Kröfur á Qatar í 13 liðum sem bandalagsríki Saudi Arabíu lögðu fram hefur sett deilu ríkjanna við Qatar í nýtt samhengi

Þetta eru engar smáræðis kröfur eins og sjá má að neðan - en þíðingin úr arabísku er líklega ekki orð fyrir orð, en hún sýni a.m.k. hvað felst í kröfum bandalagsríkja Saudi Arabíu.

Sumar kröfurnar hljóma fremur áróðurskenndar, t.d. krafa 2 og 6, þ.s. greinilega er látið í það skýna, að Qatar sé með samskipti við hryðjuverkasamtök auk þess að fjármagna þau, gegn neitun Qatar um slíkt.
--Síðan auðvitað eru ekki endilega allir sammála því að skilgreina Bræðralag Múslima hryðjuverkasamtök.

Krafa 7, 8 og 9 - vísar líklega til stjórnarandstæðinga frá nágrannalöndum Qatar, er flúið hafa til Quatar, fengið þar hæli - jafnvel í tilvikum, ríkisborgararéttindi.
--Auðvitað, því fylgi ásökun þess efnis að með slíku sé Quatar að skipta sér af innanríkismálum granna sinna.
--Það virðist að þeir aðilar hafi fengið að starfa að áhugamálum sínum óáreittir í Qatar. M.ö.o. áhugamálum af því tagi - að berjast fyrir breytingum innan sinna fyrrum heimalanda.

Krafa 10, gæti tengst því að stjórnarandstæðingar stjórnvalda nágrannalanda Qatar, hafi frá Quatar getað beitt sér í innanlandsmálum grannlanda Quatar - gegn vilja stjórnvalda þeirra landa.

Saudi Arabia gives Qatar 10 days to meet its demands: close Al-Jazeera and cut ties with Iran

Qatar given 10 days to meet 13 sweeping demands by Saudi Arabia

Arab states issue ultimatum to Qatar: close Jazeera, curb ties with Iran

Middle East states issue demands to end Qatar crisis

https://pbs.twimg.com/media/DC_du4eWsAAoemF.jpg:large

Það er áhugavert að Tyrkland sé með herstöð í Qatar - ekki bara Bandaríkin!

Herstöð Tyrkja getur á næstunni reynst vera lykilatriði - en skv. frétt Reuters að ofan, hefur Erdogan ákveðið þegar að fjölga í liðssveit Tyrklandshers í Quatar; til að sýna í verki stuðning Tyrklands við Qatar.

Krafa 5 - er einmitt um það að Qatar hætti öllu hernaðarsamstarfi við Tyrkland, m.ö.o. bersýnilega er það samstarf þyrnir í augum Sauda og bandamanna Sauda við Persaflóa.
--En þessi herstöð gæti reynst lykilatriði í hugsanlegri getu Qatar að standa af sér storminn.

  • En löndin fara vart að ráðast á Qatar - ef það getur þítt, stríð við Tyrkland.

Greinilega af lið 1 - þá leggja löndin áherslu á að Qatar skeri til muna niður samskipti við Íran - á hinn bóginn hafnar Qatar því með öllu að aðilar í Byltingaverði Írans séu í Qatar.

Síðan er auðvitað krafan um lokun - al Jazeera, og fréttamiðla í öðrum Arabalöndum sem Qatar rekur auk al Jazeera; áhugaverð og sýni að starfsemi þeirra miðla sé mjög slæmur hlutur í augum einræðislandanna bandamanna Saudi Araba og Saudi Arabíu.

  • Það kemur að sjálfsögðu ekki á óvart -- að krafist sé að Qatar hætti alfarið sjálfstæðum afskiptum af málefnum Mið-austurlanda; þess í stað gerist leppríki Saudi-arabíu.
  1. Vegna þess að Tyrkland hefur herstöð í Qatar.
  2. Þá séu líkur þess að ráðist verði með beinum hætti að Qatar - litlar.

Þó tæknilega geti Saudi-arabía gert tilraun til þess að hindra siglingar skipa til Qatar og frá Qatar. Þá auðvitað sé verulegur hluti Persaflóa innan íranskrar landhelgi.
--Tæknilega geta skipin væntanlega siglt um landhelgi Írans.

Auk þess að Qatar sé stærsti einstaki útflytjandi gass á vökvaformi - "Liquefied natural gas".
Mörg lönd kaupi gas af Qatar og líklega mundu þau ekki sætta sig við afskipti af siglingum skipa til og frá Qatar.
--Það sé því ekki endilega víst að Qatar sé í óverjandi stöðu!

 

Niðurstaða

Það verður áhugavert að fylgjast með þessari deilu. En klárlega ætla stjórnvöld í Doha ekki að fara eftir þessum kröfum. Ekki fylgdi sögunni hvað Saudi Arabía og bandalagsríki ætla að gera að 10 dögum liðnum, þegar kröfurnar renna út.
--Hafandi í huga að Tyrkland virðist ætla að standa þétt að baki Qatar.
Þá sé það alls ekki án áhættu, að auka spennuna frekar!

Auðvitað hafa Bandaríkin stóra herstöð í Qatar. En þau a.m.k. hafa þá valkost, að standa til hliðar enn um sinn, meðan þeirra eigin bandamenn - rífast.

--Það virkar á mig eins og ríkisstjórn Bandaríkjanna sé ósamstíga í þessu máli. Geti því verið hugsanlega töluvert lömuð í málinu, meðan ekki liggur ljóst fyrir hver stefna stjórvalda þar akkúrat er.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Saudi Arabía, er að líða undir lok ... hvernig það verður, og hverjir standi að baki er erfitt að segja ... en það eru þegar ásakanir og fullyrðingar um (hversu trúverðugar þær séu) að um sé að ræða vandamál innan sjálfrar konungafjölskyldunnar. Sem á upptök sín fyrir (eða eitthvað tengd) þegar þeir hálshuggu prinsinn.

Hvað varðar Tyrkland, þá er hér um að ræða einræðisríki ... sem kastar nútímafræðum, og er "bandamenn" Evrópu.

Svo spenntu beltin ... bumpy ride ahead.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 24.6.2017 kl. 08:00

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Hvort tveggja einræðisríki með trúar ívafi sem styðja sitt hvora trúarstefnuna innan Súnní Íslam. Sannarlega "potentially explosive."
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 24.6.2017 kl. 09:04

3 identicon

Saudi Arabía hefur stutt hryðjuverkamenn í gegnum tíðina... vissulega með "samþykkt" bandaríkjanna.  En Bandaríkin eru ekki einu "leikmennirnir" á skákborðinu.  Þannig, að "endalok" Sauda, er nánast örugg ... bara spurning hvar, og hvernig.

Qatar, Kuwait, UAE, Saudi Arabia ... eru með "leik" sínum, búin að skrifa undir eigin dauðadóm.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 24.6.2017 kl. 20:49

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sé ekki að nokkurt sé öruggt.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 25.6.2017 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 229
  • Sl. sólarhring: 288
  • Sl. viku: 312
  • Frá upphafi: 846950

Annað

  • Innlit í dag: 216
  • Innlit sl. viku: 298
  • Gestir í dag: 209
  • IP-tölur í dag: 209

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband