John Francis Kelly virðist orðinn að hliðaverði Hvítahússins

Þetta er óneitanlega áhugaverð þróun, en svo virðist að General John Francis Kelly sem Trump nýlega gerði að starfsmannastjóra Hvítahússins; sé nú búinn að hreiðra þannig um sig innan Hvítahússins - að hann sé héðan í frá miðpunktur!
--En hann virðist nú stjórna öllu aðgengi að Donald Trump forseta!
--Meira að segja börn Donalds Trumps og mágur, verða fá heimild frá John F. Kelly!

  • Og skv. nýjustu fréttum, hefur Kelly fengið nýlega ráðinn af Trump -- samskiptastjóra Hvítahússins; snarlega rekinn - þ.e. Antony Scaramucci.

https://www.usnews.com/dims4/USNEWS/9b9d7bb/2147483647/thumbnail/970x647/quality/85/?url=http%3A%2F%2Fmedia.beam.usnews.com%2F82%2F4d%2F0737e06b4e319df4bc7ad2010535%2Fresizes%2F1500%2Fap-17010827268325.jpg

Kelly restores White House order as Scaramucci ousted

Trump fires communications director Scaramucci in new White House upheaval

 

Þessi tegund af stöðu er gjarnan kölluð - hliðavörður!

Hann opnar og lokar aðgenginu að forsetanum - því gjarnan líkt við, stjórna umferð um hlið.

  1. Hliðaverðir geta orðið afskaplega valdamiklir, ef sá sem þeir gæta hefur mikil völd.
  2. Ef það fer saman við, traust á hliðaverðinum af hálfu hans yfirmanns - hefur hliðavörður stundum heilmikil tækifæri til að hafa áhrif á stefnu síns yfirmanns.
  3. En það að stjórna umferðinni, þ.e stjórna hverja hann hittir - þíðir gjarnan að stjórna því hvað yfirmaður hliðarvarðarins fær að heyra eða frétta!
  4. Það eru alveg til söguleg dæmi þess, að hliðaverðir nái að einangra verulega sinn yfirmann, og fara jafnvel að gefa skipanir í hans nafni.
  5. Hafandi í huga hve fókus og athygli Donalds Trumps virðist oft lítil - auðvelt að dreifa athygli hans; hafandi í huga hann virðist a.m.k. nú treysta Kelly.
    --Virðist raunhæfur möguleiki á því að Kelly geti raunverulega orðið afskaplega valdamikill hliðavörður!

Það á þá eftir að koma í ljós hvernig Kelly beitir þeim völdum!
Spurning hvort að hliðavörðurinn geti fengið fleiri af þeim sem Trump hefur ráðið - rekna!
--En ef hliðavörðurinn getur skapað þá sýn að hann geti fengið fólk rekið, þá mundu aðrir í kringum Trump geta orðið mjög varfærnir - af ótta við að styggja hugsanlega Kelly.

Það kemur í ljós síðar hve miklu Kelly nær raunverulega að stjórna.
Og hve miklu þar af leiðandi hann fær að ráða!

 

Niðurstaða

Það má eiginlega segja að nú sé kominn nýr ráðamaður í Hvítahúsið. En Kelly hafði verið yfirmaður svokallaðra Heimavarna, en nú er hann tekinn við valdameiri stöðu og miðað við þær fréttir að hann sé þegar farinn að hreinsa til innan Hvítahússins. Þá virðist ljóst að Kelly hyggst vera maðurinn sem ræður - fyrir utan hugsanlega Trump sjálfan.
--En ef hann getur að verulegu leiti stjórnað Trump sjálfum.
--Þá gæti það jafnvel gengið það langt að skapa spurningu hvor ráði meir!

Kemur í ljós hversu valdamikill hinn nýi starfsmannastjóri Hvítahússins raunverulega verður.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 760
  • Frá upphafi: 846641

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 696
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband