Gæti Trump startað heimskreppu?

Ég hef velt þessu fyrir mér áður. En það má vel velta í dag upp sviðsmynd er gæti leitt fram hugsanlega kreppu!

 

Viðskiptastríð Trumps!

Flest alþjóðafyrirtæki Bandaríkjanna hafa undanfarið varað við tjóni af völdum viðskiptastríðs - ein nýjasta aðvörunin kemur frá GM: General Motors sounds warning on Trump tariff plans.

Stjórn GM segir að tollar muni hækka verðlag á bifreiðum framleiddar innan Bandar. sjálfra - vegna þess að í dag sé mikið af íhlutum aðkeyptir erlendis frá í bifreiðaframleiðslu Bandaríkjanna.

Stjórn GM segir að tollarnir muni draga úr samkeppnishæfni GM í alþjóðlegu samhengi.

--Svipað hljómandi aðvaranir hafa komið frá fjölda fyrirtækja.

En eitt mikilvægt atriði er að íhluti er ekki endilega mögulegt að skipta um með fljótlegum hætti -- en í dag tíðkast að þróun íhluta er oft gerð samhliða þróun bifreiðar.
Það þíðir gjarnan -- að ekki sé til sambærilegur íhlutur annars staðar frá!

Það þyrfti þá að standa fyrir breytingu á framleiðslu -- að sjálfsögðu misjafnt hversu flókið ferli það mundi geta verið!

--Sem dæmi Boeing 787 Dreamliner - er með væng framleiddan í Kína. Það mundi örugglega taka nokkurn tíma að fá væng annars staðar frá!

  • A.m.k. til einhvers tíma breytilegan frá tilviki til tikviks er það a.m.k. rétt að íhlutir að utan hækka innlendan framleiðsukostnað -- eftir að tollar hafa skollið yfir.
  • Líklega er unnt að skipta um framleiðanda á íhlut - sem mundi fylgja nýr kostnaður tekur misjafnlega langan tíma eftir tilvikum, en á einhverjum enda vissulega gerlegt.

Hinn bóginn stendur Trump frammi fyrir kosningum til Fulltrúadeildar nú í haust.
Og kosningum til annars kjörtímabils haustið 2020, m.ö.o. einungis rúm 2 ár héðan í frá!

Í þeim tímaramma grunar mig að ólíklegt sé annað en að ofrangreind áhrif séu inni.
----------------

Fyrir utan þetta, þá auðvitað skaða viðskiptastríðin með þeim hætti - að aðrar þjóðir tolla á móti, sem skaðar útflutning Bandaríkjanna sjálfra!

Meðan að tollar Bandaríkjanna sjálfra á innfluttar vörur, líklega hækka vöruverð og lenda á innlendum neytendum!

--Ef við skoðum sama tímaramma þ.e. þingkosningar nk. haust - forsetakosningar 2020.
--Þá virðist manni að ósennilegt sé að Bandar. geti skipt algerlega um viðskiptaaðila í þeim tímaramma, hafandi í huga það viðskiptamagn sem sé nú tollað.

 

Aðgerðir gegn Íran!

Þær aðgerðir eru líklega að leiða til hærra olíuverðs, eða hvað?

Donald Trump: "Just spoke to King Salman of Saudi Arabia and explained to him that, because of the turmoil & disfunction in Iran and Venezuela, I am asking that Saudi Arabia increase oil production, maybe up to 2,000,000 barrels, to make up the difference ... Prices to high! He has agreed!"

Trump says Saudi Arabia has agreed to up oil output

Trump says Saudi king agreed to raise oil output by up to 2 million barrels

"We will be in uncharted territory. While Saudi Arabia has the capacity in theory, it takes time and money to bring these barrels online, up to one year,"

"The Trump administration is pushing countries to cut all imports of Iranian oil from November when the United States re-imposes sanctions against Tehran..."

Um daginn var erindreki bandarískra stjórnvalda í heimsókn á Indlandi þ.s. forsætisráðherra Indlands var beðinn um að hætta viðskiptum við Íran.

Hvort að Modi verður að þeirri beiðni er óþekkt!

ESB hefur verið að skoða aðgerðir til að aðstoða Íran. Vitað að Kína hefur einnig verið með aðgerðir til íhugunar -- hvorki liggur fyrir hvað ESB hugsanlega gerir né Kína.

Eitt hefur þó verið ljóst að ESB hefur lýst yfir andstöðu við aðgerðir Trumps gegn Íran.
Það hefur Kína einnig gert!

  • Íran framleiðir skv. netleit 2,6 milljónir fata af olíu per dag.
  • Íran ætlaði að auka framleiðslu um a.m.k. milljón föt eða meir, en líklega verður ekki af því.

En fljótt á litið virðist loforð Saudi-Arabíu ekki endilega duga.
Þegar haft er í huga að olíuframleiðsla Venezúela hefur minnkað um 30% sl. 12 mánuði og er enn í samdrætti vegna áralangrar óstjórnar.

  1. Það blasir við að ef Íran er stórum hluta hindrað í að selja sína olíu.
    --Það kemur ofan á hrun olíuframleiðslu í Venezúela.
  2. Gæti orðið veruleg verðaukning á olíu.
    --Olíuverð í dag ca. 79$.

Olíuverðsprenging gæti sannarlega skaðað hagvöxt í heiminum!
Væri auk þessa skaðleg fyrir hagvöxt innan Bandaríkjanna sjálfra!

  • Ef þessi áhrif bætast ofan á tollastríð.

 

Niðurstaða

Ef aðgerðir Donalds Trumps gegn Íran - leiða aftur til olíuverðs í 100 dollurum. Það bætist síðan ofan á efnahagstjón fyrir heiminn af völdum - tollastríð Trumps við nokkra mikilvæga viðskiptaaðila Bandaríkjanna!

Þá er alveg hægt að sjá möguleika fyrir verulegt efnahagstjón fyrir heiminn.
Og fyrir einnig Bandaríkin sjálf!

--Það tjón gæti vel verið komið fram fyrir kosningar 2020.
--Eigin aðgerðir Trumps gætu því minnkað endurkjörs líkur hans.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Trump verður endurkjörinn með auknum meirihluta - fái hann að lifa það. Almenningur hefur engan áhuga á alheims viðskiptafléttum og/eða viðskiptastríðum, aðeins daglegu brauði.

Kolbrún Hilmars, 1.7.2018 kl. 01:29

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Kolbrún Hilmars, "Almenningur hefur engan áhuga á alheims viðskiptafléttum og/eða viðskiptastríðum, aðeins daglegu brauði." Þess vegna er rökrétt að hafna Trump því almenningur vill halda störfum sínum, hafa efni á sínu daglega brauði -- Trump ógnar einmitt slíkum þáttum með sínum viðskiptaárásum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.7.2018 kl. 02:10

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Spurning hverjum er ógnað, Einar.  Fréttir herma (þótt ég hafi svosem engan sérstakan áhuga á alþjóðlegum viðskiptaháttum) að atvinnuleysi hafi minnkað um nokkur prósent undanfarið vestra.  Meiri innlend framleiðsla fjölgar störfum og þótt stóru alþjóðlegu fyrirtækjunum þyki að sér vegið kann almúginn vel að meta.  Þ.e.a.s. þeim sem greiða atkvæðin líkar það vel.

Kolbrún Hilmars, 1.7.2018 kl. 16:52

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Hilmar. Trump er að bæta upp hann möguleika að Bandaríkin verið sjálfbær. Hækki olían þá mun hann hann byrja að bora meira í Alaska en í dag er olían of ódýr til þess að það borgi sig. Þeir hafa jarðgas sem enn hefir ekki verið nýtt en nú er talað um að bæta gasleiðslu frá phrudo bay sem er við Baufort hafið og þaðan suður til Valdez sem er útskipunar höfn svo þar er mikil orka.

Ég held innst inni þá sé Trump aðallega með sjálfsþurftar búskapinn í huga enda er þetta stefna hjá SÞ að ríku fari að huga að því en í dag flytja þessi alþjóðafyrirtæki vörur og hráefni fram og til baka sem bæði eykur verð og mengun. Hvað heldur þú með það. 

Valdimar Samúelsson, 1.7.2018 kl. 17:17

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Kolbrún Hilmars, tollar Trumps eru enn of nýlega komnir til - til að vera enn farnir að hafa umtalsverð neikvæð efnahagsleg áhrif á bandar. hagkerfið. Allt slík tekur tíma að skila sér -- ekki þó mjög langan. En þetta er ekkert sérstaklega flókið - t.d. benti ESB á í dag að fyrirtæki í eigu evrópskra fyrirtækja framleiði 1,7 milljón bíla innan Bandaríkjanna -- það sé meir en nemur innflutningi bifreiða frá Evrópu. Af þeim bílum sem framleiddir séu í verksmiðjum í eigu evr. fyrirtækja m.a. í Spartanburg - sé að meðaltali 60% útflutt frá Bandaríkjunum.
--Þær evr. verksmiðjur séu því verulegur þáttur í bifreiða útflutningi Bandar.

Tollar Trumps muni í annan stað -- en tollhótanir á bifreiðar eru ekki enn komnar til framkv. og því ekki að skila neikvæðum áhrifum enn -- hækka verð á innfluttum bifreiðum!
Á móti muni Evrópa án nokkurs vafa skella tollum að sömu prósentu á bandar. útflutning.
--Eins og evr. fyrirtækin vara við, þá þegar þeir tollar koma til framkvæmda -- muni þeir valda því að þessi evr. fyrirtæki muni segja upp ca. helming starfsfólks!
-------------------

Hverjum er ógnað? Svar almenningi í Bandaríkjunum.
En tollarnir þíða ef maður gerir ráð fyrir að allar tollhótanir Trumps verði framkvæmdar -- og síðan verði þeim öllum svarað að sama skapi!

Að milljónir Bandaríkjamanna missa vinnuna! Þ.e. venjulegs verkafólks víðsvegar um Bandaríkin.
Og það fólk fær ekki þau störf aftur til baka meðan tollastríðið viðhelst. 

--Stefna Trumps er ekki fyrir almenning. Sannarlega sé ég ekki fyrir hvern hún er góð. Ég efa hún sé góð fyrir nokkurn.

--------------
Þetta þíðir á mannamáli -- að sá uppgangur í hagkerfinu Vestra tekur snarlega enda, þegar tollar Trumps og gagntollar annarra landa, hitta bandaríska hagkerfið á næstu mánuðum!
--Flestir þeirra eru ekki enn komnir til framkvæmda - þannig að fólk er kannski eðlilega ekki enn farið að fatta að eitthvað alvarlegt sé í gangi,sem eigi sennilega eftir að taka störfin þeirra.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.7.2018 kl. 20:22

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hilmar þetta getur verið rétt hjá þér en það er af hinu góða að minnka alþjóðaviðskiptin og það veist þú.

Valdimar Samúelsson, 1.7.2018 kl. 20:33

7 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Valdimar Samúelsson, OK Bandaríkin geta tæknilega starfað sem lokað hagkerfi - en það hlýtur að vera umtalsvert smærra hagkerfi með umtalsverðu atvinnuleysi, vegna þess að tollarnir ef þeir skella á megnið af innflutningi til að tryggja nokkurn veginn allsherjar innflutningsvernd - þá hækka allt verðlag í landinu.
--Sumu leiti svipað áhrifum þess að fella gengið gjaldmiðils hvernig áhrifin líta út fyrir fólk, þ.e. vörur hækka sem minnkar neyslu þ.s.kaupmáttur launa minnkar.
--Það þíði væntanlega að störfum í verslun og þjónustu fækkar, sem mikið til eru störf sem venjulegt verkafólk er gjarnan í.
--Hinn bóginn fækkar samtímis bandarískum störfum við innflutning!
Þess vegna meina ég að til komi milljónir í viðbótar atvinnuleysi og ástand sem fyrir flesta mundi líta út sem djúpt kreppuástand.
-----------
Munu störf koma á lengri tíma í staðinn.
Ég raunverulega efa það - það stafar af þróun sem er þegar hafin, ný tæknibylting sem leiði til þess að störf eru í vaxandi mæli að tapast vegna verkamönnum er skipt út fyrir róbóta - er þá framleiða varninginn í staðinn!
--Ég meina að líklegast velji eigendur að reisa verksmiðjur skv. nýjustu tækni.
--Nýju verksmiðjurnar verði líklega róbótískar með afar fáum verkamönnum við störf.
Ég sé því ekki þetta atvinnuleysi hætta sem verður til ef stefna Trumps gengur fram.

    • Þetta vil ég meina að geti framkallað kosningaósigur hans 2020.
      --Vil meina að ef hann heldur áfram að hreyfa sig hratt í ásetningu tolla, og önnur lönd halda áfram að svara í sama mynnt, þá getur aukning um milljónir atvinnulausra þegar verið komin til fyrir þær kosningar haustið 2020.

    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 1.7.2018 kl. 20:33

    8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

    Valdimar Samúelsson, ég á ekki von á því að það gerist að alþjóða viðskipti brotni niður, vegna þess að sennilega muni ekki þau lönd sem Trump hefur hafið viðskiptastríð við - fara í hár hvert við annað. Heldur sennilega sé það sem gerist, að Bandaríkin ein og sér reisi upp tollmúra -- meðan önnur lönd það ekki gera. Þannig að þá blasi við ákveðin raunprófun á því hvort það sé raunverulega sniðugt að reisa upp tollmúra vs. samanburð við þau lönd sem ekki munu það gera. Fólk fær þá algerlega eins tæran samanburð þar um og mögulega er hægt að fá.
    --Ég held að efnahagleg samdráttaráhrif á flest hinna landanna verði minnkuð verulega af því, að þau muni áfram halda því að eiga toll-lág viðskipti hvert við annað, og flest önnur lönd í heiminum.
    --Ég á ekki von á því að Bandaríkin haldi sig við þessa stefnu lengi.
    Raunsamanburðurinn verði nægilega sannfærandi til þess að sennilega hverfi þau frá henni fljótlega, eða með næsta forsetatíð grunar mig jan. 2021.
    Kv.

    Einar Björn Bjarnason, 1.7.2018 kl. 20:41

    Bæta við athugasemd

    Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

    Um bloggið

    Einar Björn Bjarnason

    Höfundur

    Einar Björn Bjarnason
    Einar Björn Bjarnason
    Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
    Apríl 2024
    S M Þ M F F L
      1 2 3 4 5 6
    7 8 9 10 11 12 13
    14 15 16 17 18 19 20
    21 22 23 24 25 26 27
    28 29 30        

    Eldri færslur

    2024

    2023

    2022

    2021

    2020

    2019

    2018

    2017

    2016

    2015

    2014

    2013

    2012

    2011

    2010

    2009

    2008

    Nýjustu myndir

    • Mynd Trump Fylgi
    • Kína mynd 2
    • Kína mynd 1

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (25.4.): 134
    • Sl. sólarhring: 196
    • Sl. viku: 217
    • Frá upphafi: 846855

    Annað

    • Innlit í dag: 125
    • Innlit sl. viku: 207
    • Gestir í dag: 123
    • IP-tölur í dag: 123

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband