Boris Johnson lagður inn á sjúkrahús vegna COVID-19! Færður síðan á bráðadeild á mánudag, ástand forsætisráðherra Bretlands alvarlegt bersýnilega!

Þegar ég var að lesa athugasemdir við grein Financial Times um málið, þá virtust margir telja sennilegt að Johnson væri alvarlega veikur. Eiginlega vegna þess hversu brátt að innlögn hans virðist hafa borið.
Undanfarna daga hefur Boris Johnson stjórnað landinu heiman að frá sér vegna veikinda.
Bent er á, að Johnson sé klárlega tregur til að láta leggja sig inn, því hljóti ástand hans hafa verið slæmt fyrst hann samþykkti að fara á sjúkrahús.
--Auðvitað eru þetta vangaveltur, en kannski sennilegar sem slíkar.
-----------
Á sunnudag bárust fregnir af því Boris Johnson hafi verið færður á sjúkrahús.
Á mánudag komu þær fregnir að sóttin hafi versnað, og Boris Johnson hafi verið færður á gjörgæslu.

Boris Johnson - Wikipedia

Boris Johnson taken to hospital over coronavirus symptoms

  1. On the advice of his doctor, the prime minister has tonight been admitted to hospital for tests,
  2. This is a precautionary step, as the prime minister continues to have persistent symptoms of coronavirus 10 days after testing positive for the virus.

Nokkrum fannst ótrúlegt að það gæti staðist  sem talsmaður forsætisráðherra sagði.
Að Johnson væri lagður inn - til að fara í frekari próf.
--Hingað til hefur manni virst að þeir sem verða nægilega veikir til að þurfa spítalavist, séu þá virkilega alvarlega veikir - þ.e. með lugnabólgu, er getur í verstu tilvikum krafist öndunarvélar.
--Lungnabólgutilfelli þurfa ekki að verða alveg það skæð á hinn bóginn.

  • Ef hann er greindur með lungnabólgu vegna COVID-19 virðist rökrétt að leggja hann inn.
  • Þó hann sé ekki endilega það alvarlega veikur að þurfa aðstoð við öndun.

---------------
Frétt mánudags: Boris Johnson moved to intensive care as condition worsens.

Over the course of the afternoon the condition of the prime minister has worsened and, on the advice of the medical team, he has been moved to the intensive care unit of the hospital.

Yfirlýsing ríkisstjórnar Bretlands ekki orðlöng.
Það lítur sannarlega ekki vel út að hann sé kominn yfir á gjörgæslu.

 

Niðurstaða

Ég ætla ekki að spá því að Boris sé á förum úr þessu lífi - en nú þegar ljóst er að Boris hafi verið færður yfir á gjörgæslu virðist á tæru að ástand forsætisráðherra Bretlands er alvarlegt.
Óskum honum góðs bata!
--Hef aldrei haft skoðun á hvort Bretland á að Brexitera eða ekki, Brexit sé ekki tilfinningamál hjá mér.

Það mundi sannarlega geta skapað flókið pólitískt ástand á Bretlandi ef Boris væri lagður af velli af COVID-19 vírusnum, en þá mundi aftur þurfa leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum. Sá sem var næst efstur síðast - er ekki harður fylgismaður BREXIT.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Ég hef haft lungnabólgu tvisar í mínu lífi ... í bæði skiptin hafði ég meir en 40 stiga hita í meir en mánuð. Þriðja skiptið hóstaði ég svo illa, að ég braut rifbein hægra meginn... hitinn var þó ekki slíkur, í það skiptið, að ég þyrfti að vera heimalyggjandi.

Þú getur ekki ímyndað þér, hverjar hörmungar fólk þarf að líða ... sem eru á gjörgæslu vegna þessarar veiru. Þessar hörmungar sem þetta fólk þarf að líða er slík, að það er full ástæða að hefja þriðju heimsyrsjöld vegna þessa ... og sjá til að þeir sem "hyldu" yfir upplýsingum, beri ávöxt gerða sinna.

Örn Einar Hansen, 6.4.2020 kl. 18:09

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Bjarne Örn Hansen, reyndar hef ég einu sinni haft lungnabólgu þannig að ég er ekki alveg laus við að hafa einhverja hugmynd - var einungis krakki á barnaskóla-aldri, var hafður í nokkurs konar tjaldi þegar bólgan var sem verst, tengt við það stórir kútar dælt úr þeim lofti er innihélt lyf geri ég ráð fyrir - máski aðferðir aðrar í dag; en líklega var ég í þónokkri hættu. Hef aldrei aftur fengið svo slæma veiki.
**Skv. nýjustu fréttum hefur Johnson verið færður í gjörgæslu. Ef hann deyr þarf annað leiðtogakjör, sá sem stóð mest í hárinu á honum - virtist næst koma honum að stuðningi innan flokksins, virtist ekki vera Brexiteri - því spurning hvort að ef þanni fer að Boris verði allur af völdum COVID-19 að það geti valdið stefnubreytingu innan Íhaldsflokksins breska.
--Hann er auðvitað ekki dauður enn, má vera honum batni sóttin.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.4.2020 kl. 02:30

3 Smámynd: Örn Einar Hansen

 Ég get sagt þér, að hjarta mitt brestur við hugsunina um hvað gerðist í Wuhan.  Fólk var lokað inn á heimilum sínum og neitað að komast út, og neitað að fá aðstoð. Kona henti sér af svölunum, með barn sitt í örvilnan ... maður kom heim af spítalanum, og fann alla ættingja sína dauða.  Hann henti sér af svölunum, annar sem lifði sama hlut brenndi sig inni. Ríkið, gaf skít í vandamál almennings og gaf upp lágar tölur til að hylja sannleikann.  Sannleikurinn er, að eitthvað um 40þ manns létust í Wuhan einu samann. Flestir á hörmulegan hátt ... án aðstoðar, eða meðaumkvunar.

 Geturðu ímyndað þér, hvernig það er að vera fórnarlamb fólks ... sem telur betra að við deyjum, svo þeir geti lifað ...

 Boris Johnson, er í mínum augum einn af þeim betri.  Hann sá vandamál sósíalismans sem er í Evrópu ... hafði þor, og hugrekki að standa með fólkinu í landinu sem hafði ákveðið að yfirgefa þetta Sovét, Evrópu. Ég líki honum ekki við Trumpadúrinn. Ég hef alltaf verið sammála, að sá maður er bara sauður ... en ég bið fyrir Boris, og Merkel ... vona að þau komi upp úr vandanum, og að því loknu hjálpi okkur hér í Evrópu að betrumbæta líf okkar. Þá á ég við, ekki í anda stalíns eða maó, heldur í anda frjálsræðis.

Örn Einar Hansen, 7.4.2020 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband