Seðlabanki Bandaríkjanna skóflar trilljónum dollara til að draga úr lausafjárskorti, sama dag og met lækkun fjármálamarkaða var í Evrópu og Bandaríkjunum -- viðbrögð markaða hófust eftir fréttir bárust af ræðu Trumps þ.s. hann lokar á ferðalög frá Evrópu!

Þegar maður les fregnir af því að Seðlabanki-Bandaríkjanna sé að skófla trilljónum Dollara í formi - lána frá Bankanum, til að laga lausafjárstöðu aðila í viðskiptum með bandarísk ríkisskuldabréf; þá virkilega staldrar maður við!
--En það virðist að stórfelldur flótti aðila hafi verið í gangi inn í bandarísk ríkisbréf, samtímis því að stórfelld lækkun varð á mörkuðum með verðbréf - samtímis í Evrópu og Bandaríkjunum.

Fed promises to pump trillions of dollars into financial markets

Í þessu ástandi, virðist hafa myndast -- lausafjárvandamál er voru það stórfelld.
Að Seðlabanki-Bandaríkjanna, grípur til þess úrræðis að skófla trilljónum Dollara á málið.
Ath. miðað við bandarískar trilljónir.

  1. The Fed would now offer up at least $500bn in three-month loans, beginning immediately,...
  2. ...with another $500bn of three-month loans on Friday.
  3. It said it would also provide a $500bn one-month loan on Friday that settles on the same day. 
  4. It also said it would continue to offer $500bn of three-month loans and $500bn one-month loans on a weekly basis until April 13 ...

Þetta eru sannarlega hressilegar viðbætur ofan á þá lánastarfsemi vanalega í gangi.

Cracks in US Treasury market could spell trouble for the system

Ef ég skil þá greiningu sem kemur fram í þessari frétt, var hvorki meira né minna en möguleiki á því -- að viðskipti með bandarísk ríkisbréf lentu í vandræðum.
--Sem skýri risastóra peninga-dælu bandaríska-Seðlabankans.

  • Bandarísk ríkisbréf, eru sjálft gólfið í heims fjármála-viðskiptum.
    Við gætum því hugsanlega hafa verið að tala um - vanda!
    Er hefði getað skapað fjármálakreppu.
  • Þess vegna velti ég því fyrir mér, hvort bandaríska kerfið var hugsanlega að ramba á barmi - nýrrar fjármálakreppu?

En umfang þeirra peningadælu sem Seðlabankinn hóf -- gæti passað við umfang sem gæti þurft til að forða slíkri!

Risastórt verðfall hófst strax og fregnir bárust af ferðabanns-ræðu Trumps! Hófst kreppan næstum því þennan dag?

This was the most expensive speech in history. -- said Luca Paolini, chief strategist at Pictet Asset Management. -- Investors are voting with their feet, and I can’t blame them.

US stocks fall 10% in worst day since 1987 crash

Ferðabanns-ræða Trumps, virðist hafa -- startað fjallstóru ruggi á fjármálamörkuðum!
--Mikið af því fé virðist hafa leitað í bandarísk ríkisbréf.

  • Sem gæti skýrt, af hverju kerfið allt í einu fór að ramba.
    Og Seðlabankinn þurfti að hefja þessar risastóru björgun.

Hver sem tilgangur Trumps var með ræðunni - þá greinilega róaði hún ekki markaði.
Heldur þvert á móti - startaði að bestu verður séð, ógn og skelfingu þar.

  1. Meðalhrap markaða í Bandar. var 10%.
  2. Meðalhrap markaða í Evrópu var 11%.

Það kvá vera mesta tap markaða Evrópu á einum degi.

 

Spurning hversu útbreiddur er COVID-19 í Bandaríkjunum?

Hann er í 44 fylkjum - en það sem er virkilega áhugavert, hve fáir Bandaríkjamenn virðast enn hafa verið prófaðir heilt yfir -- skv. tölum er liggja fyrir eru þekktir sýktir rúmlega 1.200.

After surveying local data from across the country, we can only verify that 4,384 people have been tested for the coronavirus nationwide, as of Monday at 4 p.m. eastern time.

Skv. víðtækri rannsókn bandarísks fjölmiðils, tókst fjölmiðlinum einungis að staðfesta að 4.384 hafi verið prófaðir innan Bandaríkjanna -- ath. þann 8/3 sl.
--Ef þetta er rétt, hljómar það all svakalegt.

  • Ég meina, hvernig geta yfirvöld yfir höfuð haldið því fram þau hafi nokkra minnstu hugmynd um hve margir eru smitaðir innan Bandaríkjanna -- með einungis tæplega 4.400 prófaða?

The Dangerous Delays in U.S. Coronavirus Testing Haven’t Stopped

Það virðist sem að - klúður hafi orðið í ferlinu hjá alríkinu við innleiðingu prófa.
Ríkisstjórnin hefur í þessari viku - brugðist við með því að panta próf frá fyrirtækjum.

  1. Þetta setur auðvitað spurningamerki við - áreiðanleika talna er liggja fyrir innan Bandaríkjanna um raunverulegan fjölda sýktra.
  2. Höfum í huga, að einka-aðilar hafa boðið prófin til sölu á 1.500$.
    Sem er ótrúlega há upphæð fyrir venjulegan launamann.
    Ég get ekki ímyndað mér, að nokkur hafi prófað sig - sem þurfti að borga, nema eftir að sá var þegar orðinn fársjúkur.

--Trump setur þetta fram í ræðu sinni, að þörf sé enn á því að verja Bandaríkin gegn flæði veirunnar - sem hann kallar útlenda veiru - að utan.

En það virðist afar afar líklegt - að raunverulegur fjöldi sýktra sé miklu mun hærri en opinberar tölur halda á lofti.
--Þar virðast hafa verið ótrúlega fá próf framkvæmd fram að þessu.

Donald Trumð heldur því fram í ræðu sinni að sýktir í Bandaríkjunum hafi megni til sýkst í Evrópu -- sem réttlætingu þess að loka á ferðir frá Evrópu.
En miðað við einungis tæp 4.400 próf er erfitt að sjá yfirvöld hafi í reynd nokkra hina minnstu hugmynd um, hver fjöldi sýktra raunverulega er innan Bandaríkjanna.
Ég er ekki að segja - að fullyrðingar Trumps séu klárlega rangar -- ég er að segja, að ég sé ekki hvernig Trump getur raunverulega haft nokkra hugmynd um, hver hin raunverulega staða er varðandi dreifingu COVID-19 innan Bandaríkjanna, hafandi í huga hve óskaplega fáir Bandaríkjamenn virðast hafa verið prófaðir fram til þessa.

Hafandi í huga að 44 fylki hafa í þessari viku kynnt dreifingu á COVID-19.
Þá eru greinilega fjölmargir dreifingar-punktar til staðar.
--Líkur þess að smitaðir Bandaríkjamenn séu miklu mun fleiri, virðast fullkomlega yfirgnæfandi.

Það þíði einnig, að eiginlega sé sennilega ekkert hægt að segja, hvernig flestir hafi smitast -- þ.s. allar upplýsingar skorti!

 

Niðurstaða

Mér finnst virkilega viðbrögð ríkisstjórnar Bandaríkjanna við sjúkdómnum ekki vera sannfærandi, en hafandi í huga að líklega hafa bandarísk yfirvöld í reynd afar litla hugmynd um raunverulega dreifingu COVID-19 meðal íbúa Bandaríkjanna, þá að sjálfsögðu vita þau ekki heldur -- hvernig COVID-19 er einna helst að dreifast.
En með dreifingu þegar til 44 fylkja, virðist mér afar ólíklegt að lokanir að utan, skipti nokkru umtalsverðu máli - en þær sannarlega á hinn bóginn skaða efnahag landsins og Evrópu.
Það er líklega hvers vegna tilkynning Trumps leiddi til þessa rosalega verðfalls.
Það er mat markaðarins á efnahagstjóninu er líklega mun stafa af ráðstöfunum forsetans.

Síðan virðist að -- hin stóra sveifla á markaði, hafi reynt á þanþol fyrirtækja starfandi á markaðnum -- hversu stór hættan var/er veit maður ekki!
--En í ljósi risastórra björgunaraðgerða Seðlabanka Bandaríkjanna!
Hefur sú hætta líklega ekki verið smá í sniðum!
Þess vegna velti ég fyrir mér, hvort heimurinn næstum því hóf heimskreppu sl. fimmtudag?

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband