Alvöru vísindamaður með vangaveltur hvort hlutur sem fór í gegnum Sólkerfið á sl. ári var búinn til af alienum

Í raun og veru er afar lítið vitað um þann hlut - sem flestir líta smástyrni með skrítna lögun. Það sem blasti strax við að væri óvenjulegt var hraði þess -- þ.s. hann var það mikill, að hluturinn gat ekki annað en verið kominn frá utan við Sólkerfið. Að auki að hraðinn væri það mikill, að þyngdarafl sólkerfisins gæti ekki náð að halda í hlutinn, heldur mundi hann halda áfram ferð sinni - aðeins koma við í Sólkerfinu á leið eitthvert annað.

Ímyndum lystamanns um úthlit hlutarins nefndur Oumuamua

An artist's rendering of the interstellar object named 'Oumuamua.

  1. Málið er að hluturinn er ekki stór, milli 0,5km - 1km.
  2. Það þíðir að í þeirri fjarlægð sem sjónaukar sáu hann, þó horft væri á hann með öflugustu sjónaukum sem til eru - var hann einungis punktur.
  3. Það sáust þó leiftur í reglulegu rithma, sem leiðir fram þá ályktun að hluturinn snúist um sjálfan sig svokallað "tumble" og að auki að hann sé óreglulegur í lögun.
  4. Af flestum talinn, ílangur og fremur flatur.

Þetta allt saman gerir hlutinn áhugaverðan.
--En síðan kemur sprengjan.

Sl. sumar var sagt frá því að hluturinn hefði aukið ferð sína á leið frá Sól, eftir að hann fór framhjá henni - tók þyngdarafls-beygju og hóf sína útleið.

  1. Hröðunin er ekki meiri en svo að hún passar við það, ef hluturinn væri - halastjarna.
  2. En enginn hali sást - síðan hefði snúningur hlutarins um sjálfan sig "tumble" breyst - sem hefði verið unnt að sjá, ef það hefði verið - útgösun frá hlutnum.

Þannig að það liggur ekki fyrir nein augljós skýring, af hverju hluturinn jók sína ferð.
Ekki er um mikla hröðun að ræða - rétt að hafa það í huga.

  1. Avi Loeb - benti á að unnt væri að skýra hröðunina með - sólargeislun.
  2. Ef hluturinn væri að þykkt innan við einn millimetra.

'Thinking About Distant Civilizations Isn't Speculative'

Loeb setti fram þá skemmtilegu kenningu að hluturinn væri í raun - svokallað, sólarsegl.

M.ö.o. ekki geimskip sem slíkt, meira leyfar slíks - nánar tiltekið, leyfarhluti!
--Hann notaði orðið - geimfornleyfafræði.

Sviðsmyndin sem hann setur upp, að mikið sé af geymrusli í vetrarbrautinni skilið eftir af sennilega löngu útþurrkuðum siðmenningum, ruslið eftir þær síðan vafri um geiminn.

Ê»Oumuamua -- getur hafa verið mjög lengi á vafri um geiminn, en vísindamenn hafa verið að reikna feril hans aftur í tímann.

  • Miðað við hraðann sem hann var á, var hann í grennd við - Vega, fyrir um 600þ. árum.
  • Hinn bóginn, var Vega ekki þ.s. Vega nú er á þeim tíma.
  • Bent er að hraði hlutarins sé svipaður og áætlaður meðalhraði hluta sem séu á vafri um geiminn "drifting through space" -- hluturinn gæti því hafa vafrað marga hringi um vetrarbrautina áður en hann vafraði í gegnum Sólkerfið.

Á endanum er svarið einfaldlega það, að vísindamenn hafa ekki hugmynd hvaðan hann er.
En tímaramminn þíðir - að hluturinn getur verið allt að margra milljarða ára gamall.
__Sem tæknilega útilokar ekki, að um tilbúinn hlut sé að ræða.
__En ef svo væri, þá gæti hann jafnvel verið á aldur við sjálfa Sólina.
Verið þá búinn til af íbúum vetrarbrautarinnar löngu horfnir.

 

Niðurstaða

Í reynd er í sjálfu sér ekki undarlegt að smástyrni rambi inn í Sólkerfið frá vetrarbrautinni, þá mundi hraði smástyrnis sennilega vera slíkur að viðkomandi smástyrni mundi fara í gegnum Sólkerfið og út úr því aftur í aðra átt.

Ef það væri ekki fyrir óútskýrða hraðabreytingu, væri enginn að koma með óvenjulegar tilgátur -- þ.s. ekki var unnt að sjá hlutinn með þeirri nákvæmni að unnt væri að ákvarða útlit hans eða lögun, að hann snúist um sjálfan sig einungis ákvarðað af hvernig endurkast sólarljóss af honum breyttist á tilteknum rythma, þá er í sjálfu sér ekki vitað hvað þetta var -- sem opnar á vangaveltur.
--Þó ef út í það er farið, verði þeim líklega aldrei svarað.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 757
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 693
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband