Afar heimskulegri hugmynd vex fylgi í Repúblikanaflokk Bandaríkjanna -- beita herafla Bandaríkjanna innan landamæra Mexíkó, burtséð frá vilja stjórnvalda Mexíkó!

Þetta hef ég eftir vef, Politico.com: GOP embraces a new foreign policy: Bomb Mexico to stop fentanyl. Bandaríkjamenn fá stöku sinnum yfirmáta heimskulegar hugmyndir. 
Tek fram, að ég tel litlar líkur á að -- af hernaðarárás á Mexíkó verði.
Ekki einungis að, núverandi ríkisstjórn Bandar. mundi aldrei samþykkja slíkt.
Heldur ekki síður, flest bendi til að yfirmenn hers Bandaríkjanna - séu móti hugmyndinni.

Hér er nokkurs skonar stefnuplagg, Repúblikana áhugamanna um, innrás í Mexíkó:
It’s Time to Wage War on Transnational Drug Cartels.

Trump's tax returns reveal president's foreign bank accounts - BBC News
Donald Trump -- lét hafa eftir sér:
Trump Asks Advisers for Battle Plans to ‘Attack Mexico’ if Reelected

Að hann vilji stúdíu á hugsanlegum hernaðar-aðgerðum, innan Mexíkó - til hugsanlegrar beitingar, ef hann mundi ná aftur kjöri sem forseti Bandaríkjanna.

Trump: But the drugs that are pouring into our country, killing everybody, killing so many people — there’s no army that could ever do damage to us like that still.

Trump er ekki sá eini, sem hefur látið eftir sér hafa, hugmyndir um hernaðaraðgerir innan Mexíkó - með eða burtséð frá vilja stjórnvalda í Mexíkó.

2-þingmenn Repúblikana, Crenshaw og Waltz, hafa lagt fram formlegt frumvarp til Bandaríkjaþings, þ.s. hernaðaraðgerðir yrðu heimilaðar innan Mexíkó:
Reps. Crenshaw and Waltz Introduce AUMF Targeting Mexican Drug Cartels.

  1. Crenshaw sagði: The cartels are war with us – poisoning more than 80,000 Americans with fentanyl every year, creating a crisis at our border, and turning Mexico into a failed narco-state, ...
  2. It’s time we directly target them. My legislation will put us at war with the cartels by authorizing the use of military force against the cartels. We cannot allow heavily armed and deadly cartels to destabilize Mexico and import people and drugs into the United States. We must start treating them like ISIS – because that is who they are. ...

Marjorie Taylor Greene, og Beth Van Duyne - hafa einnig lagt fram sambærilegar hugmyndir.

Rep. Senatorarnir, Lindsey Graham, og John Kennedy, hafa lagt fram aðra tillögu, sem einnig mundi heimila -- hernaðaraðgerðir innan Mexíkó, sbr. orðalag, að heimila aðgerðir gegn -- eiturlyfjahringjum, hvar sem þá er að finna.

Mynd sýnir dauðföll í Bandar. af völdum ópíumíða - hvort tveggja löglegum og ólöglegum!
Hlekkur á mynd!

Figure 3. National Overdose Deaths Involving Any Opioid*, Number Among All Ages, by Gender, 1999-2021

Að sjálfsögðu þíddi það stríð, að hefja óheimilaðar hernaðaraðgerðir af stórfelldu tagi, innan landamæra Mexíkó -- burtséð frá, að skv. orðan, sé ætlað að beita þeim gegn eiturlyfjahringjum!
Að sjálfsögðu er Fentanyl mjög alvarlegt vandamál innan Bandaríkjanna.
En þ.e. ekkert sem bendi til þess, að stórfelld hernaðarárás á svæði þeirra innan Mexíkó, sé líklegt til að -- skapa nokkra lausn á því vandamáli.
--Hinn bóginn, gæti það ræst stríð - í landi, þ.e. Mexíkó - þ.s. búa 130 millj. manns.

Mark Milley, Joint Chiefs Chair

Fact Check: Has Gen. Mark Milley Ever Served in Combat? - The Dispatch

Milley: I wouldn’t recommend anything be done without Mexico’s support,...

M.ö.o. hann, vill ekki stríð -- við Mexíkó.

Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó

Mexico president accused of hypocrisy for backing tough anti-protest laws |  Mexico | The Guardian

Obrador sagði: In addition to being irresponsible, it is an offense to the people of Mexico,... í orðum, er hann hafnaði með öllu, slíkum hugmyndum.

Haft eftir - gagnrýnanda innan Repúblikanaflokksins:

  1. If you thought Iraq was a bad situation, wait until you invade a country on our border, ...
  2. Our grandchildren will be dealing with this.

Þessi orð lýsa í hnotskurn - hversu hrikalega heimskulegar þessar hugmyndir eru.

  1. Mexíkó er 130mill. manna þjóð.
  2. Ca. 30% af Mexíkó er undir stj. eiturlyfjahringja - er þíðir, að milljónir íbúa landsins, búa undir þeirra hæl.
    Það sé alveg örugglega af og frá, að umfangsmiklar hernaðaraðgerðir, yrðu án verulegs mannfalla, almennra borgara.
  3. Varla þarf að búast við því, að slíkar aðgerðir - ef þær hefðu ekki stuðnings Mexíkóa -- að þær stuðluðu að friði - milli Bandar. og Mexíkó.
    Eða, að þær mundu efla samhug milli Bandar. og íbúa Mexíkó.
  4. Augljós hætta væri -- átök breiddust yfir landamæri, yfir til Bandaríkjanna.

Þetta er - hin fullkomna uppskrift fyrir Bandar., að stríðinu endalausa.
Ekki síst, að Bandaríkin gætu átt í erfiðleikum með að labba frá því, síðar.

Þ.s. eftir allt saman, eru landamæri landanna löng, líklega gerist að átökin yrðu beggja vegna landamæra fyrir rest, gæti þetta orðið að átökum sem mjög erfitt væri að stoppa.

Ég held því að það sé ekki endilega ýkjur -- að næstu kynslóðir Bandar.
Væru að glíma við þau átök!

Að sjálfsögðu, mundu þau átök - ekki lama eiturhringina, né stöðva flóð eiturlyfja! Ef e-h er, gætu átökin aukið þar um!
Einfaldlega vegna þess, að stríð er -kaos- og glæpir einmitt þrífast velt, í kaosi.

  1. Þ.s. heldur eiturhringjum gangandi, er eftirspurn eftir eiturlyfjum.
  2. Þ.e. gríðarlega útbreidd eyturneysla innan Bandar. er skapar markað, sem er það gróðavænlegur - að það skipti engu máli, hve margir eiturbarónar væru vegnir, nýir spryttu upp jafn harðan, og ef einn hringur væri eyðilagður - sprytti upp annar.
  3. Svo mikill er gróðinn af eitursmygglinu, að eiturhryngirnir eru afar vel fjármagnaðir, afar vel skipulagðir -- risa-fyrirtæki, eiginlega.
    Og þeir ráða yfir miklu magni vopna.
  • Stríð mundi eyðileggja samskipti Mexíkó og Bandar, í langan tíma.
  • Fyrir utan, mig grunar -- að Kínverjar mundu smyggla vopnum til, sérhvers þess innan Mexíkó, er mundi vera til í að berjast við bandr. hermenn innan Mexíkó.

Fyrir Kína, væri það einmitt fullkomið tækifæri, til að -- tryggja að Bandar. yrðu rækilega föst í kviksyndi - um langa, langa, langa, hríð.

Þetta er miklu verri hugmynd, en innrás George W. Bush í Írak, 2003. Ég segi það, er ég álít 2003 innrásina eitt það heimskulegasta Bandar. nokkru sinni hafa gert.

Meira að segja, Bolton -- segir þetta slæma hugmynd:
Bolton - ...unilateral military operations are not going to solve the problem.

 

Niðurstaða
Ég verð að segja það -- að ég held að hugmyndir um, hernaðar-innrás í Mexíkó -- sé sú allra versta hugmynd um meiriháttar stefnumótandi aðgerð, sem ég hef heyrt um, frá áhrifamiklum pólitíkusum innan Bandaríkjann!
Sbr. að ofan, miklu heimskari hugmynd, en 2003 Írak. Sem þó var, rosalega heimskuleg.

Sannarlega eru ópíumíð, gríðarlegt vandamál -- en, aðgerðir af því tagi, sem velt er fram, mundu 1)ekki leisa málið að nokkru leiti, og 2)skapa nýtt líklega afar langvarandi og ill-leysanlegt, þ.e. stríð innan Mexíkó er örugglega mundi flæða milli landamæranna, sem Bandaríkin gætu verið föst í -- heilu kynslóðirnar.

Þetta virkilega gæti orðið stríðið, Bandaríkin aldrei gætu losnað frá!
Tölum um að gera illt, miklu miklu miklu mun verra!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Þór Emilsson

Þetta er svo mikil þvæla, war on drugs misheppnaðist. Það þarf að leyfa dópið, tryggja gæði þess og veita fólki sem vill neyta þess aðstoð. Ekki fara í stríð og fangelsa neytendur.

Emil Þór Emilsson, 12.4.2023 kl. 17:23

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Emil Þór Emilsson, sleppum dogma - efa það sé ein lausn er passar fyrir allt. Eða tókstu ekki eftir myndinni að ofan, er sýnir hve margir í Bandar. látast ár hvert, af völdum ópíumíða? Hvernig mundi - afglæpavæðing - fækka þeim er látast af völdum ópíumíða? Þ.e. það mannfall sem keyrir upp reiði innan Bandar. - sem skapar slíkum hugmyndum fylgi. Ef þetta mannfall heldur áfram, sérstaklega ef það vex frekar -- þá augljóslega vex sú ónáægja.
Það eru ekki öll -eiturlyf- þetta mikið mannskæð. Klárlega síður varasamt að afgæpavæða efni, sem eru ekki -- þetta gríðarlega bannvæn fyrir þá er neita þeirra efna.
Augljóslega er stríð í engu samhengi, rétta leiðin. Vísa til hugmynda um innrás í Mexíkó.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 12.4.2023 kl. 22:26

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Ef hinn elliæri Joe Biden hefði ekki lagt niður stefnu Donalds Trumps í landamæramálum Mexíkó/Bandaríkjanna, væri þetta ekki vandamál.  Stefna hans, sem svínvirkaði, var að neyða Mexíkóa til að vakta sín landamæri (að Suður-Ameríku og að Bandaríkjunum) með 27 þúsund hermenn og "remain in Mexico" stefnu fyrir ólöglega innflytjendur auk þess að að byggja landamæramúr.

Í dag er þetta open border/opin landamæri, líkt og á Íslandi og ég hef heyrt tölur upp að 5,5 milljónir ólöglegra hælisleitenda (sem hafa náðs í valdatíð Bidens) hafi streymt yfir landamærin. Þetta er jafngildi þrælahaldi, því að fólkið sem er smyglað yfir, er nauðgað, drepið og selt í ánauð (vændi og þrælavinnu). Það þarf að borga fyrir flutninginn yfir landamærin dýrum dómum.

Eiturlyf frá Mexikó eru að drepa um 100 þúsund manns á ári (auk annarra glæpa). Það er stríð gegn fólkinu. Og það þýðir ekki bara að leyfa dópið, því að fendanyl er blandað út í önnur eiturlyf (án þess að fólk viti af því) og getur drepið með einum skammti.

Birgir Loftsson, 13.4.2023 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 757
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 693
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband