Borgin Lysychansk í Úkraínu fallin eftir einungis rúma viku af bardögum; sókn Rússa umliðna daga virkar betur skipulögð en oft hingað til! Ekki séð rússn. herinn sækja þetta hart fram síðan stríðið hófst!

Ég er að meina, Úkraínuher hörfaði frá Sievierodonetsk - fyrir einungis 1 og hálfri viku, rússn. herinn er þá kominn að Lysychansk - eftir að hafa brotist í gegnum varnir Úkraínu á Vestari bakka Severskyi-Donets ár; en borgirnar eru sitt hvorum bakka Donets ár.
Það tók Rússa ca. 2-vikur að ná að Lysichansk, eftir Rússa-her komst yfir ána!

  • Fyrir rúmri viku, tekur Úkraínuher - loka-varnarstöðu í Lysychansk.
    Þá meina ég - loka - í samhengi Luhansk héraðs.
    En borgirnar 2. - og smærri nágranna sveita-félög.
    Hafa verið síðustu vígi Úkraínu, í Luhansk héraði.
  • Síðan núverandi lota stríðsins hófst, í Apríl.
    Hafa bardagar um -- síðasta 10% af Luhansk, staðið yfir.
    Nú, virðist að Rússar séu ca. búnir að taka Luhansk.
    Úkraínuher, sé enn í ferlinu að hörfa þaðan, undir árásum.
    Svokallað - fighting retreat.

Þannig -- að átökin um, síðasta svæðið Úkraína réð í Luhansk -- tók 3 mánuði.

Ukraine Conflict Updates: Click here to read the full report.

Talið er að Úkraínuher sé að hörfa að -- verjanlegri línu.
Skv. yfirlýsingu frá Úkraínu-stjórn, var styrkur sá er Rússlands-her, safnaði saman gegn, Lysychans, undanfarna daga - einfaldlega of mikill.

  1. Úkraínuher hafi verið borinn ofur-liði, út af liða-muninum!
  2. Þ.s. Rússa-her hefur ekki betri vopn:
    --Þá er gamla reglan sú, að ca. 3-faldan liðsmun þurfi til.
    --Ef taka á vígi, þ.s. lið er til varnar, sem er búið a.m.k. ekki lakari vopnum.
  • Það þíði auðvitað, að árásin býður mikið manntjón.
    En samtímis, að ef árásin hefur nægan liðsafla.
  • Getur hún þrátt fyrir slíkt tjón, tekið vígið.
Engar tölur liggja fyrir um mannfall -- en það hlýtur að hafa verið mikið.
Að sjálfsögðu, ef menn taka -- vel varið vígi, í krafti liðsmunar.
--Án þess að hafa nokkuð annað er skapi forskot.
Þá rökrétt, hefur árásin -- meira manntjón.
 
En árás ef hún hefur nægt lið, getur samt tekið varið vígi.
Það verður síðar að koma í ljós -- hvort Rússa-her varð fyrir slíku manntjóni við þetta!
--Að það verði ekki mögulegt að endurtaka leikinn!
  • En þ.e. alveg hugsanlegt, þetta sé -- Phyrric victory.
    Get auðvitað ekkert fullyrt um það!
  • En, framvindan nk. daga og vikur -- mun leiða það fram!
    --Einfaldlega það, hvort Rússar missa dampinn - í kjölfarið.
    --Eða, geta haldið áfram af sambærilegu afli.

En til þess að halda áfram að slíkum krafti - án þess að hafa betri vopn - þá þyrftu þeir áfram að viðhafa - 3faldan liðs-styrk a.m.k. á hvern punkt, þeir ráðast á!
Þá að auki, vegna mannfalls, þá þurfa Rússar einnig að geta fært til lið á sóknar-punktinn, til að mæta mannfalli -- svo sóknarþunginn geti haldist!
--Annars veikist sóknin dag frá degi, og fjarar síðan út!
--Það auðvitað skiptir að auki máli, að Rússar hafi heilt yfir nægt lið.
Til þetta sé allt hægt, þá ekki síst, þarf að auki góða herstjórn - svo liðið sé alltaf á réttum stað á hverjum tíma! Ef herstjórn er í molum, geta árásir mistekist út af því, þrátt fyrir liðsmun - eins og við höfum a.m.k. nokkrum sinnum séð!

Russian forces have likely secured the Luhansk Oblast border, although pockets of Ukrainian resistance may remain in and around Lysychansk.  Russian forces have likely not fully cleared Lysychansk and Luhansk Oblast as of July 3, despite Shoigu’s announcement. The Russian Defense Ministry stated that Russian forces are still fighting within Lysychansk to defeat remaining encircled Ukrainian forces, but the Ukrainian withdrawal means that Russian forces will almost certainly complete their clearing operations relatively quickly.

Russian forces will likely next advance on Siversk, though they could launch more significant attacks on Bakhmut or Slovyansk instead or at the same time. Ukrainian forces will likely continue their fighting withdrawal toward the E40 highway that runs from Slovyansk through Bakhmut toward Debaltseve. It is unclear whether they will choose to defend around Siversk at this time.

Two very senior Russian commanders are reportedly responsible for the tactical activities around Lysychansk. Commander of the Central Military District Colonel General Aleksandr Lapin and Commander of the Russian Aerospace Forces Army General Sergey Suvorikin (who also commands Russia’s “southern” group of troops in Ukraine) have been responsible for securing Lysychansk and the area to the west of it respectively.[4] The involvement of two such senior officers in the same undertaking in a small part of the front is remarkable and likely indicates the significance that Russian President Vladimir Putin has attributed to securing Lysychansk and the Luhansk Oblast border as well as his lack of confidence in more junior officers to do the job.

Eins og kemur fram - voru 2 hershöfðingjar að stjórna árásinni!
Það þykir óvenjulegt, þykir benda til gríðarlegrar áherslu á að klára töku Luhansk!

  1. Það vekur athygli, að framrás Rússa sl. 2 vikur, hefur verið -- sérdeilis öflug miðað við vikurnar og mánuðina 2-3 á undan.
  2. Það getur skýrst að mun betra skipulagi - þ.e. betri stjórnun.

Það getur þítt, Rússa-her hafi lagað - er virðist hafa verið, augljós stjórnunarvandi.

  • Næst talið að barist verði um: Bakhmut - eða, Siversk.
  • Borgin, Kramatorsk - er síðan í tuga km. fjarlægð.

Það er óþekkt hvort ný-til-kominn þungi í sókn Rússa getur haldist!
Rétt að árétta, þó Úkraínumenn hafi nú tapað -- Luhansk nú alfarið.
Ræður Úkraínuher, enn ca. helming -- af Donetsk héraði.
--Þar er fjöldi borga, sbr. Kramatorsk ég nefndi, sem enn á eftir að berjast um.
Ef maður gefur sér að sókn Rússa, fjari ekki út.
Heldur að Rússar hafi enn nægt lið, að skipulags vandi Rússa-hers sé leystur.
Það hafi verið - command problems/forystu-vandi fremur en skortur á liði.

  1. Rétt samt að árétta, að ég hef sterka vantrú á því, að Rússar hefi getu til að -- framhalda þeim sóknar-þunga er kom fram sl. 2 vikur.
  2. Líklega, hafi lið verið fært til frá allri yfir 2000km. langri víglínu Rússa í Úkraínu, á svæðið nærri Lysichansk.

Með þeim hætti, hafi myndast -- sá ca. 3-faldi liðsmunur er til þarf!

  1. Áætlað er að Rússa-her hafi ca. 100þ. liðsafla í Úkraínu í dag.
    Sbr. áætlað 190þ. er innrásin hófst.
  2. Við upphaf stríðs, er Úkraínu-her áætlaður ca. 260þ.

Hinn bóginn segir það ekki allt -- tölur í fjölda hermanna!

  • Rússar hafa mun flr. skriðdreka og önnur bryntæki, sem og mun flr. fallbyssur.
  1. Það er ekki síst í fj. fallbyssa, að Rússar hafa enn, yfirburði.
  2. Úkraínumenn, eru búnir að klára -- 152mm skotfæri.
    Þannig að gömlu fallbyssurnar, eru ekki -- enn nothæfar.
  • Úkraína, treystir nú á 155mm. byssur, NATO hefur sent Úkraínu.
    En, enn sem komið er, eru þær ekki nægilega margar.
  • Úkraína er samt sem áður, að fá nk. vikur mun flr. slíkar en til þessa.
    Þar við bætist, að Úkraína, þarf að taka tíma í að þjálfa sinn her í notkun þeirra.

Það er því nú -- tímabil, að Rússar hafa verulega yfirburði í stórskota-liði.
Það tímabil -- yfirburða, líklega tekur endi á nk. vikum.
Eftir því, sem NATO fall-stykki, verða tekin í notkun.
Mig grunar, að þetta sé málið, þ.e. tímabundnir yfirburðir -- einungis tímabundnir.

  • Þrátt fyrir þá - tímabundnu yfirburði - hefur sókn Rússa ekki verið hröð, þetta sumar.
  • En ekki gleyma því, að síðan í Apríl - hefur orrustan um síðasta 10% af Luhansk staðið yfir -- þ.e. um borginar: Sievierodonetsk - Lysichansk.
    Þá meina ég þær borgir, ásamt smærri nágranna-sveitafélögum.

Ef það tekur Rússa-her 3-mánuði, að ná síðasta 10% prósentinu af Luhansk!
Á ég ekki von á því, að Rússa-her geti tekið 50% af Luhansk, Úkraína enn ræður!
Fyrir nk. haust, er haust-rygningar hefjast, og landið víða verður að feni.

INTERACTIVE - WHO CONTROLS WHAT IN UKRAINE- JULY4_2022

Stríðið gæti vel breyst aftur nk. haust, þá verður Úkraínuher kominn með megnið af NATO vopnum sínum, auki búinn að fá öflugan lyðsstyrk!

  1. Úkraína fyrirskipaði almennt herútboð er stríðið hófst.
    Úkraína hefur nú þjálfað - conscript - í 4 mánuði.
    En öllum karlmönnum á herskyldualdri var skipað í herinn, við upphaf innrásar.
    Skv. hefð, teljast 6 mánuðir lágmarks tími, svo - nýliðar séu nothæfir.

    Rússar hafa ekki - ennþá fyrirskipað almenna herskyldu, og þeir þyrftu auðvitað einnig að þjálfa nýliða! A.m.k. 6 mánuði.
    Úkraína hefur þarna því -- augljóst forskot.
  2. Enn einu sinni, bendi ég á að Úkraínuher er að fá stærri vopnasendingar frá NATO, en nokkru sinni fyrr -- meir en líklega samanlagt fram til þessa.
    Það verður spennandi að sjá, hvaða áhrif það hefur á framgang stríðsins.

    Í haust, ættu þau vopn vera komin í notkun í stríðinu.
    Og því tímabundnir yfirburðir Rússa í stórskota-liði, búnir.

Bendi á að 155mm. stórskotavopn NATO hafa lengra drægi, en Sovét smíðuð 152mm vopn.
--Ca. 10km. drægi umfram Sovét-tímabil stórskota-vopn.
Þá miða ég við, venjulegar kúlur - en drægi NATO vopna er ca. 30km. með venjulegum kúlum!
Með, kúlum er hafa - litla vængi, nægilega til að framkalla svif - er drægi 40km.
Með - rocket assisted - nær drægið tæknilega upp í 70km.

  • Þ.s. skiptir mestu máli, er drægið með venjulegum kúlum.
    Þ.s. 20km. gömlu Sovét vopnin vs. 30km. NATO vopnanna.

Að auki, eru NATO vopnin með - tengingu við radar, og hafa mikla sjálf-virkni.
Þannig, vopnin geta sjálfvirk skotið, ef stillt þannig, til að skjóta á móti stórskota-vopni andstæðings, með mikilli nákvæmni því miklum hraða.
Spurning hvaða kúlur Úkraína fær, en ef þær hafa stýri-ugga, er nákvæmnin centimetrar.

Þær tölur sem Zelensky birti, er stríðið hófst -- voru upp á yfir milljón.
Þá meina ég, að her Úkraínu yrði yfir milljón stór -- með consript.

Síðan þá, hefur ekkert verið talað um þann her, sem Úkraína er með í þjálfun.
En rökrétt, ná þeir 6-mánaða lágmarks þjálfun v. upphaf nk. hausts.

  1. Nk. haust, gæti því Úkraína, samtímis haft - 3-faldan liðsmun á Rússa.
  2. Og, haft næg stórskota-vopn, sem eru betri en vopn Rússa!

Þ.e. út af þessu, sem ég velti fyrir mér hvort sókn Rússa sé: Positioning!

  • Rússar séu að leitast við að ná framrás, áður en Úkraínuher, hefur að fullu tekið öll þau vopn í notkun, og áður en nýþjálfaður her sé tilbúinn.
  • Rússar séu að leita eftir -- betri vígsstöðu!

Áður, en endurnærður Úkraínuher, geri loks sínar -- sóknar-tilraunir fyrir alvöru.
Ég ætla a.m.k. að kasta þeirri kenningu fram!
Tilgangur Rússa, sé að bæta vígsstöðu sína, áður en Úkraínumenn, undir haustið hafa loks getu til að sækja sjálfir fram!

Niðurstaða
Eins og fréttir um allan heim segja, hafa Rússar loksins eftir 3ja mánaða orrustur, ca. lokið töku - Luhansk héraðs í Úkraínu, þ.e. þeirra 10% af Luhansk Úkraína enn réði yfir í Apríl sl.
Orrustan um Lysychansk, stóð ekki yfir nema ca. eina og hálfa viku.
Að sögn Úkraínumanna, voru yfirburðir Rússa í orrustunni um borgina, miklir.

Þ.s. Rússar hafa í reynd ekki yfirburði í liði, þá vítt yfir Úkraínu.
Þá hljóta Rússar hafa fært lið á punktinn við, Lysychansk, frá öðrum víglínum.
Þannig, þynnt út lið sitt á þeim línum!
Það kemur ekki á óvart, litlar til engar hreyfingar hafi verið annars staðar.

Úkraínumenn sl. 2-3 mánuði, hafa tekið nokkuð svæði við Kherson. En blái liturinn á myndinni að ofan, sýnir hvar Úkraína, þrýsti á varnarlínu Rússa á því svæði.
Úkraína, hefur ekki þó náð þar, gegnum-broti.

Ekki er vitað, hvar Úkraína væri líklegust til að gera, sóknar-tilraunir.
En það væri óneitanlega freystandi, tel ég, að setja meira lið á Kherson línuna.
Þ.s. Úkraínuher er næst Kherson ca. 17 km., þ.e. mun nær Kherson, en Rússa-her er miðað við borgina Kramatorsk.

Ef Úkraína, gæti með flr. NATO fallbyssum, sprengt gat á þá línu.
Í ljósi þess, Rússar hafa líklega þynnt varnar-lið á þeirri línu.
Til að hafa nóg lið til að sækja fram í Luhansk, kannski áfram í Donetsk.
Þá er gegnumbrot á Kherson línunni, ekki óhugsandi í framtíðinni.

  • En Rússar augljóslega taka áhættu í sókn sinni.
  • Er þeir þynna varnir annars staðar.
  1. Líklega er það einungis skortur á stórskota-vopnum, er hafi hindrað gegnumbrot Úkraínu nærri Kherson -- þegar Úkraína hefur næg slík vopn í notkun.
  2. Og að auki, mörg hundruð þúsund til milljón - conscript - tilbúna til átaka.

Þá sé ég möguleika er geta vel reynst raunhæfir, til að stríðið gæti tekið stakka-skiptum.

Endurtek, að ég tel - yfirburði Rússa í stórskota-liði, einungis tímabundna. Rússar séu líklega að notfæra sér glugga. Áður en Úkraína hefur tekið stórar sendingar af NATO stórskotavopnum í notkun, og áður en fjölmennur - conscript - her er tilbúinn.
Til að skapa sér betri vígsstöðu! En mig virkilega grunar það sé málið hjá Rússum.
--------
Átök nk. hausts og vetrar geta skorið út um hvernig stríðið raunverulega fer.

  • Ef Pútín, fyrirskipar almennt herútboð, þurfa Rússar einnig a.m.k. 6 mánuði til að þjálfa það lið -- tæknilega geta Rússar sókt sér 2 millj. af conscript.
  • Eins og ég benti á, hafa Úkraínumenn þar um - 4ja mánaða forskot.
    Sbr. hafa nú þjálfað conscript her samfellt síðan innrásin hófst.

Gæti reynst meiriháttar axarskaft hjá Pútín, að hafa ekki enn: Fyrirskipað almennt herútboð.


Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Rússar eru að nota 10% af mannskap sínum í þetta.  Flutningaleiðirnar eru stuttar og greiðfærar, öll vopn komast alla leið.  Mannskapurinn kemst heim í frí, og honum er róterað.
Rússar hafa fallbyssur, og nota þær, og eitthvað af þyrlum sem geta skotið einhverjum eldflaugum marga kílómetra.

Úkraínumenn eru að nota allt tiltækt lið.  Flutningaleiðirnar eru langar og torfærar, vopn eiga til að lenda á svarta markaðnum (núna geturðu fengið eldflaugabyssu á $15.000, eða M-4 karbínu og slatta af ammó á $2400, ef þú veist hvar á að leit.)
Mannskapnum er ekki róterað.  Hvar fallbyssurnar eru veit enginn.

Þeir eru núna að plaffa yfir landamærin, meðal annars á Hvít Rússa, til að breiða bardagann út, því þá dragast vesturlönd frekar inn í þetta, sem er eina vonin í stöðunni.

Við þurfum öll að halda okkur langt frá þessum áflogum.  Ef þetta endar ekki innan árs þá er eins víst að þeim takist að starta WW3.  Ég þarf það eins og auga á lifrina.

Gaman samt að vita af terroristum með breskar eldflaugabyssur og amerískar karbínur hlaupandi um í Evrópu.  Alltaf gaman af svoleiðis.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.7.2022 kl. 17:08

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ásgrímur, voru ekki Rússar að gera árásir á Úkraínu frá Hvíta-Rússlandi? Annars er ég sammála þér að það er óþægileg tilhugsun, að engin leið er að vita í hvaða vafasömu höndum þessi hátæknilegu vopn geta lent. Gerðist ekki svipað eftir stríðið í gömlu Júgóslavíu? Mig minnir að glæpagengin hér í Svíþjóð hafi einmitt fengið vopn þaðan og að þau (vopnin frá Júgóslavíu) hafi flætt um alla V-Evrópu.

Theódór Norðkvist, 4.7.2022 kl. 21:51

3 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það er afar áhugavert að fylgjast með hvernig þessum hernaði vindur fram þarna á Donbass svæðinu.
Svæðin sunnan oog norðanvið eru minna áhugaverð af því að þar ríkir í raun stöðnun. Það eru engar tilraunir til landvinninga svo teljandi sé.
Það sem maður rekur sig strax á er að það eru Rússar sem stjórna alfarið ferðinni í þessu stríði.
Þeir ákvaða alfarið hvar er barist og hvenær.
Þetta er að sumu leiti merkilegt í ljósi þess að herinn sem þeir sækja með er nánast helmingi minni en sá sem er til varnar. Þetta er afar óvenjuleg uppstilling. Venjulega er innrásarherinn stærri,ca 3 á móti einum.
Það er því nokkuð augljóst að Rússar hafa stjórnað þessu stríði af mikilli snilld og margir sérfræðingar telja að þetta muni rata í kennslubækurnar þegar stríðið hefur verið gert upp.
Það sem einkennir þetta stríð er að Rússar sækja stöðugt á svæðum sem þeir ákveða sjálfir og Úkrainumenn verjast í virkisborgum sem hafa verið vígbyggðar svo árum skiftir.
Í öllum tilfellum þurfa þeir síðan að yfirgefa þessi virki og færa sig í næsta virki á bakvið.
.
Það sem einkennir stríðið er að Rússar eru ekkert að flýta sér. Það er nokkuð augljóst.
Þeir hafa aldrei sett nein tímamörk í þessu stríði.
Öll tímamörk sem hefur verið talað um í þessu sambandi hafa verið sett af Vestrænum aðilum ,í áróðursskini og eru því með öllu ómarktæk.
Markmið Rússa er ekki að setja heimsmet í að taka yfir land.
Marmiðin eru að taka að lokum yfir svæði sem þeir hafa áhuga á.
Þetta þarf að gerast með lágmarkskostnaði og þess vegna hafa Rússar ákveðið að þetta stríð fari fram með stórskotaliði ,fyrst og fremst.
Dýrari úrræði eins og loftárásir og stýriflaugar eru nánast eingöngu notuð til að taka út verðmæt skotmörk að baki víglínunnar, svo sem stórar vopnabyrgðir og stjórnstöðvar.
Þetta er Rússum afar hagfellt af því að framleiðslugeta þeirra á þessum búnaði er óhemju mikil og hann kostar afar lítið í framleiðslu.
Markkmiðinu um ódýrt stríð hefur því verið náð.

Annað markmið er að takmarka mannfall.
Á upphafsdögum stríðsins var töluvert mannfall hjá Rússum,en eftir að þeir breyttu yfir í stríðsaðferðir sem henta þeirra hernaðaruppbyggingu hefur mannfall þeirra verið hverfandi.
Hæg framvinda stríðsins er beinlínis gerð til að stórminnka mannfalla sóknaraðilans.
Hernám Severodonetsk og síðan í framhaldinu Lisishansk er skólabókardæmi um hvenig á að taka svæði með lágmarks mannfalli.
Rússarniir koma að Severodonetsk frá austri og norðaustri,taka hluta af borginni án mikilla bardaga. Svo bíða þeir.
Þeir fara ekki inn í skotgeira virkisborgarinar Lisishansk sem er hinumegin við ána. Þeir gera enga tilraun til að ráðst framanað virkisborginni.
Þarna bíða þeir þangað til að það kemur her að sunnan og kemur á bakvið Lisishansk og er kominn í færi við borgina í bakið á þeim sem verja hana.
Í þessari stöðu er ekkert fyrir Úkrainuher að gera annað en að forða sér hver sem betur getur.
Átökinum Lisishansk eru hverfandi og mannfall Rússa lítið.
Manntjón Úkrainumanna er hinsvegar um 6000 manns ,fallnir særðir og herteknir.
Þetta er einfaldlega snylldarlega útfærð aðgerð.
Ástæðan fyrir því hvað hæg framvinda er mikið atriði fyrir Rússa eru gríðarlega miklir yfirburðir þeirra í stórskotaliði.
Þeir geta einfaldlega bombarderað Úkrainumennina dögum saman án þess að Úkrainumenn fái rönd við reyst.
Þannig veikja þeir vörnina sem síðan gerir frekar auðvelt að yfirtaka virkin þeirra. Oft gerist það án mikila eða jafnvel algerlaga án bardaga.
Varnarvirkin sem áttu að stöðva Rússana hafa því breyst í einskonar biðsal dauðans fyrir Úkraninumenn.
Í öllum tilfellum þurfa þeir að lokum að yfirgefa þessi virki ,oftast með töluverðu manntjóni.
.
Svona hernaður er ekki tilviljunarkenndur.
Rússar líkt og aðrir herir hafa síanar reglur um hvernig sókn og vörn er háttað.
Reglan sem Rússar nota er að ef þeir ætla að sækja þá safna þeir liði sem nemur ca 700 manns á hverja fimm kílómetra.
Ef þeir ætla að verjast eins og víðast hvar utan Slaviansk svæðisins þá hafa þeir 700 manns á hverja 17 til 20 Km.
Þetta virðist vera rétta blandan,allavega tekst þeim ágætlega að halda því sem þeir hafa náð og eru stöðugt að bæta við þar sem þeir ætla að sækja. 
Það sem gerir þeim auðveldara um vik ,er að þeir stjórna algerlega ferðinni hvar er barist.
Rússar hafa sóknina aldrei þéttari en 700 manns á fimm kílómetra af því að það gerir lítið fyir sóknina ,en það eykur hinsvegar mannfallið.
Það eru fleiri skotmörk fyrir óvinin.
Nú hefur það gerst að undanfarna daga hefur víglínann verið að styttast verulega og þá hefur losnað um töluvert herlið sem nú verður flutt á nýja átakapunkta sem Rússar ákveða hvar eru og sókin í átt að Slaviansk mun halda áfram af sama krafti eftir sem áður,með viðkomu í Siversk sem er norð austan við Slaviansk,en þar hafa Úkrainumenn safnað miklu liði.
Jafnfarmt munu Rússar þá koma yfir ána og koma að Siversk að vestanverðu og Siversk verður þá undir árásum frá þremur hliðum.
Ástæðan fyrir því að herinn hefur ekki farið suðuryfir ána er sú að tíminn er ekki réttur.
Það er fyrst einhverja næstu daga sem þörf er á því.
Síðan heldur herinn áfram að Slaviansk sem er mjög víggirt ,og stoppar þar.
Þeir munu síðan bíða eftir her sem mun koma frá svæðinu við Mazanivka sem er í norður frá Slaviansk og sá her mun síðan koma að Slaviansk að vestanverðu og þá er Slaviansk undir áföllum frá tveimur hliðum.
Typísk Rússnesk sókn.
Undanfarna daga hafa verið gerðar miklar loftárásir á svæðið sunnan við Mazanivka til undirbúnings. 
Herinn sem nú hefur losnað við Lisishansk mun í framhaldinu halda þangað og styrkja herliðið þar, svo að þéttleiki hersins þar verði nægur til að hefja sókn.
Auðvitað vita Úkrainumenn hvað er að fara að gerast ,en það er lítið sem þeir geta gert.
Herstjórnin hefur beðið um leyfi til að draga herliðið frá Siversk ,en því hefur verið hafnað.
Það eru mistök því að Siversk er í raun óverjanleg og líklega þýðir þetta töluvert mannfall fyrir Úkrainumenn ,í algeru tilgangsleysi.
Munurinn á Úkrainska og Rússneska hernum er að þeim Rússneska er snilldarlega stjórnað og að þeir hafa yfirburði í stórskotaliði þrátt fyrir að vera töluvert mannfærri.
.
Úkraina hefur enga möguleika til að vinna þetta stríð og hefur aldrei haft.
Áróðursmáttur fjölmiðlanna er hinsvegar gríðarlegur og það hefur tekist að telja mörgu fólki trú um að Úkrainumenn séu á sigurbraut.
Draumurinn um að stofan nýjann her að baki víglínunnar er bara draumur.
Það er ekki að gerast,meðal annars af því að Úkrainumenn þurfa jafnóðum að senda nýja hermenn á vístöðvarnar til að fylla upp í skörðin fyrir þá sem falla eða eru teknir höndum.
Að auki er aðflutningu hergagna hvergi nærri nægilega mikill til að útbúa slíkann her.
Aðflutningurinn er ekki einu sinni nálægt því að vera nógu mikill til að halda í horfinu með herinn sem er að störfum í dag.

.
Í upphafi settu Rússar sér það markmið að afhervæða Úkrainu.
Árangurinn virðist hinsvegar vera miklu meiri en vænst var.
Það virðist sem að Rússar séu að verða búnir að afhervæða alla Austur Evrópu af því að A Evrópuríkin eru búin að senda mest öll sín hergögn til Úkrainu.
.
Ýmislegt hefur komið í ljós,til dæmis að hergagnaframleiðsla Rússa virðist vera öflugri en NATO ríkjanna samanlagt.
Þetta er niðurstaða virtrar Breskrar rannsóknarstofunar í hernaði.



.



Borgþór Jónsson, 6.7.2022 kl. 05:52

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Eins og fram kom í andsvari mínu frá í gær þá spáði ég að Rússar mundu sækja að Slaviansk frá Mazanivka 
Í dag þá tóku Rússar Mazanivka.

Ég verð að segja mér til hróss að með þessu þá sló ég út bæði Bandarísku og Bresku leyniþjónusturnar sem báðar spáðu annarri framvindu.
.
Rússneski herinn er eins og hópur af smalahundum sem er að hringa rolluhóp.
Þeir vita að það á ekki að koma óþarfa styggð að rolluhópnum á meðan það er verið að hnappsetja hann.
Þess vegna fer Rússneski herinn vestan við uppistöðulónið sem er skammt vestan við Slaviansk.
Lónið verndar þá vinstri vænginn á sókninni frá árásumm frá Slaviansk á meðan herinn tekur sér árásarstöðu.
Þessi armur gerir síðan árás frá suð austri en herinn norðan við uppistöðulónið lokar síðan undankomuleiðum þar.
"Big minds think alike" 

Borgþór Jónsson, 6.7.2022 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 81
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 846739

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 98
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband