Trump skipar höfund "Death by China" og "The Coming China Wars: Where They Will Be Fought, How They Can Be Won" -- sérstakan persónulegan Kína-viðskipta ráðgjafa Hvítahússins

Óhætt að segja Peter Navarro umdeildan - en hann virðist sl. 20 ár hafa verið í persónulegri krossferð gegn Kína -- og ef marka má hans nýjustu bók:

"The Coming China Wars: Where They Will Be Fought, How They Can Be Won."
Sjá Youtube hlekk: The Coming China Wars

Fer afstaða hans gegn Kína greinilega sífellt harðnandi!
--Ég las -review- um þá bók, en ef marka má þau -review- þá er Navarro í þeirri bók ekki lengur eingöngu að boða -- fulla andstöðu við Kína á viðskiptasviðinu!
--Heldur það sem verði að túlka sem kalt stríð.
Ef marka má þær umfjallanir sem ég las, þá talar Navarro um Kína -- með mjög sambærilegum hætti, og oft var rætt um Sovétríkin í Kalda-stríðinu.

Þ.e. fókusinn sé á -- "hættuna af Kína" og hvernig "hin hugrökku Bandaríki verði að bregðast við."

  • M.ö.o. virðist hann ef marka má þær umfjallanir, setja þetta upp sem -svart/hvíta- mynd, vonda Kína vs. góðu Bandaríkin.

Þannig hljómar hann eins og klassískir Kalda-stríðs haukar sem ég man enn eftir!

Hann gerði einnig -heimildamynd- sem nefnist: Death By China: How America Lost Its Manufacturing Base. Ath. - Youtube hlekkur, full lengd!

  1. Eins og hann virðist setja þetta fram, þá sé kenningin beinlínis sú, að Kína hafi fengið að komast upp með -- skipulagt rán sl. 30 ár eða svo.
  2. M.ö.o. að Kína hafi ruplað og rænt Bandaríkin og bandaríska borgara.
  • Peter Navarro -- er greinilega hugmyndafræðingur Trumps þegar kemur að stefnu Trumps gagnvart Kína.
  • Þegar menn eru með þannig - stórfellda "grievance" hugmyndafræði -- þá er að sjálfsögðu ekki von á góðu.

Trump picks 'Death by China' author for trade advisory role

Trump's Appointment Of Peter Navarro To Trade Post Is Belligerent Signal To China

Trump Taps Peter Navarro, a Critic of China, for a New Trade Post

Það þarf ekki að efa að Navarro -- mun hafa mjög beinan aðgang að Trump.
Og að Trump mun hlusta á Navarro! En Navarro virðist beinlínis vera -mentor- Trump.

  1. Það þíði auðvitað, að viðhorf Navarro sem koma fram í "The Coming China Wars: Where They Will Be Fought, How They Can Be Won" - hvar hann virðist íhuga af fullri alvöru hugsanleg bein hernaðarátök við Kína.
  2. Skipta máli!

 

Niðurstaða

Ég verð sannfærðari eftir því sem ég sé fleiri ráðningar hjá Trump staðfestar, að Bandaríkin stefna líklega undir Trump hraðbyri á nýtt Kalt-stríð. En ef marka má Navarro, ef marka má hans nýlegustu skref -- boðar hann fulla andstöðu Bandaríkjanna við Kína, yfir allt sviðið.
--M.ö.o. Kalt-stríð.

Navarro virðist skilja mikilvægi Tævan, sem ég bendi á í: Kína sendir Trump mótmæli - vegna símtals Trumps við Tsai Ing-wen leiðtoga Tævan.

Hann virðist einmitt boða það að beita hótunum í tengslum við Tævan - sem svipu á Kína.
--En eins og ég útskýri í hlekknum að ofan - gæti það startað mjög hættulegri krísu milli Bandaríkjanna og Kína - þá meina ég sambærilega við Kúbu deiluna.

  • En eins og ég útskýri, að ef leiðtogar Kína telja að Trump ætli að nota Tævan sem lið í nýrri "Cold War style containment strategy" -- þá væri einmitt ekki unnt að útiloka, vopnuð átök.

En ef Trump ætlar að hefja Kalt-stríð, mundi Kína standa mun veikar að vígi -- ef Bandaríkin tryggja það að Tævan sé í liði Bandaríkjanna gegn Kína.

Þ.e. einmitt ef leiðtogar Kína meta stöðuna þannig, að þeir séu að missa af möguleikanum um að Tævan sameinist Kína -- sem ástandið virkilega raunverulega gæti orðið mjög mjög hættulegt - sjá einnig færslu mína: Deila milli Bandaríkjanna og Kína um Tævan - gæti orðið eins hættuleg og Kúbudeilan.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Afskaplega eru hugsanir þínar dökkar í skammdeginu, þú ættir kanski að fara til sérfræðings með þetta vandamál?

Hvað hefur komið fyrir þig Einar, að láta kjör einhvers asna í USA hafa svona þunglyndis áhrif á þig, ég næ þessu ekki.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.12.2016 kl. 04:26

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Fylgstu með - dökkar af góðri ástæðu.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.12.2016 kl. 10:37

3 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Mér finnst þetta að mörgu leiti raunsær pistill. Þetta eru auðvitað spekúlasjónir, við vitum ekki hvað er að fara að gerast, en það bendir margt til þess að þarna verði átakalínurnar. Hvað þetta mun síðan leiða af sér er vont að segja, en ekki ólíklegt að einhverskonar heimskreppa komi í kjölfarið.

Sveinn R. Pálsson, 22.12.2016 kl. 11:05

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sveinn, heimskreppa getur auðvitað orðið, ef átök Bandar. og Kína færu í mjög harkalegan farveg - en þá gæti stj. Trumps farið í þann farveg að gera tilraun til þess að skaða sem mest Kína efnahagslega, hafandi í huga að Kína er í dag annaðhvort 2-stærsta hagkerfi heims eða það stærsta nú þegar - fer eftir tölur skv. hvaða forsendum eru skoðaðar.
--Þá hefðu átök á þannig grunni, afar slæmt áhrif á heims hagkerfið!
--Auðvitað einungis það, að Bandar. og Kína mundu hefja harkaleg átök -- hefði eitt og sér, mjög slæmt áhrif á heims hagkerfið.
**Það án þess að ég geri ráð fyrir því endilega að átök tengd Tævan t.d. yrðu eins alvarlega sem verða sambærilega hættuleg á Kúpudeilan á sínum tíma.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.12.2016 kl. 12:37

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Ekki láta kjör einvers asna..." sögðu margir 1933. 

Ómar Ragnarsson, 22.12.2016 kl. 20:13

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ómar Ragnarsson, "Ekki láta kjör einvers asna..." sögðu margir 1933. "

Mikið rétt minn kæri, fjölmargir vanmátu Hitler stórfellt fyrstu árin eftir valdatöku hans.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 23.12.2016 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 758
  • Frá upphafi: 846639

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 694
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband