Kim Jong Un, kvá hafa tekið háttsettann aðstoðarmann af lífi, er sá miklu leiti um viðræður Norður-Kóru við Bandaríkin

Ekki hægt að líta þá fregn -staðfesta- en vegna fortíðar Kims Jong Un, t.d. hann lét myrða hálfbróður sinn í Malasíu fyrir nokkrum árum, vitað hann tók af lífi frænda sinn skömmu eftir valdatöku sem hafði verið háttsettur innan stjórnkerfisins, vitað hann tók af lífi fjölda embættismanna þann tíma sem hann var að hreinsa til skipta út fólki setja sitt fólk inn; þá skal segjast - að ég get trúað þeim fregnum - fengið mig til þess.

Blað í NK - virtist með óljósum hætti hugsanlega staðfesta atburðinn

North Korea executes officials over failed Kim-Trump talks

Rodong Sinmun - Acting like one is revering the leader in front [of others] but dreaming of something else when one turns around, is an anti-party, antirevolutionary act that has thrown away the moral fidelity towards the leader and such people will not avoid the stern judgment of the revolution,...

Þarna er greinilega gagnrýni á einhvern - án þess að nöfn komi við sögu.
Þessi gagnrýni a.m.k. rímar nokkuð við þann sem sagður er hafa verið drepinn!
--Sá sannarlega kom fram opinberlega fyrir hönd Kims.
**Fór fyrir samninganefnd NK gagnvart Bandaríkjunum.

Þarna vísar til þess, að sá ónefndi hafi í reynd verið svikull við foringja sinn!
Sem getur verið réttlæting aftöku eða senda í vinnuþrælkun!

Kim Hyok Chol, sagður hafa verið tekinn af lífi

Image result for Kim Hyok Chol

Kim Jong Chol, sagður hafa verið sendur í vinnuþrælkunarbúðir!

Image result for Kim jong Chol

Það er langt í frá staðfest frétt, að 4-einstaklingar úr sendinefnd NK til Bandaríkjanna, þar með sjálft höfuð hennar - hafi verið teknir af lífi.
--Hinn bóginn, er gagnrýnin úr NK fjölmiðlinum -köld lesning- hafandi í huga, að hún tónar við einhvern sem nýlega hafi komið fram opinberlega og greinilega sé síðan fallinn í ónáð.

  1. Ef við gefum okkur að fregnin sé rétt, þá eru þetta líklega viðbrögð Kims Jong Un, við því að seinni fundurinn með Donald Trump fór út um þúfur.
    En Kim á þein fundi, greinilega neitaði að gefa upp kjarnavopn NK.
    Þá neitaði Trump að gefa eftir refsiaðgerðir Bandaríkjanna.
    --Og fundinum lauk án árangurs.
    --Ímsir segja, Kim hafi -misst andlitið- sbr. -loss of face.-
  2. Nýlega, gaf Kim það út í ræðu, að Bandaríkin hefðu til áramóta, að koma fram með sanngjarnt samkomulag - ekki gaf Kim út akkúrat hvað mundi gerast, ef ekki.
    --En það má lesa út úr orðaræðu frá NK í seinni tíð, þ.s. mjög hörð gagnrýni á Bandaríkin hefur komið fram, að stefnan sé að - fjarlægjast hugmyndir um samkomulag.
    --Það gæti einmitt verið hugsanleg vísbending þess, að Kim hlusti nú á aðra ráðgjafa.
    **Sem í ljósi nýjustu fregna, gæti varpað um spurningum, hvað kom fyrir þá aðstoðarmenn hans, sem leiddu samningaviðræður við Bandaríkin?
  • Það má lesa eitt enn út úr þessu: Skilaboð frá Kim Jong Un, að hann virkilega meinar þetta með það, að þverneita að gefa eftir kjarnavopn NK.
    --Aðferðin að taka af lífi eða senda í þrælkunar-búðir, þá sem stóðu fyrir stefnu, sem virðist hafa beðið skipbrot -- er óneitanlega sérstakt við NK.

Ég held að slíkt tíðkist í dag hvergi annars staðar!
Það var mjög hættulegt að mistakast - ef maður vann fyrir Stalín.
--Hann fyrirgaf stundum, t.d. sínum æðsta yfirhershöfðingja a.m.k. einu sinni, stórsókn sem fór út um þúfur, vorið 1942. Hann átti engan betri hershöfðingja.

 

Niðurstaða

Ég veit að Kim Jong Un er afar nastí einstaklingur, hafandi í huga að hann sannarlega lét drepa hálfbróður sinn, fullkomlega sannað mál og frænda sinn - og fjölda embættismanna, um um tíma lét Kim fregnir um slíkt vísvitandi berast.
--En varðandi einstaklinga úr sendinefnd NK til Bandaríkjanna, sem sagðir eru teknir af lífi, þar af einn sagður sendur í vinnuþrælkun -- þá er allt óstaðfest.

En í ljósi grimmdar Kims á undan, get ég trúað fregninni.
Því í ljósi þeirrar grimmdar, get ég trúað því hann sé það bilaður - að láta taka sendinefnd sína stórum hluta af lífi, fyrir það að honum mistókst að ná hagstæðu samkomulagi við Bandaríkin.
--Kannski er það svo í þessu ríki að -loss of face- geti verið honum persónulega hættulegt.

Hann þurfi að viðhalda - terror. Hinn bóginn sýndi saga Sovétríkjanna sálugu, sbr. Stalín sem tók mikið af fólki af lífi - oft sína eigin aðstoðarmenn, ef hann áleit þá hafa brugðist. Síðan að þeir sem ríktu eftir Stalín, voru ekki þetta brjálaðir.
--Að kannski er það frekar sannleikurinn að - Kim Jong Un - sé brjálaður einræðisherra.
--Það sé ekki endilega óhjákvæmilegt að einræðisherra beiti slíkri aðferðafræði.
Þ.e. stjórni með þetta miklum - terror/grimmd.

  • Í og með, getur Kim verið að tjá það til Donalds Trump -- ég virkilega meina það sem ég sagði á okkar síðasta fundi.
    --Trump sagðist ekki vilja slæman samning.
    --Ég hef alltaf talið víst, að Kim mundi ekki gefa eftir kjarnavopn NK.

En ef fregnir eru réttar - er góð spurning hvort herra Kim sé með öllum mjalla.
En eins og ég sagði, get ég trúað þeim í ljósi þess er hann áður hefur gert!
M.ö.o. virðist ekki brjálaðra en gerðir hans skömmu eftir valdatöku!
--NK sé raunverulegt - terror state/ógnarstjórn.

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Kim virðist vera frekar óútreiknanleg manneskja svo þetta er ekki með öllu útilokað.

Gallinn er hinsvegar sá að við höfum enga fjölmiðla lengur.Hlutverk fjölmiðla í dag er að framleiða almenningsálit eftir pöntun eigendanna ,en ekki að segja okkur hvað gerðist.

Þess vegna er engin leið fyrir okkur að vita hvort þetta er satt eða logið.

Meira að segja þú sjálfur ert í vafs,sem ert þó auðblekktastur allra.

Ekki veit ég hvernig á að vinda ofan af þessu ófremdarástandi ,en sennilega verðum við að sökkva til botns eins og Sovétríkin sálugu áður en þetta batnar.

Ég reikna ekki með að það sé hægt að snúa við úr því sem komið er.

Borgþór Jónsson, 1.6.2019 kl. 08:36

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Af því að við erum í góðu skapi ætla ég að segja þér nýjasta brandarann.

.

Eins og þú veist hafa Bandaríkjamenn með sívaxadi ofbeldi reynt að þröngva Evrópubúum til að kaupa rándýrt Bandarískt gas ,sem að auki hefur ótrygga afhendingu.

Þetta vilja Evrópubúar að sjálfsögðu ekki af því að það mundi skaða þá verulega efnahagslega og að auki væru þeir í sífellu undir þeirri ógn að það yrði skrúfað fyrir gasið hjá þeim.

Bandaríkin eru ekkii beint áreiðanlegur samstarfsaðili og Evrópubúar hafa áttað sig á því.

.

En nú hafa vindar snúist af því að orkumálaráðherra Bandaríkjanna er farinn að auglýsa gasið sem "Freedom LNG" og það er samsett af því sem hann kallar"molecules of freedom" 

Frá þessari stundu eru hverfandi líkur á að Evrópubúar haldi áfram þessu andófi.

Hver getur svo sem barist gegn því að vera þvingaður til að kaupa "Freedom molecule"

.

Ég fæ ekki séð hvernig þetta getur orðið meira "Orwellian" eins og sagt er.

Ég held að það sé vandfundið annað eins samsafn af vitleysingum eins og í Bandaríska stjórnkerfinu.

Því miður þá eru vitleysingar með sprengjur stórhættulegir eins og við höfum orðið vitni á undanförnum áratugum. 

Borgþór Jónsson, 1.6.2019 kl. 12:51

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Borgþór Jónsson,  þú er blindur fylgismaður - þ.s. þú kallar satt og rétt - eru lygar rússn. fjölmiðla. Meðan þú ert enn í sama fari og þeir sem fylgdust með rússn. fjölmiðlum í Kalda-stríðinu. Vestrænir fjölmiðlar, stunda ekki þ.s. rússn. fjölmiðlar gera þ.s. flestir þeirra eru - raunverulega sjálfstæðir, m.ö.o. hvorki í ríkis-eigu né oftast nær í nánu bandalagi v. stjv.
--Hinn bóginn eru allir rússn. fjölmiðlar annað tvennu í eigu ríkisins eða bandamanna núverandi stjv. - þess vegna er ekki hægt að taka einu orði sem frá rússn. fjölmiðlum kemur, nema með fyllsta fyrirvara.
--------------
Vandamálið með NK - er að upplýsingar þaðan er erfitt að fá, landið gríðarlega lokað - þetta er svipað því og í tíð Sovétsins - þ.s. engir óháðir fjölmiðlar voru til, stjv. voru síljúgandi -- voru menn stöðugt að gíska í eyður.
--Mál snerust um orðróma stórum hluta.
**Þannig sé þetta einnig um NK - upplýsingar sé ekki að hafa - einungis óljósar vísbendingar.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.6.2019 kl. 13:33

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Ég veit að bandarískir fjölmiðlar eru ekki í ríkiseigu,en þeir eru í eigu sömu aðila og eiga ríkið.

Borgþór Jónsson, 1.6.2019 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband