Er Trump forseti í alvarlegri hættu en áður á embættismissi?

Ég rakst á mjög áhugaverða umfjöllun: President Trump has never been in more trouble than right now. En þar tæpir Paul Waldman hjá Washington Post á nokkrum áhugaverðum staðreyndum, um leit að gögnum sem fór fram á skrifstofu Michael Cohen, eins af lögfræðingum Donalds Trump.

En leitin fór fram skv. beiðni Robert Mueller, en áhugaverðustu punktar Waldmans, snúast um þau skref sem Mueller þurfti að stíga, til að fá þá leitarheimild á skrifstofu Chohens samþykkta:

  1. Þurfti Mueller að fá stuðning aðstoðar alríkissaksóknara, Rod J. Rosenstein fyrir þeirri beiðni.
  2. Síðan þurfti Mueller eftir að hafa fengið heimild Rosensteins, að leita til héraðs-saksóknara í þessu tilviki, Geoffrey Berman sem er fyrir - "Southern District of New York."
    --Rétt að taka fram, Donald Trump skipaði Geoffrey Herman, vart því unnt að kalla hann, Demókrata-samsæri.
  3. Til að fá samþykki Bermans, þurfti Mueller að eftirláta honum öll þau gögn sem hann hafði í sínum fórum sem útskýrðu af hverju hann taldi sig þurfa að fá leitarheimild hjá Cohen.
  4. Þau gögn þurftu að sýna fram á - líkur á tengslum lögfræðingsins og þar með fullri vitneskju, um glæpsamlegt athæfi.
  5. Einungis með því að sannfæra - saksóknara, sem Trump skipaði, að líklegt væri að einn lögfræðinga Trumps, hefði í fórum sínum vitneskju um glæpsamlegt athæfi -- gat Mueller fengið þetta fram.
    --Þarna er rannsóknin komin bersýnilega, langt umfram þ.s. nokkur heilvita maður getur kallað, Demókrata-samsæri.
  6. Waldman bendir síðan á, að leitin hafi síðan verið fyrirskipuð óhjákvæmilega af þeim dómara sem Geoffrey Hemann þá leitaði til - og sannfærði sjálfur persónulega á grunni gagna þeirra sem Mueller hafði eftirlátið honum, að fyrirskipa leit á skrifstofu Cohens. Leitin hafi því ekki tengst með beinum hætti - embætti Muellers.
  7. Mueller hafi ekki þau gögn undir höndum líklega enn, sem tekin voru af skrifstofu Cohens, heldur embætti Geoffrey Harmanns - skv. leitarheimildinni frá dómaranum.
  8. Þar muni að líkindum vera skipað sérfræðiteymi til að líta yfir þau gögn "taint team" til að meta gögnin út frá því að hvaða mati þau innihalda vísbendingar um glæpsamlegt athæfi.
  9. Einungis ef slík gögn koma í ljós, fái Mueller þau í hendur.
  • Punkturinn í þessu sé sá, að það sé sennilega orðið of seint fyrir Trump að reka Mueller.

Jafnvel þó Mueller væri rekinn, mundi málið tengt þeim gögnum sem náðust á skrifstofu Cohens, mala áfram í kerfinu í NewYork. Og ef þau gögn sannarlega innihalda upplýsingar um glæpsamlegt athæfi og ef þ.s. Cohen er einn lögfræðinga Trumps - Trump tengist því persónulega!
--Þá væri Trump kominn í sama djúpa skítinn og Nixon, eftir að Watergate komst upp.

 

Niðurstaða

Ég viðurkenni að ég gerði mér ekki fulla grein fyrir því hve miklum vandræðum Trump getur verið kominn í, í kjölfar leitar á skrifstofu Micheal Cohen. En punkturinn um þá leit, er að skv. upplýsingum - snerist sú leit einmitt að því að ná taki á samskiptum Cohens við skjólstæðing sinn, sem vanalega eru lögvernduð.

Það sé einmitt vegna þess, að beiðnin snerist um að komast yfir lögvernduð trúnaðarsamskipti lögfræðings og skjólstæðings, að beiðni Muellers hafi þurft að fara í gegnum allar ofangreindar hindranir.

Til þess að sannfæra saksóknara sem Trump skipaði, að sjálfur leita til dómara til að fá leitareimild samþykkta - þá greinilega þurfti Mueller að hafa í sínum fórum eitthvað ákaflega sannfærandi.

--Þetta þíðir einfaldlega, herrar mínir og frúr, að Trump líklega klárar ekki kjörtímabil sitt.
--Meira að segja þingmenn Repúblikana, munu ekki standa með Trump, þegar sönnuð alvarleg lögbrot liggja fyrir.

Það þarf einungis að sannfæra nægilega marga Repúblikana til að ná fram meirihluta í Fulltrúasadeild fyrir því að Öldungadeild Bandaríkjaþings hefji formlega glæparannsókn.
--En beiðnin þarf að koma frá Fulltrúadeildinni, síðan rannsakar Öldungadeildin málið, en eftir að niðurstaða liggur fyrir - hittast deildirnar báðar sameiginlega og greiða sameiginlegt atkvæði um niðurstöðuna, og þá ræður einfaldur meirihluti.
--En til að hefja rannsókn, þarf 2/3 meirihluta í Fulltrúadeild fyrir beiðni til Öldungadeildar.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Ert þú að segja okkur, að bakstjórnin, New World Order, stórfyrirtækin, fjármálakerfið,   séu að reyna að koma Trunp frá völdum.

Auðvitað eru republicanar og democratar jafn fastir í höndum bakstjórnarinnar,.

Það er betra fyrir bakstjórnina að sá sem kemst í framboð, sé svona venjulegur, syndugur maður.

Þá er örugglega hægt að koma honum frá, ef hann fer að reyna að losa fólkið úr fjósinu hjá púkanum í okkur.

 

 

000

 

Dulles

 

slóð

 

Handgenginn konungi.

 

16.3.2012 | 23:40

 

000

 

Nixon

 

slóð

 

Watergate var smámál, en blásið upp af elítunni, til að losna við Nixon, sem minnkaði stríðsbröltið og vildi norræn sjúkrasamlög, Aðgerðum Trump var líkt við Nixon og Watergate

 

12.5.2017 | 01:09

Egilsstaðir, 11.04.2018  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 11.4.2018 kl. 11:51

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson


Ég er aðeins spældur, ætlaði að vera sem nettastur.

Dulles slóð    -    Handgenginn konungi.   -  Nixon slóð  -  Watergate var smámál, en blásið upp af elítunni, til að losna við Nixon, sem minnkaði stríðsbröltið og vildi norræn sjúkrasamlög, Aðgerðum Trump var líkt við Nixon og Watergate

Egilsstaðir, 11.04.2018  Jónas Gunnlaugsson

 

 


Jónas Gunnlaugsson, 11.4.2018 kl. 12:04

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Jónas Gunnlaugsson, í guðs bænum hættu að tala um Trump að hann standi fyrir eitthvað dramatístk merkilegt. Hann er einfaldlega - gamaldags stórveldasinni, Teddy Rosevelt kemur í hugann - nema að Teddy var miklu mun snjallari.

Það sé aftur á móti, persónuleg spilling Trumps sjálfs - sem sé að draga hann niður.
Ekkert heimssamsæri gegn honum, slíkar hugmyndir séu hreint rugl.
--Trump fer frá einfaldlega vegna þess, að hann er spilltur - afar spilltur, og var staðinn að lögbrotum.
--Það sé einfaldlega, réttlæti bandar. réttvísi -- að glæpamaður fái ekki að sitja sem forseti.
**En ef hann er staðinn að alvarlegum lögbrotum fyrir hans forsetatíð, sem líklega er málið -- þá einfaldlega er Trump krimmi, og krimmar eiga ekkert erindi að vera leiðtogar ríkja.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.4.2018 kl. 12:52

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Miðað við það sem á undan er gengið sé ég ekki betur en Trump stafi engin hætta af þessu, eða neinu svona.
Sé ekki hvernig þér dettur það í hug.

Ásgrímur Hartmannsson, 11.4.2018 kl. 15:46

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ágrímur, og hvernig dettur þér í hug að honum stafi ekki hætta af því? En þú útskýrir ekki neitt meðan að útskýringar eru að ofan -- en málið er m.ö.o. komið í ferli, glæparannsóknar.
Þ.e. þ.s. útkoman merkir.
Þá malar sú rannsókn áfram innan kerfisins í Bandar. burtséð frá því algerlega, hverja Trump leitast við að reka.
Það þíðir, hann getur ekki stoppað þetta lengur, og ef eins og líklegt virðist, að dómsmál er hafið gegn lögfræðingi hans á grunni ofangreindra gagna -- þá verður samið við hann væntanlega, síðan hann notaður sem vitni gegn Trump sjálfum.

Með lögfræðinginn dæmdan, með hann sem vitni ofan í sönnunargögn, gæti Trump án gríns endað í fangelsi -- en réttívin bandar. gerir ekki greinarmun á því hver viðkomandi er.
--Í síðasta lagi mundi fangelsið bíða eftir honum, eftir hann er hættur að vera fangelsi -- en ég ætla ekki trúa því að þingmenn Repúblikana leggist það lágt, að verja Trump gegn sönnuðum glæp, þegar verður búið að fullu sanna þann glæp með dómi yfir hans lögfræðingi.

Ef lögfræðingurinn er dæmdur fyrir hluti sem hann gerir fyrir Trump, þá að sjálfsögðu er Trump einnig þá sekur fyrir það sama og málið jafn mikið sannað þá á Trumpinn.

Ég reikna fastlega með úr því sem komið er, að líklegra sé en ekki að Trumpurinn klári ekki kjörtímabil sitt -- málin gegn honum séu nú óstöðvandi skriða er keyri hann líklega niður.

Eiginlega sé ég ekki lengur hvernig hann sleppur, nema með þeim hætti að þingmenn Repúblikana mundu fara að ganga algerlega á svig við lög og rétt, og verja sannaðan lögbrjót.
--En þá bíður fangelsið eftir Trump eftir hann hættir.
**Ég ætla ekki trúa því fyrirfram að þeir leggist það lágt.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 11.4.2018 kl. 17:51

6 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Auratottandi vændiskonan Stormy er af rússneskum ættum. Það útskýrir málið...

Guðmundur Böðvarsson, 12.4.2018 kl. 13:10

7 Smámynd: Snorri Hansson

Ástæða þess að frambjóðendur til forseta skuli veljast algjörlega óhæfar persónur, er verðugra ransóknarefni.

Snorri Hansson, 12.4.2018 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 757
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 693
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband