Emmanuel Macron virðist hafa hreinan meirihluta á franska þinginu, sem verður að teljast ótrúleg úrslit í sögulegu samhengi

Ímyndum okkur að nýr flokkur mundi koma til sögunnar á Íslandi, staðsettur rétt við hina pólitísku miðju - ef til vill örlítið vinstra megin við hana, taka síðan til sín fylgi beggja vegna við miðlínuna; og sá yrði strax langstærsti flokkurinn á þingi.

--Þetta er nákvæmlega það sem Emmanuel Macron hefur afrekað.
--Flokkur sem var stofnaður mánuðum fyrir forsetakosningar, hefur sópað sviðið.

Emmanuel Macron brosir örugglega breitt nú!

https://pbs.twimg.com/profile_images/834424630630817795/TfyS4uXb.jpg

Macron wins strong parliamentary majority, estimates show

Tölur skv. útgönguspám:

  1. 355-365 þingsæti: Lýðveldisflokkur Macrons.
  2. 125-131 þingsæti: Íhaldsamir Repúblikanar.
  3. 41-49 þingsæti: Sósíalistaflokkur Frakklands.
  4. 19 þingsæti: Vinstri fylking Jean-Luc Mélenchon.
  5. Front Natonale mun fá þingsæti í fyrsta sinn, færri þó.

Endanlegar tölur: Macron wins solid majority in French assembly election

  1. 350 þingsæti: Lýðveldisflokkur Macrons.
  2. 137 þingsæti: Íhaldsamir Repúblikanar.
  3. 44 þingsæti: Sósíalistaflokkur Frakklands.
  4. 17 þingsæti: Vinstri fylking Jean-Luc Mélenchon.
  5. 10 þingsæti: Kommúnistaflokkur Frakklands.
  6. 9 þingsæti: Front Natonale eða FN.

Heildarfjöldi þingsæta 577.

Lýðveldisflokkur Macrons skv. þessum kosningaúrslitum, fær öruggan meirihluta þingmanna.

  1. Það er algerlega klárt skv. þessu, að franskir kjósendur eru að veðja stórt á Macron.
  2. Hann hefur lofað umbótum innan Frakklands - Þó ekki eins róttækum þeim er franskir hægri menn höfðu lofað fyrir kosningar.
  3. Alveg ljóst að hann græddi á þeim hneykslismálum er skóku helsta frambjóðanda hægri manna, á sama tíma og að Hollande fyrrum forseti var kominn í það sem örugglega er franskt met í óvinsældum - en lægst fór hann í 3% stuðning kjósenda, gereyðilagði þar með alla möguleika franskra krata.

--Þegar þetta fór saman, sjálfseyðing franskra krata undir stjórn Hollande.
--Síðan slæmt val franskra hægri manna á frambjóðanda, er lenti í hneysklismáli er eyðilagði hans tækifæri og samtímis tækifæri franskra hægri manna.

Þá virðist það hafa gerst, að mjög margir kjósendur rétt vinstra megin við miðju og samtímis rétt hægra megin við miðju.
--Að þeir höfðu engan valkost til að kjósa!

  • Það sé því óhætt að segja, að Emmanuel Macron hafi verið alveg einstaklega heppinn.

Hann hefur fengið tækifæri til að setja sitt mark á sögu Frakklands.
Það mun koma í ljós hvort honum tekst það!

En augljóslega felur val franskra kjósenda á Macron einnig í sér að þeir höfnuðu -- þeim frambjóðendum er stóðu langt utan við hina pólitísku miðju, hvort sem það var:

  1. Jean-Luc Mélenchon.
  2. Marine Le Pen.

Þeirra flokkar náðu samt nokkru fylgi - en ekkert í líkingu við það fylgi sem Macron er að fá.
--Franskir kjósendur eru þá einnig skv. því að velja frekari svokallaðan Evrópusamruna.
--En Macron er yfirlýstur svokallaður Evrópusinni, eða nánar tiltekið - Evrópusambandssinni.
Og yfirlýst vill efla þá ESB frekar, dýpka sambandið um Evruna.

  • Svo skýrt val franskra kjósenda á Macron bendi þá ekki til þess að andstaða gegn ESB sé verulega mikið útbreidd meðal fransks almennings.
    --Hafi a.m.k. langt í frá meirihlutafylgi.

 

Niðurstaða

Emmanuel Macron skv. lokatölum fær þann þingmeirihluta sem hann þarf, til að vera sterkur forseti. En með öruggan þingmeirihluta þá þarf hann skv. því ekki að taka tillit til annarra þingflokka. Og ætti þar með að geta komið fram þeim breytingum er hann hefur áhuga á að hrinda í framkvæmd.
--Tækifæri hans til að setja sitt mark á Frakkland sé augljóst og samtímis sögulegt.

Hans helsta ógn, geti verið frönsk verkalýðshreyfing og aðrir fjölmennir þrýstihópar, er sögulega hika ekki við það að standa fyrir fjölmennum mótmæla-aðgerðum.
--En þingið ætti hann að geta notað sem stimpilpúða.

Hann verði skv. þessu valdamikill forseti.
Hvernig hann reynist Frakklandi á eftir að koma í ljós.
--Ég óska honum velfarnaðar í starfi, en á maður ekki alltaf að óska slíkt nýjum stjórnanda?

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Ef nýr flokkur kæmi til sögunnar á íslandi"? - - Einmitt Þegar það gerist munu hlutfallslega miklu fleiri kjósa heldur en í Frakklandi.- Afreks frambjóðandi okkar nyti hylli þjóðrækinna manna,áróðursvél ESb virkar ekki lengur hér,þótt hún dugi í Frakklandi í dræmum kosningum.

Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2017 kl. 00:12

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta gæti ekki gerst hér á landi miðað við núverandi kosningalög og kjördæmaskipan. Hinn nýi flokkur Macron er ekki með meirihluta atkvæða á landsvísu. 

Ómar Ragnarsson, 19.6.2017 kl. 00:37

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ómar, sjálfsagt rétt að flokkur næði aldrei meirihluta á þingi - en í þarna er kominn alveg nýr flokkur sem á nánast andartaki er sá langstærsti.
Sá flokkur gæti auðviða horfið jafn harðan ef nýi forsetinn - er ekki starfinu vaxinn er á reynir.
--Sambærilegt hefur aldrei gerst á Íslandi a.m.k. ekki eftir lýðveldisstofnun, að algerlega ný hreyfing sé stofnuð og hún sé stærsti flokkurinn strax.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 19.6.2017 kl. 03:31

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það væri þá eftir öðru sambærilegu sem hefur gerst á Íslandi,í stjórnun og hegðun. 

Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2017 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 845416

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband