Mun Dominion Voting Systems koma öllum Trumps mönnum, jafnvel Trump sjálfum, í gjaldþrot? Dominion hefur meiðyrðamálsókn gegn Rudi Guilani!

Það sem ég skildi aldrei með ásakanir Trumps - Powell og Guilani gegn Dominion Voting Systems, það var það. --> Hvernig þeim í ósköpunum kom til hugar þau kæmust upp með þær!

Ég hef vitað síðan ég var unglingur, að reglur um meið-yrði virka þannig.
Að ef maður kemur fram með ásakanir er varða alvarlegt lögbrot!
--Er eins gott að maður hafi góðar sannanir fyrir málinu.

  • Ef ekki er maður sjálfur í súpunni.
    Enda virkar vestræn réttvísi, sá er ásakar þarf að sanna ásökun.
  • Þ.e. aldrei aðilinn sem er ásakaður, er þarf að sanna sakleysi sitt.

Hafandi í huga hve magnaðar ásakanir 3-menninganna gegn Dominion Voting Systems voru.
--Hugo Chavez hefði stofnað fyrirtækið, það væri enn í eigu fjölskyldu Hugo Chavez.
--Að fyrirtækið hefði staðið fyrir mjög stórfelldu kosninga-svindli, sem handbendi -eer- fjölskyldu Chavez.

Það hafa komið fram ótal hafnanir á þeim ásökunum!
Ekki einungis frá Dominion Voting Systems!

Tilvitnun í William Barr, fyrrum Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna undir Trump:

There's been one assertion that would be systemic fraud and that would be the claim that machines were programmed essentially to skew the election results. And the DHS and DOJ have looked into that, and so far, we haven’t seen anything to substantiate that,

Skv. orðum Barr, hafði Dómsmálaráðuneytið rannsakað ásakanirnar og engar sannanir fundið!

  • Fyrir utan þetta atriði -- virðast lögfræðingar Trumps, þar á meðal virðist það eiga við Guilani - aldrei hafa flutt ásakanir þessar á Dominion Voting Systems fyrir rétti.
  • Bendi fólki á, að skv. reglu innan bandar. dómskerfisins, er hægt að svipta lögfræðing réttindum, ef hann flytur fyrir rétti ásakanir sá veit eru rangar.
    --Fólk getur dregið síðan eigin ályktanir.

Punkturinn er sá, að það bendi til þess -- að Guilani hafi allan tímann vitað.
Að ásakanirnar væru -- kjaftæði. Sidney Powell þar af leiðandi einnig.
En samt tekið þátt í -defamation- gagnvart Dominion Voting Systems.
--Bendi á þá fjölda blaða-manna-funda!

Donald Trump, Sidney Powell og Rudi Guilani!

Rudy Giuliani, Sidney Powell, and Trump

Botna ekki í því hvernig þeim kom til hugar þau kæmust upp með þetta!

En lög eru skýr, hérlendis sem í öllum Vestrænum löndum -- að einstaklingar sem og lögaðilar, mega fara í skaðabóta-mál gegn aðilum; er koma fram með rangar ásakanir gegn viðkomandi undir vitna viðurvist.

  1. Það gat engum dulist, að Dominion Voting Systems, mundu fara í mál!
  2. Þar fyrir utan, gat það aldrei hugsast - að Trump gæti varið þau.
    Þá meina ég, ef maður ímyndaði sér, hann hefði unnið kosningarnar, sem hann tapði.
  3. Einfaldlega vegna þess, að völd forseta ná ekki yfir -- meiðyrðamál.
    Forseta-náðun virkar ekki á slík mál. Sem eru alltaf, einkamál.

Þau höfðu því aldrei nokkra gilda ástæðu að ætla að þau gætu komist upp með að dreifa þessum söguburði um Dominion Voting Systems!

 

Dominion Voting Systems - hefur hafið málsókn gegn Rudi Guilani!

Dominion sues Rudy Giuliani for spreading US election fraud ‘big lie’

Bendi á að fyrirsögn fréttar vitnar í orð talsmanna Dominion!

Áður hefur Domion hafið málsókn gegn Sidney Powell:
Dominion sues pro-Trump lawyer Sidney Powell for defamation.

  • Í báðum tilvikum krefst Dominion 1,3 milljarða.$.

Ég efa ekki að Dominion hyggist á málsókn gegn Trump sjálfum.
Þó fyrirtækið hafi ekki enn sent honum sókn - efa ég að spurningin sé einungis um daga upp í mesta lagi vikur.
--Fréttin um málsókn gegn Powell er frá 8/1 sl.

Þannig að það gæti þítt, nokkra vikna bið eftir því að Trump -- sé sent sókn.

  1. Ég get ekki komið auga á nokkra hina minnstu máls-vörn fyrir þá sem Dominion getur sínt fram á, að hafi rægt fyrirtækið -- með skýrum hætti, með því að á opinberum vettvangi með nægilega skýru orðalagi, hafa tekið undir ásakanirnar.
  2. Ég reikna fastlega með því, Dominion muni nk. mánuði hjóla í sérhvern þann - sem telst vera einstaklingur með einhver áhrif -- er hafi tekið undir þær ásakanir í vitna viðurvist með nægilega skýrum hætti.

Það fari eftir mati fyrirtækisins á tjóni af völdum viðkomandi, hvers verði krafist.

  • Krafa Dominion á Donald Trump -- þegar hún kemur fram.
    Gæti verið enn hærri upphæð, en kröfur Dominion á þau Powell og Guilani.

 

Hversu langt getur verið að Dominion gangi?

Ég reikna með því, að Dominion taki allt það sem -- þessir einstaklingar eiga.
Þvingi þau í gjaldþrot - sölu allra persónulegra eigna.
--Ef þau geta ekki borgað.

  • Ef krafa á Trump verður hærri en 1,3ma.$.
    Þá líklega mundi hann ekki eiga fyrir henni.
    Og örugglega ekki geta slegið það hátt lán, þó allt væri lagt að veði.
  • Þannig að þá mundi Dominion líklega þvinga fram persónulegt gjaldþrot Trumps.

Útlit virðist að bæði Powell og Guilani standi fyrir því sama.
Að þegar Dominion er búið með þau -- eigi þau ekki skirturnar sem þau ganga í.

 

Niðurstaða

Orðalagið skulda-dagar á líklega vel við. Mér virðist flest benda til þess, að Dominion Voting Systems -- þvingi helstu talsmenn Trumps, og síðan Trump sjálfan líklega að auki.
--Í persónuleg gjaldþrot, þ.e. þvingi fram sölu allra þeirra eigna - full uppgjör þeirra búa, og endi með að skilja þau eftir - varla eigendur að skirtunum sem þau ganga í.

Hvort sem fólki finnst þetta makleg málagjöld eða ekki.
Virðist mér nánast allar líkur benda til þessara endaloka.
--Ætli þetta verði ekki víti til varnaðar til frambúðar.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Geisp

Snorri Hansson, 27.1.2021 kl. 08:47

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég líka Snorri og ropi með! 

Helga Kristjánsdóttir, 27.1.2021 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband