Demókratar eru farnir að kaupa skotvopn, áhugaverð umfjöllun -- tónlystarmessías í Bandaríkjunum með vaxandi vinsælar tónlystarsamkomur er mótmæla opinberum aðgerðum gagnvart kófinu

Fyrst staðan í Bandaríkjunum: United States Coronavirus Cases: 8,835,191 Deaths: 230,104.
Ef Bandaríkin væru Ísland, ef maður flytur íslenskar tölur yfir á íbúatölu Bandaríkjanna.
Væru tölurnar ca: 4.000.000 smitaðar og ca.: 10.000 látnir.
--Stóri árangur Íslands eru lágar dánartölur.

Hvers vegna Bandaríkin hafa svo miklu fleiri látna hlutfallslega, er sennilega vegna innbyggðra kerfislægra galla innan Bandaríkjanna -- ekki síst það að tugir milljóna Bandaríkjamanna eru utan heilbrigðis-kerfisins að flestu leiti, því þeir hafa ekki - heilbrigðis-tryggingar.

  1. Heilbrigðis-tryggingar virka eins og bifreiða-tryggingar, þ.e. ef þú lentir nýlega í tjóni, verða tryggingar dýrari lengi á eftir.
  2. Þannig að kófið eðlilega veldur almenningi í Bandaríkjunum miklum áhyggjum.
    Þar eð, ef maður tekur einungis þá er hafa tryggingu, að tryggingarnar verða dýrari á eftir til líklega margra ára, hjá þeim fjölmörgu er munu þurfa að nota sína tryggingu til að fá þjónustu - vegna kóf-tengdra-veikinda.
  • Þeir sem eru utan trygginga, eru enn verr staddir - því þeir eru rukkaðir fyrir öllum kostnaði, er getur numið milljónum - ef viðkomandi varð alvarlega veikur.
    Þ.s. þeir sem ekki eru með tryggingar eru yfirleitt - fátækir, þá að sjálfsögðu lenda þeir í persónulegum skuldum er þeir geta aldrei svo langt er þeir lyfa, borgað.

--Þannig að fólk sem er svo statt, að vera utan trygginga - gæti einfaldlega leiðst til að velja að deygja heima fyrir, svo fjölskyldur þeirra lendi ekki í ómögulegri skuldasúpu.
--Þetta fólk, getur ekki almennt heldur nálgast almenna heilsu-þjónustu, þ.s. það þarf þá alltaf að borga fullt verð, er því yfirleitt lakara heilsu - líklegra til að deygja af völdum heilsutengs sem er auðlæknanlegt.

Hin djúpa ósanngyrni er byggð er í bandaríska kerfið, auðvitað birtist fólki nú.

  • Þess vegna er góð spurning, hver verða viðbrögð íbúa Bandaríkjanna orðum Trumps, í síðustu kappræðunni við Biden.
    Er hann lofaði að -- afleggja Obama-care, þar eð þau lög eru aldrei vinsælli en nú, einmitt er 3ja alda kófsins hefur sig hátt í Bandaríkjunum þessa dagana.
    --Mig grunar að þetta loforð Trumps, að loka Obama-care hljóti að skaða hann loka-dagana.
  • Þess fyrir utan er Trump með pólitíska útifundi nú, þ.s. fólk stendur þétt í 40-60 mínútur, Trump er einmitt að fara um mörg sömu fylkin og þessa dagana eru að tilkynna stærstu aukningar tölur kóf sýkinga til þessa, síðan kófið fór að herja á Bandaríkin.
    --Þannig að þeir fundir eru sannarlega tví-eggjaðir fyrir Trump.
    Því hann fær slatta af gagnrýni innan þeirra fylkja nú í sérhvert sinn, þ.s. þeim útifundum fylgja einnatt -- nýjar kóf-dreifingar.


Tónlystarmessíassinn eini og sanni!

Sean Feucht - og neðar aðdáendur syngja með: A Christian Rocker’s Covid Protest Movement.

Christian musician and activist Sean Feucht performs as people worship | Tamir Kalifa for Politico Magazine

Ásján aðdáenda minnir margt á tilbeiðslu - enda er boðskapur Feucht trúarlegur.

  1. Getur vart verið annað en þetta séu dreifingar-atburðir.
  2. Þó fullyrðir Feucht enginn hafi sýkst.

Sem eiginlega getur ekki verið rétt!

Sandy Marek wears a “Protected by Christ” face mask | Tamir Kalifa for Politico Magazine

Skv. mínu minni - lestur Biblíunnar, þá kenndi Jesús aldrei -- andstöðu við yfirvöld.
Einu sinni svaraði hann -- gjalda guði þ.s. guðs er, keisaranum þ.s. keisarans er!

En þessi hreyfing herra Feught er -- hrein og tær óhlýðnis-hreyfing við opinberar aðgerðir!

  1. Ef maður vill skýringu á því, af hverju Bandaríkjunum gengur herfilega illa að takmarka útbreiðslu kófsins -- þá má hugsanlega a.m.k. einhverju leiti rekja þær ástæður til.
  2. Trúar-hreyfinga sem slíkra, sem taka beina afstöðu gegn opinberum kóf-aðgerðum.

--Ekki heyrt að nokkur kirkja í Evrópu taki þess-lags afstöðu, að hvetja fylgismenn til að hundsa nálægðar-takmarkanir sem og takmarkanir við þéttum fjölmennum hópum.

 

Demókratar farnir að kaupa skotvopn!

Þetta virðast viðbrögð við hvatningu Trumps - til vopnaðra hægri-sinnaðra vigilanta hópa, sem hafa verið að skipta sér af - mótmælum, og einnig nýlega verið með hótanir um afskipti af fólki sem ætlar að fara til að kjósa.
--Óttinn við ótryggt ástand nærri kjörstöðum, og innan hverfa þ.s. kjörstaði er að finna.
Virðist baki ákvörðun margra, er virðast Demókrata-megin línunnar, til að kaupa skotvopn og réttindi til að bera þau innan-klæða:
They’re Afraid. They’re Buying Guns. But They’re Not Voting for Trump.

Þetta auðvitað krystallar hættuna í tengslum við kosningarnar.
Að ef vopnaður hægri-sinnaður hópur mæti, undir yfirskyni kosninga-eftirlits.
--Er líklegt að fjöldi þeirra sem eru að bíða í röð, dragi upp eigin skotvopn.

  • Hættan á skotbardögum er augljós.

AUSTIN, TX - OCTOBER 15, 2020 - Michael Cargill teaches a student how to aim and fire a handgun during the range qualification test portion of a Texas License to Carry a Handgun course at the Central Texas Gun Works range near Austin, Tex.

Michael Cargill -- er kennir meðferð skotvopna segist sjálfur ætla kjósa Biden.
En það hafi orðið snörp breyting á því hverjir mæta til kennslu, er áður voru þeir hægra megin séu flestir í seinni tíð eins og hann, þeir sem ætla að kjósa Biden.

Hann segist fylgja öllum varúðar-ráðstöfunum vegna kófsins!

Michael Cargill teaches a Texas License to Carry a Handgun course at Central Texas Gun Works in Austin, Tex., on Oct. 15, 2020. | Tamir Kalifa for Politico Magazine

  1. Það er einmitt þetta er veldur áhyggjum, hið sérstaka bandaríska ástand.
  2. Er gríðarlegur fjöldi meðal almennings á eigin skotvopn.

Það þíðir, vegna þess að margir nú upplyfa ástandið ótryggt, verða líklega mjög margir með skotvopnin á sér -- er getur boðið hættunni heim á afar varasömum útkomum nærri kjörstöðum innan Bandaríkjanna síðustu 10-dagana fram að 3ja. nóv. sem er almennur kjördagur og einnig þann kjördag -- heitar tilfinningar minnka ekki líkur á slæmum útkomum.

  • Kjördagur gæti átt eftir að reynast blóðugur - hversu getur enginn vitað.

 

Niðurstaða

Ég sé ekki að kristnir geti borið - Jesús fyrir sig, í mótmælum gagnvart almennum varnar-aðgerðum ætlað að lágmarka tjónið sem kófið veldur; hinn bóginn virðast tilteknir hægri sinnaðir trúar-hópar innan Bandaríkjanna, fylgja þeirri afstöðu að -- samkomu takmarkanir og hópastærðar takmarkanir, séu árás á þeirra rétt til trúar-iðkunar.
--Hinn bóginn sé ég ekki að þau rök standist, enda er trú alltaf persónuleg þess er hefur hana, það að geta ekki komið saman í hóp, hindri engan að stunda trú sína með fáeinum eða með fjölskyldu, eða einsamall -- hvergi stendur í nokkru riti að trúariðkanir verði að vera fjölmennar, eða tiltekið fjölmenni.

Síðan er kemur að vopnun Demókrata sjálfra, þá kemur þetta mér ekki á óvart -- Trump hefur verið að hvetja margvíslega hægri sinnaða vopnaða hópa.
Það rökrétt kallar á mótviðbrögð hópa sem eru honum andstæðir, að vopnast líka!
--Þannig - tit for tat - gengur í gegnum gervalla sögu mannkyns.

  • Þannig með óbeinum hætti, hefur Trump hvatt fólk til að vera vopnað líklega í stærri stíl en áður hefur tíðkast í tengslum við kosninga-hegðan.
    Að fjöldmennir hópar Repúblikana og Demókrata mæta til að kjósa.
    Báðir líklega með skotvopn undir klæðum.

Það hljómar eins og sprenging er einungis bíður eftir litlum neista.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Obamacare er ekki fyrir alla.  Áskrift að því mun kosta USD 500 á mánuði eða uþb 70 þús íslenskar.
Annars er lýti á annars vitrænum skrifum þínum Einar Björn þetta með ypsilonin.  Td er einfalt "i" í tónlist.  :)

Kolbrún Hilmars, 25.10.2020 kl. 17:06

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Kolbrún Hilmars, geisp virkilega: 1)Lagi, atriði sem Trump hefur þegar slegið af - borgaði ríkið allt að helming á móti tryggingar-kostnaði, skv. tekjutryggingu - miðað við lágtekjuhópa; er Trump slóg þær niðurgreiðslur af fljótlega eftir hann tók við -- duttu nokkrar milljónir fljótlega af heilbrigðis-tryggingum; 2)Öðru lagi, geta ekki trygginga-félög skv. því kerfi, hafnað að bjóða tryggingar til allra, m.ö.o. annars væri þeim heimilt að hafna t.d. að tryggja fólk sem er lang-veikt eða hefur gengið í gegnum erfiða sjúkrasögu nýlega; 3)Lagi, er öllum skilt að kaupa tryggingu er geta, til þess að fólk sé ekki að sleppa trygginga-kaupum ef það telur sig við góða heilsu - þetta mætir kvöðinni í atriði 2-þ.s. lækkar á móti þeirri kvöð meðal-kostnað tryggingafélaga.
--Þ.s. þú vísar til er væntanlega - meðal-kostnaður við tryggingu.
--En kerfið felur ekki í sér það, að kerfið hafi verið ríkis-vætt eins og hérlendis.
En ef Trump mundi takast að slá kerfið af -- þá mundu nokkrar milljónir til viðbótar detta út ekki eiga möguleika á að tryggja sér aðgengi að bandar. heilbrigðiskerfinu.

Þ.e. fyrirtækin mundu eins og þau áður gerðu -- hafna að tryggja lang-veika og fólk sem nýlega hefur gengið í gegnum erfiða sjúkra-sögu; það fólk þá líklega ekki eiga möguleika á kaupum trygginga - þó þau hefðu til þess efni.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 25.10.2020 kl. 22:11

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Einar geispar og er alveg sama um Y,eða i ,ég er hætt að nefna það. Með skammdegis kveðju.

Helga Kristjánsdóttir, 26.10.2020 kl. 03:11

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Fyrst staðan í Bandaríkjunum: United States Coronavirus Cases: 8,835,191 Deaths: 230,104.

Ef Bandaríkin væru Ísland, ef maður flytur íslenskar tölur yfir á íbúatölu Bandaríkjanna.

Væru tölurnar ca: 4.000.000 smitaðar og ca.: 10.000 látnir.

--Stóri árangur Íslands eru lágar dánartölur.

Hvers vegna Bandaríkin hafa svo miklu fleiri látna hlutfallslega, er sennilega vegna innbyggðra kerfislægra galla innan Bandaríkjanna -- ekki síst það að tugir milljóna Bandaríkjamanna eru utan heilbrigðis-kerfisins að flestu leiti, því þeir hafa ekki - heilbrigðis-tryggingar.

* Þú gleymir að taka með í reikningin að hér hafa hlutfallslega fleiri verið prófaðir.

* Annað sem þú hefur kannski ekki heyrt um er hvernig kaninn bætir við tölurnar hjá sér.  Þeir voru ekkert að fara leynt með að fólk sem dó í umferðarslysum eða var skotið til bana fór líka á listann, ef hin merka veria fannst í þeim.

Hér: https://thehill.com/opinion/healthcare/514915-is-us-covid-19-death-count-inflated

Ef maður vill skýringu á því, af hverju Bandaríkjunum gengur herfilega illa að takmarka útbreiðslu kófsins -- þá má hugsanlega a.m.k. einhverju leiti rekja þær ástæður til.

Trúar-hreyfinga sem slíkra, sem taka beina afstöðu gegn opinberum kóf-aðgerðum.

Þú hefur lagst í mikla rannsóknarvinnu við að finna þetta.  Á meðan augljóst er öllu að aðal smit-vektroinn hefur verið Black Lives Matter mótmæli:

RT bendir á þetta: https://www.rt.com/op-ed/494433-deblasio-blm-new-york-protests/

https://image-cdn.parler.com/J/R/JRlD4pt62Y.jpeg

Þetta er komið inní popp-kúltúrinn.

Þetta virðast viðbrögð við hvatningu Trumps - til vopnaðra hægri-sinnaðra vigilanta hópa, sem hafa verið að skipta sér af - mótmælum, og einnig nýlega verið með hótanir um afskipti af fólki sem ætlar að fara til að kjósa.

"Vopnaðir hægri sinnaðir vigilanta hópar" eru eins og Stórfótur.  Mikið talað um þá en enginn hefur séð þá.

Svo man ég ekki til að rump hafi neitt verið að hvetja neina slíka þjóðsagnakannda hópa  til að gera nokkurn hlut.  Eða: myndir eða það gerðist ekki.

--Óttinn við ótryggt ástand nærri kjörstöðum, og innan hverfa þ.s. kjörstaði er að finna.

Virðist baki ákvörðun margra, er virðast Demókrata-megin línunnar, til að kaupa skotvopn og réttindi til að bera þau innan-klæða: They’re Afraid. They’re Buying Guns. But They’re Not Voting for Trump.

Hér er þetta allt útskýrt: https://twitter.com/MrAndyNgo
Og hér: https://www.youtube.com/watch?v=AXsCMzeimVY

Og á fleiri stöðum.

Fólk vill ekki mæta stórum hóp af pedófólískum kommúnistum óvopnað.

Ásgrímur Hartmannsson, 26.10.2020 kl. 11:13

5 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Þú segir, Einar Björn, m.a. að ef maður flytur íslenskar tölur yfir á íbúatölu Bandaríkjanna að þá væru tölurnar ca: 4.000.000 smitaðar og ca.: 10.000 látnir.

 

En hvað ef við flytjum spænskar tölur (35.000 látnir af 47 milljón manna þjóð), yfir á íbúatölu Bandaríkjanna 331 milljón)?
Jú. þá væru mun fleiri eða ca. 246.000 látnir.

 

Og hvað með yfirfærðar ítalskar tölur (42.000 látnir af 61 milljón manna þjóð) yfir á íbúatölu Bandaríkjanna?
Jú. þá væru næstum jafnmargir látinir eða ca. 228.000.

 

Þannig að Bandaríkjamenn mega nokkuð vel við una miðað við Spánverja og Ítali a.m.k.

Samt fjargviðrast ísleskir fjöliðlar sink og heilagt um bandarískar tölur látinna. Þeir ættu að llíta sér aðeins nær og kannski þú líka Einar Björn.

Daníel Sigurðsson, 26.10.2020 kl. 21:48

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Bandaríkjunum eru 20% allra skráðra dauðsfalla í heiminum vegna Covid-19 en Bandaríkjamenn eru einungis um 4% jarðarbúa.

Íslenskir fjölmiðlar hafa einnig fjallað mikið um dauðsföll vegna Covid-19 í til að mynda Evrópu en nú eru forsetakosningar í Bandaríkjunum, sem hefur greinilega farið framhjá sumum. cool

Þorsteinn Briem, 26.10.2020 kl. 23:03

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Bandaríkjunum, þar sem um 332 milljónir manna búa, eru skráð dauðsföll vegna Covid-19 um 230 þúsund en í 48 Evrópuríkjum, þar sem meira en tvisvar sinnum fleiri búa, um 748 milljónir, eru þau um 250 þúsund. cool

Þorsteinn Briem, 26.10.2020 kl. 23:50

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Evrópusambandsríkjunum, þar sem um 448 milljónir manna búa, 35% fleiri en í Bandaríkjunum, eru skráð dauðsföll vegna Covid-19 nú um 166 þúsund en í Bandaríkjunum um 231 þúsund. cool

Þorsteinn Briem, 27.10.2020 kl. 00:44

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það hljómar kannski einkennilega miðað við fréttaflutninginn - það hafa verið fluttar margar fréttir af "árangri" Íslands, og slakri frammistöðu í BNA - en dánarhlutfallið er ekkert hærra þar en hér í raun og veru.

CDC áætlar að raunverulegur smitafjöldi sé tífalt það sem hefur verið greint. Það þýðir að 88 milljónir hafa smitast, ríflega. Dánarhlutfallið er þá 0,26%.

Hér höfðu um 3,600 smitast sl. vor skv. rannsókn ÍE. Dánir voru 10. Dánarhlutfallið var þá 0,3%. Ívið hærra en í BNA. Nú hafa þessar tölur breyst. Um tvöfalt fleiri eru smitaðir en í vor, en aðeins einn til viðbótar látinn. En eftir uppákomuna á Landakoti um helgina mun sú tala hækka hratt því miður. Og það sem veldur áhyggjum þar er ekki bara það að þetta skuli hafa gerst, heldur og ekki síður að forstjóri LSH skuli reyna að ljúga sig út úr málinu og 

Hitt sem er athyglivert þegar við spáum í árangur er smithlutfallið. Hér er það líklega í kringum 2%. Í BNA er það líklega um 27%. Þetta þýðir að þar eru 73% væntanlega enn í hættu. Hér eru það 98% sem eru enn í hættu.

Hvað þýðir þetta ef við horfum fram í tímann?

Ef hjarðónæmisþröskuldurinn er í kringum 60% er að styttast í að það náist í BNA. Það er þó nokkuð eftir þar, en ekkert hjá því sem er eftir hér. Og þar eru sum ríki þegar byrjuð að verja viðkvæmu hópana, til dæmis Florida og South Dakota. Vöntun á því er meginástæðan fyrir dauðsföllum; það er fólk yfir 65-70 ára aldri sem er að deyja úr þessu langmest, svo öll áhersla þarf að vera á að verja það.

Ég spái því að þetta verði að mestu gengið yfir í BNA um mitt næsta ár. Verði áfram fylgt sömu stefnu hér verðum við að kljást við þetta næstu 3-5 árin.

Það er nefnilega þannig með svona bráðsmitandi pestir, að þær smita á endanum stórt hlutfall fólks, eða þá það nær ónæmi með bóluefni. Náttúrulögmál hætta ekkert að eiga við þótt maður reyni að telja sér trú um það. Þess vegna er út í hött að tala um að hér hafi náðst einhver árangur. Það hefur bara náðst að tefja útbreiðsluna.

Ég veit að margir trúa því að bóluefni sé handan við hornið, en þegar betur er að gáð sést að því fer fjarri að svo sé. Það eru í það allra minnsta 1-2 ár í það, efnin sem nú eru komin lengst eru ekki bóluefni sem verja fólk fyrir smiti heldur fyrir alvarlegri einkennunum, svo þau valda í raun ekki ónæmi, og það er ekki raunhæft að gera ráð fyrir að þessi efni virki nema í kannski 50-70% tilfella. Þau geta því skapað falskt öryggi og ég hef ekki séð hvernig menn ætla að taka á því.

Þorsteinn Siglaugsson, 27.10.2020 kl. 11:22

10 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

... og yfirlæknar á LSH brjálist þegar Landlæknir ákveður að rannsaka málið. Það bendir ekki til að tekið verði á þessu af neinu viti. (Þetta vantaði aftan á málgreinina sem hefst á "Og það sem veldur áhyggjum ..."

Þorsteinn Siglaugsson, 27.10.2020 kl. 11:26

11 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Það sem skýrir m.a. tiltöllega hátt dánarhlutfall  í Bndaríkjunum af völdum Covid -19 miðað við meðaltal í Evrópu  er að þeldökki kynstofninn kemur um helmingi verr út en sá hvíti af líffrlílegum ástæðum að talið er  og eins og við vitum þá er hlutfall þeldökkra hátt í Bandaríkjunum en mjög lágt í Evrópu .

Daníel Sigurðsson, 27.10.2020 kl. 13:29

12 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Dánarhlutfallið er reyndar ekkert hærra í BNA en í Evrópu. 

Þorsteinn Siglaugsson, 27.10.2020 kl. 14:02

13 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Dánarhlutfallið af völdum Covid er hærra í BNA en að meðaltali í Evrópu ef miðað er við íbúafjölda eins og ég geri hér að ofan en ekki fjölda smitaðra.

Daníel Sigurðsson, 27.10.2020 kl. 16:05

14 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er ósköp lítið að marka dánarhlutfall miðað við íbúafjölda þegar pestin er ekki að fullu gengin yfir. Það á fólk nú að geta sagt sér sjálft.

Þorsteinn Siglaugsson, 28.10.2020 kl. 00:18

15 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þess utan eru þessar kynþáttaskýringar ákaflega hæpnar. Það vill þannig til að í BNA er mun stærra hlutfall svartra í lágstétt en hvítra, heilsufar er verra og afkomuskilyrði einnig. Þetta er miklu líklegra til að skýra hærra dánarhlutfall en kynþáttur.

Þorsteinn Siglaugsson, 28.10.2020 kl. 00:20

16 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Ég er ósammála þvi að lítið sé að marka dánarhlutfall miðað við íbúafjölda þegar pestin er ekki að fullu  gengin yfir.  Niðurstaðan er auðvitað marktæk á þeim tímapunkti sem hún er fengin. Það á nú fólk að geta sagt sér sjálft. Hitt er svo annað mál hvort mikið sé á slíkri statistik að byggja.

Daníel Sigurðsson, 28.10.2020 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 845414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband