Var Kim Jong Un allan tímann að draga Donald Trump á asnaeyrum? Ljóst virðist ekki verði af kjarnorkuafvopnunarsamkomulagi sem Trump stefndi að!

Ég skal viðurkenna að ég var ætíð mjög efins að Donald Trump mundi takast að ná samkomulagi við Kim Jong Un einræðisherra Norður-Kóreu um það markmið, að afnema með öllu kjarnorkuvopn landsins og þær eldflaugar sem Norður-Kórea ræður enn yfir er geta borið kjarnorkuvopn.

North Korea blows up liaison office in escalation of hostilities with Seoul

Skv. nýlegum fréttum virðist Norður-Kórea kominn aftur í gamla gírinn og áður.
Það er að keyra upp í skrefum spennu á Kóreuskaga!
M.ö.o. virðist mér nákvæmlega ekki neitt hafa lagast.
--Þarna var um táknrænan atburð að ræða, að sprengja í loft upp hús á landamærum er notað var fyrir mikilvæga fundi milli Kóreu-ríkjanna.
--Þessi táknræna athöfn að sprengja það hús, virðist yfirlýsing á þann veg!

Að lágspennuástandinu sé lokið, því er staðið hefur nú yfir um hríð.
Síðan Kim Jong Un ákvað að ræða við Donald Trump, eftir að 2017 Trump fór ákaflega langt í hótunum gegn NK - gekk það langt, að skilja mátti sem hótun um stríð af fyrra bragði.
--Þ.s. Trump sagðist beitingu kjarnavopna ekki fyrirfram útilokaða.

Trump og Kim á öðrum leiðtogafundanna!

Kim Jong-un and Donald Trump during their 2018 summit in Singapore.

Eins og ég benti á í einni gamalli athugasemd: Norður-Kórea fordæmir afstöðu Bandaríkjanna - spurning hvort Kim Jong Un ætlaði sér í raun nokkru sinni að semja um afvopnun?. Þá tókst Kim Jong Un a.m.k. með því að ræða við Trump - að forða þeirri hugsanlegu hernaðarárás sem Trump var að hóta.

--Nú veit engin hvort Trump hefði látið verða af því, en Trump hætti þaðan í frá að hóta nokkru slíku, og spennan minnkaði - úr því sem komið er virðist afar ósennilegt að Trump endurtaki fyrri hótanir, enda nú einungis rúmlega 4-mánuðir til kosninga!

  1. Ef tilgangur Kim Jon Un, var sá einn að -- þæfa málið fram að kosningum.
  2. Má vera að Kim hafi tekist nákvæmlega það!

Eins og ég benti á í upphafi, var ég skeptískur að Trump mundi ná fram samningi!

  1. Komin nálgun á dagsetningu leiðtogafundar Donalds Trumps og Kims Jong Un
  2. Norður-Kórea fordæmir afstöðu Bandaríkjanna - spurning hvort Kim Jong Un ætlaði sér í raun nokkru sinni að semja um afvopnun?
  3. Donald Trump segist þekkja Kim Jong Un, vita hvað hann sé fær um - Kim muni ekki koma honum á óvart
  4. Kim Jong Un leiðtogi Norður Kóreu - gefur Donald Trump frest til ársloka til að koma fram með, ásættanleg samningsmarkmið!
  5. Norður-Kórea segir: engir frekari leiðtogafundir með Trump - fyrr en Trump sýni honum sé alvara með að semja!

Málið er ég varð þess aldrei var að Kim Jong Un gæfi eftir nokkurt bitastætt.
Kim Jong Un, gaf að virtist aldrei eftir þá kröfu að - Bandaríkin hættu refsiaðgerðum.
Sama tíma, hann virðist aldrei formlega hafa lofað því, að gefa eftir vopnabúnað landsins.

Það voru tveir leiðtogafundir milli Trumps og Kim!
En hvorugur þeirra virtist hafa leitt fram lausn!
Þó í bæði skiptin talaði Trump um fundina sem árangursríka - þrátt fyrir að aldrei hafi ég séð þess merki, að Kim nokkru sinni - lofaði nokkrum sköpuðum hlut er væri bindandi.

  • Nú virðist kjörtímabil Trumps nær á enda runnið.
  • Tíminn til að ná markmiðinu fram, á enda runninn - þar með.

Ef markmið Kim Jon Un var einungis að - ræða við ríkisstjórn Trumps, á meðan þæfa málið þar til kjörtímabilinu væri lokið.
--Virðist Kim Jong Un hafa náð því markmiði.

 

Niðurstaða

Ef maður ber saman markmið leiðtoganna tveggja þ.e. Trumps vs. Kim.
Ef maður gefur sér að markmið Kim, hafi verið að gefa ekkert bitastætt eftir.
Samtímis að tryggja öryggi landsins út kjörtímabil Donalds Trumps.
--Fæ ég ekki betur séð en að Kim Jong Un hafi tekist að ná þeim fram.

Á sama tíma, virðist Trump engum markmiða sinna hafa náð fram.

Bnedi á að í samanburði við Bill Clinton er samdi í sinni tíð við Kim þess tíma.
Þá virðist Trump hafa náð mun minni árangri en Bill Clinton.
--Þó talaði Trump á þá leið, að lær þyrfti af þeirri sögu að fyrri forsetar að hans sögn hefðu ekki náð nægilega sannfærandi árangri.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Auðþekktur er asninn á eyrunum er hægt að segja um Trump og hans mörlensku aftaníossa. cool

Þorsteinn Briem, 17.6.2020 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 846645

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 653
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband