Líklega er samningur ESB við Bandaríkin um viðskiptasamning þvert yfir Norður Atlantshaf -- dauður!

Mig grunar að það sé reyndin eftir að Vallóníu svæðið í Belgíu, þ.e. frönsku mælandi hluti Belgíu -- drap viðskiptasamning ESB og Kanada!
--Þó Framkvæmdastjórn ESB hafi ekki enn formlega gefið samninginn upp á bátinn!
--Virðist ljóst að sá samningur sé nú endanlega dauður!

En málið er að hvers vegna -CETA- samningurinn féll, bendir til þess sterklega að svokallað "Trans Trade and Investment Partnership" sé einnig búið að vera!

Ceta failure will undermine basis of EU trade policy

Belgium sinks EU-Canada trade deal after Wallonia veto

Ceta debacle heralds a period of disintegration for the EU

 

Megin ástæða andstöðunnar virðist vera - "investor-state dispute settlement (ISDS)"

Sérstakt dómskerfi/úrskurðarkerfi eða "tribunal" sem bæði -CETA- og -TTIP- gera ráð fyrir. Í Lissabon sáttmálanum 2009 - þá náði Framkvæmdastjórnin yfir til sín samningum um slíka sérstakra dómsstóla/úrskurðarkerfi -- sem virka í samhengi viðskiptasamninga og fjalla um deilur erlendra fyrirtækja og þess ríkis sem gert hefur samning er kveður á um slíkt sérstakt dómskerfi/úrskurðarkerfi tengt samningnum.

Fyrir 2009 gátu einungis einstök lönd gert samninga um slík "tribunals" -- en með því að aðildarlöndin samþykktu 2009 að Framkvæmdastjórnin tæki það að sér að semja um slík fyrir hönd allra aðildarlandanna!

Þá skapaðist sá möguleiki - að alþjóða viðskiptasamningur sem Framkvæmdastjórnin semdi um fyrir hönd aðildarlandanna allra -- innihéldi slíkt "tribunals" kerfi er meðhöndlaði deilur milli aðildarríkjanna og fyrirtækja utan við ESB aðildarlönd er deildu við einstök aðildarlönd um atriði er tengjast viðskiptum.

  • Í seinni tíð, hefur mikil andstaða við þetta fyrirkomulag vaknað innan einstakra aðildarríkja -- sérstaklega í tengslum við fyrirhugaða samninga við Bandaríkin.
  • En þeir samningar, mundu ef af verður, fela í sér verulega opnun fyrir bandarískar landbúnaðar-afurðir.
  • Mikil andstaða er í Evrópu við genabreyttar afurðir - andstaða sem ég tel fullkomlega "irrational"- en er eigi að síður útbreitt í Evrópu.
  • Á móti mundu evrópsk þjónustufyrirtæki - fá stórbættan aðgang að Bandaríkjunum.

-- --> Það sé ekki endilega furðulegt að Vallónía hafni -CETA- þ.s. um er að ræða landbúnaðarsvæði, þ.s. andstaðan við aukið aðgengi bandarískra landbúnaðarafurða, er mjög sterk!

Tengingin yfir til -TTIP- er mjög lifandi í huga fólks!
M.ö.o. að líklega hafi það litið svo á, að það væri einnig að hafna -TTIP.-

  1. Almennt séð geta aðildarríki ekki stöðvað viðskiptasamninga þ.s. fyrir mörgum árum síðan, þá afhentu þau til Framkvæmdastjórnarinnar réttinn til að semja fyrir sína hönd.
  2. Á hinn bóginn, er aðildarlöndin afhentu yfir til Framkvæmdastjórnarinnar réttinn til að semja fyrir hönd aðildarríkjanna - um sérstaka dómstóla eða úrskurðaraðila sem taka að sér deilur milli utanaðkomandi fyrirtækja og aðildarríkja einstakra.
  3. Þá gerðu þau það með -- skilyrðum!

Búnar voru til 2-skilgreiningar þ.e. "blandaðir samningar" og "venjulegir viðskiptasamningar."

Ef samningur telst "blandaður" þá hafi öll aðildarríkin réttinn til að samþykkja eða hafna!

  1. Fjöldi aðildarríkja taldi að -CETA- væri "blandaður samningur" og heimtaði að fá réttinn til að samþykkja eða hafna -- í júlí lét Cecilia Malmstrom undan, kommissari utanríkisviðskipta!
  2. Erfitt er að sjá annað, en þar með hafi skapast fordæmi um það sama gildi fyrir -TTIP.-

Í því ljósi - virðist nær fullkomlega öruggt!
Að -TTIP- verði einnig alveg örugglega hafnað af einhverju aðildarlandanna, kannski Vallóníu!

  1. Hvað þetta þíðir fyrir getu Framkvæmdastjórnarinnar að gera nýja alþjóðlega eða fjölþjóðlega samninga -- á eftir að koma í ljós!
  2. En bent hefur á að þetta geri líklega samninga Breta og ESB um viðskipti í samhengi BREXIT -- óskaplega erfiða!
  3. Því þeir samningar hefðu í för með sér enn stærri hugsanleg inngrip, en -CETA- ef Bretar ættu að fá að halda sambærilegu aðgengi fyrir sín þjónustufyrirtæki og nú er reyndin.
  4. Þannig að það blasi þá sennilega við -- að vegna ákvörðunar -Cecilia Malmstrom- þá leiði það fordæmi sennilega einnig til þess, að sérhvert aðildarríki ESB muni með sambærilegum hætti hafa neitunarvald um hugsanlegan 2-hliða viðskiptasamning Bretlands og ESB í framtíðinni.
    --Þar á meðal héraðið Vallónía, vegna stjórnarskrár Belgíu.
  • Þetta gæti verið hvers vegna Theresa May -- hefur ákveðið að hefja BREXIT viðræður strax á upphafsmánuðum nk. árs!
    Og hvers vegna það virðist hún ætli að reyna að gera viðskiptsamninginn í samhengi þess ferlis -- því ferlið skv. Gr. 50 - er á valdsviði Ráðherraráðsins.
    Þannig að ef samningur mundi verða kláraður innan ákvæða Gr. 50 - þá væri hann afgreiddur í veginni meirihlutatkvæðagreiðslu ráðherra einstakra aðildarríkja í Ráðherraráðinu - en ekki af einstökum þjóðþingum aðildarríkja.

 

Niðurstaða

Ég fagna ekki endilega yfirvofandi dauða -TTIP.- En víðtæk andstaða sem komin virðist upp gagnvart stórum viðskiptasamningum, þá ekki síður gagnvart -TPP- er líkleg að leiða til þess, að allir slíkir samningar verði settir a.m.k. í frost!

En það getur verið eina leiðin, að fresta því að klára þá samninga formlega í nokkur ár í von þannig séð um betra árferði síðar meir!

Eða ella blasir við að sennilega þurfi að aflýsa þeim öllum með tölu sennilega á nk. ári.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 845414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband