Kreppan búin - segir Vilhjálmur Egilsson! En, er ţetta virkilega, bć - bć kreppa?

Viđ skulum ađeins anda rólega, segi ég. Ţví ekki eru enn búiđ ađ byrta heildrćnar niđurstöđur fyrir hagţróun fyrra helmings ţessa árs. Skođum hvađ Hagstofa Íslands sagđi um 1. ársfjórđung:

Fyrsti ársfjórđungur 2010, Hagstofa Íslands

  • Einkaneysla,   - 0,6%
  • Samneysla,     - 0,5%
  • Fjárfesting,   - 15,6% (kemur á móti aukningu á síđasta fjórđungi upp á 16,6%, nettó ef til vill
  •                                    fjárfesting plús 1)
  • Útflutningur,   - 3,6%
  • Innflutningur, - 3,3%
  • Ţjóđarútgj., + 1,3%
  • Hagvöxtur,  + 0,6%

Áhuga vekur ennfremur ađ án "árstíđabundinnar leiđréttingar" vćri veriđ ađ tala um samdrátt upp á 6,9% en ekki hagvöxt upp á 0,6%.

 

  • Vćntanlega tekur fólk eftir, ađ allir ţćttir dragast saman nema ţjóđarútgjöld og fjárfesting - ţ.e. ef mađur leggur saman fjárfestingu 1. ársfjórđungs viđ fjárfestingu ársfjórđungsins á undan.
  • Ţađ er ađ sjálfsögđu gleđilegt ađ kaupmáttur launa hafi hćkkađ nú.

En ţar spilar inn í, ađ nokkur verđhjöđnun mćldis í júní sl. af völdum lćkkana á bensíni, sem ađ nokkru leiti hafa veriđ teknar síđan til baka í júlí. Ef síđan ríkisstjórnin fer eftir tillögum nýlegrar skýrslu AGS (sjá mína umfjöllun um ţá skýrslu: Óháđ umfjöllun um skýrslu AGS um ísl. skattakerfiđ og ţćr tillögur AGS um skattbreytingar sem ţar fram koma! ) um ađ hćkka skatta á eldsneyti og virđisauka skatt á matvćli o.flr. - ţá auđvitađ er ţetta fljótt ađ ganga alveg til baka.

  • En ríkisstjórnin bađ um ţá skýrslu, ţví hún er ađ íhuga enn frekari skattaálögur.

Kaupmáttur eykst í fyrsta sinn frá hruni

"Launavísitala hćkkađi um 2,2 prósent frá maímánuđi, en rekja má ţetta afgerandi launaskriđ til ýmissa samningsbundinna launahćkkana sem komu til framkvćmda 1. júní síđastliđinn, til dćmis hjá ASÍ, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtćkja og BSRB."

"Kaupmáttur í júní síđastliđnum var ţví 0,3 prósentum meiri en í júní á síđasta ári, og 2,6 prósentum meiri en í maímánuđi."

"Ţannig má rekja kaupmáttaraukninguna í júní til launahćkkana annarsvegar og verđhjöđnunar hinsvegar sem átti sér stađ frá fyrri mánuđi."

"Kaupmáttarvísitalan stendur nú í rúmlega 106 og hálfu stigi, og hefur ţví rýrnađ um rúm ellefu prósent frá ţví í ársbyrjun 2008."

 

Takiđ eftir, ađ allt og sumt sem munar í fjölda atvinnulausra milli 2. ársfjórđung 2009 og 2. ársfjórđungs 2010 er 500 manns.

Sannarlega gott, ađ 500 fćrri séu atvinnulausir - en, ţetta er engin risasveifla. Ţarf ekki nema, ađ ferđamanna verđtíđin hafi veriđ ađ ganga vel. Einnig getur e-h munađ um, strandveiđar sjávarútvegs ráđherra, ţó umdeildar séu ţá veita ţćr aukna vinnu í sjávarbyggđum víđa um land.

  • Ef trend fyrra ársfjórđungs er svipađ ađ öđru leiti - ţá er út-/innflutningur enn ađ skreppa saman, sem og samneysla.

Vinnumarkađur á 2. ársfjórđungi 2010

Atvinnuleysi 8,7%
Á öđrum ársfjórđungi 2010 voru ađ međaltali 16.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eđa 8,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mćldist 9,4% hjá körlum og 8% hjá konum. Frá öđrum ársfjórđungi 2009 til annars ársfjórđungs 2010 fćkkađi atvinnulausum um 500 manns.

 

Niđurstađa

Ég held ađ ţađ sé fullsnemmt ađ kveđja kreppuna ađ sinni.

  • Enn eru skuldamál mjög erfiđur hemill á vöxt fyrirtćkja - sbr. 40% lána séu í vandrćđum.
  • Sama á viđ um heimili, ţ.s. tugi ţúsunda heimila eru á barmi örvćntingar. 
  • Ţjóđfélagiđ vantar enn umtalsvert upp á heildartekjur til ađ standa undir núverandi skuldbindingum, sbr. ađ enn er nettó viđskiptahalli viđ útlönd.
Heildartölur yfir efnahagslegar hreyfingar 2. ársfjórđungs hafa ekki enn veriđ byrtar.

 

Kv.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Nauđsynlegt er ađ skrá sig inn til ađ setja inn athugasemd.

Um bloggiđ

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Eldri fćrslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 333
  • Sl. sólarhring: 400
  • Sl. viku: 1222
  • Frá upphafi: 849411

Annađ

  • Innlit í dag: 306
  • Innlit sl. viku: 1120
  • Gestir í dag: 300
  • IP-tölur í dag: 293

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband