hann er orðinn.

Þeir geta ekki lengur reynt að halda einhverjum stöðum sem eru langt frá öllu.  Og ef þeir missa Palmyru, þá fylgir ansi stórt svæði.

Og nei, vesturlönd gera ekkert til að aðstoða Assad & co - þó hann sé vestrænasti gaurinn á svæðinu.  Það er búið að ákveða að hann sé óvinurinn.

Þetta heldur áfram þar til ættbálkarnir verða búnir að koma sér fyrir þar sem þeir geta haldið sínu svæði.  Eftir það mallar þetta aðeins, uns allir eru sáttir, og hætta, gerandi sér grein fyrir að ekkert mun breytast.

Ásgrímur Hartmannsson, 22.5.2015 kl. 18:09

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Við höfum svo sem flest tekið eftir þessu, en hvað er til ráða að þínu mati. Meira stríð eða að múslímar leysi sín má með siðbót á Íslam, sem er notuð til að réttmæta ofbeldið og fyrirlitninguna? Það er mín skoðun að siðbót sé og eina lausnin. Uppgjör Múslíma við Ísalm. Það uppgjör verður að koma frá múslímum sjálfum. Við eru ekki hluti af þessum vanda. Hann er heimatilbúinn, fluttur út og og endurinnfluttur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.5.2015 kl. 05:15

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 666
  • Frá upphafi: 849660

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 615
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband